Morgunblaðið - 15.05.2003, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
VIÐSKIPTI FJÁRMÁL FISKVEIÐAR
Jack Welcher er án efa
einn þekktasti og
áhrifamesti fyrirtækja-
stjórnandi síðari ára.
Fjárfestingafélagið
Kaldbakur er annað
stærsta fyrirtæki lands-
ins í fjárfestingum.
Norðmenn og Danir
nota sprengiefni við
veiðar til þess að fæla
fiskinn ofar í sjóinn.
SJÁLFSTRAUSTIÐ/4 AF KALDBAK/6 NOTA/9
KANADÍSKA sjávarútvegsfyrirtækið
Fishery Products International (FPI) hefur
gengið frá samningi við Íslandsbanka um
endurfjármögnun langtímalána fyrirtækis-
ins ásamt nýju fjárfestingarláni. Heildar-
fjárhæð lánsfjármögnunarinnar eru 79 millj-
ónir kanadadollara eða sem nemur um 4,2
milljörðum króna. Um 54 milljónum kanada-
dollara verður varið til endurfjármögnunar
á eldri lánum og 25 milljónum verður varið
til uppbyggingar á fiskvinnslu fyrirtækisins.
Með þessari lánveitingu og fyrri lánveitingu
til sjávarútvegsfyrirtæksins Clearwater er
Íslandsbanki orðinn stærsti einstaki lánveit-
andinn til sjávarútvegs í Kanada.
Fishery Product International er stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki á austurströnd Norð-
ur-Ameríku. Starfsemi fyrirtækisins spann-
ar allt frá veiðum til vinnslu og sölu sjávar-
afurða. Höfuðstöðvar FPI eru á Nýfundna-
landi, en fyrirtækið er með starfsemi víða í
Kanada og í Bandaríkjunum og söluskrif-
stofur víða um heim. Starfsmenn FPI eru
3.300 talsins og nam velta fyrirtækisins á
síðasta ári jafnvirði 40 milljarða króna.
Hlutabréf FPI eru skráð í Kauphöllinni í
Tórontó.
Mikilvægur áfangi
„Þessi samningur markar mikilvægan
áfanga í fjárhagslegri endurskipulagningu
FPI. Nýju lánsfé verður varið til þess að
styrkja fiskvinnsluhluta fyrirtækisins og
auka þannig samkeppnishæfni FPI. Við er-
um jafnframt ánægðir með að vera komnir í
viðskipti við Íslandsbanka, sem býr yfir mik-
illi sérþekkingu á fjármálaþjónustu við fisk-
iðnað,“ Derrick Rowe forstjóri.
„Samningurinn við FPI er Íslandsbanka
mikilvægur og styrkir stöðu bankans í þjón-
ustu við alþjóðlegan fiskiðnað. FPI er leið-
andi fyrirtæki í fiskiðnaði í Kanada og í
fremstu röð á heimsvísu. Undanfarin ár hef-
ur Íslandsbanki markvisst unnið að því að
byggja upp viðskiptasambönd sín í alþjóð-
legum fiskiðnaði. Samningur FPI við Ís-
landsbanka ber vitni um samkeppnishæfni
bankans og það orðspor sem hann hefur afl-
að sér á þessum markaði,“ segir Bjarni Ár-
mannsson, forstjóri Íslandsbanka, um lánið.
F J Ö G U R R A M I L L J A R Ð A L Á N
Íslandsbanki
lánar FPI
Bankinn orðinn stærsti einstaki
lánveitandinn til kanadíska
sjávarútvegsins
ÍSLAND er í níunda sæti af 29
á lista svissneska IMD við-
skiptaháskólans yfir samkeppnis-
hæfustu þjóðirnar sem hafa færri
en 20 milljónir íbúa. Á sama
mælikvarða lenti Ísland í ellefta
sæti árið 2002.
Háskólinn í Reykjavík sér um
gagnaöflun fyrir skýrsluna hér á
landi. Guðrún Mjöll Sigurðar-
dóttir, sérfræðingur við við-
skiptadeild HR, segir að skýrslan
byggi á gögnum sem aflað hafi
verið í mars og apríl. Hún segir að
skýrslan, og gögnin sem hún er
byggð á, nýtist t.a.m. stjórnmála-
mönnum, stofnunum og félögum,
samtökum atvinnulífsins og fyr-
irtækjum. „Hún er gott tæki til að
sjá hvar hömlur á samkeppnis-
hæfni Íslands miðað við aðrar
þjóðir eru mestar,“ segir hún.
Löndum skipt í tvo flokka
Löndum var nú í fyrsta skipti
skipt í tvo flokka; með yfir 20
milljónir íbúa og með færri en 20
milljónir íbúa. „Það er vegna þess
að samkeppnisumhverfið er mis-
munandi eftir stærð hagkerf-
anna. Almennt eru minni hag-
kerfi talin vera viðkvæmari en
þau stærri fyrir veikara efna-
hagsumhverfi,“ segir Guðrún
Mjöll.
Ísland er næstneðst af Norð-
urlöndunum á listanum, en aðeins
Noregur er með lakari einkunn.
„Þessi röðun segir ekki alla sög-
una. Sumir þættir eru illviðráð-
anlegir. Til dæmis er þjóðin smá,
en smæðin virkar sem takmörkun
á samkeppnishæfni þjóða í þess-
ari mælingu,“ segir Guðrún.
Smæðin hamlandi
Mælingin á samkeppnishæfni
skiptist í fjóra flokka. Í fyrsta lagi
var lagt mat á stöðu efnahagslífs-
ins, í 75 þáttum. Þar lenti Ísland í
26. sæti, samanborið við 17. sæti
árið áður. „Það hamlar íslenskri
samkeppnishæfni að Ísland er lít-
ið, en sumir af þessum 75 þáttum
hafa beint með stærð lands og
þjóðar að gera. Því er Ísland oft í
síðasta sæti, en við því er lítið að
gera,“ segir Guðrún.
Hið opinbera skilvirkt
Í öðru lagi var litið á skilvirkni
hins opinbera. Þar hækkaði Ís-
land úr 15. sæti upp í það sjöunda.
„Stjórnendur í atvinnulífinu segja
að skrifræði hindri ekki starfsemi
á markaði og að skattar hamli
ekki frumkvöðlastarfsemi. Þá er
almannatryggingakerfið talið
vera mjög sterkt,“ segir Guðrún.
Sveigjanleiki í viðskiptum
Í þriðja lagi var skilvirkni í við-
skiptum skoðuð, en þar var litið
til 69 þátta. Ísland lenti í þriðja
sæti hvað þennan flokk varðaði,
en því fjórða árið 2002. „Stjórn-
endur í atvinnulífinu telja að fólk
sé almennt sveigjanlegt og fljótt
að laga sig að nýjum aðstæðum í
hagkerfinu. Almennt eru Íslend-
ingar opnir fyrir nýjum hug-
myndum og gildismat þeirra
styður við samkeppni. Vegna
smæðar landsins hefur alþjóða-
væðing ekki haft slæm áhrif hér,“
segir hún.
Innviðir traustir
Í fjórða og síðasta lagi voru inn-
viðir efnahagslífsins skoðaðir, í 96
þáttum. Þar stökk Ísland upp í
fjórða sæti, upp úr því níunda.
„Íslendingar hafa verið fljótir að
tileinka sér nýjustu upplýsinga-
tækni. Menntun er ágæt og læsi
þjóðarinnar mikið. Þá hefur já-
kvæð áhrif á þennan þátt að raf-
orkukostnaður fyrir stóriðju er
lágur, mengun lítil og orkubú-
skapur góður. Aftur á móti hefur
markaðsstærðin hamlandi áhrif
og ekki er talið að nógu mikil
áhersla sé lögð á rannsókna- og
þróunarvinnu hér á landi, sem
endurspeglast í fáum umsóknum
um einkaleyfi og fáum útgefnum
vísindagreinum eftir Íslendinga,“
segir Guðrún Mjöll.
Samkeppnishæfni Ís-
lands eykst milli ára
Smæðin hamlar samkeppnishæfni. Sveigjanleiki í viðskiptum og hjá hinu opinbera.
!
!
" #
$
!
"
#$
% "& '
(
)
*
+,
-,
.,
/,
0,
1,
2,
+ ++,
+ + % &!
'(()
!
'(('
!
'((*
!
'(((
Miðopna: Af Kaldbak er útsýni til allra átta