Morgunblaðið - 15.05.2003, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR
!
"#$% &
FJÁRFESTING Baugs í bresku verslanakeðjunni ArcadiaGroup skilaði félaginu miklum hagnaði á síðasta rekstr-arári og er uppistaðan í 7.440 milljóna króna hagnaði fé-lagsins. Hagnaður Baugs ID, dótturfélags Baugs Group
sem heldur utan um eignir í félögum þar sem Baugur fer ekki með
daglegan rekstur, nam 8.979 milljónum króna á síðasta rekstr-
arári. Er sá hagnaður að mestu til kominn vegna sölu á hlut fé-
lagsins í Arcadia Group en söluhagnaðurinn nam um 7,4 millj-
örðum króna. Frá liðnu hausti hefur Baugur ID haldið áfram að
fjárfesta í Bretlandi, bæði í verslanakeðjum og fasteignafélagi.
Stefnumótun Baugs ID var samþykkt af stjórn Baugs Group í
lok febrúar 2003. Þar kemur fram að einkum er fjárfest í fyr-
irtækjum í smásölu, heildsölu og tengdum rekstri. Erlend fjár-
festing ID verður einkum á Bretlandi næstu árin og skiptist í tvo
meginflokka, annars vegar stefnumótandi og hins vegar sjóðs-
fjárfestingu.
Stefnumótandi fjárfesting fyrirtækisins á Bretlandi er í þremur
félögum um þessar mundir: Verslanakeðjan Big Food Group
(22,1%), verslanakeðjan Somerfield (2,97%), fasteignafélagið
LXB Group (11%). Í þessum félögum vill Baugur ID taka þátt í
mótun, auka arðsemi þeirra og einfalda rekstur í anda Bónuss á
Íslandi, að því er segir í stefnumótun Baugs ID.
Um síðustu helgi var því slegið upp í breskum fjölmiðlum að
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, gagnrýndi nýja stefnu
matvörukeðjunnar Iceland, sem er hluti af Big Food Group keðj-
unni. Sagði Jón Ásgeir keðjuna vera að færa sig til á markaðnum í
átt frá lágverðsendanum. Þetta segir Jón Ásgeir vera mistök.
Þessi gagnrýni Jóns Ásgeirs er eðli-
leg þegar litið er til stefnumótunar
Baugs ID, að þau félög sem fjárfest
er í séu rekin í anda Bónuss á Ís-
landi. Það vekur hins vegar alltaf at-
hygli þegar stærsti einstaki eigandi
fyrirtækis gagnrýnir rekstur þess og
hafa sérfræðingar á breskum mark-
aði velt því fyrir sér hvort Baugur
reyni að selja hlut sinn í Big Food
Group í kjölfarið.
Svonefndar sjóðsfjárfestingar Baugs ID miða að því að há-
marka arð af fjárfestingu án þess að hafa áhrif á stefnumótun.
Meðal þeirra teljast kaup Baugs ID á hlutabréfum í verslanakeðj-
unni House of Fraser, verslanakeðjunni Selfridges, Mothercare
og JJB Sport.
Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um yfirtökutilboð og hugsanleg yf-
irtökutilboð á breskum verslunarmarkaði. Þar hefur nafn skoska
athafnamannsins Toms Hunter oft verið nefnt en leiðir hans og
Baugs hafa oft legið saman í fjárfestingum. En nafn Toms Hunter
er ekki það eina sem iðulega ber á góma þegar rætt er um hugs-
anlegar yfirtökur. Því nafn Baugs kemur undantekningarlítið
einnig upp þegar vangaveltur breskra fjármálasérfræðinga rata
inn í fjölmiðlana. Með yfirtökutilraunum sínum á Arcadia Group
og þeim hagnaði sem skilaði sér til Baugs eftir að athafnamað-
urinn Philip Green keypti Arcadia hefur fyrirtækið vakið athygli
og það meiri athygli en íslensk fyrirtæki eiga að venjast í bresk-
um fjölmiðlum.
Síðastliðinn mánudag kom fram yfirtökutilboð í Selfridges sem
hljóðar upp á 392,25 pens á hlut. Hlutur Baugs í félaginu er um
0,5% og var sá hlutur keyptur á meðalverðinu um 233 pens á hlut.
Það má því ljóst vera að sú fjárfesting skilar Baugi góðum arði ef
tilboðið verður samþykkt af hluthöfum.
Á aðalfundi Baugs, sem haldinn verður í næstu viku, verður
lögð fram tillaga um heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár fé-
lagsins um 100 milljónir króna að nafnverði. Nota á nýtt hlutafé til
sameiningar eða kaupa á hlutum í öðrum félögum. Fróðlegt verð-
ur að fylgjast með því hvort sú heimild verður nýtt og þá til hvaða
fjárfestinga. Það má leiða líkur að því að breskur markaður verði
áfram undir fjárfestingarsmásjá Baugs enda hefur hann skilað fé-
laginu góðum arði hingað til.
Reuters
Innherji skrifar
Baugur og Bretland
Leiðir athafna-
mannsins Toms
Hunters og Baugs
hafa oft legið sam-
an á undanförnum
misserum
innherji@mbl.is
ll VIÐSKIPTI
● GENGIÐ hefur verið frá samningi EJS og
Impregilo SpA um kaup á tölvubúnaði og
uppbyggingu netkerfa fyrir starfsemi Impr-
egilo á Íslandi. Mun EJS útvega Impregilo
Dell-einkatölvur, Dell-netþjóna og annan
tölvubúnað sem fyrirtækið þarf á að halda. Í
fréttatilkynningu kemur fram að EJS mun
einnig sjá alfarið um uppsetningu og rekstur
tölvukerfis Impregilo á Íslandi. Vinna við
verkefnið er þegar hafin og komin vel á veg.
Hafa tæknimenn EJS sett upp netkerfi á
starfsstöðvum Impregilo á höfuðborg-
arsvæðinu, á Egilsstöðum og við Kára-
hnjúka, en þar munu þjónustumenn EJS
hafa fasta viðveru á framkvæmdatímanum.
Þá hefur víðnetstengingum við höfuðstöðvar
Impregilo á Ítalíu verið komið á, í starfs-
stöðvunum hérlendis.
Impregilo semur við EJS
● OG Vodafone og Maritech skrifuðu undir
nýjan samstarfssamning í kjölfar samein-
ingar Íslandssíma, Tals
og Halló undir merkjum
Og Vodafone. Samning-
urinn felur í sér að Mari-
tech mun verða aðalþjón-
ustuaðili fyrirtækisins á
MBS-Navision kerfum Og
Vodafone. Maritech mun
í samvinnu við Og Vodafone annast samein-
ingu á MBS-Navision kerfum ásamt innleið-
ingu á nýjum kerfum sem tekin verða upp í
kjölfarið.
Og Vodafone
og Maritech í samstarf
◆
◆
◆
● FLUGLEIÐIR Fragt hafa ákveðið að breyta
þjónustu við viðskiptavini sína og loka vöru-
og skjalaafgreiðslu sinni á Héðinsgötu 1–3
frá 1. maí. Félgið hefur gert samkomulag við
TVG-Zimsen um að halda þessari þjónustu
áfram fyrir hönd Flugleiða Fragtar tímabund-
ið.
Frá og með 1. maí sér TVG-Zimsen um
flugafgreiðslu Flugleiða Fragtar á Héðins-
götu 1–3. Starfsmenn TVG-Zimsen munu af-
henda farmbréf, taka við greiðslu og sjá um
tollafgreiðslu og heimakstur ef með þarf. Í
fréttatilkynningu kemur fram að ekki verður
um neina breytingu að ræða á ferli sendinga
á vegum TVG-Zimsen og óverulega breytingu
á þjónustu við viðskiptavini Flugleiða Fragt-
ar.
Flugvara áfram
afgreidd á Héðinsgötu
● EFTIR að framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins setti í ársbyrjun strangar
hömlur á veiði botnfisks hefur verðmæti
landaðs botn-
fisks í Pet-
erhead í
Skotlandi
minnkað um
rúmlega eina
milljón punda
(um 119 millj-
ónir ISK) þrátt fyrir aukningu afla. Í Pet-
erhead er miðstöð botnfisksveiða í Evr-
ópu.
Skoska dagblaðið The Scotsman hefur
eftir talsmanni hafnarstjórnar Peterhead
að fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafi botn-
fisksafli verið 9.650 tonn að verðmæti
8,86 milljónir punda. Á sama tíma í fyrra
var aflinn 9.205 tonn að verðmæti 9,9
milljónir punda. Þrátt fyrir kvótann jókst
aflinn um 5% milli tímabilanna en verð-
mæti hans minnkaði um 15%. Má þakka
hagstæðri veðráttu að mestu aukinn afla.
Verðmæti alls landaðs afla í Peterhead
fyrstu þrjá mánuði ársins, 35.236 tonn,
var rúmar tuttugu og tvær milljónir punda.
Á sama tíma í fyrra var verðmæti 31.003
t heildarafla rétt rúmar tuttugu milljónir.
Aflaverðmæti botnfisks
minnkar í Skotlandi
HAGNAÐUR samstæðu
Landssíma Íslands hf. fyrstu
þrjá mánuði ársins 2003 var
rúmar 586 milljónir króna. Í
fréttatilkynningu frá félaginu
segir að allir helstu liðir upp-
gjörsins séu í samræmi við áætl-
anir.
Hagnaður samstæðunnar fyr-
ir sama tímabil í fyrra var 510
milljónir króna. Rekstrartekjur
aukast um 70 milljónir en gjöld
dragast saman um 124 milljónir
króna ef borið er saman sama
tímabil árið 2002. Arðsemi eig-
infjár eykst á milli ára úr 13,8% í
14,6%.
Rekstrarhagnaður samstæð-
unnar fyrir afskriftir (EBITDA)
er 1.746 milljónir króna saman-
borið við 1.552 milljónir fyrir
sama tímabil fyrra árs eða tæp
40%. Rekstrartekjur samstæð-
unnar á tímabilinu voru 4.409
milljónir samanborið við 4.339
milljónir á sama tímabili árinu
áður. Rekstrargjöld drógust
saman úr 2.787 milljónum króna
í 2.663 milljónir eða um 124
milljónir króna. Rekstrarhagn-
aður móðurfélagsins fyrir af-
skriftir (EBITDA) var 1.746
milljónir króna á tímabilinu eða
39,6%. Veltufé frá rekstri var
1.627 milljónir og handbært fé í
lok mars var 5.017 milljónir.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að fjárfestingar samstæð-
unnar í varanlegum rekstrar-
fjármunum námu 722 milljónum
króna á tímabilinu.
Einnig segir að framtíðar-
horfur í rekstri Símans séu góð-
ar og tekið er fram að tekjur
aukist lítillega þrátt fyrir harðn-
andi samkeppni.
Hagnaður Lands-
símans 586 milljónir
ll SJÁVARÚTVEGUR
◆
VELTA ÍT-ferða jókst úr 40 milljónum á árinu 2001 í 112
milljónir króna á síðasta ári. Tap af rekstri fyrirtækisins
nam 2,5 milljónum króna. Ferðaskrifstofan ÍT-ferðir er til
húsa í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og sérhæfir sig í
íþróttatengdri ferðaþjónustu, segir í tilkynningu frá ÍT-
ferðum.
„Það má segja að fyrirtækið hafi stækkað um 100-150%
bæði hvað varðar starfsmenn og húsnæði, en starfsmönnum
hefur fjölgað úr tveimur í fimm á milli ára. Markmiðið er að
vinna í því að bæta afkomuna þannig að starfsemin skili því
sem að er stefnt og framlegðin verði viðunandi. Fjárhags-
áætlun gerir ráð fyrir 150 milljóna króna veltu og að fram-
legð verði 10 prósent,“ segir Hörður Hilmarsson fram-
kvæmdastjóri og eigandi ÍT-ferða.
Að sögn Harðar skýrist tapið af stórauknum kostnaði
vegna stækkunar húsnæðis og fjölgunar starfsmanna. Veltu-
aukning hafi verið mest í utanlandsferðum á vegum ÍT-
ferða, en ÍT-ferðir, eða IT Travel eins og fyrirtækið heitir á
ensku, hafi mestan áhuga á að vinna að uppsetningu al-
þjóðlegra íþróttaviðburða á Íslandi og að markaðssetja Ís-
land sem valkost fyrir erlenda íþróttahópa.
Meðal viðburða á vegum ÍT-ferða er stórmót í íshokkí,
„Iceland Invitational,“ í nóvember. Á mótið hafa boðað komu
sína 8-10 bandarísk íshokkílið. Hörður segir fleiri viðburði í
vinnslu, „enda möguleikarnir miklir hér á landi á sviði
íþróttatengdrar ferðaþjónustu.“ Hann segir að skilyrði þess
að marktækur árangur náist sé aukinn skilningur yfirvalda
og gott samstarf þriggja aðila um hvern viðburð, þ.e.
íþróttafélags, sveitarfélags og sérhæfðrar ferðaskrifstofu.
Aukin velta hjá ÍT-ferðum
HAGNAÐUR Austurbakka
hf. á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs eftir skatta nam um 44
milljónum króna. Á sama tíma-
bili árið áður var hagnaðurinn 7
milljónir. Rekstrartekjur fé-
lagsins lækkuðu um tæp 4%
milli ára og voru 530 milljónir í
ár en 551 milljón í fyrra. Rekstr-
argjöld lækkuðu hins vegar um
69 milljónir milli ára, voru um
490 milljónir í ár en um 549
milljónir á síðasta ári.
Rekstrarhagnaður Austur-
bakka án afskrifta var tæpar 40
milljónir króna en liðlega tvær
milljónir á sama tímabili í fyrra.
Afskriftir voru tæpar 6 milljón-
ir, um 600 þúsund krónum hærri
en í fyrra, og fjármagnstekjur
tæpar 14 milljónir en rúmar 10
milljónir á síðasta ári. Veltufé
frá rekstri fyrstu þrjá mánuði
2003 er jákvætt um 48 milljónir
og eiginfjárhlutfall hækkar frá
áramótum úr 19,2% í 22,2% og
veltufjárhlutfall hækkar úr 1,31
í 1,37.
Í tilkynningu frá Austur-
bakka segir að stjórn félagsins
sé ánægð með afkomu félagsins
á fyrsta ársfjórðungi 2003. Það
séu einkanlega tvær forsendur
sem skila þeim árangri sem
náðst hefur, annars vegar sé enn
að skila sér innistæða í gengis-
hagnaði og hins vegar skili vöru-
stjórnunarátak, sem hófst árið
2001, góðum árangri. Stjórnin
gerir ekki ráð fyrir frekari
gengishagnaði á síðari tímabil-
um ársins en haldið verður
áfram á sömu braut í vöru-
stjórnun.
Austurbakki hagnast
um 44 milljónir