Morgunblaðið - 16.05.2003, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 6 . M A Í 2 0 0 3 B L A Ð B
Í ÞVERÞJÓÐLEGU AMSTRI DAGSINS – HVERSDAGSLÍFIÐ HÉR OG
ÞAR/2 LÍFIÐ ER TÖFRUM GÆTT/4 AUÐLESIÐ EFNI/8
NÚ ER komið í tísku aðprjóna. Þetta er hermt ífréttum frá útlöndum þar
sem Hollywood-stjörnur eru sagðar
flíka hálfprjónuðum flíkum við
hvert tækifæri. Og hann er ekkert
smáræði, listinn yfir þær stjörnur
sem afhjúpað hafa einlægan prjóna-
áhuga; Julia Roberts, Hilary Swank,
Cameron Diaz, Winona Ryder, Ma-
donna, Daryl Hannah, Kate Moss.
Og ennfremur ... holdtekja karl-
mennskunnar, sjálfur skylm-
ingaþrællinn Russel Crowe!
Frá þessu er greint í á breska vef-
miðlinum Telegraph þar sem fullyrt
er að prjón sé hið nýja rokk og ról
heimilanna. Sögð er saga af Goldie
Hawn, sem greip til prjónanna eftir
harmleikinn 11. september og bjó til
bandaríska fánann úr hvítu, rauðu
og bláu garni. „Ég var að reyna að
prjóna Ameríku aftur saman,“ er
haft eftir leikkonunni.
Skýringin á vinsældum prjóna-
skapsins er m.a. rakin til þess
hversu góður streitubani hann þyk-
ir vera – eins konar sambland íhug-
unar og sköpunar. „Þetta er hið
nýja jóga í Bandaríkjunum,“ stað-
hæfir David Rawson, markaðsstjóri
einnar stærstu spunaverskmiðju
Bretlands, Sirdar, sem segir vin-
sældir prjóns einnig vaxandi í Bret-
landi eftir lægð 9. og 10. áratug-
arins. Því til stuðnings eru nefndar
prjónasamkomur sem á dagskrá
hafa verið að undanförnu allt frá
Halifax til Jórvíkur. „Aðsóknin kom
mjög á óvart. Allt fylltist út úr dyr-
um og þegar tónlistin dó út var
klirrið í prjónum fólksins eins og
engisprettusinfónía,“ sagði hvata-
maðurinn Simon Thackray.
Þá er greint frá óvæntum vin-
sældum prjóns meðal breskra barna
og unglinga. Elizabeth Newson,
prófessor í þróunarsálfræði við
Nottingham-háskóla, hefur þær
skýringar á áhuganum að unglings-
stúlkum sé eðlislægt að vilja hanna
sína eigin veröld með því að velja
sér föt, tónlist og tískustrauma.
Prjónaskapurinn sé framhald af
þeirri sjálfsleit, þar fái stúlkurnar
tækifæri til þess að velja liti og
mynstur og tjá þannig sinn eigin
stíl.
Það kann að koma á óvart að
„gamaldags“ dægradvöl á borð við
prjón eigi möguleika í samkeppn-
inni við tæknivædda afþreyingu
samtímans. Á tímum tölvuleikja,
geislaspilara og tónlistarmynd-
banda er útbreidd skoðun að athygl-
isþol unglinga sé á hverfanda hveli.
Tafarlaus ánægja verði að vera
tryggð – annað selji ekki. En vin-
sældir prjóns gefa vísbendingar um
að börn og unglingar kunni og vilji
enn einbeita sér að tómstundum
sem reyna á hugsun, hönd og út-
hald. Doktor William Davies, stjórn-
andi Samtaka um sálræna meðferð í
Leicester, bendir á að með prjóna í
hönd séu börnin sjálf við stjórnvöl-
inn, sem veiti þeim ákveðna örygg-
istilfinningu. „Flestar manneskjur
vilja ná valdi yfir einhverju – og ull
veitir enga mótspyrnu,“ er haft eftir
Davies. Hann bendir einnig á að
prjónið hjálpi fólki að horfa til fram-
tíðar, það þjálfist skipulega í að
raungera hugmyndir sínar. Þetta sé
mikilvægt og nýtist án efa á ýmsum
öðrum sviðum.
Ýmislegt á prjónun-
Morgunblaðið/Sverrir
Á þessum prjónum er trefill úr Regia-ullargarni sem er þeim eiginleikum
gætt að það mynstrar sig sjálft. Þráðurinn skiptir litum með vissu millibili
og nýtur vaxandi vinsælda hérlendis um þessar mundir.
og
hjá
stjörnum
og
börnum
Julia Roberts Russell Crowe Cameron Diaz
SLÉTT
BRUGÐIÐ