Morgunblaðið - 17.05.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
YFIRTAKA HLUTAFÉ
Innan fjögurra vikna mun Mund-
ur ehf. gera yfirtökutilboð í 61,16%
hlutafjár í Baugi Group hf. Mun fé-
lagið, sem er í eigu fimm aðila og
fyrirtækja, bjóðast til að kaupa
hlutabréf annarra hluthafa á geng-
inu 10,85. Hyggst félagið afskrá
Baug Group úr Kauphöll Íslands.
Ekkert „Frelsi“
Og Vodafone er samkvæmt lög-
banni ekki heimilt að nota vöru-
merkið „Frelsi“ í tengslum við fjar-
skiptaþjónustu sína. Fékk Síminn í
gær lögbann á notkun orðsins sem
fyrirtækið hefur fengið sem skráð
vörumerki. Og Vodafone ætlar að
bjóða „Málfrelsi“ í stað Frelsis en
segist ósátt við lögbannið og ætlar
að fá úrskurði sýslumanns hnekkt.
Hafna beiðni F-lista
Landskjörstjórn féllst ekki á
beiðni Frjálslynda flokksins um að
hún frestaði úthlutun þingsæta á
grundvelli kosningaúrslita nýliðinna
alþingiskosninga. Frjálslyndir höfðu
farið fram á endurtalningu allra at-
kvæða af öryggisástæðum. Lands-
kjörstjórn samþykkti á fundi sínum
í gær að í næstu kosningum skyldu
níu þingsæti vera í Norðvesturkjör-
dæmi en tólf í Suðvesturkjördæmi.
Þar með færist eitt þingsæti frá
þess fyrrnefnda til þess síðarnefnda.
Viðvaranir um hryðjuverk
Vestræn stjórnvöld vöruðu í gær
við því að hryðjuverk kynnu að vera
yfirvofandi í ríkjum í Austur-Afríku,
Suðaustur-Asíu og Mið-Austurlönd-
um. Vesturlandabúum sem dvelja í
löndunum, meðal annars Kenýa,
Malasíu og Sádi-Arabíu, var ráðlagt
að vera á varðbergi vegna hættu á
árásum hryðjuverkamanna.
Viðskiptabanni verði aflétt
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, og Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sendu
í gær frá sér sameiginlega áskorun
um að viðskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna á Írak yrði aflétt sem
fyrst. Þótti yfirlýsingin benda til
þess að samskipti bandarískra og
þýskra stjórnvalda væru að batna
eftir harkalegar deilur um stríðið í
Írak.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 40
Viðskipti 12/18 Minningar 40/51
Erlent 18/24 Umræðan 52/53
Höfuðborgin 26 Kirkjustarf 54/55
Akureyri 27 Myndasögur 58
Suðurnes 28 Bréf 58/59
Landið 28 Dagbók 60/61
Árborg 29 Sport 62/63
Úr vesturheimi 30 Leikhús 64
Neytendur 31 Fólk 64/69
Heilsa 32 Bíó 66/69
Listir 33/35 Ljósvakamiðlar 70
Forystugrein 36 Veður 71
* * *
KONAN sem lést á fimmtudag eftir
tveggja daga sjúkrahúslegu eftir að
hún féll af hestbaki á Lögmannshlíð-
arvegi norðan Akureyrar sl. þriðju-
dag, hét Guðrún Margrét Hallgríms-
dóttir, til heimilis að Langholti 14 á
Akureyri. Hún var fædd 27. maí árið
1948 og lætur eftir sig sambýlismann
og þrjár uppkomnar dætur.
Lést eftir fall
af hestbaki
FORSVARSMENN Sjónvarpsins og
Símans afhentu í gær fulltrúa
Barnaspítala Hringsins 2,8 milljón-
ir króna sem söfnuðust í símakosn-
ingu Söngvakeppni Sjónvarpsins
15. febrúar sl. Hvert símtal í síma-
kosningunni kostaði 100 kr. og
runnu 40 kr. til söfnunarinnar. Þá
hefur jafnframt verið ákveðið að af-
henda Barnaspítalanum fé sem
safnast í símakosningu hérlendis í
Evróvisjón-keppninni í Lettlandi
24. maí nk.
Söfnunarféð sem afhent var í gær
verður notað til að bæta við tækja-
búnað spítalans. Ásgeir Haraldsson
yfirlæknir upplýsti að féð yrði not-
að til kaupa á tækjum á gjörgæslu
fyrir börn og unglinga. Keypt verð-
ur fullkomin öndunarvél, hitaborð
auk fleiri lífsnauðsynlegra tækja.
Birgitta Haukdal, fulltrúi Íslands
í söngvakeppninni, og meðlimir í
hljómsveitinni Írafári árituðu vegg-
spjöld með hljómsveitinni af þessu
tilefni við mikla hrifningu yngstu
gestanna.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Birgitta Haukdal söngkona áritaði veggspjöld með hljómsveitinni Írafári fyrir yngsta fólkið á barnaspítalanum í gær.
Barnaspítali Hringsins
fær 2,8 milljónir að gjöf
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í
gærkvöldi mann um tvítugt sem er
grunaður um að hafa framið vopnað
rán í Sparisjóði Kópavogs rétt eftir
opnun í gærmorgun. Var maðurinn
handtekinn eftir ábendingum sem
bárust lögreglu er myndir úr eftir-
litsmyndavélum sparisjóðsins af rán-
inu voru sýndar í sjónvarpsfréttum í
gærkvöldi. Hinn handtekni hefur lít-
ið komið við sögu lögreglu áður. Að
sögn lögreglunnar í Kópavogi eru yf-
irheyrslur á byrjunarstigi og því
ekki unnt að veita frekari upplýsing-
ar að svo stöddu.
Maðurinn var vopnaður búrhníf
við ránið og fór rakleitt að mann-
lausri gjaldkerastúku, opnaði þar
peningaskúffu og tók tæplega eina
milljón króna samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Ræninginn hafði
búrhnífinn á lofti er hann kom inn í
bankann en hvorki otaði honum að
neinum né ógnaði.
Kona sem vinnur í fyrirtæki
skammt frá sparisjóðnum sagði lög-
reglu frá því, að þegar hún var að
koma til vinnu um kl. 9.15 í gær-
morgun, hefði hún séð mann koma
hlaupandi á harðaspretti. Var hann
með bakpoka meðferðis og grímu-
laus.
Fengu áfallahjálp
Starfsfólki sparisjóðsins var nokk-
uð brugðið við atvikið og kallaði lög-
regla eftir presti sem veitti fólkinu
áfallahjálp. Var sparisjóðnum lokað
það sem eftir lifði dags.
Tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík annaðist tæknivinnu á
vettvangi og var Hlíðasmára lokað
fyrir umferð til kl. ellefu.
Er þetta annað vopnaða banka-
ránið sem framið er á sex vikum.
Hinn 1. apríl réðist ungur maður inn
í Sparisjóð Hafnarfjarðar en var
handsamaður nokkrum dögum síðar.
Maður handtekinn
grunaður um rán í SPK
Morgunblaðið/RAX
Lögreglan í Kópavogi annast rannsókn á ráninu í sparisjóðnum og fékk
menn frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík til aðstoðar.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR og
Framsóknarflokkur héldu áfram
stjórnarmyndunarviðræðum í gær.
Að sögn Björns Inga Hrafnssonar,
skrifstofustjóra Framsóknarflokks-
ins, er undirbúningur enn í gangi.
Viðræður halda áfram um helgina.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að vinna vegna
stjórnarmyndunarviðræðna Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins, gengi samkvæmt áætlun.
„Þetta gengur allt með eðlilegum
hætti,“ sagði hann. „Við viljum reyna
að fá sem besta yfirsýn yfir stöð-
una,“ sagði Halldór. Inntur eftir því
hvenær línur gætu farið að skýrast
sagði hann að hann teldi að það gæti
orðið í næstu viku. „Ég tel að þetta
skýrist í næstu viku, þ.e. hvort þetta
gengur allt hjá okkur.“
Stjórnarmynd-
un skýrist
í næstu viku
LÍTILLI flugvél af gerðinni Cessna
152, með flugmann og farþega innan-
borðs, hlekktist á í lendingu og
hvolfdi á flugvellinum í Stykkishólmi
um hádegið í gær. Flugvélin ber ein-
kennisstafina TF-FTL og er í eigu
Flugskóla Íslands.
Flugstjórinn hafði tekið vélina á
leigu og var á ferð ásamt konu sinni.
Þau sluppu mjög vel frá slysinu og
eru marin en óbrotin.
Flugvélin fór frá Reykjavík klukk-
an 10.51 í gærmorgun og hugðist
flugmaðurinn fljúga til Stykkishólms
og Rifs. Lögreglu og rannsóknar-
nefnd flugslysa var þegar tilkynnt um
málið og fer RNF með rannsókn
slyssins.
Flugslysanefnd kom til Stykkis-
hólms í kjölfar óhappsins og kannaði
aðstæður á flugvellinum. Vettvangs-
rannsókn var langt komin í gærkvöldi
og var stefnt að því að flytja flugvél-
ina til rannsóknar að henni lokinni.
Hlekktist á
í lendingu
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Flugmaður og farþegi Cessna-vélarinnar sluppu frá slysinu með mar.
BORIÐ hefur á því að undanförnu að
hringt sé í fólk og því boðinn geisla-
diskur í nafni Hjartaverndar. Hafa
samtökin óskað eftir að því verði
komið á framfæri að Hjartavernd sé
hvorki að selja geisladiska né annan
varning um þessar mundir.
Eru ekki að selja
geisladiska
♦ ♦ ♦
L a u g a r d a g u r
17.
m a í ˜ 2 0 0 3