Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 19 ára stjórnarforystu okkar tengist að hluta til því forgangsverkefni að tryggja áfram ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðis er okkur hollt að horfa í eigin barm og spyrja hvort allir frambjóðendur og for- ystumenn okkar hafi náð að geisla sjálf- stæðisstefnunni til kjósenda. Við vitum að svo var ekki. Í prófkjörum komandi ára þurfa stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins að hugleiða betur hvernig þeir tryggja fólk til forystu sem hefur þekkingu, drif- kraft og, ekki síst, nær að höfða til kjós- enda sem einstaklingar. Sérhver forystu- maður verður að standast þær kröfur. Sá sem hefur þekkinguna og dugnaðinn en skortir rétta útgeislun til kjósandans á að þekkja sinn stað. Ef hann skilur það ekki sjálfur þarf að hjálpa honum til að gera það. Ef hann hlustar ekki þarf að færa hann úr forstuhlutverki í prófkjöri. Ég hef fulla trú á því þingliði Sjálfstæð- isflokksins sem nú var kjörið, að þing- menn skilji að mest er um vert að sjálf- stæðisstefnan festi enn sterkari rætur í samfélagi okkar í gegnum öfluga stjórn- arforystu. Ég trúi því að þetta kjörtímabil verði því undirbúningur talsverðra breyt- inga á mannvali og forystuhlutverkum til að styrkja stöðu okkar í næstu kosningum og til framtíðar. mikilvægt verkefni fyrir næstu gar. Ég kvíði því ekki, því ég sé nú rábærlega hæfar ungar konur, rfa að sækja inn á þing fyrir Sjálf- lokkinn í næstu kosningum. Við að koma þeim þangað. sti jafnréttissigur í sögu þjóð- r tengist breyttum fæðingarorlofs- og feðraorlofi. Þegar uppstokkun í ríkisstjórn er mikilvægt að sýna ess í verki. Brjóstagjöf úr ráð- óli á ekki að verða tiltökumál. rlofið verði virkjað. ð þekkja sinn vitjunartíma ég hafi lýst því í upphafi þessarar r að minnkandi kjörfylgi eftir tólf óðaskipta? Höfundur er bæjarstjóri í Reykjanesbæ. tærsti jafnréttissigur gu þjóðarinnar teng- reyttum fæðingar- fslögum og feðraor- Þegar uppstokkun ur í ríkisstjórn er lvægt að sýna áhrif í verki. ‘ STEFÁN Már Stefánsson, lagapró- fessor við Háskóla Íslands, og Óttar Pálsson, héraðsdómslögmaður, blésu til fundar miðvikudaginn 23. apríl sl. og kynntu niðurstöður á rannsókn sem þeir hafa stundað á sjáv- arútvegsstefnu ESB. Nú vill svo til að undirritaður hefur rannsakað þennan málaflokk og nálgast við- fangsefnið á svipaðan hátt, þ.e. skoð- að tilurð og þróun sjávarútvegsstefn- unnar, aðildarsamning Noregs frá 1994 og metið hugsanlega stöðu Ís- lands í kjölfarið. Rannsóknin kom fyrir rúmu ári út á bók sem ber heitið „Gert út frá Brussel?“ Í hnotskurn er niðurstaða Stefáns Más og Óttars sú að það sé útilokað fyrir Íslendinga að ná viðunandi nið- urstöðu um sjávarútvegsmál í aðild- arviðræðum. Þetta kemur mér mjög á óvart og er algjörlega í mótsögn við mína niðurstöðu. Þeir félagar taka að vísu fram að aðferðafræði þeirra sé fyrst og fremst lögfræðileg. Mín rannsókn byggist hins vegar á for- sendum stjórnmálafræðinnar og kann að vera að það sé að einhverju leyti skýringin á ólíkum nið- urstöðum. Takmörk lögfræðinnar eða pólitískur ásetningur? Í máli þeirra kom skýrt fram að lagalega séð væri ekkert því til fyr- irstöðu að semja um sérlausnir í að- ildarviðræðum ef pólitískur vilji væri fyrir hendi. Slík ákvæði yrðu þá fest í aðildarsamningi og hefðu stöðu frumréttar í Evrópurétti. Jafnframt slógu þeir þann varnagla að ýmsum pólitískum álitamálum væri ósvarað í rannsókninni. Þessi varnagli er mjög athyglisverður. Þeir viðurkenna – og undirstrika – að hér sé fyrst og fremst um pólitískt úrlausnarefni að ræða. Aðildarviðræður snúist fyrst og fremst um pólitískan vilja. Í máli þeirra kom auk þess fram að það væri alfarið í höndum okkar Íslend- inga að stjórna veiðum á okkar ríkja- kvóta; með óbreyttu kvótakerfi, veiðileyfagjaldi eða sóknarstýringu. Hlutdeild okkar yrði síðan byggð á veiðireynslu í samræmi við hlutfalls- legan stöðugleika. Samt sem áður fullyrða lögspekingarnir að það sé hafið yfir allan vafa að ESB-aðild myndi hafa í för með sér grundvall- arbreytingu á íslenskum sjávar- útvegi! Þeir fullyrða að „bandalagið“ gæti breytt forsendum okkur í óhag nánast á einni nóttu án þess að við gætum svo mikið sem lyft litla fingri! Það er athyglisvert að prófessor við Háskóla Íslands, sem lagt hefur stund á Evrópurannsóknir í áraraðir, skuli gefa sterklega í skyn að vinnu- aðferðir ESB gagnvart einstökum aðildarríkjum séu með þessum hætti. Að „bandalagið“ sé líklegt til að taka ákvörðun þvert á vilja aðildarríkis í máli sem snertir grundvallarhags- muni þess og geti sett efnahag við- komandi ríkis í uppnám. Það hvarflar að manni að lögfræðin ráði hreinlega ekki við spurninguna sem velt er upp eða að hér sé um hreina og klára póli- tíska afstöðu að ræða og leiðir hug- ann að því að Stefán Már hefur ekki legið á því að verkið var styrkt af for- sætisráðuneytinu! Breytingar á hlutfallslega stöðugleikanum Aðildarsamningur ríkis er klárlega viðauki við sáttmála sambandsins og hefur sömu réttarstöðu. Allar breyt- ingar og viðbætur við slíkan aðild- arsamning þurfa að fá sömu máls- meðferð og breytingar og viðaukar á grunnsáttmála sambandsins og allar aðildarþjóðir þurfa að staðfesta slík- ar breytingar. Það er hins vegar lög- fræðilegt deiluefni hvort breytingar á hlutfallslega stöðugleikanum þarfnist sömu málsmeðferðar. Eitt er þó víst að ef breyta á ákvæðinu um hlutfallslegan stöðugleika, með auknum meirihluta atkvæða í ráð- herraráðinu, þarf að koma tillaga þess efnis frá framkvæmdastjórninni og slíka tillögu þyrfti að rökstyðja sérstaklega – ekki síst ef ganga ætti á hlut eins ríkis. Engin áform eru uppi um að breyta eða afnema hlut- fallslega stöðugleikann – ef það stæði til þyrfti að semja á ný um alla kvóta. Hér er um gríðarlega erfitt ferli að ræða og afar ólíklegt verður að telj- ast að nokkur þjóð sjái sér hag í að ógna þeim stöðugleika sem tók 13 ár að ná sátt um. Slík uppákoma, þar sem markmiðið yrði að ganga á hlut þjóða sem mikið eiga undir sjávar- útvegi, yrði án efa kveikja að gíf- urlega flóknu og erfiðu ferli sem gæti haft alvarleg áhrif á aðra þætti sam- starfsins innan ESB. Þessi umræða einkennist því af hinu fræðilega sem dregið er fram á kostnað hins raun- sanna. Stefán Már og Óttar fullyrða að ESB færi fram með kröfur um afla- heimildir og aðgang að íslenskri lög- sögu í aðildarviðræðum. Þessu til rökstuðnings benda þeir á að slíkar kröfur hafi alltaf komið fram þegar Íslendingar hafa setið andspænis ESB við samningaborðið. Fram kom í máli þeirra að slíkar kröfur væru uppi á borðinu í þeim viðræðum sem nú standa yfir um aðlögun EES- samningsins. Það er að vísu rangt. Engar slíkar kröfur hafa verið settar fram í þeim viðræðum. Slíkar kröfur hafa hins vegar komið fram. ESB hefur aftur á móti ekki riðið feitum hesti frá þeirri glímu og einhverra hluta vegna kom það ekki fram í fyr- irlestri þeirra félaga. Í EES-ferlinu á sínum tíma féll ESB frá öllum kröf- um um veiðiheimildir í íslenskri lög- sögu í skiptum fyrir aðgang að mörk- uðum og staðfesti „gífurlegt mikilvægi fiskveiða fyrir Ísland“ og viðurkennir að sjávarútvegur sé „grundvöllur efnahagsstarfsem- innar“. Engin ástæða er til að ætla að sambandið snúi við blaðinu hvað þetta varðar ef til aðildarviðræðna kæmi. Norðmenn þurftu ekki að greiða aðgangseyri að sambandinu með því að láta af hendi aflaheim- ildir. Sú aflareynsla sem fyrir var áð- ur en aðildarviðræður hófust lá til grundvallar þeim hlutfallslega stöð- ugleika sem samið var um. Á blaðamannafundi, sem haldinn var í tilefni heimsóknar Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra til Parísar og Brussel í aprílmánuði 2001, sagði Romano Prodi, forseti framkvæmda- stjórnar ESB, aðspurður út í sjáv- arútvegsstefnuna og hugsanlega að- ild Íslands að sambandinu, að vissulega væri hægt að semja um allt. Þrátt fyrir að Romano Prodi sé örugglega ekki sérfróður um málefni sjávarútvegsins er svarið athygl- isvert. Hér verður því ekki haldið fram að aðildarviðræður yrðu ein- hver dans á rósum fyrir samn- inganefnd Íslands. Það er alveg ljóst að Íslendingar þyrftu á öllu sínu að halda í glímunni við samninganefnd framkvæmdastjórnarinnar. Jafn- framt er augljóst að fullyrðingar í þá veru að það sé ekki um neitt að semja – sjávarútvegsstefna ESB útiloki svo mikið sem hugsanlegar aðild- arviðræður – standast ekki gagnrýna skoðun. Það er hægt að semja um allt. Það er hins vegar ekki hægt að svara pólitískri spurningu – á jafn af- dráttarlausan hátt og Stefán Már og Óttar gera – með þröngri lagalegri nálgun. Óttafull sjávarútvegs- sýn Stefáns Más! Eftir Úlfar Hauksson Höfundur er stjórnmálafræðingur. ’ Það hvarflar aðmanni að lögfræðin ráði hreinlega ekki við spurninguna sem velt er upp eða að hér sé um hreina og klára pólitíska af- stöðu að ræða. ‘ við aðild hér á landi kemur úr öllum áttum. En það liggur líka alveg fyrir að það eru öfl hér á landi, m.a. í fjölmiðlum (ekki síst innan ríkisfjölmiðlanna), meðal forystumanna launþega, meðal einstakra forystumanna at- vinnurekenda og innan háskólanna sem telja að Ísland eigi að gerast aðili að Evrópusam- bandinu. Samstarf Íslendinga við þjóðirnar í Evr- ópusambandinu byggist að töluverðu leyti á EES-samningnum og nær öruggt þykir að gengið verði frá aðlögun hans að stækkuðu Evrópusambandi mjög fljótlega. Þessi sam- starfsvettvangur er síður en svo gallalaus og það bíður okkar mikið verkefni á næstu ár- um við að reyna að sníða af gallana. Stríðandi öfl geta alveg haldið áfram að rökræða og karpa um aðild að Evrópusam- bandinu. Það mun bara ekki hagga því í bráð að Ísland standi utan sambandsins og að samstarfið við þjóðirnar innan þess byggist á EES-samningnum. Á þeim vettvangi eru mörg flókin verkefni sem Íslendingar þurfa að glíma við. Enginn vafi er á því í mínum huga að okkur Íslendingum myndi farnast betur á næstu árum ef við sameinuðumst um að leysa þessi verkefni í stað þess að eyða orkunni í eitthvað sem er ekki á dagskrá. a ákvörðun um að sækja um aðild að tur hin sama ríkisstjórn eða meiri- þessari ástæðu ekki fyrirfram tryggt grundvöllur verði til staðar til þess að möguleg. Ræðst það af niðurstöðum osninga sem nauðsynlegt er að halda breyting á stjórnarskrá tekur gildi. u verður einnig ráðið mikilvægi þess eiðri pólitískri samstöðu um málið.“ narskránni var ekki breytt á Alþingi sningarnar í vor. Það yrði því fyrst sningar 2007 sem möguleiki væri á að yting tæki gildi, nema þing yrði rofið kjörtímabili og efnt til alþingiskosn- m telja verður nánast útilokað. Eins ð Þór bendir á í grein sinni má ekki þingiskosningum saman við þjóð- æðagreiðslu um aðild að Evrópusam- u. Umfjöllun Davíðs Þórs var fræði- s og óháð hinu pólitíska landslagi. pólitíska landslagi má lýsa þannig að reiðanlega ekki meirihluti fyrir því á að breyta stjórnarskránni til að opna ld að Evrópusambandinu. Þannig r líkur á því að slíkt komi ekki til at- r – ef það kemur þá nokkurn tíma til nar – fyrr en í tengslum við alþing- ngar 2011. ru sem sagt hvorki lagalegar né póli- orsendur fyrir aðild Íslands að Evr- bandinu í náinni framtíð. Andstaða Evrópumálin Höfundur er framkvæmdastjóri Heimssýnar. getum verið stolt af kosningabaráttunni, sem við háðum á málefnalegum grunni og heið- arlegum forsendum. Við eigum innistæður í velvild og virðingu sem borin er fyrir okkar framgöngu og aðferðum, það finn ég hvar sem ég fer þessa dagana. Ekki vildi ég skipta á því andrúmslofti sem við mætum og blikn- andi ímyndum auglýsingastofanna með til- heyrandi reikningum sem nú bíða greiðslu í tvöfaldri merkingu. Ég færi öllum sem lögðu hönd á plóg í þágu Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs og málstaðar okkar bestu þakkir fyrir einarða baráttu. Við söfnum nú kröftum og liði til næstu verkefna. Ég kvíði engu um framhaldið; Vinstrihreyfinginn – grænt framboð er sterkari hreyfing í dag en nokkru sinni fyrr. Gæfan fylgi okkur öllum út í sum- arið liðs við flokkinn í þessum kosningum, reynslu og fór stækkandi fram á síð- g. tta Vinstrihreyfingarinnar – græns ðs var uppbyggileg, málefnaleg og ndist af lífsgleði og þeirri einurð sem ðan málstað sjálfkrafa færir þeirri sem á þeim forsendum er háð. Okkur tekið hvar sem við komum og okkur við hafa ríka ástæðu til að ætla að við m bæta við það fylgi sem við fengum rum árum, sem fór fram úr vænt- flestra eins og menn muna. Reyndin við héldum nær jöfnu, fylgið lækkaði ns 0,3%. Þessi fáu atkvæði kostuðu ins vegar þingmann og von að okkur að. Einnig voru það vonbrigði að aukið ingmannslausu kjördæmunum, Suð- og Suðurkjördæmi, dugði í hvorugu l að skila fulltrúa á þing. ð segjum eins og þeir Spaug- enn: Það gengur bara betur næst. Við unni Höfundur er formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Reuters. „Norðmenn þurftu ekki að greiða aðgangseyri að sambandinu með því að láta af hendi aflaheimildir,“ segir grein- arhöfundur meðal annars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.