Morgunblaðið - 19.05.2003, Side 32
KOMIN er út viðhafnarútgáfa af
tuttugustu James Bond-myndinni,
Die Another Day, á mynddiski. Í
raun er að finna
tvo diska í þess-
ari sérútgáfu,
með meira en
fimm klukku-
stundum af
aukaefni.
Á fyrri diskn-
um er hægt að
horfa á myndina
með íslenskum
texta og einnig með stillt á „MI6
Datastream“. Með þessari stillingu
umbreytist kvikmyndin í einskon-
ar „pop-up“-myndband þar sem
rammi með ýmsum misgagnlegum
upplýsingum birtist á skjánum
með reglulegu millibili. Kemur
fram ýmislegt um leikarana, Bond
í gegnum árin, græjurnar og vopn-
in og gerð myndarinnar, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Á þessum fyrri diski er einnig
hægt að hafa stillt á „Mission
Commentary“, sem felst í því að
annars vegar er hægt að hlusta á
leikstjórann Lee Tamahori og
framleiðandann Michael G. Wilson
ræða um myndina og hins vegar er
mögulegt að heyra aðalleikarana
Pierce Brosnan og Rosamund Pike
greina frá.
Eins og áðurnefnd nöfn gefa til
kynna er umgjörð diskanna öll á
þann veg að áhorfandinn er í raun
sérlegur spæjari í eigin sendiför.
Gefur það áhorfinu skemmtilegan
blæ, því grafíkin er hin glæsileg-
asta.
Á seinni disknum er að finna
margvíslegt aukaefni. Eins og áður
sagði er um að ræða meira en fimm
klukkustundir af efni, sem er álíka
fjölbreytt og Bond sjálfur.
Heimildarmynd um gerð Die
Another Day er á vísum stað, sem
og sérleg heimildarmynd um Ís-
landsþátt James Bond. Eins og
flestir vita er Bond kominn í hóp
Íslandsvina og fjallar nokkuð stór
hluti alls aukaefnisins um gerð elt-
ingaleiksins margfræga á Jökuls-
árlóni. Er diskurinn því góður
fengur fyrir íslenskt kvikmynda-
áhugafólk.
Aukaefnið fjallar mikið um brell-
urnar, hvað þurfti til við gerð íselt-
ingarleiksins og svifnökkvakapp-
akstursins í Kóreu. Í einstaka
tilfellum er hægt að sjá samanburð
á teiknuðum atriðum og lokaút-
komu og ennfremur hægt að skoða
senur frá mismunandi sjónarhorn-
um.
Þó brelluáhugafólk fái mikið fyr-
ir sinn snúð í þessari sérútgáfu
Bond eru aðdáendur glamúrsins,
sem umlykur þennan smekkvísa
spæjara ekki skildir útundan.
Greinilegt er að mikið var lagt upp-
úr því að atriðið þar sem Jinx
(Halle Berry) er kynnt til sögunn-
ar heppnaðist vel. Er í aukaefninu
hægt að skoða kvikmyndun bikiní-
atriðsins fræga, þar sem Berry í
appelsínugulu bikiníi reynir að
keppa við Ursulu Andress í líki
Honey Ryder í Dr. No frá 1962,
þar sem hún skartaði hvítu bikiníi.
Myndasyrpur af Brosnan, Berry
og öllum hinum eru líka á disknum
og hægt að virða þau vel og lengi
fyrir sér.
Ekki má gleyma Madonnu.
Þessi drottning poppsins hefur
verið harðlega gagnrýnd fyrir sinn
þátt í myndinni, titillagið, sem hún
flutti, þótti með þeim slappari og
skylmingakennarinn Verity í
skötulíki. Það breytir því ekki að
myndbandið við lagið, sem er að
finna á seinni disknum, er flott að
hætti Bond. Nóg er af spennu og
sprengingum og Madonnu í hinum
ýmsu gervum. Einnig geta aðdá-
endur hennar horft á mynd um
gerð myndbandsins.
Þess má geta að tæknileg hlið
þessarar viðhafnarútgáfu hefur
fengið góða dóma. Sem dæmi hlýt-
ur bæði hljóð og mynd oftar en
ekki hæstu einkunn hjá vefsíðum,
sem sérhæfa sig í dómum mynd-
diska.
Viðhafnarútgáfa af Die Another Day
Hasaratriðin ráða ríkjum í Die Another Day og eru brellurnar útskýrðar í aukaefni nýs mynddisks, sérlegrar
viðhafnarútgáfu af myndinni.
Halle Berry, sem njósnarinn Jinx,
í bikiníi að hætti Ursulu Andress í
Dr. No. Beltissylgjan er í formi
stafsins J, sem er tilvísun í nafn
hennar.
Brellur
og bikiní
Inga Rún Sigurðardóttir
32 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i.14. Sýnd kl. 10. B.i.12 ára.
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 11. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
TVÖFALDAN skammt af helstu
hasarhetjum, spæjurum og stökk-
breyttum verum er að finna á
mynddiskalistanum þessa vikuna.
Tvær James Bond-myndir eru á
listanum yfir gullmolana, Logandi
hræddir (Living Daylights) frá
1987 og Gullaugað (Goldeneye) frá
1995.
Rumurinn viðkunnanlegi, Arnold
Schwarzenegger, skipar sér líka í
tvígang á listann með viðhafnar-
útgáfu Rándýrsins (Predator) frá
1987 og fyrstu Tortímanda-
myndinni (Terminator) frá 1984.
X-mennirnir, stökkbreyttu of-
urverurnar, njóta mikilla vinsælda
enda nýbúið að frumsýna fram-
haldsmyndina, X2. Sérútgáfan
X-menn 1,5 er efst á topplistanum
og nær X-menn líka inn á listann
og situr í 10. sæti.
Tvöfaldur skammtur
X-mennin eru með allra vinsælasta fólki þessa dagana.
! !
" # "
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
'
!(
$%&
$%&
$%&
$%&
$)! * %
+,-,. !
" /&
*
0 0
10
$%&!
0
%
!2
!
3
$
*3&4!!* !%% % *
!*
5 0
0 %! , 5
5 0
0 %! , 5
0
$2
/3
" 6!3
*
0 ,
$2/
'
#
*
,
$2/
'
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
$%&
-+
./!
0!