Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, Þjónustuver 560 5000, www.vis.is
þar sem tryggingar
snúast um fólk
Hjá VÍS býðst þér lán til bifreiðakaupa á
þægilegan hátt og getur með því notið
staðgreiðsluafsláttar.
Lánshlutfall getur verið allt að 70% og
lánstími allt að 7 árum svo þú getur
auðveldlega sniðið afborganir að þínum
fjárhag. Lánshlutfall og lánstími ræðst af
aldri bifreiðar, miðað er við að bifreiðin sé
ekki eldri en sex ára og að kaupverðið sé
ekki lægra en 700.000 kr.
Viðbótarlán
Ef þér hentar að endurnýja bifreiðina á
lánstímanum býðst þér að taka viðbótarlán og
sameina nýja og gamla lánið í eitt með mun lægri
lántökukostnaði á viðbótarláninu.
Þú getur gengið frá bílaláninu hjá öllum
bílaumboðum og flestum bílasölum á þeim
kjörum sem henta þér best. Tryggðu þér lykil að
góðum bíl – með Bílaláni VÍS.
Lykillinn að nýjum
og betri bíl Fíto
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
3
1
3
Nissan Patrol Elegans, 3000cc, Tdi, 06/01, ek. 24 þ. km, beinskiptur, 35“
breyttur, ABS, öryggispúðar, loftkæling, langbogar, varahjólshlíf, dráttar-
kúla, kastaragrind og kastarar, leðuráklæði, topplúga, cb-stöð.
Verð kr.
4.100.000
UM NÆSTU helgi verður haldin
fyrsta rallkeppni sumarsins, en ekið
verður um Suðurnes. Það er Aksturs-
íþróttafélag Suðurnesja sem stendur
fyrir þessari keppni í samstarfi við
Bíla og hjól í Njarðvík, en 15 lið eru
skráð til leiks. Rallið hefst þegar ör-
yggisskoðun bifreiða verður kl. 18:30
á föstudaginn í aðstöðu Bíla og hjóls,
Njarðarbraut 11 í Njarðvík. Á laug-
ardeginum verður ræst frá þessum
sama stað kl. 8:30 og fyrsta sérleið ek-
in um Reykjanes. Tímaáætlun sér-
leiða er sem hér segir:
1. Reykjanes austur, 7,4 km, fyrsti
bíll ræstur kl. 09:00.
2. Ísólfsskáli austur, 6,8 km, fyrsti
bíll ræstur kl. 09:35.
3. Djúpavatn austur, 22 km, fyrsti
bíll ræstur kl. 09:55.
Snúið við Sveifluháls.
4. Djúpavatn vestur, 22 km, fyrsti
bíll kl. 10:45.
5. Ísólfsskáli vestur, 7 km, fyrsti bíll
kl. 11:10
6. Reykjanes vestur, 7,4 km, fyrsti
bíll kl. 13:00
7. Innanbæjarleið við höfnina í
Keflavík, fyrsti bíll kl 14:20 2,3 km.
8. Innanbæjarleið við höfnina í
Keflavík, fyrsti bíll kl. 14:40 2,3 km.
Samtals ekið á sérleiðum 77,6 km.
Verðlaunaafhending verður á höfn-
inni um klukkustund eftir að síðasti
bíll hefur lokið síðustu sérleið.
Eftirtalin lið eru skráðar til leiks:
Rúnar Jónson / Baldur Jónsson,
Subaru Legacy.
Sigurður B. Guðmundsson / Ísak
Guðjónsson, Metro 6R4.
Sighvatur Sigurðsson / Úlfar Ey-
steinsson, Jeep Cherokee.
Þorsteinn P. Sverrisson / Witek
Bogdanski, Runault Clio.
Hlöðver Baldursson / Halldór G.
Jónsson, Toyota Corolla GTI.
Daníel Sigurðsson / Sunneva L.
Ólafsdóttir, Honda Civic V-tec.
Sigurður Ó. Gunnarsson / Elsa Sig-
urðardóttir, Toyota Celica GT4.
Guðmundur Guðmundsson / Jó-
hannes Óskarsson, Subaru Impreza
GT.
Ingólfur Kolbeinsson og Guð-
mundur O. Mckinstry, Suzuki Swift
GTI.
Kristinn V. Sveinsson / Jóhannes
Óskarsson, Nissan Sunny.
Karl Eysteinsson / Arnar Sigur-
björnsson, Toyota Celica Supra.
Hilmar B. Þráinsson / Ingvar A.
Arason, Toyota Corolla GTI.
Þorsteinn S. Mckinstry / Þórður A.
Mckinstry, Mazda 323 Turbo.
Ragnar Karlsson / Árni Jónsson,
Toyota Corolla GTI.
Daniel E. Rogers / Halldór Vil-
berg, Honda Civic CRX.
Búast má við að Rúnar / Baldur og
Sigurður / Ísak sláist um sigurinn,
enda þeir bílar áberandi öflugastir í
þessari keppni. Hins vegar má lítið út
af bera, því einungis 77,6 km eru á
sérleiðum og þannig verður erfitt að
vinna upp tímatap, sem menn lenda í
með því að sprengja dekk á sérleið.
Sighvatur / Úlfar, Guðmundur / Jó-
hannes og feðginin Sigurður / Elsa
verða þá ekki langt undan og a.m.k
verður hart barist um þriðja sætið, en
allir þessir bílar eru fjórhjóladrifnir.
Ingólfur og Guðmundur á Suzuki Swift eru nýliðar frá því í fyrra.
Innanbæjar-
leið við höfn-
ina í Keflavík