Morgunblaðið - 24.05.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 139. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Áfram hjá
Aston Villa?
Jóhannes Karl Guðjónsson óttast
ekki um sinn hag Íþróttir 53
Hjátrú og
bannhelgi
Bjarni Harðarson myndaði átján
álagabletti Árborgarsvæðið 24
UDAY Hussein, eldri sonur Saddams Husseins, var
í gær sagður íhuga að gefa sig fram við hernáms-
liðið í Írak en vera hikandi vegna þess að hann væri
ekki sáttur við svör banda-
rískra embættismanna í
samningaviðræðum við full-
trúa hans.
The Wall Street Journal
skýrði frá þessu í gær og
hafði eftir heimildarmanni
sínum að Uday væri í felum í
úthverfi Bagdad. Er hann
sagður óttast að íraskir and-
stæðingar hans drepi hann
og telja að hann yrði öruggari í bandarísku fangelsi.
Að sögn blaðsins vill Uday fá að vita hvaða ákærur
hann eigi yfir höfði sér og hvernig yfirheyrslum yfir
honum og varðhaldi verði háttað. Bandarísk yfir-
völd virðist hins vegar ekki hafa mikinn hug á að
semja við Uday þar sem þau telja að hann verði
handsamaður fyrr eða síðar.
Blaðið sagði að ættingi Saddams Husseins full-
yrti að íraski forsetinn fyrrverandi væri einnig í fel-
um í úthverfi Bagdad en geðheilsa hans væri „tæp“.
Uday sagður
íhuga að gefa
sig fram
Washington. AFP.
Uday Hussein
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, kvaðst í
gær vera „tilbúinn að samþykkja“ svokallaðan
Vegvísi að friði í Mið-Austurlöndum. Hann sagðist
því ætla að bera friðar-
áætlunina upp til sam-
þykktar í stjórn sinni eftir
að bandarísk stjórnvöld
hétu því að taka tillit til at-
hugasemda hans.
Sharon lýsti þessu yfir
aðeins rúmri klukkustund
eftir að Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og Condoleezza Rice,
þjóðaröryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseta, gáfu út
yfirlýsingu um að athuga-
semdir Ísraelsstjórnar
væru réttmætar og tekið yrði tillit til þeirra þegar
friðaráætluninni yrði hrint í framkvæmd. Sharon
hafði gert fimmtán athugasemdir við Vegvísinn og
ísraelskur embættismaður hafði sagt að án slíkrar
skriflegrar tryggingar væri ógjörningur fyrir for-
sætisráðherrann að fá stjórnina og almenning til
að styðja friðaráætlunina.
Powell sagði síðar á blaðamannafundi að engin
áform væru um að breyta Vegvísinum.
Nabil Abu Rudeina, ráðgjafi Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, sagði að palestínska
heimastjórnin myndi ekki fallast á neinar breyt-
ingar á friðaráætluninni.
Bush íhugar leiðtogafund
George W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær
vera að „íhuga alvarlega“ að eiga fund með Sharon
og Mahmud Abbas, forsætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, teldist það líklegt til að koma
friðarviðræðum á rekspöl.
Bandarískir embættismenn sögðu að fundurinn
kynni að verða haldinn eftir leiðtogafund átta
helstu iðnríkja heims í Frakklandi 1.–3. júní.
Sharon
styður
Vegvísinn
Jerúsalem. AFP, AP.
Ariel Sharon
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði þrjá menn í gæslu-
varðhald í gær vegna lögreglu-
rannsóknar á meintum auðgun-
arbrotum þeirra gegn Lands-
síma Íslands, sem grunur leikur
á að gætu numið á bilinu 130–150
milljónum króna, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Efnahagsbrotadeild rannsak-
ar málið og fékk einn sakborn-
inginn úrskurðaðan í 14 daga
gæsluvarðhald. Hann gegndi
starfi aðalgjaldkera Landssím-
ans en var sagt upp í fyrradag.
Hinir tveir voru úrskurðaðir í 10
daga gæsluvarðhald.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er viðkomandi starfs-
maður Landssímans grunaður
um að hafa dregið sér fé úr fyrir-
tækinu og beitt óvenjulegum að-
ferðum við svikin með því að
breyta tölvuskráningum í bók-
haldi fyrirtækisins með þeim
hætti að honum tækist að fela
slóð sína.
Að sögn Heiðrúnar Jónsdótt-
ur, forstöðumanns upplýsinga-
og kynningarmála Landssímans,
beindust ætluð brot starfsmanns
fyrirtækisins eingöngu gegn fyr-
irtækinu sjálfu en ekki viðskipta-
vinum þess.
Komst upp við innri
endurskoðun
Upp komst um málið þegar
innri endurskoðun fyrirtækisins
tók út ákveðna bókhaldsþætti og
bárust böndin að umræddum
starfsmanni. Honum var sagt
upp störfum á fimmtudagsmorg-
un vegna málsins og samþykkti
hann þá ákvörðun fyrirtækisins,
þegar honum var tilkynnt hún. Í
kjölfarið handtók lögregla hann í
tengslum við rannsóknina vegna
gruns um fjárdrátt.
Samkvæmt 247. gr. almennra
hegningarlaga varðar fjárdráttur
allt að 6 ára fangelsi. Hinir sak-
borningarnir tveir eru ekki
starfsmenn Landssímans, en
ætla má, að sögn lögreglu, að þeir
eigi hlutdeild í hinum meinta
fjárdrætti eða hafi tekið við
ágóða af þeim brotum sem eru til
rannsóknar og liggur allt að 4 ára
fangelsi við því.
Grunur um allt að 150
milljóna króna fjárdrátt
Þrír menn úrskurðaðir í gæslu-
varðhald vegna stórfelldra
auðgunarbrota hjá Símanum
HERNÁMSSTJÓRN Bandaríkja-
manna í Bagdad, höfuðborg
Íraks, er nú tekin að greiða út líf-
eyri til aldraðra íbúa og öryrkja í
borginni. Upphæðin nemur 40
Bandaríkjadölum, andvirði 2.900
króna, á mánuði.
Styrkþegarnir þurfa að sýna
skilríki og hafa langar biðraðir
myndast í Bagdad, segir Þorkell
Þorkelsson, sendifulltrúi Rauða
krossins og ljósmyndari Morgun-
blaðsins, sem tók meðfylgjandi
ljósmynd.
Margir írösku styrkþeganna
þurfa að bíða klukkustundum
saman eftir peningunum og
nokkuð er um að líði yfir fólk í
brennheitri sólinni í Bagdad, að
sögn Þorkels.
Myndin sýnir mann koma með
móður sína til að innheimta
greiðsluna á skrifstofu hernáms-
liðsins í Bagdad. Þorkell segir að
starfsmenn hjálparstofnana
vinni nú að því að auðvelda öldr-
uðum og öryrkjum að nálgast
þessa peninga.
Morgunblaðið/Þorkell
Beðið eftir
lífeyri í Bagdad
♦ ♦ ♦
ATKVÆÐAMIKILL þing-
maður í Rússlandi sakaði í gær
stjórn Saparmurats Niyazovs,
„eilífðarforseta“ Túrkmenist-
ans, um að styðja hryðjuverka-
menn og eiturlyfjasmyglara.
Dmítrí Rogozin, formaður
utanríkismálanefndar dúm-
unnar, neðri deildar rússneska
þingsins, sagði nefndina hafa
fengið „ógnvekjandi upplýsing-
ar“ um stjórn Niyazovs, sem
kallar sig Turkmenbashi, eða
„Föður allra Túrkmena“. Hún
hefði aðstoðað stjórn talibana í
Afganistan skömmu áður en
Bandaríkjaher steypti henni af
stóli, væri viðriðin eiturlyfja-
smygl og hefði stutt alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi.
Þá sakaði Rogozin stjórn
Turkmenbashi um að ætla að
vísa mörgum íbúum af rúss-
neskum ættum úr landi.
Bendlar Turkmen-
bashi við hryðjuverk
Moskvu. AFP.
Harðjaxl á
heimavelli
Clint Eastwood er hagvanur
í Cannes Fólk 61