Morgunblaðið - 24.05.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Allt fyrirfram ákveðið, fóru ekki einu sinni úr rúminu, suðu sáttmálann saman með SMS.
Útskrift, málstofa og vefsvæði
Margt á dag-
skrá ljósmæðra
FJARNÁM í ljós-móðurnámi er nýttaf nálinni og í vor
var verið að útskrifa
nokkrar ljósmæður frá
þeirri braut. Eitt og annað
stendur fyrir dyrum hjá
ljósmæðrum, m.a. mál-
stofa, og ræddi Morgun-
blaðið af þeim sökum við
Ólöfu Ástu Ólafsdóttur,
forstöðumann ljósmóður-
námsins innan hjúkrunar-
fræðideildar Háskóla Ís-
lands.
– Segðu okkur eitthvað
um fjölda útskrifaðra, m.a.
úr fjarnáminu og hvert er
markmiðið með því að
bjóða upp á fjarnámið?
„Alls hafa 49 ljósmæður
útskrifast úr þessu nýja
ljósmóðurnámi. Haustið
2001 var gerður samningur milli
Háskóla Íslands og Háskólans á
Akureyri og heilbrigðisstofnana
þar um fjarnám í ljósmóðurfræði.
Markmið með samningnum er
m.a. að efla kennslu í heilbrigð-
isgreinum við Háskólann á Akur-
eyri og leysa vandamál vegna
skorts á ljósmæðrum til starfa.
Námspláss í fjarnáminu eru þrjú.
Fyrstu ljósmæðurnar útskrifast
nú og nýir nemar hafa verið tekn-
ir inn fyrir næsta ár.“
– Hvernig undirtektir hefur
fjarnámið fengið og hvaða þýð-
ingu hefur það fyrir ljósmóður-
námið að hægt sé að ljúka því sem
fjarnámi?
„Undirtektir hafa verið mjög
góðar. Við þurfum að velja úr hópi
umsækjenda fyrir næsta ár. Frá
upphafi námsins við Háskóla Ís-
lands hefur verið lögð áhersla á að
menntun ljósmæðra þyrfti að
mæta þörfum íslensks samfélags
bæði á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Þess vegna hafa
ljósmæður stundað klínískt nám á
heilbrigðisstofnunum úti á landi
annars staðar en í Reykjavík, á
Akranesi, Keflavík og Selfossi.
Síðan höfum við verið með fjar-
nám til Ísafjarðar í vetur. Þetta er
til að efla ljósmóðurstarf á lands-
byggðinni en síðustu ár hefur ver-
ið auðveldara fyrir minni staðina
að fá ljósmæður til starfa.“
– Segðu okkur frá málstofunni,
hverjir taka þar til máls og um
hvað verður talað?
„Í tilefni útskriftar kynna verð-
andi ljósmæður lokaverkefni sín
sem eru að venju fjölbreytt og
fjalla um efni sem tengjast með-
göngu, fæðingu og sængurlegu.
Efni sem tekið verður fyrir er um
ótta á meðgöngu og fæðingu,
meðgöngu eftir missi eða fóstur-
lát áður, fræðsluþarfir verðandi
feðra, ungar konur og meðgöngu,
verkjastillingu án lyfja í fæðingu,
þvagleka á meðgöngu og eftir
fæðingu og um brjóstagjöf fyrstu
vikurnar. Í lok málstofunnar
munu þessar nýju ljósmæður
opna fræðsluvef sem þær hafa
byggt á lokaverkefnunum en vef-
urinn mun spanna ýmsa fleiri
þætti um barneigna-
ferlið. Málstofan fer
fram í dag klukkan 13
til 17 í stofu 103 í Eir-
bergi, Eiríksgötu 34,
og er öllum opin.“
– Segðu okkur meira frá nýja
vefsvæðinu …?
„Veffangið er www.ljosmodir.-
is. Ljósmæðrafélag Íslands mun
taka við fræðsluvefnum um leið
og hann opnar og ritstjórn á veg-
um þess mun bera ábyrgð á að
viðhalda og bæta við áreiðanleg-
um upplýsingum. Ljósmæður
telja að mikil þörf sé fyrir íslenskt
fræðsluefni á þessu sviði sem
nálgast má á veraldarvefnum því
það er sá staður sem ungir sem
aldnir nota í síauknum mæli til að
leita sér upplýsinga. Vefsíðan get-
ur gagnast mörgum en markhóp-
urinn er verðandi foreldrar, ný-
bakaðir foreldrar, ömmur og afar
svo og fagmenn sem vinna á þessu
sviði.“
– Síðan er afmælishátíð …?
„Þegar um merk tímamót er að
ræða er ástæða til að fagna. Þess
vegna hittast ljósmæður eftir
málstofuna, 0 ára og upp úr. Eldri
ljósmæður bjóða nýjar velkomnar
í stéttina, en til gamans má geta
þess að á þessu ári eru 235 ár frá
fyrsta skráða ljósmóðurprófi á Ís-
landi en það var tekið af Rann-
veigu Egilsdóttur hinn 9. maí á
Staðarfelli á Fellsströnd. Rann-
veig verður örugglega með okkur
í anda.“
– Hvað er framundan?
„Nýja námskráin í ljósmóður-
fræði sem var samþykkt í desem-
ber 1995 er í sífelldri endurskoð-
un og námsnefndin er nú að
endurskoða inntökuskilyrði í
námið. Síðustu tuttugu ár hafa
þau verið hjúkrunarpróf og nám
ljósmæðra, í heild því verið sex ár.
Hugmyndir eru um að grunnnám
í ljósmóðurfræði verði fjögurra
ára nám til BA-gráðu og mögu-
leiki verði á að bæta við sig 1–2
ára námi til að geta einnig lokið
hjúkrunarnámi. Við þessa breyt-
ingu myndi ljósmóðurnámið sjálft
lengjast um 2 ár en
heildarnámstími ljós-
mæðra styttast að
sama skapi, vera mark-
vissara og í samræmi
við þá þróun sem er að
verða í menntun ljósmæðra á al-
þjóðavettvangi. Í þróunaráætlun
námsins til næstu fimm ára er
gert ráð fyrir að árið 2006, eða á
tíu ára afmælinu frá upphafi
námsins, geti hafist rannsókna-
tengt meistaranám í ljósmóður-
fræði í samstarfi við erlendan há-
skóla. Markmiðið er eins og alltaf
að efla rannsóknir og stöðu ljós-
móðurfræðinnar.“
Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Ólöf Ásta Ólafsdóttir fæddist á
Akureyri 1955. Stúdent frá MA
1975 og lauk prófi frá Ljós-
mæðraskóla Íslands 1978. BS-
próf í hjúkrunarfræði frá HÍ
1985 og M.Sc. frá Háskólanum í
Cardiff 1992. Stundar nú dokt-
orsnám í Thames Valley-
háskólanum í Lundúnum.
Forstöðumaður ljósmóðurnáms-
ins innan hjúkrunarfræðideildar
HÍ frá árinu 1996. Um árabil ljós-
móðir á kvennadeild LSH og
hjúkrunarframkvæmdastjóri
1993–95. Er gift Ásgeiri Böðv-
arssyni yfirlækni og eiga þau
Hildi, Óla og Ásgerði.
Brugðist við
skorti á
ljósmæðrum
SAUTJÁN manna alþjóðabjörg-
unarsveit Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hélt síðdegis í gær
áleiðis til Alsír en sendiráð lands-
ins í Stokkhólmi óskaði í gær-
morgun eftir liðveislu Íslendinga
vegna jarðskjálftanna í Alsír síð-
degis sl. miðvikudag. Sveitin var
væntanleg til Algeirsborgar um
hádegisbil að staðartíma.
Sveitin er skipuð 14 sjálfboða-
liðum björgunarsveita Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar,
lækni frá Landspítalanum og
tveimur bráðatæknum frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Sveitin er sérhæfð til leitar og
björgunar í rústum og meðal bún-
aðar hennar eru hljóðleitartæki
og myndavél til notkunar í rúst-
um þar sem leita þarf fórnar-
lamba jarðskjálfta. Alls vegur
búnaður sveitarinnar um tvö tonn
og hefur hún meðferðis allt sem
nauðsynlegt er til að geta verið á
vettvangi í 10 til 14 daga án utan-
aðkomandi aðstoðar, svo sem með
vatn og matvæli.
Alþjóðabjörgunarsveitin var
stofnuð árið 1999 með samkomu-
lagi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, utanríkisráðuneytisins
og dómsmálaráðuneytisins.
Fyrsta útkall hennar var vegna
jarðskjálfta í Tyrklandi árið 1999
og hefur hún verið kölluð út
nokkrum sinnum eftir það. Utan-
ríkisráðuneytið bauð fram aðstoð
sveitarinnar strax á miðvikudags-
kvöld. Fyrstu svör í gærmorgun
voru á þá lund að aðstoðar væri
ekki þörf en laust fyrir hádegi í
gær óskuðu alsírsk stjórnvöld lið-
veislu hennar.
Morgunblaðið/Sverrir
Liðsmenn Alþjóðabjörgunarsveitarinnar höfðu snör handtök í gær við að
ganga frá búnaði sínum áður en haldið var af stað áleiðis til Alsír.
Alþjóðabjörgunarsveitin aðstoðar
eftir jarðskjálftana í Alsír
Sautján manna sveit
á vettvang í dag
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 17 ára gamlan pilt í 4
mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, svo
sem innbrot, þjófnað og hylmingu en
brotin voru framin á tímabilinu frá
desember 2001 til febrúar 2003. Þá
var annar 17 ára piltur dæmdur í
skilorðsbundið 3 mánaða fangelsi
fyrir aðild að sumum brotunum auk
annarra brota. Þeir hafa báðir hlotið
refsidóma áður. Piltarnir voru einnig
dæmdir til að greiða samtals um 160
þúsund krónur í bætur til fyrirtækja
sem orðið höfðu fyrir tjóni af þeirra
völdum.
Fangelsi
fyrir innbrot
og þjófnað
DAVÍÐ Á. Gunnarsson ráðuneytis-
stjóri var í dag formlega kosinn
fulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO) á
56. þingi samtakanna sem nú stendur
yfir í Genf. Davíð var á fundi í sept-
ember síðastliðnum tilnefndur til að
vera einn af fulltrúum Evrópu við
kosningarnar í dag, en tíu nýir
stjórnarmenn voru kosnir á þingi í
morgun, þar af þrír fulltrúar Evrópu.
Auk Davíðs Á. Gunnarssonar náðu
fulltrúar Frakka og Tékka kjöri.
Í stjórn Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar sitja 32 fulltrúar 192
aðildarlanda og er kjörtímabil full-
trúanna þrjú ár og fer stjórnin með
æðsta vald í málefnum stofnunarinn-
ar.
Skv. fréttatilkynningu heilbrigðis-
ráðuneytisins mun Davíð sem fulltrúi
Íslands leggja megináherslu á
þrennt í stjórnartíð sinni. Í fyrsta
lagi hyggst hann leggja áherslu á
málefni barna og ungmenna sem víða
um heim búa við bág kjör. Í öðru lagi
hyggst hann láta málefni kvenna til
sín taka og í þriðja lagi hyggst hann
leggja baráttunni gegn ofneyslu
áfengis lið og leggur áherslu á að
heilsufars- og félagslegar afleiðingar
ofneyslu áfengis séu geigvænlegar.
Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin
Davíð Á.
Gunnarsson
kosinn í stjórn
♦ ♦ ♦