Morgunblaðið - 25.05.2003, Blaðsíða 11
„Það komu upp deilur á milli mín og Totten-
ham varðandi hvort ég væri laus allra mála hjá
Tottenham eða hvort félagið ætti rétt á greiðslu
fyrir mig. Þetta flækti stöðuna og gerði mér
erfitt fyrir að fara aftur út sem ég var ósáttur
við enda að nálgast þrítugsaldurinn, að koma til
baka eftir erfið meiðsli og nógu erfitt að fá
samning þótt félagaskiptagjald bættist ekki við.
Á endanum frétti ég að Bolton hefði mikinn
áhuga á að fá mig. Ég hváði við þegar ég heyrði
nafnið. Ég vissi að félagið hafði verið í neðri
deildum en samt fornfrægt félag. Á þessum
tíma var liðið ofarlega í 1. deildinni og í undan-
úrslitum deildabikarsins og eftir að hafa skoðað
aðstæður hjá því með Ellu konu minni og Bergi
syni mínum gekk ég til samninga við það. “
Guðni lék sinn fyrsta leik með Bolton á
Wembley í úrslitaleik á móti Liverpool í
deildabikarkeppninni en svo skemmtilega vill
til að síðasti leikur hans með Tottenham var
einnig á þessum glæsilega velli – leikur við Ars-
enal í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Gæfuspor hlýtur maður að segja um þá
ákvörðun Guðna að fara til Bolton en ferill hans
með félaginu var hreint út sagt glæsilegur. Það
eru ófáar viðurkenningar sem Guðni hefur
fengið fyrir frammistöðu sína með liðinu. Hann
hefur margoft verið útnefndur leikmaður árs-
ins, bæði af leikmönnum, stuðningsmönnum og
blaðamönnum, búið var til sérstakt myndband
um feril hans hjá liðinu og rétt áður en hann
sneri heim á leið var hann heiðraður af sjálfum
borgarstjóranum í Bolton.
„Ég held satt best að segja að ég hafi ekki
getað verið heppnari með félag því það er ekki
sjálfgefið að fá tækifæri aftur þegar maður er
orðinn þrítugur og sérstaklega ekki á þessum
árum þegar menn voru taldir á niðurleið komn-
ir á þennan aldur. Ég tók þátt í geysilegum
uppgangstíma hjá félaginu enda eru ekki nema
tólf ár síðan Bolton var í gömlu 4. deildinni og í
ár tókst liðinu í fyrsta sinn í 40 ár að halda sæti
sínu í efstu deild þrjú ár í röð. Það var gaman að
taka þátt í þessu ævintýri og ekki má gleyma
flutningnum yfir á Reebok-völlinn. Félagið er
frábært, starfsliðið, áhangendur og auðvitað
síðast en ekki síst félagar mínir í liðinu, þetta er
fólk sem maður gleymir aldrei. Auðvitað vona
ég að uppgangur hjá okkur haldi áfram. “
Þegar Guðni er inntur eftir viðbrögðum við
því hver lykillinn sé að þessari velgengni hans
hjá Bolton í gegnum árin segir hann: „Mér leið
afskaplega vel hjá félaginu, bæði félagslega og
sem knattspyrnumaður. Ég náði að bæta mig
sem spilari og öðlaðist reynslu sem var mér
mjög dýrmæt í leikjunum. Með komu Sam All-
ardyce í starf knattspyrnustjóra má segja að fé-
lagið hafi blómstrað enn frekar og mér þótti
sérlega gott að vinna með honum. Ég reyndi
eins og eflaust allir reyna að gera mitt besta í
hverjum leik, hvort sem ég var að glíma við Al-
an Shearer eða einhvern óþekktan framherja.
Ég hef haft það viðhorf að horfa fyrst á það sem
er inn á við. Það er að sinna sínu starfi og sínu
hlutverki og ef allir gera það verður liðsheildin
sterkari. Og sem fyrirliði hef ég reynt að miðla
af reynslunni og ekki síður að hvetja menn
áfram því langoftast er það áhrifaríkara en að
skamma menn.“
Það getur verið erfitt að nefna einhvern há-
punkt á vel heppnuðum og glæstum ferli en
Guðni telur þó að lokaleikurinn með Bolton á
móti Middlesbrough standi upp úr.
„Leikurinn við Boro er svo lifandi í huga mín-
um. Leikurinn var sérstök stund fyrir mig og að
það skyldi takast að vinna hann var hreint út
sagt frábært. Spennan á lokaspretti mótsins
var gríðarleg og þegar flautað var til leiksloka í
síðasta leiknum var ég svo ánægður og þakk-
látur. Á meðan leikurinn situr svo ríkt í huga
mínum held ég að hann standi upp úr, bæði leik-
urinn sjálfur og eins gleðin á eftir. En ég hef
auðvitað átt frábærar aðrar stundir, bæði með
Val, landsliðinu, Tottenham og hef fengið að
lyfta bikurum á loft með Bolton. Ég lít mjög
ánægður yfir farinn veg og tel mig hafa verið
heppinn almennt með ferilinn.“
Ian Wright erfiðasti mótherjinn
Guðni hefur í gegnum tíðina þurft að glíma
við alla bestu framherjana í ensku úrvalsdeild-
inni og eftir því hefur verið tekið að honum hef-
ur gengið sérlega vel að halda aftur af heitustu
framherjunum deildarinnar, samanber Ruud
Van Nistelrooy, Thierry Henry, Micheal Owen
og fleiri slíkum. En gaman væri að vita hvern
hann telur hafa verið sinn erfiðasta mótherja?
„Þótt ég segi sjálfur frá hefur mér gengið vel
að spila gegn þessum svokölluðu
klassaframherjum þó svo að þeir hafi náð að
skora stöku mark. Ég held að sá framherji sem
ég hef spilað gegn sem hefur mestu hæfileikana
sé Thierry Henry hjá Arsenal. Það þýðir samt
ekki það að hann sé sá erfiðasti sem ég hef
glímt við. Það sem fylgir oft meiri hæfileikum
er að menn spara á köflum vinnuframlagið og
það á við Henry. En svona í gegnum tíðina þá
held ég að Ian Wright, fyrrum framherji hjá
Arsenal, sé sá erfiðasti sem ég hef leikið gegn.
Hann hafði hæfileika en einnig ómælda leik-
gleði og vinnusemi og hann var alltaf togandi í
mann úti um allan völl. Maður var móður og
másandi að reyna að halda honum niðri og fyrir
utan það var hann síröflandi í eyru manns.
Hann var skæður en í dag er Henry sá leik-
maður sem maður verður að vera mest á tánum
gagnvart. “
Bjóst ekki við að verða
valinn í landsliðið á nýjan leik
Guðni var kallaður að nýju inn í landsliðshóp-
inn fyrir leikinn á móti Skotum á Hampden
Park í mars eftir að hafa verið fimm og hálft ár
úti í kuldanum. Guðni lék á móti Írum á Laug-
ardalsvellinum í septembermánuði 1997.
Tveimur dögum síðar fór liðið til Rúmeníu en
eftir deilur við forystumenn KSÍ um ferða-
tilhögun að þeim leik loknum, fór svo að Guðni
ferðaðist ekki með til Rúmeníu. Guðni spilaði
síðan ekki aftur fyrir landsliðið fyrr en nú í vor
á móti Skotum.
Guðni segist ekki hafa reiknað með eiga aft-
urkvæmt í landsliðið á nýjan leik. „Ég bjóst
ekki við að vera valinn aftur úr því sem komið
var. Það voru einhverjir að minnast á það fyrir
Skotaleikinn að ég yrði kannski kallaður til mið-
að við hvernig gengi liðsins hafði verið og einnig
þar sem Hermann var meiddur. Þegar til kom
að Atli hafði samband við mig ræddum við mál-
in og ég gaf auðvitað kost á mér. Ég hugsaði
með mér að ég yrði miklu sáttari við þessi mála-
lok heldur en að hafa endað landsliðsferilinn á
þann hátt sem í stefndi. Ég er ánægður með
þennan endi á málinu.“
Guðni segist ekkert frekar hafa átt von á sím-
tali frá Atla þegar hann tók við af Guðjóni árið
1999. „Landsliðinu hafði gengið vel og það verð-
ur ekki tekið af Guðjóni, þótt hann sé ekki á
jólakortalistanum hjá mér, að hann gerði góða
hluti með liðið. Ég átti í sjálfu sér ekkert von á
að fá kall frá Atla þegar hann tók við en þegar
leið á og gengið fór að dala velti ég því fyrir mér
hvort ég yrði valinn því það var orðið erfiðara
að réttlæta að velja mig ekki.
Ég bjóst reyndar við í fyrstu, hvort sem
menn ætluðu að nota mig mikið eða ekki, að
kannski yrði einhver vilji til að kalla á mig í eins
og einn æfingaleik eða slíkt til þess að sættast
og ljúka þessu leiðindamáli og síðan hefði þá
Atli eða landsliðið getað átt mig að. Ég gerði
mér í hugarlund að menn vildu kannski fara
þessa leið en það varð ekki og ég var búinn að
gefa landsliðið nánast upp á bátinn. En hvað
minn feril hjá Bolton varðar þá held ég að fjar-
vera mín frá landsliðinu hafi hjálpað mér að ein-
beita mér að Bolton svo þetta var kannski ekki
svo slæmt eða þannig var ég farinn að líta á
málið.“
Breytingar urðu á dögunum hvað landsliðið
varðar. Atli Eðvaldsson ákvað að draga sig í hlé
og þeir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson
voru tímabundið ráðnir í starfið eða þar til Egg-
ert Magnússon, formaður KSÍ, hefur fundið
réttan erlendan þjálfara til starfans. En kom af-
sögn Atla Guðna á óvart?
„Ég mundi segja beggja blands. Ég er var
ekkert sérstaklega hissa en ég hélt að Atli
mundi klára riðlakeppnina. Mér líst í sjálfu sér
vel á þá að þeir Ásgeir og Logi í sameiningu
taki við landsliðinu á þessum tímapunkti og þeir
geti þar með vegið upp hvor annan. Það gefur
KSÍ meiri tíma til að finna rétta þjálfarann en
það má heldur ekki útiloka þann möguleika að
Ásgeir og Logi haldi áfram. Ég er viss um að ef
liðinu gengur vel undir þeirra stjórn þá verður
sá möguleiki örugglega vel skoðaður að þeir
taki við.“
Kveðjuleikirnir gegn Færeyingum og Litháum
Guðni hefur gefið kost á sér í leikina við Fær-
eyinga og Litháa sem fram fara 7. og 11. júní og
spurningin sem menn velta fyrir sér er hvort
það verði kveðjuleikir hans með landsliðinu.
Leikurinn við Færeyinga verður merkilegur
fyrir þær sakir að Guðni leikur í fyrsta sinn með
landsliðinu hér á landi frá því í september 1997
og væntanlega verður sá leikur hans sá síðasti
sem hann spilar fyrir Ísland á heimavelli.
„Ég er hættur með Bolton og leik ekki í sum-
ar með Val. Þar af leiðandi er það hugmynd mín
að leikirnir við Færeyjar og Litháen verði tví-
mælalaust mínir kveðjuleikir. Það verður sér-
stök stund fyrir mig persónulega að taka þátt í
leiknum við Færeyinga. En að sama skapi og
líkt og fyrir síðasta leikinn minn með Bolton þá
reyni ég alfarið að ýta þessu til hliðar. Maður
verður að láta liðið og hagsmuni þess ganga fyr-
ir og það þýðir ekki að velta sér upp úr því
hversu stór stund þetta sé fyrir mann persónu-
lega. Maður verður að ná að einbeita sér að
verkefninu og klára sitt verk. Vonandi get ég
kvatt landsliðið með góðum úrslitum og get þá
notið þess eftir á. Auðvitað eigum við að vinna
Færeyinga á heimavelli en gamla klisjan, þeir
eru sýnd veiði en ekki gefin, stendur fyllilega
undir sér. Fyrst þeir gátu strítt Þjóðverjum á
útivelli geta þeir pirrað okkur. Við verðum því
að koma ákveðnir til leiks og gefa tóninn
snemma.“
Guðni útilokar að hann verði með í leikjunum
á móti Þjóðverjum í haust hvernig svo sem úr-
slitin verða í komandi leikjum. „Ég held að
menn virði mína ákvörðun. Ég ætla ekki að
spila í sumar svo það segir sig sjálft að ég verð
ekkert klár í að spila í haust. Ég vona að okkur
vegni vel í leikjunum og þá yrði það ánægju-
legur endir fyrir mig með landsliðinu og mundi
setja landsliðið aftur í góðan gír.“
Guðni segist eiga Val mikið að þakka og hann
vill hjálpa til á Hlíðarenda og vonandi sjá félag-
ið aftur vinna til titla í fótboltanum. „Það er búið
að gera samning við Reykjavíkurborg sem á
eftir að styrkja félagið geysilega og gera mönn-
um kleift að einbeita sér frekar að innra starfi
félagsins heldur stöðugum fjárhagserfiðleikum.
Félagið þarf að ná betri árangri, ekki bara í
meistaraflokkunum heldur þarf að hlúa betur
að barna- og unglingastarfinu og styrkja það á
allan máta.“
Get vonandi komið leikmönnum til Bolton
Þó svo að Guðni sé fluttur heim í Fossvoginn
í Reykjavík og hafi kvatt félaga sína í Bolton
formlega þá hafa tengsl hans við enska liðið
ekki verið rofin. Sam Allardyce, knatt-
spyrnustjóri Bolton, hefur fengið Guðna í lið
með sér og beðið hann að hafa augun opin varð-
andi að útvega leikmenn til Bolton og þá helst
fleiri Bergssyni, Guðjohnsen og Gunnlaugssyni
eins og Allardyce orðaði það í enskum fjöl-
miðlum. Þar á knattspyrnustjórinn við Guðna,
Eið Smára Guðjohnsen og Arnar Gunnlaugsson
en allir hafa þeir gert garðinn frægan hjá Bolt-
on.
„Ég ætla að vona að ég geti komið ein-
hverjum leikmönnum til Bolton. Ég hefði mjög
gaman af ef hægt væri að viðhalda íslenskum
tengslum við félagið. Við höfum verið þarna
nokkrir og gengið vel þannig að ég veit að það
er fullur vilji hjá Bolton að fá fleiri Íslendinga.
Þeir eru hálfhvumsa yfir því, sem þeim finnst,
fjölda hæfileikaríkra leikmanna sem virðast
vera hér á landi miðað við höfðatölu. Það búa
álíka margir í Bolton og á öllu Íslandi og það má
telja á fingrum annarrar handar þá atvinnu-
menn sem hafa koma frá Bolton í dag. Þeir eru
að vonast eftir samstarfinu við Val og eins í
gegnum mig að fá unga og efnilega leikmenn til
æfinga og að það verði góðir íslenskir leikmenn
innanborðs í framtíðinni. Ég hefði gaman af því
að fá tækifæri til að hjálpa strákum til að fara út
í atvinnumennsku. Þetta er spennandi en harð-
ur heimur og ég held að ég gæti gefið góð ráð í
því sambandi og einnig nýtt mín sambönd vel.“
Þegar Guðni er inntur eftir því hvort það kitli
hann eitthvað að taka að sér þjálfun er hann
fljótur til svara: „Nei, það gerir það ekki. En
auðvitað er ég eins og aðrir knattspyrnumenn.
Ég er með mínar hugmyndir um hvernig ég
myndi móta lið, stýra því og láta það spila góða
fótbolta og sjálfsögðu að vinna til titla. Þessi
draumaveröld er til staðar í huga mínum eins
margra annarra en ég ætla að takast á við lög-
fræðina og gefa henni tækifæri og reyna að
standa mig í henni. Lögfræðin mun verða til
staðar í mínu lífi alla vega næstu árin.“
Guðni segir að það eigi eftir að koma í ljós
hvernig hann muni sinna lögfræðinni og á
hvern hátt. „Ég geri mér alveg grein fyrir því
að ég á margt eftir ólært og er rennandi blautur
á bak við eyrum. Ég hef hins vegar öðlast
ákveðna lífsreynslu í gengum atvinnumennsk-
una og vonandi getur þessi reynsla nýst mér í
lögfræðinni á einn eða annan hátt. “
Reuters
Morgunblaðið/Börkur Arnarson
gummih@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2003 11
’ Ég hef haft það viðhorfað horfa fyrst á það sem er
inn á við. Það er að sinna
sínu starfi og sínu hlut-
verki og ef allir gera það
verður liðsheildin sterkari.
Og sem fyrirliði hef ég
reynt að miðla af reynsl-
unni og ekki síður að
hvetja menn áfram. ‘