Morgunblaðið - 25.05.2003, Blaðsíða 4
4 C SUNNUDAGUR 25. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Heiðarskóli
í Borgarfirði
auglýsir eftir skólastjóra og kennurum
Staða skólastjóra við Heiðarskóla í Leirár-
sveit, Borgarfirði, er laus til umsóknar.
Meginhlutverk skólastjóra er að stýra og bera
ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
og veita honum faglega forystu á sviði kennslu
og þróunar í skólastarfi.
Leitað er að umsækjanda með:
Kennaramenntun og kennslureynslu.
Stjórnunarhæfileika og reynslu af faglegri
og rekstrarlegri stjórnun.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Metnað í starfi og áhuga á skólaþróun og
nýbreytni.
Æskilegt er að umsækjandi sé með framhalds-
menntun á sviði stjórnunar og/eða í uppeldis-
og kennslufræðum.
Umsókn fylgi yfirlit um nám og störf, gögn er
varða frumkvæði á sviði skólamála auk annarra
gagna sem umsækjandi telur að málið gæti
varðað.
Kennara vantar einnig við Heiðarskóla
Um er að ræða almenna kennslu, stuðnings-
og sérgreinakennslu, t.d. tónmenntar- og
myndmenntarkennslu.
Heiðarskóli er einsetinn grunnskóli með um
115 nemendur í 1.—10. bekk í Leirársveit í
Borgarfirði, sunnan Skarðsheiðar. Nemendum
er ekið í skólann og við hann er starfrækt mötu-
neyti. Heiðarskóli er nærri þjóðvegi 1. Örstutt
er til Akraness og Borganess. Til Reykjavíkur
er um 40 mín. akstur. Fjögur sveitarfélög sunn-
an Skarðsheiðar eru með byggðasamlag um
rekstur skólans. Skólastarfið er metnaðarfullt
og þjónusta við nemendur góð. Byggð er
vaxandi og nemendum fer fjölgandi.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2003. Umsóknir
sendist í Heiðarskóla, 301 Akranesi. Ráðið
verður í störfin frá og með 1. ágúst 2003.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Nánari upplýsingar veita Haraldur Haraldsson
skólastjóri í síma 433 8920/893 9920, netfang
harhar@ismennt.is og Jón Haukur Hauksson,
formaður byggðasamlags, í síma 433 4400/
898 7653, netfang jon.haukur@logvest.is .
Lausar stöður við
grunnskóla og
leikskóla á Hornafirði
Nesjaskóli, 1.—3. bekkur
Laus staða íþróttakennara
Skólastjóri - 478 1445/478 1939/
thorvaldurj@nesjaskoli.is
Hafnarskóli, 4.—7. bekkur
Lausar staða umsjónarkennara
Skólastjóri 478 1004/478 1817/ 863 4379/
dadda@hafnarskoli.is
Heppuskóli, 8.—10. bekkur
Lausar stöður íþróttakennara og umsjónar-
kennara með ensku sem aðalkennslugrein
Skólastjóri 478 1348/478 1321/
gudmundur@heppuskoli.is
Leikskólinn Lönguhólar
Laus staða leikskólakennara
Leikskólastjóri 478 1315/478 2088/
longuholar@eldhorn.is
Leikskólinn Krakkakot
Laus staða leikskólakennara
Leikskólastjóri 478 2280/478 2119/
krakkakot@eldhorn.is
Sjá nánar á http://www.hornafjordur.is/ks
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Skólaskrifstofa Hornafjarðar.