Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 26. MAÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VALLARMET OG FYRSTI SIGUR HEIÐARS / B12
Þetta var síðasti leikur Essen ídeildinni í vetur og síðasti leik-
ur Patreks með liðinu en hann hefur
gert samning við Bidasoa á Spáni og
leikur þar næsta vetur. Hvort vænt-
anlegt keppnisbann Patreks setur
strik í reikninginn varðandi það er
ekki ljóst enn sem komið er og ekki
heldur hvort bannið muni ná til
væntanlegra landsleikja.
„Þetta er alveg ferlegt og ég er í
raun miður mín vegna þessa,“ sagði
Patrekur þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. „Ég reiddist
mjög þegar dómarinn dæmdi ein-
hverja bölvaða vitleysu. Ég hrækti
á gólfið í átt að dómaranum í ein-
hverju æðiskasti og hann útilokaði
mig frá leiknum, sagði að ég hefði
hrækt á hann. Það er ekki rétt, ég
viðurkenni að ég hrækti í átt að
honum til að sýna vanþóknun mína
á því sem hann var að dæma, en
ekki á hann. Auðvitað átti ég ekki að
gera þetta, en þetta er ekkert óal-
gengt í handboltanum og ég átti í
raun von á tveggja mínútna brott-
vísun eða í versta falli rauðu spjaldi
en ekki útilokun,“ sagði Patrekur.
Þetta gerðist þegar leikurinn
hafði staðið í um tíu mínútur og
urðu heimamenn því að leika einum
færri það sem eftir var leiks. „Ég
hefði svo sannarlega kosið að kveðja
Essen með öðrum hætti en þessum,
en því miður varð það ekki,“ sagði
Patrekur.
Umboðsmaður hans var í gær að
skoða málið frá öllum hliðum en
Patrekur sagði að þýskir fjölmiðlar
virtust ganga út frá því að það væri
sjálfkrafa hálfs árs bann ef menn
væru útilokaðir frá leik.
„Ég hef bara ekki hugmynd um
hvort þetta er rétt eða ekki. Eins
veit ég ekki hvort þetta hefur ein-
hver áhrif á hvenær ég get byrjað
að spila með Bidasoa og það sama á
í raun við um þátttöku mína í lands-
leikjum, ég veit ekki hvort þetta
bann, hversu langt sem það nú verð-
ur, nær til landsleikja. Það verður
að koma í ljós og gerir það vonandi
strax í vikunni,“ sagði Patrekur.
Patrekur á yfir höfði
sér langt keppnisbann
PATREKUR Jóhannesson, fyrirliði handknattleiksliðs Essen í
Þýskalandi, á yfir höfði sér keppnisbann í Þýskalandi eftir að hann
var útilokaður snemma leiks frá frekari þátttöku í leik Essen og
Flensburg-Handewitt á laugardaginn.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ágúst Gylfason, fyrirliði Fram, tryggði liðinu 1:1-jafntefli gegn KR í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi er hann skoraði undir
lok leiksins. Bjarki Gunnlaugsson, sem hér fylgist með, lagði upp mark KR-inga. Sjá nánar um deildina á B2, B3, B4, B5, B6 og B7.