Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA
8 B MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN Þórðarson sagði í sam-
tali við enska blaðið Birmingham
Post í gær að framtíð sonar síns,
Jóhannesar Karls Guðjónssonar,
væri í mikilli óvissu eftir að David
O’ Leary var ráðinn knattspyrnu-
stjóri Aston Villa. Jóhannes var á
leigu hjá félaginu frá Real Betis á
Spáni frá því í janúar og Graham
Taylor, sem á dögunum hætti
störfum hjá Villa, hafði mikinn
hug á að kaupa hann þaðan.
„Jóhannes er heima á Íslandi
og veit ekki hvað framtíðin ber í
skauti sér. Graham er farinn og
þar með eru hans mál í lausu lofti.
Það er óvíst að hann spili meira
með Villa. Honum líkaði geysi-
lega vel þar og var ekki aðeins
ánægður með félagið og leik-
mennina, heldur einnig með
stuðningsmennina sem tóku hon-
um vel,“ sagði Guðjón.
Jóhannes Karl sagði hins vegar
sjálfur við Morgunblaðið fyrir
helgina að hann óttaðist ekki um
framtíð sína hjá Aston Villa þar
sem forráðamenn félagsins. „For-
ráðamenn Aston Villa hafa sagt
við mig að þeir vilji halda mér svo
ég hef engar áhyggjur,“ sagði Jó-
hannes Karl í laugardagsblaðinu.
Guðjón segir
framtíð Jóhannes-
ar Karls í óvissu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jóhannes Karl Guðjónsson
HJÁ enska knattspyrnufélaginu
WBA hafa menn samúð með ís-
lenska varnarmanninum Lárusi
Orra Sigurðssyni, a.m.k. ef marka
má umfjöllun um hann á heimasíðu
félagsins. Þar er sagt að á meðan
aðrir leikmenn félagsins baði sig í
sólinni á Krít, Kýpur eða Kanarí-
eyjum, að loknu tímabilinu í úrvals-
deildinni, hafi Lárus Orri hlaupið
um í skóglendi Stafford-sýslu til að
halda sér í æfingu fyrir landsleiki Ís-
lands í næsta mánuði.
Lárus Orri segir í samtali við
heimasíðuna að vegna þess hve
enska deildin sé búin snemma, sé
biðin eftir landsleikjunum löng. „Ég
hafði ekki neinn til að æfa með svo
ég skokkaði einn um nágrennið. Nú
er ég kominn til Íslands en þar er
staðan sú sama því landsliðshóp-
urinn kemur ekki saman fyrr en 2.
júní. Það er erfitt að koma sér á fæt-
ur á hverjum morgni til að fara út að
hlaupa, en ég er tilbúinn til að gera
hvað sem er til að leika fyrir Íslands
hönd. Hugsunin um það heldur mér
gangandi. Við eigum tvo mjög mik-
ilvæga leiki fyrir höndum og ég verð
að halda mér í æfingu. Það er mér
mjög dýrmætt að spila fyrir hönd
minnar þjóðar og það geri ég svo
lengi sem ég verð valinn. Þegar ég
klæðist íslensku landsliðstreyjunni,
er ég fulltrúi minnar fjölskyldu,
minnar heimabyggðar, og minnar
þjóðar, og ég er gífurlega stoltur af
því. Ég hef sungið þjóðsönginn
nærri því 40 sinnum og það kemst
aldrei upp í vana. Það er sama upp-
lifunin í hvert skipti,“ segir Lárus
Orri Sigurðsson.
Lárus Orri hleypur með-
an félagarnir sóla sig
KR-INGAR fengu Eddu Garðars-
dóttur sérstaklega til landsins til að
taka þátt í leiknum gegn Val. Hún
er ekki væntanleg aftur til landsins
fyrr en 10. júní.
BJÖRG Ásta Þórðardóttir lék
fyrsta leik sinn með aðalliði Breiða-
bliks eftir þrálát meiðsli sem hún
varð fyrir um áramót. Þá sneri hún
sig illa á ökkla og eftir um 40 mín-
útna leik gegn FH varð hún fyrir
því óhappi að snúa sig aftur og
verður frá keppni í nokkrar vikur til
viðbótar. Er þetta mikil blóðtaka
fyrir Breiðablik en Björg hefur ver-
ið einn sterkasti varnarmaður liðs-
ins undanfarin ár.
EVA Sóley Guðbjörnsdóttir og
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir mark-
vörður léku ekki með Breiðabliki
gegn FH en þær eiga báðar við hné-
meiðsli að stríða.
MARGRÉT Rannveig Ólafsdóttir
lék að nýju með Breiðabliki gegn
FH. Hún hefur ekkert æft með lið-
inu frá því síðasta haust og hafði
gefið út yfirlýsingu um að hún væri
hætt knattspyrnuiðkun. Hún hefur
endurskoðað þá ákvörðun, mætt á
nokkrar æfingar og kom inná í byrj-
un síðari hálfleiks.
AUÐUR Skúladóttir var ekki í
leikmannahópi Stjörnunnar gegn
Þór/KA/KS en hún hefur verið veik
og var ekki búin að jafna sig af
þeim veikindum fyrir leikinn á laug-
ardag.
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir lék
ekki með ÍBV gegn Þrótti/Haukum
á laugardag. Hún lenti í miklu sam-
stuði við félaga sinn á æfingu og var
óttast að hún hefði brotið kinnbein.
Svo reyndist ekki vera en hana
prýða nú tvö myndarleg glóðaraugu
auk mikillar bólgu á hægra kinn-
beini.
TÆPT var með Ásthildi Helga-
dóttir fyrir leik KR gegn Val. Hún
tognaði á nára fyrir nokkru og var
tvísýnt með hana fyrir leikinn. Hún
lauk hinsvegar leiknum og virðist
vera komin í samt lag.
ELÍN Jóna Þorsteinsdóttir, leik-
maður KR og landsliðsins, fór í upp-
skurð á vinstra hné á föstudag þar
sem krossbönd voru löguð. Hún
verður því frá í allt sumar en hún
var meðal áhorfenda í Frostaskjóli
á laugardag.
CHRISTINA Cini, 33 ára ítölsk
stúlka, skráði nafn sitt í sögubæk-
urnar þar í landi á laugardaginn
þegar hún varð fyrst kvenna til að
gegna hlutverki aðstoðardómara í
efstu deildinni á Ítalíu.
CINI var með flaggið á línunni í
leik Juventus og Chievo og þótti
standa sig vel. Hún hafði fyrr í vet-
ur verið fjórði dómari á leik í deild-
inni en á laugardaginn steig hún
skrefið til fulls.
FÓLK
Valsstúlkur fóru mjög varlegainn í leikinn, þær lágu fullaft-
arlega á vellinum og vörðust sókn-
armönnum KR-inga
lipurlega. En Vals-
menn hafa mjög
fljóta leikmenn inn-
an sinna raða og
skyndisóknir þeirra reyndu mjög á
varnarlínu KR-inga, og á 34. mín-
útu uppskáru þær mark. Kristín Ýr
Bjarnadóttir fór illa með varnar-
menn KR út við hornfána vinstra
megin, sendi góðan bolta fyrir þar
sem Laufey Ólafsdóttir var ein og
óvölduð, og sendi hann viðstöðu-
laust í markhornið fjær með
vinstrifótarskoti.
KR-liðið kom mjög ákveðið til
síðari hálfleiks og eftir aðeins fimm
mínútur hafði Ásthildur Helgadótt-
ir, sem komin var af miðjunni í
framlínuna, jafnað metin. Edda
Garðarsdóttir tók aukaspyrnu rétt
framan við miðlínu og sendi boltann
beint á kollinn á Ásthildi sem skall-
aði boltann í autt markið. KR-ingar
sóttu miklu meira eftir markið og
sköpuðu sér nokkur ákjósanleg færi
en það voru Valsstúlkur sem skor-
uðu næsta mark. Kristín Ýr
Bjarnadóttir fékk þá boltann utan
vítateigs, skaut í varnarmann, fékk
boltann aftur og skilaði honum yfir
Þóru, markvörð KR, og í netið. Ást-
hildur var fljót að jafna, 2:2. Hún
skaut að marki, fékk boltann aftur
frá varnarmanni, rétt innan víta-
teigs, þaðan sem hún skoraði í autt
markið eftir misheppnað úthlaup
Guðbjargar markvarðar.
„Ég get ekki verið annað en
ánægð með tvö mörk gegn KR, tvö-
földum meisturum síðasta árs, og
það hefði verði stórkostlegt að fara
héðan með öll stigin. Jafntefli er
næstbesti kostur. Mér fannst við
bakka fullmikið eftir fyrsta markið
en það er kannski eðlilegt í stöð-
unni. Fyrri hálfleikurinn var betri
af okkar hálfu heldur en sá síðari
þar sem við fengum á okkur tvö
ódýr mörk. Þetta eru tvö góð lið og
kannski var jafntefli sanngjörn nið-
urstaða,“ sagði Helena Ólafsdóttir,
þjálfari Vals.
Valsliðið lék á köflum ágætlega.
Leikmenn liðsins eru léttleikandi
og baráttuglaðir en það sem liðið
skortir helst er reynsla og þá fyrst
og fremst meistarareynsla. Í leikn-
um í gær sást reynsluleysið best
þegar liðið skoraði fyrsta markið. Í
stað þess að halda áfram eins og
það hóf leikinn bakkaði liðið og
hugðist halda fengnum hlut. Gegn
KR er það ekki viturleg ákvörðun
en þar fer einmitt reyndasta lið
deildarinnar á þessu sviði. Kristín
Ýr Bjarnadóttir og Laufey Ólafs-
dóttir léku best í liði Vals.
„Leikur okkar var ekki nægilega
góður í fyrri hálfleik, við vorum
undirmannaðar á miðjunni en eftir
að við breyttum leikskipulaginu fór
þetta að ganga betur hjá okkur,“
sagði Ásthildur Helgadóttir og var
ekki sátt við að ná ekki að hirða öll
stigin á lokakafla leiksins.
KR-ingar kölluðu á Eddu Garð-
arsdóttur sérstaklega í þennan leik,
en hún stundar nám í Bandaríkj-
unum og var ekki væntanleg til
landsins fyrr en í byrjun júní. Það
var skynsamleg ákvörðun því hún
réð lögum og lofum á miðjunni í
þessum leik og mataði samherja
sína á frábærum sendingum. Sér-
staklega var gaman að sjá sam-
vinnu Eddu og Ásthildar, eftir að
Ásthildur var færð framar á völlinn,
enda gjörþekkja þær hvor aðra eft-
ir margra ára samvinnu og voru
bestu leikmenn liðsins.
Stórskotahríð Eyjastúlkna
ÍBV-stúlkur fylgdu eftir sigri áStjörnunni í fyrstu umferð með
stórsigri á nýliðum Þróttar/Hauka í
Vestmannaeyjum á
laugardaginn. Leik-
urinn endaði 9:1 og
hefði sigurinn hæg-
lega getað orðið
mun stærri. Olga Færseth og
Mhairi Gilmour skoruðu þrjú mörk
hvor og þær Karen Burke, Thelma
Sigurðardóttir og Lára Dögg Kon-
ráðsdóttir eitt hver.
Eyjastúlkur sýndu það í þessum
leik að þær eru til alls líklegar í
sumar, Karen Burke átti stórgóðan
leik á hægri kantinum og fóru flest-
ar sóknir ÍBV í gegnum hana. Olga
var ógnandi frammi en hefði auð-
veldlega getað skorað helmingi
fleiri mörk miðað við færin sem hún
fékk. Annars átti Eyjaliðið í heild
sinni góðan dag. Hjá gestunum var,
þótt tölurnar gefi það ekki til
kynna, Ingibjörg Jóhannsdóttir
markvörður besti leikmaðurinn.
Hún varði oft á tíðum stórglæsilega
og kom í veg fyrir enn stærri sigur
ÍBV.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV, var að sjálfsögðu sáttur við
sínar stúlkur að leikslokum. „Að-
stæðurnar buðu bara upp á frábær-
an leik hérna í dag og nú náðu
stelpurnar að halda hraðanum allan
leikinn,“ sagði Heimir og bætti við
að þau hefðu verið að vinna í
ákveðnum hlutum sem skiluðu sér
vel í dag.
„Markvörðurinn hjá þeim kom í
veg fyrir miklu stærri sigur, frábær
markvörður, og sorglegt fyrir hana
að vera besti maður liðsins en fá
samt á sig níu mörk,“ sagði Heimir.
Reynsluleysið Vals-
stúlkum fjötur um fót
Morgunblaðið/Sverrir
Dóra Stefánsdóttir úr Val og fyrrverandi samherji hennar, Erna Erlendsdóttir, sem nú leikur með
KR, eigast við í leiknum á KR-vellinum á laugardaginn. Liðin skildu jöfn, 2:2.
STÓRLEIKUR helgarinnar í úr-
valsdeild kvenna í knattspyrnu
var háður vestur í Frostaskjóli á
laugardaginn. Þar tóku Íslands-
og bikarmeistarar KR á móti
Valsstúlkum, sem spáð hefur
verið sigri í deildinni í sumar.
Liðin gerðu stórmeistarajafn-
tefli, 2:2.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar