Morgunblaðið - 27.05.2003, Page 1
Þriðjudagur
27. maí 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað B
Stjórnbúnaður
fyrir
varmaskipta
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Spörum
heitavatnið
Hætta á
sóun yfir
sumarið 10
Húsfullt
aftöfrum
Fallegthús
viðSkipasund
Óvenjulegt
hús
í Madrid 22
Gaflsneið-
ingar
og kvistir 31
"# $ % &' # ( ) && #
" $ ' )& # # % # ( &)
(# & ) && # # " $ % '
* ! !
+
& !
+
,-.
/
,-.
/
!
"#$
%%$!%&&'
12+3+
$3
&
4
567
.38
94
-:!
$
;!+!<
& ;!+!<
)+2
;!+!<
& ;!+!<
!
(
. / ( +
&+= / >>>!!
? 3@ A B
!
!
!
!
!0
"#0
"# " $%
)*
+% 3@ A B
"%-
%
'
%'
%.
"&
/
"//
%$-'/
"%01
%&
%#%0&
"'0"
#@ B
2! 3
! $ "/$
%-$!%&&'
9 +
,
(
& &
!
!
!
! ! & B
$ $
101 Skuggahverfi er ætlað mikið
hlutverk í miðborg Reykjavíkur,
en gert er ráð fyrir að 700–800
manns muni búa í hverfinu og að
fullbyggt muni það leiða til um
30% fjölgunar íbúa í miðborginni.
Helstu kennileitin verð þrjár
sextán hæða byggingar og aðal-
útsýnishlið þeirra snýr að Skúla-
götunni. Götumyndin verður heil-
leg á eftir og Skúlagatan án efa
ein glæsilegasta og tilkomumesta
gata borgarinnar.
Sala er nú hafin á fyrsta
áfanga 101 Skuggahverfis, sem er
fyrir vestan Vatnsstíg. Þar verða
93 íbúðir, en þessum íbúðum á að
skila í september 2004. Íbúðirnar
eru mjög mismunandi, en um tólf
stærðir er að ræða á bilinu 54
ferm. og upp í 270 ferm. þak-
íbúðir.
Mikill áhugi er á þessum íbúð-
um úti á markaðnum og margir
hafa þegar lagt inn pantanir.
Íbúðirnar eru til sölu hjá Eigna-
miðluninni og Húsakaupum. / 26
101 Skugga-
hverfi
UNDANFARNA daga hefur verið
yfirverð á húsbréfum til 40 ára,
sem þykja nokkur tíðindi, en þó
nokkur ár eru liðin síðan slíkt
gerðist síðast. Ávöxtunarkrafan og
afföll af 25 ára húsbréfum hafa líka
lækkað að sama skapi, þó að þau
séu ekki enn á yfirverði.
„Það er erfitt að spá neinu með
vissu um, hvort áframhald verður
á þessari þróun,“ segir Hreiðar
Bjarnason, sérfræðingur á verð-
bréfasviði Landsbankans. „Það er
mikil eftirspurn eftir húsbréfum
erlendis frá og það er hún miklu
fremur en þróunin í fjármálum hér
innanlands, sem veldur þessari
lækkun ávöxtunarkröfunnar, sem
þýðir um leið hærra verð á hús-
bréfunum.
Þessi þróun er að sjálfsögðu
hagstæð fyrir fasteignaviðskipti,
en hún kemur sér líka vel fyrir þau
fyrirtæki, sem fjármagna sig með
skuldabréfaútgáfu, því að vextir af
húsbréfum mynda grunnvexti fyrir
önnur skuldabréf. Það lækkar fjár-
magnskostnað þessara aðila, ef
þessi þróun helzt, þar sem þeir fá
þá betri kjör en áður.“
Líflegur markaður
Að sögn fasteignasala hefur ver-
ið líflegur markaður að undan-
förnu með íbúðarhúsnæði og frek-
ar borið á skorti á íbúðum en of
miklu framboði. Vesturbær, Foss-
vogur og Seltjarnarnes eru hvað
eftirsóttustu hverfin eins og áður.
Þá vekur það athygli, að mjög hátt
verð virðist ekki vera sama hindr-
un og var.
„Það virðist ekki vera neitt þak
á verði lengur og við sjáum hús
seljast á 40, 50 og jafnvel 60 millj.
kr. eins og ekkert væri,“ sagði einn
fasteignasalinn.
„Aðal eftirspurnin er samt eftir
íbúðarhúsnæði allt að 16 til 18
millj. kr. en þá dregur úr henni og
kaupendur eru orðnir mjög kröfu-
harðir þegar verð á eignum er
komið yfir 30 millj. króna.“
Það hefur samt legið í loftinu að
mati sumra, að fasteignaverð ætti
eftir að hækka en lækkandi afföll á
húsbréfum hefur liðkað fyrir við-
skiptum og hamlað gegn hækkun-
um. Seljendur eru tilbúnari en ella
til að selja núna vegna hagstæðs
gengis á húsbréfunum. En sumir
ættu erfitt með að trúa því að það
ástand héldist lengi.
Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði
hefur verið að glæðast. Það er
meira um fyrirspurnir og svo er að
sjá, sem lítils háttar hreyfing sé að
komast á þann markað.
Yfirverð á húsbréfum
hefur jákvæð áhrif
Morgunblaðið/Árni Torfason