Morgunblaðið - 27.05.2003, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 B 21HeimiliFasteignir
KÓPAVOGUR
Hlíðasmári 15, 595 9090
Hófgerði
Vorum að fá í sölu neðri hæð í tvíbýlishúsi
samtals 123,1 fm þar af er 32,9 fm bílskúr. 3
herbergi og stofa. Áhv. ca 4,4 millj. húsbr.
Verð 14,5 millj.
Ný
tt
Fífulind
Mjög björt og rúmgóð 6 herb. 158,6 fm íbúð
á tveimur hæðum á góðum úrsýnisstað.
kirsuberjainnréttingar. Fallegt eldhús. Verð
16,9 millj. (5054)
Ný
tt
Lómasalir - Útsýni
Fjórar 4ra herb. 116,5-118,1 fm íbúðir með
stæði í bílgeymslu eru enn eftir á annarri,
þriðju og fjórðu hæð sem verður afhent í júní
2003 með glæsilegu útsýni. Húsið verður filt-
múrað og steinað. Íbúðir skilast fullfrágengn-
ar án gólfefna. Möguleiki er að fá íbúðir af-
hentar tilbúnar undir tréverk. Verð frá 14,6
millj.
Ný
tt
Sumarbústaður - Arnar-
stapa
Vandaður bústaður með frábæru útsýni.
Heitur pottur og stór verönd. Bústaðurinn
er 42 fm auk 15 fm svefnlofts. Tvö svefn-
herbergi. Verð 7 millj.
Sumarhús - Fitjar 111 Mjög
gott sumarhús á góðum útsýnisstað í
Skorradalnum. Bústaðnum fylgir
sérgufuhús. Verð aðeins 8,5 m. Skoðar
ýmis skipti
Illugastaðir - Vaglaskógur
Einstaklega hagstætt verð. Til sölu 45,1
fm heilsárs sumarhús. 3 herbergi. Húsið
getur verið í leigu að hluta árssins. Ein-
stök náttúrufegurð, sundlaug, veiði og
iðandi mannlíf. Verð aðeins 2,9 millj.
SUMARHÚS
Auðbrekka - Kópavogi 140
fm iðnaðarhúsnæði með innkeyrsludyr-
um. Mjög snyrtilegt pláss. Ágæt skrif-
stofa og kaffistofa. Nýtt rafmagn og nýir
ofnar. Þar er nú rekið trésmíðaverk-
stæði. (5102) Verð kr 10,5 millj.
Bæjarlind Til leigu, skrifstofuhæð á
3. hæð í glæsilegu húsi um 800 fm sem
hægt er að skipta niður eftir þörfum og
er skilað skv. þörfum leigutaka. Hagstæð
leigukjör.
Efstihjalli 2ja herbergja 56,8 fm
íbúð á 1. hæð á þessum frábæra stað í
Kópavogi. Verð 8,9 millj. (5068)
Lækjasmári Glæsileg 2 herb. 70,4
fm íbúð á jarðhæð í Lækjasmára til sölu.
Rauðeikarparket á gólfum. Náttúruflísar
á forstofu/gangi. Allar innr. úr kirsuberja-
viði. Baðherb. flísalagt. Sérmerkt bíla-
stæði í lokaðri bílageymslu. Verð 11,9
millj. (5022)
Furugrund - mikið áhv.
Mjög falleg og vel skipulögð 54 fm 2ja
herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli á
þessum barnvæna stað í Kópavoginum,
áhvílandi byggsj, húsbr. og viðb. lán.
Verð 9,2 millj.
Engihjalli 3ja herb. 84,4 fm íbúð á
efstu hæð í góðu 8 hæða húsi með gríð-
arlegu útsýni í suðaustur. LAUS STRAX!
Verð 10,2 millj. (5069)
Kjarrhólmi
3ja Herb. 75,1 fm íbúð í fjölb. við úti-
vistasv. í Fossvogsdal. Suðursvalir.
Rúmgóð og björt íbúð með útsýni yfir
Esjuna. Verð 10,8 millj. (4975)
Lindasmári 3ja herb. 83,9 fm
mjög góð íbúð. Rúmgóð stofa. Þvottah. í
íbúð. Suðursvalir. Verð 13,9 millj. (4759)
Lindasmári 3ja herb. 83,9 fm íbúð
á eftirsóttum stað í Kópav. Falleg björt
með suðursvölum. Þvottah. inní íbúð.
MJÖG GOTT VERÐ 12,9 millj. (8457)
ja herb.
ja herb.
Atvinnuhúsn. Lautasmári - Lækkað verð
Mjög skemmtileg 83,9 fm íbúð á 2. hæð
á góðum stað í Kópavoginum. Stutt í alla
þjónustu, mjög barnvænt hverfi, laus
fljótlega. Verð 13,5 millj. (4746)
Gullsmári 4 herbergja 94,6 fm íbúð
á 2. hæð. Opið eldhús með góðum tækj-
um. Stór og björt stofa. Geymsla í
íbúð.og þvottavélatengi í baðherbergi.
Verð 13,9 millj. (4983)
Hlíðarhjalli 4ra herb. 94,4 fm íbúð í
fjölbýli á 1. hæð með miklu útsýni af suð-
ursvölum. Parket. Björt og falleg íbúð.
Verð 13,6 millj. (4974)
Kórsalir Glæsileg 110,5 fm 4ra
herb. íbúð í nýju (lyftu) fjölbýlishúsi í
Lindahverfi. Rúmgóð herbergi og fallegar
innréttingar. Suðursvalir með útsýni. Fal-
leg eign. Bílageymsla. Verð 17,3 millj.
(5005)
Lindasmári Afar snyrtileg 105 fm
íbúð á 3. hæð til sölu við Lindasmára.
Forstofa flísalögð, parket á stofu, eldhús
opið við stofu. Baðherbergi flísalagt,
baðkar og sturtuhengi. 3 svherb. á efri
hæð. Verð 14,8 millj. Áhv. 6,8 millj.
(4971)
Sólarsalir - Kóp. Einstaklega
skemmtileg samt. 125 fm 4 herb. íbúð á
jarðhæð ásamt 22,6 fm innb. bílskúr. 3
rúmgóð svefnh. Glæsileg flísalagt bað-
herbergi m/kari. Stór og björt stofa. Fal-
legt eldh. Sér grill-garður.
Fífulind 4- 5 herbergja Ein-
staklega falleg 132,6 fm endaíbúð á
efstu hæð. 3-4 svefnh. Björt stofa.
Glæsil. eldhús. Baðherb. m/kari og
þvottah. innaf. Suðurgrillsvalir. Fallegt út-
sýni. Ath. makask. á ód. 4ra herb. í Kóp.
Verð 16,7 millj.
Hátröð lækkað verð Fallegt
einbýli á grónum stað í Kópavogi. End-
urnýjaðir ofnar, pípu- og raflagnir. Góð
verönd, garðskáli og heitur pottur. Góður
skúr og aukaíbúð (leigutekjur). Verð 24,9
millj. Áhv. húsbr. 4,5 millj. (4391)
ja herb.4-5
BLÓMABORG
Breiðumörk 12 í Hveragerði er til sölu
Eignin skiptist í eftirfarandi hluta: Verslun og gróðurskáli sem eru samtals um 600 fm, þar er rek-
in ein þekktasta og elsta blómaverslun landsins, einnig verslun með gjafavörur, ritföng, garðyrkju-
og blómavörur, myndbandaleiga, ís- og sælgætisverslun.Stórt íbúðarhús með tveim íbúðum og
tvöföldum bílskúr, 240 fm. Steyptur grunnur, 100 fm, með byggingaleyfi fyrir tveggja hæða
verslunarhús. Um er að ræða mikla og vel rekna rekstrareiningu, sem býður upp á fjölmörg tæki-
færi í framtíðinni bæði við verslunarrekstur og möguleika í veitinga- og ferðaþjónustu.
Allar upplýsingar: Auðunn 899 5487 og Helga 483 4225 og á www.south.aust.is
Helga Björk Björnsdóttir, Blómaborg, Breiðumörk 12, 810 Hveragerði
blomaborg@centrum.is – Sími 483 4225 – 483 5038 – Fax 483 4760
STARFSMENN fyrirtækisins Fag-
úttektar ehf. fóru á dögunum til Nor-
egs að kynna sér ástandsskoðun þar í
landi. Markmið ferðarinnar var tví-
þætt, í fyrsta lagi til að kynna sér
þær aðferðir sem notaðar eru við
ástandsskoðanir fasteigna í Noregi
og í öðru lagi til að kynna sér öfluga
starfsemi fagfélaga í greininni.
Þekkingin verður notuð til frekari
uppbyggingar á starfsemi Fagút-
tektar ehf. á Íslandi.
Lagalegt umhverfi um kaup, sölu
og afhendingu fasteigna er nokkuð
svipað í Noregi og á Íslandi. Upplýs-
ingaskylda seljanda er nánast sú
sama, en aðgæsluskylda kaupanda
er nokkuð önnur.
Eftir nýjustu breytingarnar á ís-
lensku lögunum um fasteignakaup
nr. 40/2002 eru gerðar meiri kröfur
til kaupenda á Íslandi en í Noregi.
Við þessar breytingar jókst þörfin á
ástandsskoðun miðað við það sem áð-
ur var. Á Íslandi eru flestar ástand-
sskoðanir gerðar fyrir kaupendur. Í
Noregi er þessu öfugt farið þar sem
seljendur láta yfirleitt ástandskoða.
Hvort það sé afleiðing nýju lagana
sem hefur þessi áhrif er ekki vitað,
en að mati flestra, bæði á Íslandi og í
Noregi, eru hagsmunir seljanda það
miklir að það þykir eðlilegast að þeir
láti ástandsskoða.
Norðmenn hafa líkt og Íslendingar
ekki sett ástandsskoðun sem skyldu
né valkvæði í fasteignalögin. Þrátt
fyrir að ekki séu lög eða reglugerðir
til um ástandsskoðun hafa Norð-
menn byggt upp fagfélög utan um
starfsemi fyrirtækja og einstaklinga
sem starfa við fagið.
Fagfélögin eru fjögur og markmið
þeirra er að halda utan um faglegu
hliðina á ástandsskoðunum. Þeirra
hlutverk er að stuðla að aukinni
menntun, samræmingu upplýsinga,
umsjón um hugbúnað skoðunar-
manna, betri tryggingum, neytenda-
vernd o.fl.
Í stærsta félaginu, Norges Taks-
eringsforbund (NTF) eru t.d. yfir
850 meðlimir. Kröfur félagana um
menntun félagsmanna eru töluverð-
ar og eru inngönguskilyrði til grunn-
menntunar að viðkomandi sé að lág-
marki byggingarmeistari.
Fagfélögin hafa sameinast um
staðlaða skýrslu sem þeir kalla Bol-
igsalgrapport. Skýrslan saman-
stendur af tveimur meginþáttum
sem eru efnislýsing og ástand. Í efn-
islýsingu er sagt frá því byggingar-
efni sem er notað t.d. hvort húsið sé
úr tré eða steini, hvort veggir séu
klæddir með spón eða gifsi, flísalagð-
ir eða málaðir, hvort gler er einfalt
eða tvöfalt o.s.frv. Ástandinu er síðan
lýst með 4 mismunandi stigum.
Félagsmenn hafa einnig aðgang að
öðrum skýrsluformum sem taka á
ýmsum sérhæfðum þáttum eins og
verðmati, skoðun á meintu gallamáli,
ástandsskoðun án efnislýsingar o.fl.
Áður fyrr voru ýmsar útgáfur af
ástandsskýrslum í gangi, en Norð-
menn eru þó almennt byrjaðir að
nota „Boligsalgrapport“ við ástand-
sskoðanir enda leggja fagfélögin ríka
áherslu á notkun hennar af sínum fé-
lagsmönnum.
Heimsókn til íslensks
matsmanns í Tönsberg
Í Noregi starfar Gunnar Sverris-
son sem matsmaður við ástandsskoð-
anir fasteigna. Markmið ferðarinnar
var meðal annars að
hitta hann og fá betri
innsýn í starf mats-
manns. Gunnar starfar
hjá Taksthuset og er
einn af fjórum mats-
mönnum fyrirtækisins.
Hann hefur starfað við
ástandsskoðanir í 4 ár
og hefur töluverða inn-
sýn og skoðanir á mál-
efnum fagsins.
Gunnar byrjaði á því
að kynna starfsemi fyr-
irtækisins fyrir okkur
og ásamt þeim tólum og
tækjum sem þeir nota
við úttektir. Farið var
almennt yfir starf matsmanns og
samstarf þeirra við fasteignasölur og
tryggingafélög, en Gunnar vinnur
einnig töluvert við úttektir á vegum
tryggingafélaga.
Til að kynna okkur nánar aðferðir
Norðmanna fórum við með Gunnari í
eina skoðun. Húsið var 170 fermetra
timburhús á hlöðnum sökkli. Bygg-
ingaraðferðir Norðmanna eru tölu-
vert frábrugðnar okkar stöðlum og
ekki sömu kröfur gerðar varðandi
burðarvirki o.fl.
Skoðunin tók um 2,5 klukkutíma
en töluverður tími fór í umræður um
mismunandi byggingarreglugerðir
og aðferðir. Mikil áhersla var lögð á
að athuga raka- og lekaskemmdir í
húsnæðinu. Hluti af vinnu mats-
mannsins er að upplýsa hvort gler,
þak, rennur, niðurföll o.fl. sé að koma
á endurnýjunartíma m.v. þá endingu
sem efnið hefur.
Gunnar hafði fartölvu meðferðis
og gerði ástandsskýrsluna á staðn-
um. Skýrslan er unnin í forriti sem
var útbúið af NTF og er í almennri
notkun meðal skoðun-
armanna í Noregi. For-
ritið einfaldar mjög alla
uppsetningu og staðl-
aðir frasar eru mikið
notaðir. Skýrslan er
síðan kláruð endanlega
þegar komið er til baka
á skrifstofuna. Skýrsl-
an er send rafrænt til
fasteignasölunnar og
útprentað eintak er
sent til seljandans.
Mjög algengt er að
kaupendur fasteigna
krefji seljendur um að
þeir láti ástandsskoða
fasteignir sínar.
Ferð okkar til Noregs var mjög
lærdómsrík bæði hvað varðar fram-
kvæmd almennrar skoðunar og einn-
ig þeirri hlið sem snýr að faginu
sjálfu og þeirri umgjörð sem fag-
félögin hafa byggt um starfsemi
matsmanna. Áherslupunktar okkar
hér á landi ættu að liggja í uppbygg-
ingu fagfélags sem stuðlar að sam-
ræmingu bæði í almennri matsvinnu
og menntun matsmanna.
Við þurfum að byggja upp um-
hverfi þar sem matsmenn geta
tryggt sig gegn skakkaföllum og þá
tekið almenna ábyrgð á þeirri vinnu.
Með þessu móti skapast traust og
trúnaður gagnvart fasteignasölum
og viðskiptavinum þeirra.
Við Íslendingar eigum enn eftir
langa leið að byggja upp þessa iðn-
grein sem svo sannarlega er þörf á
þar sem ástandsskoðun er fyrir-
byggjandi ráðstöfun sem kemur öll-
um þeim sem starfa við fasteignaum-
sýslu til góða.
Yfir 50% fasteigna
ástandsskoðuð í Noregi
Skoðað var hús í Tönsberg, timburhús á hlöðnum sökkli.
Gunnar Sverrisson matsmaður við ástandsskoðun á húsinu í Tönsberg.
Við Íslendingar eigum enn
eftir langa leið til að
byggja upp þessa iðn-
grein, segir Pétur Jóns-
son, framkvæmdastjóri
Fagúttekar ehf. Ástands-
skoðun er fyrirbyggjandi
ráðstöfun, sem kemur öll-
um þeim, sem starfa við
fasteignaumsýslu til góða.
petur@faguttekt.is
Pétur Jónsson