Morgunblaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 28
ÚR VESTURHEIMI 28 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ S ÍÐAN árið 2000 hefur mikið verið reynt til að fá víkingaskip til Gimli í þeim tilgangi að minna enn frekar á uppruna Kanadamanna af íslenskum ættum á svæðinu og auka ferðamanna- strauminn til Nýja Íslands. Fyrst og fremst var litið til íslenska skipsins Íslendings en þegar sú von varð að engu var leitað annarra leiða. Skip fannst í Nýfundnalandi en flutn- ingskostnaður og annar kostnaður er mikill. Þegar Safn íslenskrar menningararfleifðar í Nýja Íslandi fékk víkingasýninguna Full Circle: First contact, Vikings and Skrael- ings in Newfoundland and Labra- dor, sem verður í safninu í sumar, þótti tilvalið að hafa víkingaskip á Winnipegvatni samfara sýningunni, en vegna kostnaðar var útlitið ekki gott fyrr en Gary Doer tryggði komu skipsins með 70.000 dollara framlagi ríkisstjórnarinnar fyrr í mánuðinum. Framlagið nægir þó ekki til að greiða allan kostnað vegna skipsins og stendur aukin fjáröflun yfir, en meðal annars hef- ur verið leitað eftir stuðningi frá Ís- landi. „Þessi styrkur gerir það að verkum að við ráðumst í þetta verk- efni og vonandi tekst okkur að brúa bilið með einhverjum öðrum hætti, en við höfum meðal annars óskað eftir stuðningi frá íslensku rík- isstjórninni,“ segir Tammy Ax- elsson, framkvæmdastjóri safnsins. Mikið aðdráttarafl „Þessi 44 feta [um 13,5 m] eft- irlíking víkingaskips, sem verður í Gimli í sumar, áréttar sterk menn- ingartengsl Íslands og Manitoba,“ segir Gary Doer forsætisráðherra og lýsir yfir mikilli ánægju með að málið hafi verið leyst. „Vík- ingaskipið og víkingasýningin verða mikið aðdráttarafl fyrir heimamenn og ferðamenn og þetta mun auka þann ljóma sem umlykur okkar íslensku sögu.“ Gert er ráð fyrir að skipið verði sett á Rauðá í Winnipeg 9. júní en þaðan verður því siglt norður til Gimli og er ráðgert að það verði þar 21. júní, þegar sýningin verður opnuð. Fólk getur síðan farið í styttri og lengri siglingar með skip- inu á Winnipegvatni í sumar en auk þess verða ýmsar uppákomur tengdar því og sýningunni. Gary Doer segist vera sann- færður um að víkingaskipið eigi eftir að vekja mikla athygli á Gimli í sumar. „Það verður mikil ásókn í þetta skip og ekki aðeins frá fólki af íslenskum uppruna heldur frá öllum almenningi. Ég á líka von á auknum ferðamannastraumi frá Bandaríkjunum, einkum frá Norð- ur-Dakota og Minnesota, vegna skipsins.“ Mikill áhugi var í íslenska sam- félaginu í Manitoba á að fá vík- ingaskipið Íslending til varðveislu í Gimli og var Gary Doer fyrir hönd ríkisstjórnar Manitoba tilbúinn að leggja fram umtalsverðar fjár- hæðir til að svo mætti verða. „Við reyndum það sem við gátum en þar sem það gekk ekki eftir er þetta góð lausn og það yrði ánægjulegt ef eigandi skipsins vildi hafa skipið í Gimli til frambúðar. Einnig kemur til greina að smíða nýtt skip til að hafa í Gimli, en í mínum huga er að- alatriðið að hafa víkingaskip í Gimli og ég vil vinna að því með öllum ráðum. Ég sagði þetta við Bill Bar- low, fyrrverandi bæjarstjóra í Gimli, eftir að ég átti fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í heimsókn minni til Íslands fyrir tæplega tveimur árum og við vor- um nálægt því að fá víkingaskipið Íslending, en misstum af því á síð- ustu stundu.“ Íslenska þjóðarbrotið mikilvægt Um 50 þjóðarbrot eru í Manitoba og er haldin þjóðahátíð í Winnipeg í ágúst á hverju ári. Íslend- ingadagshátíðin í Gimli fyrstu helgina í ágúst slær öllum hátíðum þjóðarbrota við, en hana hafa sótt um 40 til 60 þúsund manns á ári undanfarin ár. Gary Doer segir að Kanadamenn í Manitoba af íslensk- um ættum hafi alla tíð skorið sig úr og lagt mikla áherslu á arfleifðina. „Íslendingarnir hérna hafa minnst upprunans við öll möguleg tæki- færi, haldið tungumálinu við og haldið Íslendingasögunum hátt á lofti. Þeir hafa erft það mikilvæg- asta í fari Íslendinga, eru hug- rakkir og hafa stundað fiskveið- arnar, landbúnaðinn og búfjárræktina sem fyrr, verið menningarlega sinnaðir og lagt áherslu á menntun. Íslensk menn- ing hefur haft mikil áhrif í Mani- toba og Íslendingadagurinn í Gimli er ofarlega í huga allra. Ekkert annað þjóðarbrot hefur svona helgi frátekna fyrir sig og þá sem vilja gleðjast með Íslendingum. Nú bæt- ist tákn um hugrekki víkinga og siglingakunnáttu Íslendinga við með þessu víkingaskipi og það treystir Gimli enn frekar í sessi.“ Mikil samvinna Gary Doer hefur verið formaður Nýja lýðræðisflokksins (New Democratic Party) í Manitoba í rúm 15 ár eða síðan í mars 1988. Hann var ráðherra í ríkisstjórninni 1986 til 1990 og síðan leiðtogi stjórn- arandstöðunnar þar til hann varð 20. forsætisráðherra Manitoba 5. október 1999. Íslensk málefni hafa verið honum sérlega hugleikin en hann hefur lagt áherslu á að styrkja tengslin milli Íslands og Manitoba og fylgt orðum eftir í verki. Hann segir að samstarfið við Davíð Oddsson forsætisráðherra og ríkisstjórn hans hafi verið sérlega ánægjulegt og gagnkvæmar heim- sóknir hafi skilað miklum árangri. „Stuðningur Íslands við íslensku- deild Manitobaháskóla og íslenska bókasafnið hefur haft mikið að segja sem og stuðningurinn við menningarmiðstöðina í Gimli. Merkingar við íslenska sögustaði í Manitoba standa yfir og setja svip sinn á umhverfið og með Minnesota höfum við unnið að áætlun undir kjörorðunum „Tvær þjóðir í sama fríi“ með það að leiðarljósi að vísa veginn á íslenska menningar- arfleifð í Minnesota og Manitoba. Við höfum líka átt samstarf við ís- lensku ríkisstjórnina í vetnismálum og fljótlega verður skrifað undir samning í því efni. Síðan er á dag- skrá að tengjast Vesturfarasetrinu á Hofsósi með einhverjum hætti. Vetnismálin eru mjög spennandi og auk þess eru íslenska deildin og bókasafnið við Manitobaháskóla, Menningarmiðstöðin í Gimli og ferðamannaiðnaðurinn á svæðinu og Vesturfarasetrið á Hofsósi með mikilvægustu tenglunum með framtíðina í huga. Víkingaskip fell- ur vel inn í þessa mynd og treystir böndin enn frekar.“ Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, styrkir komu víkingaskips til Gimli í Nýja Íslandi Skipið áréttar sterk tengsl Manitoba og Íslands Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, leggur mikið upp úr því að viðhalda menningararfleifð Íslendinga í fylkinu og tengslum við Ísland. Steinþór Guðbjartsson settist niður með for- sætisráðherranum eftir að hann hafði komið færandi hendi til Gimli og tryggt með 70 þús- und dollara framlagi ríkisstjórnar Manitoba að víkingaskip verður í bænum í sumar. Víkingaskip verður á Winnipegvatni í sumar. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Í Safni íslenskrar menningararfleifðar í Nýja Íslandi. Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, greinir frá 70.000 dollara framlagi ríkisstjórnar sinnar vegna komu víkingaskipsins til Gimli. steg@mbl.is ÍSLENDINGADAGSNEFNDIN í Manitoba hefur útnefnt Sigrid Johnson, yfirmann íslenska bóka- safnsins við Manitobaháskóla í Winnipeg og fráfarandi formann Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi, fjallkonu ársins. Á starfsfundi Íslendingadags- nefndar í Gimli um helgina greindi Tim Arnason, forseti Ís- lendingadagsnefndar, frá því að Sigrid Johnson frá Árborg yrði næsta fjallkona og tæki við af Connie Benediktson Magnuson frá Gimli. Fyrsta verkefni hennar verður við hátíðlega athöfn við styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan þinghúsið í Winnipeg þjóðhátíðardaginn 17. júní, en Ís- lendingadagshátíðin fer fram í Gimli fyrstu helgina í ágúst eða 1. til 4. ágúst. Fjallkonan hefur komið fram á Íslendingadeginum árlega síðan 1928. Hátíðin í sumar verður sú 114. í röðinni og sú 71. í Gimli, en þar hefur hún verið haldin síðan 1932. Undirbúningur gengur sam- kvæmt áætlun, en gjarnan er sagt að útnefning fjallkonunnar marki upphaf hátíðarhaldanna. Íslendingadagshátíðin í Gimli með hefðbundnum hætti Sigrid Johnson verður fjallkona Ljósmynd/David Gislason Sigrid Johnson til vinstri tekur við af Connie Benediktson Magnuson sem fjallkona Íslendingadagsins í Gimli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.