Morgunblaðið - 01.06.2003, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 43
Vegna mistaka í
vinnslu blaðsins birt-
um við þessar minn-
ingargreinar aftur.
Hlutaðeigendur og að-
standendur Sighvatar
eru beðnir afsökunar á mistökun-
um.
Kveðja frá starfsfólki
og bílstjórum Nýju
sendibílastöðvarinnar
Látinn er félagi okkar Sighvatur
Jóhannsson, langt um aldur fram,
sem starfað hefur með okkur um
árabil hér á Nýju sendibílastöðinni.
Skilur hann eftir sig stórt skarð í
okkar hópi. Hann var traustur fé-
lagi, og var vel liðinn af viðskipta-
vinum okkar sem og starfsfélögum.
Sighvatur var hraustmenni mikið
og verklaginn, hann var skapmaður
en fór vel með það.
Við sjáum nú á bak góðum félaga
og sendum fjölskyldu og ættingjum
hans samúðarkveðjur.
Að standa frammi fyrir því að
kveðja vin langt um aldur fram er
erfitt. Að eftir áratuga löng og far-
sæl kynni skuli allt í einu klippt á
samskiptin fyrirvaralaust. Mann
setur hljóðan og um stund skilur
maður alls ekki tilganginn með öllu
þessu brölti.
Sighvat vin minn kveð ég eftir
rúmlega 40 ára kynni. Við kynnt-
umst hjá Grænmetisverslun land-
búnaðarins sem þá var við Sölv-
hólsgötu í Reykjavík. Hjá því
fyrirtæki störfuðum við saman í 23
ár, eða þar til Grænmetisverslunin
var lögð niður. Tókust strax með
okkur góð kynni og mikil vinátta
sem hélst allt til þessa dags að ég
nú sé á eftir mínum besta vini.
Ósjálfrátt hvarflar hugurinn í
gegnum ótal minningabrot. Minn-
ingar um samskipti, ævintýri, við-
skipti, gleðskap og einlæga vináttu
sem aldrei bar skugga á. Ýmislegt
var brallað, enda lífið skemmtilegt
þó oft væri lífsbaráttan hörð. En
við brostum framan í lífið, við vor-
um ungir menn og áttum framtíð-
ina fyrir okkur. Stofnuðum heimili
á svipuðum tíma og jafnvel blessuð
börnin komu á svipuðum tíma.
Þessi tími er og verður alltaf sveip-
aður vissum ljóma enda margt
brallað þau árin og næstu áratug-
ina þar á eftir. Til dæmis vorum við
með sauðfé og töluvert stórtækir í
hestamennsku um tíma, á jörðinni
Bæ í Kjós. Konur okkar og síðar
börn tóku fullan þátt í þessum æv-
intýrum.
Þá stunduðum við einnig nokkur
bílaviðskipti og leið varla sú vika að
við keyptum ekki einhverja bifreið,
annaðhvort hálfónýtan jeppa eða
hálfónýta vörubíla hjá Sölu varn-
arliðseigna. Við hirtum grindurnar
undan vörubílunum og seldum til
kartöfluframleiðenda fyrir austan
fjall. Eins stofnuðum við garð-
vinnufyriræki og í aukavinnu
tættum við upp kartöflugarða í
Reykjavík og nágrannabyggðarlög-
um. Fyrirtækið hét því skemmti-
SIGHVATUR
JÓHANNSSON
✝ Sighvatur Jó-hannsson fæddist
í Reykjavík 30. apríl
1946. Hann lést á
heimili sínu í Bessa-
staðahreppi 3. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Bessastaðakirkju 13.
maí.
lega nafni „Sponni og
Sparði“, en aldrei kom
til þess að við ræddum
það hvor væri hvað!
Af nógu er að taka og
ætli við höfum ekki
verið með þeim allra
fyrstu til að útbúa
torfærujeppa á Íslandi
þegar við breyttum
Willis ’47 og gekk sá
undir nafninu „Tungl-
bíllinn“, enda menn
óvanir að sjá
upphækkaða bíla á
risadekkjum sem nú
þykja svo sjálfsögð á
slíka bíla.
Um tíma tók ég með Sighvati
þátt í grásleppuútgerð frá Álftanesi
og um borð voru lögð drög að enn
fleiri ævintýrum til að framkvæma
í lífsins ólgusjó.
Ekki má gleyma öllum ferðunum
í Breiðafjörðinn þaðan sem Sig-
hvatur er ættaður. Var jafnan farið
til eggjatöku og eins voru miklir
sauðfjárflutningar á milli eyja og
fleira. Að ógleymdum öllum brids-
ferðunum austur í sveitir.
Einnig var mikið um ferðalög
beggja fjölskyldna vestur í Arn-
arbæli á Fellsströnd þaðan sem
eiginkona Sighvatar er. Eins ferð-
irnar allar í Húsafell og reyndar
ferðuðumst við saman nánast um
allt land, ýmist með eða án fjöl-
skyldnanna.
Síðustu árin starfaði Sighvatur
sem sendibílstjóri við góðan orðstír
og þó bílunum fækkaði í greininni
hafði Sighvatur alltaf nóg að gera.
Sighvatur var fremur stjórnsamur
og ákveðinn í allri framgöngu. Þar
sem Sighvatur var frekar hávaxinn
áttu menn það til að verða hálf-
hræddir við hann og því gott að
hafa hann í fremstu víglínu þegar
eitthvað bjátaði á! Sighvatur var
ekki allra og átti til að setja í
brýrnar í ef svo bar undir. En vin-
átta hans stóð alltaf traustum fót-
um. Þeir sem kynntust honum,
kynntust traustum og orðheldnum
manni sem stóð sína vakt og leysti
þau vandamál sem upp komu. Þá
var hann léttur í lund. Hann var af-
ar laghentur maður og hagur á
járn og myndi sjálfsagt flokkast
undir þúsundþjalasmið af guðs náð.
Sigríði, háöldruðum foreldrum,
börnum, ættingjum og öðrum vin-
um sendum við Gullý okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ég þakka kæra kynning
sem knýtti vinabönd
og spor þín mun ég móta
á minninganna lönd.
Of fljótt varð skin að skugga
við skiljum ei guðs ráð
sem breytir vina vegleið fljótt
hann veitir öllum náð.
Þitt skap var milt og mótað
af móðurlegri hyggð
þú vógst á veikum armi
þín verk af hjartans dyggð.
Og vinum þínum varstu
æ vökul lífs um stig
en saman aldrei sjáumst hér
við syrgjum einatt þig.
(Lárus Salómonsson.)
Megi algóður guð geyma og
blessa minningu Sighvats vinar
míns. Við hittumst síðar.
Sigurður Hrafn Tryggvason.
Elskulegur faðir okkar, sonur, afi og bróðir,
ÞÓRIR JÓNSSON,
Rauðarárstíg 41,
lést af slysförum.
Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30.
Sigríður Rós Þórisdóttir, Karl Ólsen,
Kristófer Þórisson,
Unnur Steingrímsdóttir, Jón Kristinsson,
Ólafur Karl Karlsson,
Hanna Þórunn Axelsdóttir,
Hrafnhildur Jónsdóttir, Gústaf Fransson,
Ástþrúður Kristín Jónsdóttir.
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
HJÁLMAR GUÐMUNDSSON,
Vogatungu 41,
Kópavogi,
lést föstudaginn 16. maí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
minningarkort Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna.
Gunnlaugur Hjálmarsson, Guðný Andrésdóttir,
Sjöfn Hjálmarsdóttir, Sigurjón Arnlaugsson.
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞRÚÐAR GUÐRÚNAR ÓSKARSDÓTTUR,
Krummahólum 10,
Reykjavík,
er lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki laugar-
daginn 17. maí, fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 3. júní kl. 15.00.
Gunnlaugur Hannesson,
Þrúður Ólöf Gunnlaugsdóttir, Óskar Smith Grímsson,
Hanna Þrúður Þórðardóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Gunnþór Tandri Guðmundsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BJÖRG GUÐNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR
(Bubba),
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn
15. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Jóhanna Snorradóttir, Pálmar Árni Sigurbergsson,
Ernir Snorrason, Sólveig Franklínsdóttir,
Kolbrún Skjaldberg, Jón Ívarsson,
Þór Skjaldberg, Harpa Nordal,
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir
og mágur,
dr. GUÐMUNDUR GÍSLI BJARNASON
eðlisfræðingur,
Gullsmára 5,
Kópavogi,
sem lést föstudaginn 23. maí, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
4. júní kl. 13.30.
Hrafn Guðmundsson, Elinborg Björk Harðardóttir,
Ósk Guðmundsdóttir, Valur Páll Kárason,
Bjarni Guðmundsson,
Margrét B. Richter, Sigurður H. Richter,
Sigríður Bjarnadóttir, Róbert Jónsson,
Sigrún Ósk Bjarnadóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur
og bróðir,
GESTUR GUNNAR AXELSSON
frá Ormsstöðum,
Dalasýslu,
til heimilis í Berjarima 28,
Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 23. maí.
Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju þann 2. júní kl. 13.30.
Hrafn Karel Gestsson, Þóra Björg Grettisdóttir,
Brynjar Carl Gestsson, Guðrún Snæbjörnsdóttir,
Hrannar Gestur Hrafnsson,
Aron Karel Hrafnsson,
Hlynur Andri Hrafnsson,
Fannar Freyr Hrafnsson,
Linda Sif Brynjarsdóttir,
Selma Kjartansdóttir og systur.
Faðir okkar,
TEITUR ÞORLEIFSSON
kennari,
Sólheimum 27,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 30. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Úlfar Teitsson,
Inga Teitsdóttir,
Leifur Teitsson,
Nanna Teitsdóttir,
Hrefna Teitsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
systur okkar og mágkonu,
HRAFNHILDAR FLOSADÓTTUR,
síðast til heimilis
á Lindarsíðu 2,
Akureyri.
Þakkir til allra, sem önnuðust hana í veik-
indum hennar. Sérstakar þakkir til lækna og
hjúkrunarfólks á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík, fyrir frábæra
umönnun.
Sigurður Flosason, Þórunn Þorsteinsdóttir,
Þóra Flosadóttir, Gunnar Hafdal,
Guðrún Flosadóttir, Sigurður Sigurðsson,
Jónína Flosadóttir, Eymundur Magnússon,
Hallfríður Ragnarsdóttir, Örn Jensson,
Sigríður Sveinbjörnsdóttir, Aðalgeir Olgeirsson
og fjölskyldur.