Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 53
DAGBÓK
Verslun Argos (Kays),
Austurhrauni Gbæ, sími 555 2866
Lokað á laugardögum í sumar.
Rýmingarsala á sumarvörum
Fatnaður - Gjafavara - Snyrtivörur - Fæðubótarefni - Garðvörur
- Verkfæri - Skartgripir - Ljós - Golfvörur Leikföng - o.fl.
Sumarnámskeið í dönsku
ætlað 9 og 10 ára börnum
Allar nánari upplýsingar veitir kennsluráðgjafi Norræna hússins,
Kristín Jóhannesdóttir, sími 551 7030,
netfang: sprog@nordice.is
Markmið: Að vekja og viðhalda áhuga þátttakenda á dönsku.
Þátttakendum er gefið færi á að kynnast dönsku
máli með hjálp spila, leikja, tónlistar og
margskonar æfinga sem þjálfa hlustun, tal og
lestur.
Fjöldi: Hámark 24 nemendur á námskeiði.
Tími: Fyrir hádegi frá 9-12.
10.,11.,12. og 13. júní 2003.
Verð: kr. 2.000
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
Skoðið heimasíðuna www.yogastudio.is
Þetta vinsæla námskeið hefst að nýju í júní en frá
árinu 1997 hefur Ásmundur Gunnlaugsson útskrifað
nemendur, sem ýmist starfa sem jógakennarar í dag
eða hafa tekið þátt til að dýpka þekkingu sína.
Námskeiðið er yfgripsmikið og öflugt sjálfsþekking-
ar- og þroskanámskeið, tækifæri til að nema af
kennara með mikla reynslu og þekkingu. Það hentar t.d. öllum sem
eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða þeim
sem vilja gera breytingar á lífsháttum sínum. Tilhögun þess fer
saman með starfi og öðru námi en kennt er eftirfarandi helgar:
20.–22. júní, 18.–20. júlí, 22.–24. ágúst, 19.–21. september, 10.–12.
október og 7.–9. nóvember (fös. kl. 20-22, lau. og sun. kl. 9-15).
,,Ég reyni að fá nemendurna til þess að skilja hjartað í verkinu, gera
sér ljóst hvað jóga er eða öllu heldur hvaða möguleika það hefur til
að verða” segir Ásmundur. Ekki er krafist mikillar reynslu og
ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar. Ein-
hver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Ásmundur kynnir námskeiðið laugard. 14. júní kl. 18.
Næsta Jóga gegn kvíða námskeið hefst 3. júní kl. 20.
VILTU VERÐA JÓGAKENNARI
EÐA DÝPKA JÓGAÁSTUNDUN ÞÍNA?
Námskeið er að hefjast í MICRO-BOND geli
diploma veitt í lok náms sem gildir um allan heim.
Veldu það besta!
Upplýsingar í síma 564 2300 eða 892 2330
Naglatækniskólinn
Áskorun hugljómunar (Enlightenment intensive)
í Bláfjöllum 26.-29. júní. Magnað fyrir þá sem þrá að kynnast sannleikanum um
sjálfan sig, lífið og aðra. Allt varðandi
Áskorun hugljómunar má lesa á http://www.highsierra.org
Leiðbeinandi: Guðfinna S. Svavarsdóttir.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 562 0037 og 869 9293.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð hugmyndarík, ötul
og áhugasöm. Þið eigið
auðvelt með að afla hug-
myndum ykkar fylgis en erf-
iðara með að hrinda þeim í
framkvæmd.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Veltu þér ekki upp úr því
sem á vantar en einbeittu þér
heldur að því sem þú hefur.
Það má koma ýmsu til leiðar
með réttu hugarfari.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki minniháttar per-
sónuleg vandamál íþyngja
þér. Heimurinn stöðvast ekki
þótt eitthvað bjáti á þannig
að þú ættir að reyna að halda
áfram eins og ekkert hafi í
skorist.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það eru allskonar gylliboð í
gangi. Athugðu vel þinn gang
áður en þú tekur einhverju
þeirra því oft leynist úlfur í
sauðargæru.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst þú hafa allt þitt á
hreinu. Gefðu þér því tíma til
að hjálpa vini í vanda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft á öllum þínum hæfi-
leikum að halda til þess að
leiða viðkvæmt fjölskyldumál
til lykta. Mundu að þolin-
mæðin þrautir vinnur allar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er eins og aðgerðir þínar
hafi öfug áhrif og það veldur
þér miklu hugarangri. Taktu
verklag þitt til endurskoð-
unar og gerðu þær breyt-
ingar sem þarf.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leyfðu sköpunargáfu þinni
að njóta sín jafnvel þótt ann-
að verði að sitja á hakanum á
meðan. Láttu hlutina þróast
af sjálfu sér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allskyns hlutir eru að koma
upp á yfirborðið og valda
vandræðagangi í samskiptum
þínum við aðra. Láttu ekki
deilur fara úr böndunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er komið að því að þú
uppskerir eins og þú sáðir til.
Taktu því fagnandi sem já-
kvætt er en reyndu líka að
læra af mistökunum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Tilboðin berast til þín úr öll-
um áttum svo þú átt í mestu
vandræðum með að velja á
milli þeirra. Mundu að ekki
er allt gull sem glóir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er heppilegur tími til að
binda ný vinabönd. Ef þú
hefur ekki áhuga á nýjum
samböndum einbeittu þér þá
að ræktun þeirra sem fyrir
eru.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þrátt fyrir góðan ásetning
geta afskipti þín haft þver-
öfug áhrif. Hugsaðu þig því
vel um áður en þú lætur
skoðanir þínar í ljós.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VORHVÖT
- -
Nú vakna þú, Ísland! við vonsælan glaum
af vorbylgjum tímans á djúpi;
byrg eyrun ei lengur fyr aldanna straum,
en afléttu deyfðanna hjúpi
og drag þér af augum hvert dapurlegt ský,
sem dylur þér heiminn og fremdarljós ný.
Og enninu snjóvgu til ljóshæða lyft
og líttu sem örninn mót sólu;
sjá, heiðríkt er austrið og húmskýjum svipt,
þau hurfu fyr morgunsins gjólu;
hver óskar nú lengur á blindninnar bás
að bolast af þrælkun frá tímanna rás?
- - -
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
SUÐUR á tvo góða liti og
fyrstu fyrirstöðu í öllum
litum. Þegar menn fá slík-
an efnivið í hendurnar er
eðlilegt að setja markið
hátt og stefna á slemmu.
En það er sitthvað, gæfa
og gjörvuleiki.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 53
♥ D107
♦ K86
♣D10974
Vestur Austur
♠ G84 ♠ D92
♥ Á9864 ♥ KG532
♦ G9 ♦ 1052
♣K52 ♣G6
Suður
♠ ÁK1076
♥ --
♦ ÁD743
♣Á83
Spilið kom upp í fyrstu
umferð Norðurlandamóts-
ins og á fimm borðum opna
flokksins af sex, spiluðu
NS slemmu, sem alls stað-
ar fór niður. Þorlákur
Jónsson varð sagnhafi í sex
laufum í norður og fékk út
hjarta. Hann trompaði og
spilaði litlu laufi frá Á8.
Slemman vinnst ef vestur
stingur upp kóng, en Finn-
inn Kauko Koistinen lét
ekki taka sig á því bragði
og dúkkaði. Þorlákur
reyndi þá tíuna í þeirri von
að austur ætti kónginn
þriðja og myndi taka slag-
inn, en allt kom fyrir ekki.
Einn niður.
Sex tíglar er eina
slemman sem fótur er fyrir
og þar enduðu Svíarnir
Kenneth Borin og Bengt-
Erik Efraimsson í við-
ureign við Færeyingana
Heðin og Jóannes Mourit-
sen:
Vestur Norður Austur Suður
Heðin EfraimssonJóannes Borin
2 hjörtu ! Pass 4 hjörtu 5 hjörtu !
Dobl 6 lauf Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Þetta eru stórkarlalegar
sagnir í báða bóga. Heðin
opnar á veikum tveimur
með lélegan fimmlit og
Borin keyrir spilið af fullu
afli í slemmu með fimm
hjörtum. Útspilið var
hjartaás, sem Borin tromp-
aði og spilaði strax litlu
laufi að blindum. Heðin
dúkkaði og Borin hitti á að
stinga upp drottningunni.
Nú stendur slemman ef
sagnhafi spilar spaða
þrisvar og trompar. En
Borin fór að hugsa. Vestur
hafði lofað sexlit í hjarta og
hann virtist eiga þrjú lauf.
Tígullinn verður að brotna
3-2, svo það lítur ekki út
fyrir að vera rúm fyrir
meira en tvo spaða á hendi
vesturs. Að þessu athug-
uðu spilaði Borin spaða úr
blindum og djúpsvínaði tí-
unni! Einn niður.
Aðeins eitt NS-par hélt
sig á mottunni og lét nægja
að spila geim. Það voru
Norðmennirnir Terje Aa
og Jon Egil Furunes.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 e6 2. Rf3 b6 3.
g3 Bb7 4. Bg2 f5 5.
O-O Rf6 6. c4 Be7 7.
Rc3 Re4 8. Dc2 O-O
9. Re5 d5 10. Hd1
Bf6 11. Be3 De7 12.
Db3 c6 13. Hac1
Bxe5 14. dxe5 Rd7
15. cxd5 exd5
Staðan kom upp á
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Búdapest. Brian
Kelly (2468) hafði
hvítt gegn Ronald
Burnett (2442). 16.
Rxd5! cxd5 17. Hc7
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Dxe5 hvítur ynni manninn
til baka með vöxtum eftir
17... Hab8 18. Hxb7. 18.
Hxd7 Hf7 19. Hxb7! og
svartur gafst upp enda fátt
um varnir.
BRÚÐKAUP. Agnes S. Sveinsdóttir og Ulf Gissing Møller
voru gefin saman í hjónaband í Gunnarsbyn, Dalslandi í Sví-
þjóð, 17. maí síðastliðinn. Vígsluna annaðist Skúli Ólafsson,
prestur íslenska safnaðarins í Svíþjóð. Heimili brúðhjónanna
er í Skövde.
MEÐ MORGUNKAFFINU
… en eitt má hann þó eiga … hann er fínn á borvélinni!
ÁRNAÐ HEILLA
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
DILBERT mbl.is