Morgunblaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2003 29
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05, 10.10 og 11.15.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40 og 10. B.i.12.
Allt sem hann þurfti að vita um lífið
lærði hún í fangelsi!
Það borgar sig að kynnast fólki vel áður en þú ferð á
blint stefnumót á netinu.
Queen Latifahfer á kostum og Steve Martin slær í gegn í
sinni stærstu gamanmynd frá upphafi!
„Einn mesti grínsmellur ársins!“
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
IRON Maiden eru í fullu fjöri um
þessar mundir og hinar stæðileg-
ustu útgáfur hafa hrannast upp að
undanförnu. Hin
nýjasta er tvö-
faldur mynd-
diskur sem kall-
ast Visions of
the Beast og
inniheldur í
fyrsta skipti öll
myndbönd sem
sveitin hefur lát-
ið gera við lög
sín, allt frá því að „Women in Uni-
form“ var myndsett árið 1980 til
stærstu tónleika sveitarinnar frá
upphafi, er hún lék á Rokk í Ríó
tónleikunum árið 2001 en þá litu
250.000 manns hana augum.
Iron Maiden er með allra vin-
sælustu þungarokksveitum og hef-
ur verið starfandi síðan 1976. Á
þeim tíma hefur sveitin selt sam-
tals um 50 milljónir platna og á
hún aðdáendur um allan heim.
Hér á landi héldu þeir tónleika ár-
ið 1993, sem jafnframt voru
kveðjutónleikar hinnar sjarm-
erandi söngspíru, Bruce Dick-
inson.
Hann er hins vegar kominn um
borð á nýjan leik og mun leiða
Maiden í Hróarskeldu í ár, þar
sem kynnt verður efni af glænýrri
breiðskífu sem væntanleg er í
september. Tónleikarnir eru hluti
af nýju heimsferðalagi Maiden,
sem kallast Give Me ’Ed ... Til I’m
Dead.
Heildartími diskana er yfir þrír
tímar og er talsvert um efni sem
aldrei hefur sést áður. Meðal ann-
ars eru sex ný myndbönd, sem
lúta lögmálum tölvu og teikni-
tækninnar. Plötulisti og ýmislegt
„gotterí“ leynist þá líka á diskn-
um. Visions ... verður einnig til á
myndbandi.
Öll myndbönd Iron Maiden á tveimur mynddiskum
Járnfrúin sýnir sig
Rammar úr myndbandinu við „Be
Quick or be Dead“.
Visions of the Beast kemur í búðir í
dag.
ÍBÚAR höfuðborgarsvæðisins fögnuðu
sjómannadeginum í fádæmagóðu veðri á
sunnudag. Auk hefðbundinna ræðuhalda
og veitinga viðurkenninga var boðið upp á
margs konar skemmtun og glens um allan
bæ. Í Hafnarfirði var jafnframt fagnað 95
ára kaupstaðarafmæli staðarins og fengu
gestir og gangandi að gæða sér á afmæl-
isköku, fara í skemmtisiglingu og opnaðar
voru nýjar sýningar í Hafnarborg.
Í Reykjavík var glatt á hjalla á hafn-
arbakkanum þar sem börnin ultu um
skríkjandi í hopp-höll og skemmtikraftar
stigu á svið á meðan þeir fífldjörfustu
hættu sér í koddaslag, klofvega á trjá-
drumbi og tilbúnir að falla í ískaldan sjó-
inn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessi hafnfirsku börn virtu fyrir sér furðuverur sem
leyndust í keri á hafnarbakkanum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Það er fátt skemmtilegra en að hoppa og skoppa í sólskini og góðu veðri. Þessi börn
gripu gæsina og hoppuðu af miklum móð.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Erfitt er að sjá hvor þessara kappa sem tókust á í
Reykjavíkurhöfn er í þann mund að fá ansi kalda dýfu.
Rjóma-
blíða á sjó-
mannadag
Morgunblaðið/Árni Torfason
Lúðrasveitir léku fyrir bæjarbúa og juku enn á sum-
arstemninguna.
www.fotur.net