Morgunblaðið - 03.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.2003, Blaðsíða 1
STÆRSTA veitingaþjónustu- fyrirtæki heims, Universal Sod- hexho (US), hyggst ráða á sjötta tug starfsmanna vegna framkvæmda við Kárahnjúka. Hjá fyrirtækinu starfa 325.000 manns um heim allan. US á Íslandi ehf. auglýsti eft- ir fólki í ýmis störf, þ. á m. mat- reiðslu og ræstingar, í Morg- unblaðinu á sunnudag. Ráðnir verða 60 starfsmenn í 40 stöðu- gildi. Starfsstöðvar verða í vinnubúðum Impregilo á Aust- urlandi. Skrifstofa US á Íslandi er á Egilsstöðum. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Marit Teigland, yf- irmaður fyrirtækisins í Noregi og verðandi stjórnarformaður hjá íslenska félaginu, hlakka til að takast á við verkefnið. „Við byrjum oft á því að taka að okkur afmörkuð, tímabund- in verkefni til að komast inn í nýtt land og þróum svo starf- semina út frá því.“ Hún segist ekki vita með hvaða hætti starf- semi US verður eftir að fram- kvæmdum við Kárahnjúka lýk- ur en stefnt sé að því að byggja upp fyrirtæki í US-keðjunni hér. Meðal verkefna sem US hefur tekið að sér er þjónusta við byggingaverkamenn í Erm- arsundsgöngum og á nýjum flugvelli í Hong Kong. Að sögn Marit Teigland hef- ur US mikla reynslu af því að starfa á viðkvæmum svæðum þar sem þörf er á sérstökum lausnum varðandi sorp og fleira. Stærsta veit- ingafyrirtæki heims í Kárahnjúkum FYRIR dyrum stendur að setja upp söngleiksútgáfu af söngmynd Lars von Trier, Myrkradansaranum („Dancer in the Dark“), þar sem leikur Bjarkar Guðmundsdóttur og textar hennar og Sjón léku lyk- ilhlutverk. Enn hefur engin loka- ákvörðun verið tekin um fram- leiðsluna en á dögunum fór þó fram þróunarleiklestur á verkinu. Í hon- um tóku meðal annars þátt Lili Taylor (sem lék í Á köldum klaka), Blair Brown (sem leikur í Dogville Lars von Triers), Zeljko Ivanek (sem lék í Myrkradansaranum) og Denis O’Hare. Það er New York Theatre Workshop sem heldur utan um þróun söngleiksins. Björk Guðmundsdóttir og Cather- ine Deneuve í Myrkradansaranum. Myrkradans- arinn á svið í New York?LEIÐTOGAR átta helstu iðnríkjaheimsins lögðu í gær hart að Írönum og Norður-Kóreumönnum að haga sér í samræmi við alþjóðasamninga um kjarnorkuframleiðslu. Þá lögðu þeir áherslu á að hefta yrði frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna og ráða niðurlögum alþjóðlegra hryðju- verkahópa. Sagði í lokayfirlýsingu leiðtoganna, sem funduðu í franska bænum Evian, að alþjóðleg hryðju- verk væru nú helsta ógnunin við stöðugleika í heimsmálunum. Fundurinn í Evian var merkilegur fyrir þá sök að þar hittust þeir George W. Bush Bandaríkjaforseti og Jacques Chirac Frakklandsfor- seti í fyrsta skipti frá lokum Íraks- stríðsins, en sá síðarnefndi beitti sér mjög gegn því að ráðist yrði á Írak. Var eftir því tekið að vel virtist fara á með þeim Bush og Chirac en þeir áttu stuttan einkafund í gær. Í sameiginlegri yfirlýsingu leið- toga ríkjanna átta – Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Kanada, Japans, Ítalíu og Rússlands – var sjónum sérstaklega beint að hryðjuverkaógninni. Sagði þar að samfélag þjóðanna þyrfti að halda uppi öflugu vopnaeftirliti, setja strangari reglur um vopnaútflutning og „beita öðrum úrræðum, ef með þarf“ til að bregðast við ógninni sem af útbreiðslu gereyðingarvopna staf- ar. Athygli vakti að lokayfirlýsing fundarins innihélt sérstaka aðvörun til yfirvalda í Norður-Kóreu og Íran – en sem kunnugt er nefndi Bush þessi ríki, ásamt Írak, „öxul hins illa“ í ræðu fyrir rúmu ári. „Við hvetjum Norður-Kóreu eindregið til að hætta við, þannig að enginn vafi leiki á, öll áform um framleiðslu kjarnorku- vopna,“ sagði í yfirlýsingunni. Sagði ennfremur að N-Kóreustjórn hefði sannanlega gerst brotleg við al- þjóðasamninga um þessi efni sem hún þó hefði skrifað undir. Þá sögðust leiðtogar G-8-ríkjanna myndu fylgjast grannt með kjarn- orkuáætlunum stjórnvalda í Íran en sumir óttast að Íranar hyggist byrja að þróa kjarnorkuvopn. Efnahagsmál voru einnig á dag- skrá fundarins í Evian. Hétu leið- togarnir átta því að vinna saman að því að koma hjólum efnahagslífsins af stað á ný eftir nokkra niðursveiflu. Sendu N-Kóreu og Íran viðvörun Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims sammála um nauðsyn þess að hefta útbreiðslu gereyðingarvopna STOFNAÐ 1913 149. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Öskjuhlíðin kvödd Síðustu dagarnir í Vestur- hlíðarskóla Höfuðborg 17 Konunglegur ballett Konunglegi danski ballettinn með tvær sýningar Listir 21 Lokahönd Hallbjörns Kántríkóngurinn með nýja plötu í þessum mánuði Fólk 42 SMÁÞJÓÐALEIKAR Evrópuríkja voru settir á Ta’Qali- þjóðarleikvanginum á Möltu í gær, þar sem keppendur frá Íslandi etja kappi við íþróttamenn frá Möltu, Kýpur, San Marínó, Mónakó, Liechtenstein, Lúxemborg og And- orra. Gígja Guðbrandsdóttir, Íslandsmeistari í júdó, var fánaberi hópsins, en alls taka 129 íþróttamenn frá Ís- landi þátt í leikunum og er það fjölmennasti hópur sem Íslendingar hafa sent á slíka leika. Að venju var mikið um að vera á opnunarhátíðinni sem stóð í um þrjár og hálfa klukkustund. Jaggue Rogge, forseti Alþjóðaólymp- íusambandsins, IOC, og Eddie Fenech Adami, forseti Möltu, settu leikana með formlegum hætti. Íþróttir/37 129 íþróttamenn frá Íslandi á Möltu Morgunblaðið/Brynjar Gauti TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, brosir breitt á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims í Evian í Frakklandi í gær. Í baksýn sjást þeir Jacqu- es Chirac Frakklandsforseti (t.v.) og George W. Bush Bandaríkjaforseti. Reuters Slegið á létta strengi Evian. AFP.  Auðvitað getum/14  Bush lýsir/12 VERKFALL um 12.000 launþega undanfarnar 26 vikur í Færeyjum er nú farið að hafa alvarleg áhrif á efna- hagslíf landsins. Verst hefur vinnu- stöðvunin komið niður á fiskeldisfyr- irtækjum, þau tapa miklu fé. Vinna hefur stöðvast í öllum fisk- vinnsluhúsum og á fiskmörkuðum. Skip í höfuðstaðnum, Þórshöfn, eru ekki afgreidd og farmur þeirra, þ. á m. ávextir, grænmeti og kjöt, rotnar nú í lestunum. Skortur er orðinn á ýmsum nauðsynjavörum í verslun- um og á heimilum, meðal annars kartöflum. Mörg bakarí hafa lokað vegna þess að hvorki er til mjöl né ger. Verslunum hefur verið lokað og talsmenn þeirra segja að ekki verði opnað á ný fyrr en verkfallinu er lok- ið. Vegna eldsneytisskorts hafa rútu- ferðir og ferjusiglingar milli eyjanna verið felldar niður. Verkalýðsfélögin fimm krefjast þess að laun hækki um minnst átta krónur, um 90 ísl. kr., á klukkustund á næstu tveimur árum. Atvinnurek- endur bjóða launahækkun upp á 5,50 kr., um 67 krónur. Verkfall að lama efna- hag Færeyja Þórshöfn. Morgunblaðið. Íbúar finna fyrir skorti á ýmsum nauðsynjavörum AP GEIMFERJUNNI Mars Express var í gær skotið á loft frá Baikonur- geimferðastöðinni í Kasakstan en þetta er fyrsti leiðangurinn sem farinn er á vegum Evrópubúa til að kanna reikistjörnuna Mars. Gert er ráð fyrir að förin til Mars taki sjö mánuði og að könnunarfar lendi á Mars á jóladag. Aðaltilgangur leið- angursins er að leita að ummerkj- um lífs á reikistjörnunni. Til Mars á vegum Evrópumanna ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.