Morgunblaðið - 03.06.2003, Blaðsíða 29
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 29
flutti á Sauðárkrók var síminn not-
aður óspart og oft æði háir sím-
reikningar en það var allt þess virði
því við héldum okkar vinskap og
það var gott að geta leitað til ömmu
eftir ráðum eða spjalli.
Eftir að sú ákvörðun var tekin að
þú kæmir norður og byggir hjá
mömmu var ég glöð yfir því að fá
tækifæri á að vera hjá þér í þínum
mestu veikindum og aðstoða þig
eftir bestu getu. Ég hefði glöð vilj-
að að þú byggir hjá mér ef þess
hefði verið kostur en þegar maður á
lítinn atorkumikinn snáða fer mest-
ur tími manns í hann. Yndislegt
fannst mér að þið Gunnþór fenguð
að kynnast. Eitt það skemmtileg-
asta hjá honum þegar hann kom í
heimsókn var að fara einn hring um
íbúðina með þér í hjólastólnum og
hann, sem nánast aldrei getur setið
kyrr, sat alltaf eins og brúða í fang-
inu á þér.
Elsku amma, ég geymi fjöldann
allan af minningum um ykkur afa í
hjarta mínu. Minningar sem eru
mér hvað kærastar af öllum. Takk
fyrir að gefa mér svo margar góðar
minningar. Takk fyrir að vera jafn
yndisleg og þú ert. Ég sakna þín,
við söknum þín öll en ég veit að þér
líður betur núna. Minning þín mun
ávallt lifa með okkur. Guð blessi þig
og varðveiti þig elsku amma mín.
Þín
Hanna Þrúður.
Ég kveð þig elskulega systur-
dóttur mannsins míns, Þrúði Guð-
rúnu Óskarsdóttur, enda varð okk-
ur vel til vina. Nú þegar þú ert
fallin frá hugsa ég til þín með
trega, en um leið allra góðu og
glöðu stundanna sem við áttum
saman, bæði með foreldrum þínum
og systkinum. Foreldrar þínir voru
Óskar og Maddy, eins og við köll-
uðum Magneu Ólafsdóttur, systur
mannsins míns. Þau hjónin voru
ávallt miklir ferðagarpar og voru
ótal margar gleðilegar ferðir farn-
ar, bæði langar og stuttar, með þér
ásamt foreldrum og systkinum.
Óskar stýrði bíl sínum ávallt af ör-
yggi og festu. Ég minnist þín,
Þrúður, og hversu mikla ánægju þú
hafðir af slíkum ferðum enda gafstu
ávallt svo mikið af þér. Ég votta
dóttur þinni, manni þínum og ást-
vinum mína dýpstu samúð. Blessuð
sé minning þín.
Því svo elskaði Guð heiminn,að hann gaf
son sinn eingetinn til þess að hver sem á
hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
(Jóhannes 3:16.)
Með kærri kveðju,
Anna Hansen og fjölskylda.
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÁSTU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Heiðardal,
Vestmannaeyjum,
verður gerð frá Áskirkju fimmtudaginn 5. júní
og hefst kl. 13.30.
Erna Hrólfsdóttir, Jón Örn Ámundason,
Birna Hrólfsdóttir, Einar Sveinsson,
Ásta Sigríður Hrólfsdóttir, Agnar Fr. Svanbjörnsson,
Hrefna Hrólfsdóttir, Hjörtur Örn Hjartarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VALDIMAR JÓNSSON,
Reykjabraut 7,
Reykhólum,
lést af slysförum föstudaginn 30. maí.
Steinunn Erla Þorsteinsdóttir,
Óskar Valdimarsson, Silja Guðrún Sigvaldadóttir,
Hrönn Valdimarsdóttir, Arngrímur Kristjánsson,
Hallfríður Valdimarsdóttir, Eggert Ólafsson,
Elísabet Ingibjörg Valdimarsdóttir,
Valdís Kristín Valdimarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VALDIMAR ÓSKARSSON
frá Dalvík,
til heimilis í Lækjasmára 2,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
sunnudaginn 1. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gerður Þorsteinsdóttir,
Fjóla Valdimarsdóttir, Ómar Karlsson,
Bjarnveig Pálsdóttir,
Óskar Valdimarsson, Jónína Ólafsdóttir,
Snjólaug Valdimarsdóttir, Jón Hreinsson,
Einar Valdimarsson, Elín Theódórsdóttir,
Aðalsteinn Valdimarsson,
Sigurbjörn Valdimarsson, Jónína Ólafsdóttir,
Lilja Valdimarsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, fósturfaðir, sonur, bróðir, mágur og afi,
JÓN FINNUR JÓHANNESSON,
Kópavogsbraut 22,
Kópavogi,
sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 28. maí,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mið-
vikudaginn 4. júní og hefst athöfnin kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á styrkt-
arsjóð sem stofnsettur var að tilstuðlan hins látna.
Nafn sjóðsins er Sjóður '72, reikningsnúmer 0515-14-106000.
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir,
Jóhannes Már Jónsson, Halldóra Íris Sigurgeirsdóttir,
Kjartan Orri Jónsson,
Margrét Finney Jónsdóttir,
Guðmundur Óli Gunnarsson,
Halldóra S. Jónsdóttir, Jóhannes Þórðarson,
Soffía G. Jóhannesdóttir, Ólafur K. Ólafs,
Eydís Ósk Jóhannesdóttir.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
✝ Óskar Axel Lárus-son fæddist í
Fredreksund í Dan-
mörku 15. júlí 1934.
Hann lést laugardag-
inn 24. maí síðastlið-
inn. Móðir hans var
Sigrún Óskarsdóttir, f.
28. desember 1910.
Kjörforeldrar Axels
voru Óskar Lárusson
kaupmaður, f. 15. jan-
úar 1889, og kona
hans, Anna Sigurjóns-
dóttir, f. 14 mars 1892.
Kjörsystkini Axels og
systkini Sigrúnar móður hans eru:
Arnbjörn Óskarsson, f. 30 nóv.
1913, kvæntur Hrefnu Karlsdóttur,
þau eru bæði látin; Lárus Óskars-
son, f. 15. apríl 1919, látinn, kvænt-
ur Jóhönnu Jónsdóttur; Málfríður
Óskarsdóttir Möller, f. 24. apríl
1924, gift Pálma Möller, þau eru
bæði látin; og Dóróthea Margrét
Óskarsdóttir Möller, f. 22. apríl
1926, gift Jóni Möller, látinn. Auk
þess ólst upp með Axel bróðursonur
Óskars Lárussonar, Adolf Karls-
son, f. 15 ágúst 1915, látinn.
Sigrún, móðir Axels, giftist
Ragnari Bjarkan árið 1937, dætur
þeirra eru: Inger Ragnarsdóttir
Bjarkan, f. 23. maí 1937, gift Jó-
hanni E. Björnssyni; Anna Bjarkan,
unn Guðmundsdóttir, f. 1. maí 1985.
4) Adolf, f. 5. feb. 1968, kvæntur
Heiðu G. Ragnarsdóttur, f. 4. feb.
1972, þeirra börn eru tvíburarnir
Ragnar Axel og Hildur Björk, f. 15.
des. 1999.
Axel ólst upp á Fjólugötu 3 í
Reykjavík. Hann gekk í Verslunar-
skóla Íslands. Óskar, kjörfaðir Ax-
els, rak stærstu skóverslun landsins
Lárus G. Lúðvíksson ásamt bræðr-
um sínum og Axel byrjaði þar sem
sendill og varð síðar afgreiðslu-
maður. Axel og Sigurbjörg fluttu til
Vestmannaeyja árið 1959 og ráku
þar skóverslun í 42 ár. Einnig ráku
þau skóverslunina Axel Ó. á Lauga-
vegi 11. Axel og Sigurbjörg fluttu
frá Vestmannaeyjum árið 2000. Ax-
el tók virkan þátt í félagslífi meðan
heilsa hans leyfði. Hann var í
KFUM í Vatnaskógi sem ungur
drengur, var félagi í Stangveiði-
félagi Reykjarvíkur og stundaði
þar mikið lax- og silungsveiði. Axel
var mikill Þórari, hann var um tíma
formaður Íþróttafélagsins Þór í
Vestmannaeyjum og var heiðurs-
félagi þess. Hann var sæmdur gull-
merki Þórs, ÍBV, KSÍ og ÍSÍ. Hann
var félagi í Akóges í 42 ár og heið-
ursfélagi þess, einnig var hann
bæði gjaldkeri og formaður Félags
kaupsýslumanna í Vestmannaeyj-
um. Axel var í Félagi hjartasjúkl-
inga í Vestmannaeyjum og seldi
einnig minningarkort fyrir Lands-
samtök hjartasjúklinga um árabil.
Útför Axels verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
f. 7. júlí 1942, gift Bjarna
Konráðssyni; Kristín
Bjarkan, f. 21. júlí 1942,
látin, gift Gunnari Ingi-
mundarsyni; og Jóna
Bjarkan, f. 29. janúar
1944, var gift Páli Ei-
ríkssyni, þau skildu.
Axel kvæntist 4. des.
1954 Sigurbjörgu Axels-
dóttur, f. 23. apríl 1935.
Hún er dóttir Axels Sig-
urðssonar bryta og Guð-
rúnar S. Guðmundsdótt-
ur, sem lifir í hárri elli á
Skjóli. Börn Axels og
Sigurbjargar eru: 1) Sigrún Ósk-
arsdóttir, f. 16. mars 1955, gift Ár-
sæli Sveinssyni, f. 16. jan. 1955,
dætur þeirra eru Karen, f. 30. sept.
1975, og Anita, f. 25. ágúst 1981,
unnusti hennar er Sigurður Oddur
Friðriksson, f. 14. nóv 1980. 2) Ósk-
ar Axel, f. 8. nóv. 1960, kvæntur
Sigríði Sigurðardóttur, f. 26. júlí
1964. Börn þeirra eru óskírður
drengur, f. 18. júní 1983, d. sama
dag, Ásta Guðrún, f. 23. okt. 1985,
og Óskar Axel, f. 24. júní 1991. Áð-
ur átti Óskar Axel Hrefnu, f. 28.
apríl. 1975, gift Haraldi Berg-
vinssyni og eiga þau tvo drengi,
Bergvin og Baldur. 3) Guðrún, f. 5.
feb. 1968, gift Guðlaugu Jónsdótt-
ur. Dóttir hennar er Sigurbjörg Sæ-
Laugardagsmorguninn 24 maí
hringdi mamma og sagði að pabbi
væri kominn á spítala en það væri
sennilega allt í lagi með hann, bara að
fara í smá rannsókn. Hann hafði verið
eitthvað kvalinn um morguninn.
Mamma lofaði að láta mig vita um
kvöldið hvernig honum liði. Um
kvöldið hringdi hún en þá til þess að
segja mér að pabbi væri dáinn. Þetta
var eins og að fá hníf í hjartað. Ég átti
ekki von á þessu, þrátt fyrir að pabbi
hafi verið hjartveikur.
Ég var mjög lánsöm, því að ég hafði
verið í miklu símasambandi við hann
síðustu dagana. Ég hafði hringt í
hann nánast á hverjum degi, bara til
þess að spjalla um hitt og þetta. Mér
þótti mjög vænt um hversu spenntur
hann var yfir ófædda barninu sem við
Gulla eigum von á. Hann talaði um
vögguna sem stóð fyrir framan hann,
sem bíður eftir að vera flutt út til Dan-
merkur og að Sigrún systir mín hefði
verið sú fyrsta sem notaði hana. Mér
fannst ég geta sagt pabba allt og var
næstum því búin að segja honum hvað
við ætlum að láta barnið heita en
hugsaði með mér að það mætti bíða,
það væru hvort eð er ekki nema tveir
mánuðir í að barnið ætti að fæðast.
Í síðasta samtali okkar töluðum við
mikið um friðinn og hvar væri best að
finna hann. Pabbi fann sinn frið best
við laxveiðar eða í berjamó. Við vor-
um sammála um að fuglasöngur væri
friðsælastur. Pabbi talaði um það
hvað það væri friðsælt og gott að búa
á Álftanesi, sérstaklega yfir sumar-
tímann, en það ætti ég eftir að sjá
þegar ég væri á Íslandi yfir sumar-
tímann. Ekki átti ég von á að það yrði
viku seinna að ég kæmi til Íslands og
það við útförina hans. Pabbi var mjög
hlýr og traustur maður. Hann var ein-
staklega smekklegur og hugsaði yf-
irleitt vel um í hvaða fötum hann ætti
að vera hverju sinni. Ég er mjög
þakklátt fyrir þessi 35 ár sem ég átti
með pabba og hversu góður hann
reyndist Sigurbjörgu dóttur minni.
Ég vona að elsku pabbi minn hafi
fundið friðinn sem við töluðum um.
Guðrún.
Elsku afi, nú hefur þú fengið hvíld-
ina. Laus orðinn við öll heimsins
vandamál.
Ég var svo einstaklega heppin að fá
að umgangast ykkur ömmu mikið á
mínum uppvaxtarárum og vil ég fá að
þakka þér fyrir allar þær stundir sem
við höfum fengið að upplifa saman,
allar utanlandsferðir, allar ferðirnar
upp á Bakkaflugvöll þaðan sem við
keyrðum um sveitir Suðurlands helgi
eftir helgi, sumar eftir sumar.
Ég og Sigurður munum ávallt
minnast þín fyrir þinn ótrúlega ljúf-
leika og hjartagæsku því öllum vildir
þú hjálpa er vandi steðjaði að. Þú
varst sannur eyjapeyji sem sýndi sig
hvað best er þú vannst nótt sem nýtan
dag við að bjarga eyjunni okkar frá
jarðeldunum fyrir 30 árum. Þú vannst
sem skókaupmaður alla þína ævi og
enginn þekkti þig undir öðru en Axel
Ó, í búðinni ykkar ömmu þar sem þú
vannst af heilindum í þágu Vest-
mannaeyinga sem og annarra lands-
manna sem áttu leið um. Alltaf voruð
þið amma tilbúin að opna búðina fyrir
þjóðhátíðargestum hvort sem klukk-
an væri 9 eða 3 um nótt, þar sýndi sig
best þín hjartagæska og þjónustu-
lund.
Elsku afi
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Anita.
AXEL
LÁRUSSON
Fleiri minningargreinar um Axel
Lárusson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.