Morgunblaðið - 03.06.2003, Side 37
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 37
FÓLK
ALLAN Borgvardt, Daninn knái
í liði FH-inga, fékk gula spjaldið í
leiknum við Fylki í fyrrakvöld en
ekki Sverrir Garðarsson. Egill
Már Markússon sýndi Sverri
spjaldið fyrir að slá knöttinn með
hendi en Allan viðurkenndi við Egil
að hafa slegið boltann með hend-
inni og því var gula spjaldið skráð á
hann.
NORSKA knattspyrnusamband-
ið hefur stytt leikbann Gylfa Ein-
arssonar leikmanns Lilleström um
einn leik en Gylfi var sem kunnugt
er dæmdur í fjögurra leikja bann
fyrir óprúðmannlega framkomu
gagnvart norska kvendómaranum
Bente Skovgang í leik með varaliði
Lilleström. Gylfi getur því tekið
þátt í næsta leik Lilleström sem er
á móti Viking þann 15. júní.
CHRISTIAN Högni Jacobsen,
einn fimm leikmanna frá erlendum
félögum í landsliði Færeyja sem
mætir Íslandi á Laugardalsvellin-
um á laugardaginn, er kominn á
heimaslóðir. Jacobsen leikur með
Vejle í dönsku 1. deildinni en hefur
fengið fá tækifæri þar að undan-
förnu og hefur nú verið leigður til
NSÍ frá Runavík
JACOBSEN lét strax til sín taka
því hann spilaði sinn fyrsta leik
með NSÍ á sunnudag. Þar skoraði
hann eitt mark og lagði upp annað í
sigri á VB, 4:0.
LEIK Fram og KA í úrvalsdeild
karla í knattspyrnu sem fram átti
að fara 10. júní hefur verið frestað
fram á kvöld á þjóðhátíðardegin-
um, 17. júní. Ástæðan er sú að
Andri Fannar Ottósson, leikmaður
Fram, var valinn í 21-árs landsliðið
sem mætir Litháen 10. júní.
EYJÓLFUR Héðinsson, 18 ára
miðjumaður úr Fylki, lék sinn
fyrsta leik í efstu deild þegar Ár-
bæjarliðið vann FH, 3:0. Eyjólfur
kom til liðs við Fylki frá ÍR í vetur.
HRAFNKELL Kristjánsson,
miðjumaður úr FH, er genginn til
liðs við efsta lið 2. deildar, Völsung
frá Húsavík. Hrafnkell, sem tók
fram skóna á ný í vetur eftir nokk-
urt hlé, hefur ekki fengið tækifæri
með FH-ingum í vor.
ÁSLAUG Ákadóttir, sem á sín-
um tíma skoraði grimmt fyrir
Skagakonur í efstu deild, gerði
þrennu um helgina þegar utan-
deildalið ÍA skellti úrvalsdeildarliði
Þróttar/Hauka, 4:3, í bikarkeppni
kvenna í knattspyrnu. ÍA tefldi
fram 2. flokki sínum, auk þess sem
þær Áslaug, Ingibjörg Ólafsdóttir
og Magnea Guðlaugsdóttir, fyrrum
burðarásar í Skagaliðinu, léku með.
ALLS eru 586 leikmenn með
lausa samning við ensk félög um
þessar mundir og fæstir þeirra
geta vænst þess að samningarnir
verði endurnýjaðir. Meðal þeirra
eru Alen Boksic, Keith Gillespie og
Fabrizio Ravanelli.
GUÐJÓN Skúlason verður næsti
þjálfari Íslandsmeistara Keflavíkur í
körfuknattleik kvenna og tekur
hann við liðinu af Önnu Maríu
Sveinsdóttur. Guðjón hefur ákveðið
að binda enda á glæsilegan feril sinn
sem leikmaður Keflavíkurliðsins en
þessi sigursæli leikmaður hefur leik-
ið yfir 700 leiki fyrir Keflavík og
skorað yfir 11 þúsund stig í þeim,
sem hvort tveggja er met hjá félag-
inu. Guðjón hefur sex sinnum hamp-
að Íslandsmeistaratitli með Keflavík
og fjórum bikarmeistaratitlum.
Þetta verður frumraun Guðjóns sem
þjálfara í meistaraflokki en hann
hefur komið að þjálfun yngri flokka.
Guðjón
þjálfar Kefla-
víkurkonur
GÍGJA Guðbrandsdóttir var fána-
beri þegar íslenski hópurinn gekk
inná Ta’Qali þjóðarleikvanginn á
Möltu í gær á opnunarhátíð tíundu
Smjáþjóðaleika Evrópuríkja. Gígja
keppir sjálf í júdó en á eftir henni
gekk um 180 manna hópur kepp-
enda, fararstjóra og aðstoð-
armanna frá Íslandi – fjölmennasti
hópur sem Íslendingar hafa sent á
slíka leika. Íslenski hópurinn gekk
einn hring á vellinum en hélt síðan í
áhorfendastúkur vallarins og fylgd-
ist með dagskránni þaðan. Sund-
mennirnir tóku ekki þátt í inngöng-
unni, þar sem ákveðið að þeir
myndi hvílast fyrir sundkeppnina,
sem hefst snemma í dag.
Að venju var mikið um að vera á
opnunarhátíðinni sem stóð yfir í um
þrjár og hálfa klukkustund. Jaggue
Rogge, forseti Alþjóðaólymp-
íusambandsins, IOC, og Eddie Fe-
nech Adami, forseti Möltu, settu
leikana með formlegum hætti.
Íbúar Möltu létu sig ekki vanta á
opnunarhátíðina og voru um 12.000
áhorfendur mættir á Ta’Qali-
leikvöllinn. Skemmtiatriði heima-
manna voru með ýmsum hætti þar
sem boðið var m.a. upp á ræðuhöld,
söng, dans og síðast en ekki síst
glæsilega flugeldasýningu sem stóð
yfir í um tíu mínútur samfleytt. Um
20 stiga hiti var í Valetta í gær-
kvöld og var hafgolan nokkuð sterk
að þessu sinni en blíðskaparveður
hefur verið á Möltu undanfarna
daga.
Keppni hófst í gær með und-
anrásum í veggtennis og skotfimi
en í dag verður keppt í körfuknatt-
leik, frjálsum íþróttum, blaki, borð-
tennis, siglingum, skotfimi, tennis
og sundi en aðeins íslenska júdólið-
ið á frí í dag. Smáþjóðaleikunum
lýkur á laugardag, en næstu leikar
fara fram í Andorra að tveimur ár-
um liðnum.
Gígja
fánaberi
á Ta’Qali
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íslenski hópurinn gengur inn á Ta’Qali-þjóðarleikvanginn á Möltu í gær, á eftir Gígju Guðbrandsdóttur, fánabera Íslands.
A-lágmarkið í tugþraut er 8.090stig og var Jón Arnar vel yfir
þeim stigafjölda í þrautinni í Götzis
þar sem hann önglaði saman 8.222
stigum.
Þetta verður í fimmta sinn sem Jón
Arnar tekur þátt í heimsmeistaramóti
utanhúss og jafnar hann þar með met
Vésteins Hafsteinssonar, Íslandsmet-
hafa í kringlukasti, sem tók þátt í
fimm heimsmeistaramótum frá 1983
til og með 1995, en Jón Arnar var með
í fyrsta sinn á HM í Gautaborg árið
1995 þegar Vésteinn tók þátt á
mótinu í síðasta sinn á löngum ferli en
Vésteinn hætti keppni árið eftir að
loknum Ólympíuleikunum í Atlanta.
Reikna má með að fjórir frjáls-
íþróttamenn til viðbótar reyni við lág-
mark fyrir HM í París, það eru Magn-
ús Aron Hallgrímsson, kringlukastari
og lærisveinn Vésteins, Vala Flosa-
dóttir, stangarstökkvari, Einar Karl
Hjartarson, hástökkvari og Sunna
Gestsdóttir, Íslandsmethafi í lang-
stökki.
Tveir með far-
seðil á HM í París
JÓN Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr Breiðabliki og Íslands-
methafi, tryggði sér farseðilinn á heimsmeistaramótið sem fram fer
í París í lok ágúst með árangri sínum í Götzis um síðustu helgi.
Hann er annar íslenski frjálsíþróttamaðurinn sem tryggir sér rétt til
þátttöku á mótinu en áður hafði Þórey Edda Elísdóttir innsiglað
þátttökurétt á mótinu með því að stökkva yfir 4,40 metra, en það er
svokallað A-lágmark fyrir mótið.
AP
Jón Arnar náði besta árangri sínum í langstökki í tugþraut þegar hann stökk 7,85 m í Götzis.