Morgunblaðið - 05.06.2003, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ D
BILIÐ milli hefðbundinna
flugfélaga og lággjaldaflugfélaga
mun „minnka hratt og sennilega
hverfa alveg á næstu misserum,“
segir Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi hjá Flugleiðum.
„Bæði munu hefðbundnu félög-
in lækka hjá sér kostnað og draga
úr þjónustu og meiri krafa verður
gerð til flugvalla og stórnsýslu
um lækkun ýmissa gjalda, og
jafnvel eru að kvikna hugmyndir
um að sá kostnaður verði rukk-
aður sérstaklega – hann verði
tekinn út úr verði flugfarseðla.
Einnig mun væntanlega kostnað-
ur hjá lággjaldaflugfélögum vaxa
þegar eftirspurn eykst á ný í flug-
heiminum og samkeppni um
starfsfólk og flugvélar verður
harðari en hún hefur verið nú á
samdráttartímum,“ segir Guðjón.
Lággjaldaflugfélög hafa verið
að sækja í sig veðrið að undan-
förnu og ætla sér að „eyðileggja“
flugmarkaðinn eins og hann er
nú, eins og haft var eftir forstjóra
Ryanair nýverið. Hið „hefð-
bundna“ flugfélag British Air-
ways (BA) hefur gengið langt til
að mæta þróuninni og séð árang-
ur í formi aukins hagnaðar.
Ryanair, annað stærsta lág-
gjaldaflugfélag Evrópu, skilaði
góðri afkomu á síðasta ári og
hyggst lækka fargjöld enn frekar
og verða stærra en BA.
BA hefur einfaldað rekstur
sinn verulega á síðustu árum og
er óðum að verða líkara lág-
gjaldaflugfélagi eins og Ryanair,
að því er fram kemur í nýlegri
frétt WSJ. BA hefur gefið það út
að það ætli sér einnig að lækka
flugfargjöld á næstunni. Á sum-
um leiðum félagsins, einkum
þeim sem mest samkeppni ríkir á,
hefur BA lækkað fargjöld um
80% að undanförnu.
Áskorun fyrir flugfélögin
Markmið BA er að lækka kostnað
um 1,1 milljarð punda á ári en það
jafngildir ríflega 135 milljörðum
íslenskra króna. Nú þegar hefur
því tekist að draga saman seglin
með því að fækka birgjum úr
14.000 í 5.000 á skömmum tíma.
Mikið tap var hjá félaginu árið
1999 og síðan þá hafa stjórnendur
verið að endurskoða stefnu fé-
lagsins. Árangurinn af einföldun
rekstrar BA hefur verið góður, að
því er fram kemur í WSJ. Hagn-
aður BA á uppgjörsárinu sem
lauk í mars síðastliðnum nam 85
milljónum punda eða yfir 10 millj-
örðum íslenskra króna. Sú af-
koma var mikil bæting því árið
áður varð um 129 milljóna punda
tap á rekstrinum, eða jafnvirði
tæpra 16 milljarða íslenskra
króna.
„Kannski þurfum við áskorun
eins og lággjaldaflugfélög eða
niðursveiflu í iðnaðinum til að
gera breytingar,“ hefur WSJ eft-
ir Robert Boyle, yfirmanni flug-
vélaflota BA.
Breytingar hjá Icelandair
„Staðan kallar á breytingar hjá
okkur líkt og öllum öðrum og fé-
lagið [Icelandair] ætlar sér að
lækka kostnað um 1,5 milljarða
króna á næstu 12 mánuðum,“
segir Guðjón.
Hann segir ekki hægt að bera
Icelandair saman við British Air-
ways, þótt bæði hafi þau það
markmið að einfalda rekstur og
draga úr kostnaði á hvern far-
þega. „Þótt Icelandair sé að sumu
leyti hefðbundið „þjóðarflug-
félag,“ er það líka frábrugðið í
grundvallaratriðum. Hið hefð-
bundna evrópska þjóðarflugfélag,
eins og British Airways, SAS,
Lufthansa, Air France o.s.frv.
byggir á sínum heimamarkaði og
einkum á viðskiptalífinu – ekki
ferðamönnum. Vegna þess hve ís-
lenski heimamarkaðurinn er
smár hafa Flugleiðir, sem hafa
aldrei verið í ríkiseigu, alltaf
þurft að byggja á því að sækja
flesta sína farþega inn á heima-
markaði annarra flugfélaga og
fyrst og fremst ferðamenn. Að
því leyti á félagið um margt meira
skylt með lággjaldafélögunum
sem nú eru svo áberandi,“ segir
Guðjón.
Skynsamlegur flugrekstur
Bent er á í grein WSJ að í kjölfar
Persaflóastríðsins 1991 hafi fjöldi
hefðbundinna flugfélaga reynt að
skera niður kostnað til að gera
rekstur sinn líkari því sem nú
þekkist hjá lággjaldaflugfélögum.
Þegar leið á tíunda áratuginn hafi
hagur fólks vænkast og eftir-
spurn eftir ódýrum fargjöldum
minnkað. „Flugfélög verða að
fara að haga rekstri sínum á hag-
kvæman og skynsamlegan hátt,“
segir forstjóri BA, Rod Edding-
ton. Hann segir rekstur BA
ganga mun betur eftir að gerð
var áætlun um að einfalda fyr-
irtækið. Hingað til hefur BA not-
ast við 33 gerðir flugvéla en í kjöl-
far einföldunar í rekstri félagsins
hefur þeim fækkað í 22 mismun-
andi gerðir. Áætlun gerir ráð fyr-
ir færri en 20 gerðum flugvéla áð-
ur en þessu ári lýkur.
Fleiri bætast í hóp
lággjaldaflugfélaga
Gamalgróin flugfélög eins og British Airways hafa aðlagað rekstur sinn í átt að lág-
gjaldaflugfélögum. Flugleiðir ætla að taka þátt í breytingunum og draga úr kostnaði.
Reuters
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
BRESKA blaðið Financial Times sagði í
gær að Baugur Group væri að undirbúa
yfirtökutilboð í bresku leikfangakeðjuna
Hamleys Plc. í samstarfi við John Watk-
insson, aðalframkvæmdastjóra félagsins.
Segir í fréttinni að búist sé við tilboði frá
félaginu í þessari viku eða snemma í næstu
viku.
Talið er að tilboð Baugs muni hljóða upp
á allt að 46,2 milljónir steringspunda, eða
190 til 200 pens á hlut en gengi á bréfum
Hamleys rauk upp um 8,2% við fréttir
gærdagsins og endaði í 191,50 pensum á
hlut, eftir að hafa farið hæst í 193 pens á
hlut.
Hamleys rekur fimm verslanir undir
Hamleys-vörumerkinu, 31 verslun undir
vörumerkinu Bear Factory auk fjögurra
annarra verslana.
Verslunin var stofnuð árið 1760 af Willi-
am Hamley og hét fyrst Noah’s Ark, eða
Örkin hans Nóa. Verslunin flutti á hina
frægu verslunargötu Regent Street í
London árið 1906. Í þeirri búð, sem er
flaggskip fyrirtækisins, er eitt mesta úrval
leikfanga á einum stað sem þekkist í heim-
inum, eða um 40.000 vörutegundir á fimm
hæðum. Slagorð verslunarinnar er: „Besta
leikfangabúð í heimi“.
Í frétt Financial Times segir að ef kaup-
tilboð Baugs og Watkinsson gangi eftir
verði Hamleys skráð af markaði.
Baugur á sem kunnugt er hluti í nokkr-
um breskum verslunarkeðjum; Big Food
Group, Selfridges, Somerfield, Mothercare
og House of Fraser.
Á vefnum thisismoney.com segir að
Hamleys sé af ákjósanlegri stærð fyrir
Baug og gæti því mögulega orðið fyrsta
fyrirtækið sem Baugur kaupir að fullu í
Bretlandi eftir ýmsar æfingar á því sviði,
eins og það er orðað.
Hamleys tapaði 890.000 pundum á árinu
2001 vegna samdráttar í ferðamanna-
straumi til London í kjölfar atburðanna 11.
september. Útlit er hins vegar fyrir 5,85
milljóna punda hagnað fyrir skatta á upp-
gjörsárinu 2002 sem lauk í mars sl.
V I Ð S K I P T I
Baugur vill
Hamleys
Gengi hlutabréfa Hamleys
hækkaði um 8,2% í gær
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Hluthafar láta til sín taka
Laun stjórnenda valda óánægju meðal hluthafa 4
Ábyrgð stjórnenda
Dómstólar gera ríka kröfu til stjórnenda 8
SEÐLABANKAR ÓTTAST
VERÐHJÖÐNUN