Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 1
Slegist um gúmmíhringi í skærum litum
Þór Örn Flygenring, 10 ára, safnar svört-
um gúmmíarmböndum, en Sigrún María
Grétarsdóttir, 15 ára, velur armböndin
fremur með tilliti til klæðaburðar.
NÝJASTA æðið hjá æsku landsins eru gúmmíarmbönd í skærum litum. Bæði kynin virðast hafafallið fyrir neonhringjum þessum og eru aðdáendurnir frá þriggja ára til þrítugs. Kveður svohart að þessu æði að í sumum skólum landsins hefur verið brugðið á það ráð að banna arm-
böndin þar sem þau hafa komið af stað slagsmálum. Einnig hefur borið á metingi á milli krakka um
hver eigi flest armböndin og sumir eru sagðir einskis svífast til að verða sér úti um gersemarnar.
En armböndin eru auðvitað fyrst og fremst skraut eða fylgihlutir. Í
erlendum tískublöðum eru fyrirsæturnar með þau upp um alla
handleggi. Litirnir eru þeir sömu og í fatnaði sumarsins: Appels-
ínugult, bleikt, grænt, gult og rautt.
Hringirnir eru svo vinsælir að þeir seljast jafnóðum upp í
verslunum. Þær Stefanía Sigurðardóttir og Edda Viðars í Ex í
Kringlunni sögðu að stundum væri biðröð af krökkum fyrir ut-
an verslunina þegar þær kæmu á morgnana til að opna.
„Armböndin renna út eins og heitar lummur og það er stöð-
ugur straumur af krökkum sem koma hingað í búðina til að
kaupa sér djásnin. Við fengum fyrstu sendinguna af hringj-
unum í síðustu viku og ætluðum rétt að prófa, en hún seldist
upp á tveimur tímum svo við vorum snöggar að panta meira,“
segja þær stöllur og bæta við að litlu krakkarnir vilji hafa sem
mest af hringjunum á sér í einu og í sem flestum litum en gelgj-
urnar og fullorðna fólkið kjósi frekar einn lit í einu og fáa
hringi.
„Fólk á milli tvítugs og þrítugs vill hafa hringina í sama
lit og belti eða skór sem það klæðist hverju sinni og sá
aldurshópur kaupir einnig breiðari hringi.“
Stefanía og Edda segja að yngri krakkarnir
safni sem flestum litum í armböndunum og bíði
spennt eftir nýjum litum. „Appelsínuguli liturinn
virðist vera vinsælastur, hann klárast alltaf fyrst
hjá okkur. Krakkarnir skiptast líka á eða býtta
eins og það er kallað og þá er auðvitað mest
spennandi að fá sjaldgæf eintök eins og til
dæmis armband með glimmeri eða munstri. Við
vitum um stelpu sem fékk í skiptum „öðru-
vísi“ armband sem átti uppruna sinn norð-
ur á Akureyri.“
Armhringirnir eru ódýrir og kannski
einmitt þess vegna hefur æðið gripið um
sig meðal yngri kynslóðarinnar. Þau hafa
jú flest efni á að kaupa sér dýrgripi sem
kosta aðeins 10 krónur stykkið.
Tískudjásn á tíkall
M
orgunblaðið/G
olli
F Ö S T U D A G U R 6 . J Ú N Í 2 0 0 3 B L A Ð C
GRÚPPÍA Á VESTFJARÐAVÍKINGNUM/2 ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA
SPÆNSKU/2 KYNLÍF TÆPITUNGULAUST/4 AMMA KENNDI MÉR
AÐ SPÁ Í BOLLA/6 LITRÍKIR ROÐSKÓR/7 AUÐLESIÐ EFNI/8