Morgunblaðið - 08.06.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
La
n
d
lis
t/
E
R
A
N
Opið verður
12.00 til 18.00
Holtagarðar, Spöngin, Smáratorg,
Kringlan, Hafnarfjörður, Mosó,
Reykjanesbær, Selfoss, Borgarnes,
Ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir
(Allar búðir lokaðar á hvítasunnudag)
FULLT AF FRÁBÆRUM TILBOÐUM!
II. hvítasunnudag
Skynsemin velur Bónus
ekkert
brudl-
„Leyf mér þig að leiða.“
Ráðstefna um fiskiðnað
Meiri verðmæti
úr aflanum
TAFT 2003 er heitialþjóðlegrar ráð-stefnu sem haldin
verður á Grand hóteli í
Reykjavík 11.–14. júní. Þar
verður fjallað um margt
sem lýtur að aukinni nýt-
ingu og verðmætasköpun í
fiskiðnaði og fiskeldi. Guð-
rún Ólafsdóttir hjá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðar-
ins (Rf) er verkefnisstjóri
ráðstefnunnar.
„Samtök fiskirann-
sóknastofnana í Evrópu,
WEFTA, sem Rf er aðili
að, halda árlega ráðstefnu.
Í þetta sinn er ráðstefnan
haldin sameiginlega með
systursamtökum í Banda-
ríkjunum og Kanada. Ráð-
stefnan heitir Trans
Atlantic Fisheries Techno-
logy Conference, TAFT, og vísar
nafnið til þess að fundað er yfir
Atlantsála. Þetta er í fyrsta sinn
sem ráðstefna af þessu tagi er
haldin á Íslandi og verður hún
miklu stærri í sniðum en árlegir
fundir WEFTA eru venjulega.“
Hvað er búist við mörgum þátt-
takendum?
„Það er búist við um 200 manns
og erlendir þátttakendur eru þeg-
ar orðnir um 160. Við vonumst til
að fá sem flesta Íslendinga og geta
þeir enn skráð sig á ráðstefnuna.
Við hvetjum fólk úr fiskiðnaðinum
til að mæta og nýta sér nýjustu
rannsóknaniðurstöður um betri
nýtingu á hráefni og aukið verð-
mæti afurða.“
Hvað verður til umræðu?
„Meðal annars verður fjallað
um nýjar aðferðir við meðhöndlun,
vinnslu og dreifingu sjávarafurða.
Einnig áhrif þeirra á öryggi og
gæði fiskafurða. Það er verið að
fjalla um nýjar vinnslu- og
geymsluaðferðir. Þar á ég t.d. við
notkun háþrýstings, stýrðra loft-
skilyrða eða bylgna til að varðveita
gæði og öryggi vörunnar. Til að ná
betri árangri eru stundum notaðar
samþættar varðveisluaðferðir, svo
sem sérstakar pökkunaraðferðir
og mild vinnslutækni til að gæðin
haldist sem best. Í fiskeldi er nú
lögð áhersla á að geta flakað og
unnið fiskinn áður en hann fer í
dauðastirðnun en rannsaka þarf
hver áhrif þess eru á gæði afurð-
arinnar.
Einnig verður fjallað um neyt-
endur og viðhorf þeirra til fisk-
neyslu. Hvernig eru t.d. viðbrögð
þeirra við nýjum geymsluaðferð-
um og nýjum gerðum umbúða?
Haldinn verður fjöldi erinda um
áhrif þessara aðferða á örverur
sem geta valdið matareitrunum
eða skemmt fiskinn. Einnig er allt-
af verið að skoða hvernig við get-
um mælt gæði og öryggi vörunnar
en til þess er bæði notað skynmat
og ýmis mælitæki. Iðnaðurinn hef-
ur þó lítið notað slík tæki hingað til
því auðvelt hefur verið að selja
hráefnið vegna þess að það er
meiri eftirspurn en framboð. En
markaðssetning er ekki sjálfsögð
og það er mikilvægt að
geta mælt og sannað að
gæðin standist
ákveðnar kröfur.
Ráðstefnan stendur í
fjóra daga og hver dag-
ur er helgaður ákveðnu viðfangs-
efni. Á föstudeginum verður t.d.
fjallað um nýja möguleika í fram-
leiðslu sem byggjast á rannsókn-
um á eiginleikum og stöðugleika
próteina, fituefna og ensíma úr
fiski. Það er mögulegt að nýta t.d.
fiskprótein og omega-3 fitusýrur
sem fæðubótarefni til íblöndunar í
matvæli. Einnig eru kynntar rann-
sóknir á framleiðslu á surimi og
öðrum verðmætum afurðum úr
hráefni sem ekki gefur mikið af
sér eða er lítið nýtt í dag. Nefna
má fiskslóg, afskurð og frárennsli.
Það fara fram miklar rannsóknir á
hvernig nýta má lífefni úr þessu
hráefni og búa til verðmætari holl-
ar afurðir úr fiskhráefni.“
Hvernig er með fyrirlesara?
„Níu erlendum lykilfyrirlesur-
um er boðið til ráðstefnunnar.
Þetta eru frægir vísindamenn
hver á sínu sviði og mikill akkur er
í að fá þetta fólk hingað. Auk
þeirra er fjöldi íslenskra og er-
lendra fyrirlesara. Þeir koma frá
háskólum, rannsóknastofnunum
og fyrirtækjum. Einnig verða
mörg verkefni kynnt á veggspjöld-
um.“
Hvernig er að afla fjár til rann-
sókna í fiskiðnaði?
„Við höfum boðið sérstaklega
forsvarsmönnum sjóða, sem veita
fé til rannsókna, til að kynna
möguleika á rannsóknarfjár-
magni. Meðal annars kemur
fulltrúi frá Evrópusambandinu til
að fjalla um möguleika á styrkveit-
ingum. Það ber að nefna að við
fengum styrk frá Norræna iðnþró-
unarsjóðnum og Rannís til að
koma á alþjóðlegu samstarfi á
þessu sviði, svokölluðu „network-
ing“. Allir þátttakendur á ráð-
stefnunni hafa skráð áhugasvið sín
og hugmyndir að nýjum verkefn-
um. Þetta er allt aðgengilegt á
heimasíðu okkar, www.rf.is. Ráð-
stefnan er því vettvang-
ur til að koma á sam-
skiptaneti þeirra sem
stunda rannsóknir í
fiskiðnaði beggja vegna
Atlantshafsins.“
Hvernig eiga þeir að bera sig að
sem langar að sitja ráðstefnuna?
„Það er hægt að skrá sig á alla
ráðstefnuna eða hluta hennar. Síð-
asti skráningardagur er 10. júní.
Við viljum hvetja sem flesta úr ís-
lenskum fiskiðnaði til að mæta á
ráðstefnuna. Dagskrá ráðstefn-
unnar er að finna á slóðinni: http://
www.rf.is/taft2003/ og eins upplýs-
ingar um skráningu.“
Guðrún Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins (Rf), lauk BS-prófi í
matvælafræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1980 og MS-gráðu í
sömu grein frá Wisconsin-
háskóla í Bandaríkjunum 1985.
Hún hóf störf hjá Rf árið 1988 og
hefur verið verkefnisstjóri rann-
sókna frá 1992. Guðrún hefur
tekið þátt í mörgum alþjóðlegum
rannsóknaverkefnum og nefnda-
störfum og ritað fjölda fræði-
greina, ýmist ein eða í samstarfi
við aðra. Hún er gift Magnúsi
Sigurðssyni efnaverkfræðingi og
eiga þau þrjú börn.
Verðmætar
afurðir úr
ódýru hráefni