Morgunblaðið - 08.06.2003, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
Nýja svið
NAPÓLÍ 23 - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson,
Matthias Hemstock, Eyvind Kang
Fi 12/6 kl. 20
15:15 TÓNLEIKAR - FERÐALÖG
Bergmál Finnlands: Poulenc hópurinn
Lau 14/6 kl. 15:15
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Lau 21/6 kl. 20 - AUKASÝNING
Sun 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING
ATHUGIÐ SÍÐUSTU SÝNINGAR
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 13/6 kl. 20
SÍÐASTA SÝNING Í VOR
DON GIOVANNI EFTIR W. A. MOZART
ÓPERUSTÚDÍÓ AUSTURLANDS
Su 15/6 kl. 17
Má 16/6 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ -
ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ
SUNNUDAGURINN 8. JÚNÍ
Kl. 20.00 Orgeltónleikar:
Olivier Latry frá Notre Dame í París, einn frægasti
organisti heims, leikur tónlist eftir Bach, Franck,
Vierne, Dupré o.fl. auk þess að spinna á Klais-
orgel Hallgrímskirkju. Kr. 2.000.
MÁNUDAGURINN 9. JÚNÍ
Kl. 20.00 Lokatónleikar Kirkjulista-
hátíðar Mótettur meistara Bachs, BWV 225 -
230. Einar Jóhannesson klarinettuleikari frumflyt-
ur Bachbrýr eftir Atla Heimi Sveinsson á milli
mótettanna. Mótettukór Hallgrímskirkju Das Neue
Orchester frá Köln Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Kr. 2500.
HALLGRÍMSKIRKJA
Miðasölusími 510 1000
Kirkjulistahátíð 2003
29. maí - 9. júní
HARMUR PATREKS
eftir Auði Haralds
2. sýn. sun. 8. júní kl. 20
3. sýn. fös. 13. júní kl. 20
4. sýn. lau. 14. júní kl. 20
Dansleikhús með ekka frumsýnir
LÍNEIK OG LAUFEY
lau. 14. júní kl. 14
lau. 14. júní kl. 16
sun. 15. júní kl. 14
Miðaverð kr. 500
sun 15. júní kl. 21, Hótel Borgarnes
fim 19. júní kl. 21, Félagsh. Valhöll Eskifirði
lau 19. júní kl. 21, Félagsh. Herðubreið Seyðisf.
Forsala á Blöndósi í Byggingav. KH, Húnabraut
Forsala í Borgarnesi í versluninni Fínu fólki,
Borgarbraut
www.sellofon.is
HANN er alveg tilbúinn að við-
urkenna það, hann er gluggagægir í
eðli sínu. Til að orða það á smekk-
vísari og öllu jákvæðari máta skulum
við segja hann sé mannfræðingur í
eðli sínu. Sem kvikmyndagerð-
armaður sér hann sig ætíð sem áhorf-
anda, vitni, gjarnan að voveiflegum
viðburðum, hrottafengnum morðum
eða öðru ofbeldi.
Hvað sem sagt verður um feril Bri-
an De Palma og gæði mynda hans eru
fáir bandarískir kvikmyndagerð-
armenn af hans kynslóð sem bera
eins sterk höfundareinkenni og hann.
Og síðastur er hann til að þræta fyrir
hver undirrót þeirra einkenna er,
svarthvítar rökkurmyndir frá því um
miðbik síðustu ald-
ar, einkum þó og
sér í lagi myndir
Alfreds heitins
Hitchcocks.
Áhugann á blóði
drifnu ofbeldinu
segir hann hins
vegar alfarið af-
leiðingu af því að
hafa ungur fylgst
með föður sínum
að störfum, en
hann var bæklunar-
skurðlæknir.
Rannsóknir á skuggahliðum mann-
lífsins hóf De Palma á 7. áratugnum,
á námsárum sínum í Columbia-
háskólanum. Gerði hann nokkrar litl-
ar lítt þekktar myndir, sem m.a.
skörtuðu óþekktum Robert De Niro.
Fyrsta mynd hans sem sýnd var í
kvikmyndahúsi heitir Murder a la
Mod og var frumsýnd 1968. Henni
fylgdu nokkrar lítt markverðar
myndir en það var ekki fyrr en hann
tók að stæla Hitchcock í Sisters frá
1973 sem hann vakti athygli, einkum
fyrir sérstæð og sterk stílbrigði þar
sem hann beitti óspart þeirri ný-
breytni sem fram hafði komið á 7.
áratugnum að ramma niður myndina
og sýna tvö atriði í einu. Til að kóróna
Hitchcock-vísunina fékk De Palma
gamla tónskáldið hans, Bernard Her-
mann, til að semja tónlistina fyrir
Sisters og þar með var De Palma
bundinn Hitchcock órjúfanlegum
böndum, sem enn hafa ekki verið rof-
in. Í Obsession var vísunin í Hitchc-
ock enn greinilegri og tónlistin enn
eftir Hermann. Næst kom kvik-
myndagerð á hryllingssögu Stephens
nokkurs Kings. Carrie var frumsýnd
árið 1976 og er enn einhver farsæl-
asta myndin sem gerð hefur verið eft-
ir sögu Kings og um leið er hún vin-
sælasta mynd De Palmas. Kom þar
fram eitt af höfuðeinkennum De
Palmas, sláandi endalokin, nokkuð
sem síðar átti eftir að einkenna marg-
ar ef ekki flestar mynda hans. Þannig
var klæðskiptingatryllirinn Dressed
To Kill frá 1980, Blow-Out ein hans
allra besta mynd og óður til Blow-Up
Antonionis sem frumsýnd var árinu
síðar. Fáar mynda hans De Palmas
eru eins blóðugar og umdeildar og
Scarface frá 1983 og ekki jók hann
vinsældir sínar með viðlíka hrotta-
fenginni níunda áratugar rökk-
urmynd sem hét Body Double. Ein
dáðasta og um leið hefðbundnasta
mynd De Palmas hvað stílbrigði
áhrærir er The Untouchables en síð-
an hún sló í gegn 1987
hefur fátt verið um fína
drætti, ef undan eru
skildar klassamyndirnar
Casualties of War,
Carlito’s Way og svo
auðvitað fyrsta Mission
Impossible, þar sem
karlinn fékk aldeilis að
spila út í stílbrögðunum,
með góðum árangri.
Rökkurmynd á nú-
tímasögusviði
Blóði drifin slóð of-
beldisins liggur alla leið
til Parísar að þessu sinni.
Nýjasta mynd hans Tálkvendi, eða
Femme Fatale eins og hún heitir á
frummálinu, er hreinræktuð De
Palma-ræma, skartar þeim Antonio
Banderas og Rebeccu Romijn-
Stamos úr X-Men í aðalhlutverkum,
og gerist einmitt í París og í sjálfri
bíóborginni Cannes.
„Mig hafði alltaf langað til að gera
mynd í París. Ég var staddur þar í
öðrum erindagjörðum þegar ég fékk
hugmyndina og skrifaði handritið í
einum rykk á hótelherberginu,“ sagði
De Palma er blaðamaður Morg-
unblaðsins ræddi við hann um mynd-
ina nýverið.
– Var París þá beinn innblástur?
„Það má segja það. Stemningin þar
var tvímælalaust sú sem ég vildi ná að
skapa, þessi erill, óvissan um hvað
væri handan við götuhornið í þröngu
húsasundinu.“
– Maður skynjar alltaf einhvern
blæbrigðamun á spennumynd sem
gerist í evrópskri borg og banda-
rískri. Hefur eitthvað með lýsinguna
að gera og þessi þrengsli. Nægir þar
að nefna Feneyjamynd Nicolas Roeg
Don’t Look Now og Frantic eftir
Roman Polanski sem skýr dæmi um
það. Var það eitthvað sem þú varst
meðvitaður um?
„Það er vissulega eitthvað við evr-
ópska sögusviðið sem greinir það frá
því bandaríska. Lýsingin trúlega.
Þetta þungbúna veðurfar, skörpu
skuggar sem gömlu byggingarnar
varpa yfir heilu borgarhverfin. Á
meðan er maður berskjaldaðri fyrir
sólinni í New York og Los Angeles,
nokkuð sem óhjákvæmilega skilar
sér á filmu í mismunandi lýsingu. Það
skýrir þetta „evrópska borgarútlit“.“
– Var það hluti af aðdráttaraflinu
að skjóta mynd í París?
„Nei, fegurð borgarinnar var að-
aladráttaraflið.“
– Myndin virkar á mann sem enn
einn óðurinn til gömlu rökkurmynd-
anna?
„Ég er vissulega að gera tilraun til
að endurskapa stemningu rökk-
urmyndanna á nútímasögusviði. Mér
þótt best að gera það með því að nota
skapa dreymna stemningu.“
– Það hlýtur að vera hægara sagt
en gert að ná að skapa þessa rökk-
urstemningu. Manni finnst nefnilega
einhvern veginn eins og nostalgían
spili þar svo stóra rullu.
„Það er rétt, en stíllinn er samt
mjög markviss og niðurnjörvaður.
Lýsingin, kvikmyndatakan og örlaga-
sagan, allt er þetta háð ákveðnum
rökkurmyndalögmálum sem maður
tekur tillit til.“
– Datt þér aldrei í hug
að skjóta myndina í
svarthvítu?
„Jú, ég gerði meira að
segja prufutökur í svart-
hvítu, en komst svo að
þeirri niðurstöðu að það
hefði fjarlægt áhorf-
endur of mikið frá sögu-
sviðinu. Ég vildi láta þá
dreyma sig inn í mynd-
ina.“
Hitchcock ofbeld-
isfyllri í dag
– Rökkurmyndir samtím-
ans eru óneitanlega ofbeld-
isfyllri og djarfari en gömlu rökk-
urmyndirnar. Heldurðu að menn á
borð við Hitchcock og Billy Wilder
væru að gera ofbeldisfyllri myndir í
dag en þeir gerðu hér forðum.
„Tvímælalaust. Þeir áttu í stöðugu
stríði við kvikmyndaeftirlit þeirra
tíma, alltaf að ögra ríkjandi siðferð-
isgildum, reyna að ganga lengra en
áður þótti boðlegt.“
– Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
lykilpersóna myndar þinnar, vitnið að
glæpnum, er ljósmyndari. Travolta
lék t.a.m. líka ljósmyndara í Blow-
Out. Sérðu þig í þessum persónum?
„Ekkert endilega. Ég lít bara á
kvikmyndirnar sem myndlist fyrst og
síðast. Ljósmyndarinn er mynd-
listamaður, sér heiminn í myndum en
ekki texta, rétt eins og ég.“
– Vísarðu í einhverjar ákveðnar
myndir í Tálkvendinu, líkt og þú hef-
ur áður gert?
„Það eru gagnrýnendurnir sem
vilja velta sér upp úr slíku. Sjálfur
leiði ég hugann sjaldan að því þegar
ég geri myndir, allavega ekki með-
vitað. Ég var einfaldlega að spreyta
mig á rökkurmyndaforminu og leika
mér með draumaflæði.“
Kvikmyndin er málverk
– Leikaravalið kann að virðast í
fyrstu nokkuð sérstakt, Rebeccu
Romijn-Stamos sér í lagi, því hún er
fremur lítt þekkt.
„En hún var langhæfust í starfið.
Hefur allt til að bera til að leika tálkv-
endið; fegurðina, kynþokkann, dýpt-
ina, óútreiknanleikann. Hún er tálkv-
endi.“
– Í alvörunni?
„Frammistaða hennar segir allt
sem segja þarf um það, nærvera
hennar á skjánum.“
– Þegar fólk talar um að myndin sé
mjög mikið De Palma-mynd, hvað
segir það þér?
„Það er einfalt, myndir mínar bera
blessunarlega mjög sterk höfund-
areinkenni.“
– Hefurðu aldrei áhyggjur af því að
stíllinn yfirkeyri frásögnina?
Það eru alveg nógu margir kvik-
myndagerðarmenn uppteknir af sög-
unni, fremur en útlitinu. Ég er einn
fárra kvikmyndagerðarmanna sem
enn sjá kvikmyndir eins og málverk.
99% allra mynda eru gerð án meðvit-
undar um það og þá tækni sem í þess-
ari grein myndlistarinnar er fólgin.“
Amerískur glugga-
gægir í París
Gagnrýnendur elska að hata hann
og hata að elska hann. Sem yfirlýst-
ur gluggagægir notar hann tökuvél-
ina, helst án þess að klippa, til að
skyggnast inn í Hitchcock-heima
kvikmyndanna hvar í rökkrinu allt
er vaðandi í tvíförum, klæðskipt-
ingum og tálkvendum. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi við Brian De
Palma um nýjustu mynd hans, sem
heitir einmitt Tálkvendi.
Tálkvendið og ljósmyndarinn: Rebeccu Romijn-Stamos og Ant-
onio Banderas í dæmigerðum De Palma hlutverkum.
skarpi@mbl.is
Tálkvendi eða Femme Fatale er
komin út á leigumyndbandi.
Rebeccu Romijn-Stamos hefur
að sögn De Palmas allt til að
bera til að leika tálkvendi.
Brian De Palma
MIÐASALA á
tónleika kan-
adíska söngfugls-
ins Díönu Krall
hefst mánudag-
inn 16. júní. Ein-
ungis verður selt
í sæti og fer
miðasala fram á
skrifstofu Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands en tónleik-
arnir verða í Laugardalshöll 9.
ágúst. 2.600 sæti eru í boði. …Rokk-
sveitin Rolling Stones ætlar ekki
að banna þýsku sveitinni Böhse
Onkelz að hita upp fyrir sig á tón-
leikum í Hannover hinn 8. ágúst, en
liðsmenn þýsku sveitarinnar hafa
tengst hægriöfgamönnum. Enn-
fremur hafði Böhse Onkelz samið
lag þar sem andúð gegn Tyrkjum
kom fram. Þýsku rokkararnir segj-
ast hafa slitið tengslin við hægri-
öfgamenn fyrir löngu og benda jafn-
framt á að lagið „Turks Out“, sem
var samið þegar þeir voru undir tví-
tugt á níunda áratugnum, hafi aldrei
átt að komast í almenna dreif-
ingu. …
Mick Jagger kvartar yfir því að
brjóstahöldum sem kastað er upp á
svið þegar hljómsveitin heldur tón-
leika fari mjög fækkandi en hins
vegar hafi þó nokkrum karlmanns-
nærbuxum verið varpað á sviðið.
Hljómsveitin hóf tónleikaferð um
Evrópu á miðvikudagskvöld með
tónleikum í München í Þýskalandi.
„Það voru tómir kallar í salnum,“
sagði Jagger á blaðamannafundi eft-
ir tónleikana.
FÓLK Ífréttum