Morgunblaðið - 08.06.2003, Blaðsíða 13
Íslandingar sem ætla að
ferðast innanlands í sum-
ar geta haft gagn af því
að skoða slóðina
www.travelnet.is
Fyrir fjöl-
skylduna
Gönguferðin tekur um tvo tíma og ekkert kostar að taka þátt.
Í SUMAR gefst ferðalöngum á Aust-
urlandi og auðvitað heimamönnum
líka tækfæri til að fara í tveggja tíma
kvöldgöngu með leiðsögn í nágrenni
Egilsstaða. Ferðafélag Fljótsdals-
héraðs stendur fyrir kvöldgöngum
með stuðningi frá Austur-Héraði.
Guðmundur Sveinsson Kröyer sem á
sæti í ferðanefnd Ferðafélags Fljóts-
dalshéraðs segir að gönguferðin sem
á boðstólum sé henti öllum og sé
miðuð við að öll fjölskyldan geti tekið
þátt í henni. Guðmundur segir að
Farið verður frá Upplýsinga-
miðstöðinni á tjaldsvæði Egils-
staða öll miðvikudagskvöld
klukkan 20 frá 9. júlí - 13. ágúst.
farið verði upp á Egilsstaðakoll og
niður í Egilsstaðavíkina sem er í
landi Egilsstaðabýlisins. Fyrir utan
Egilsstaði er Nátthagavík og þangað
verður haldið og þingsteinar skoð-
aðir í leiðinni. Gönguferðin endar
með því að gengið verður á Gálga-
klett sem er forn aftökustaður.
Guðmundur segir að um leiðsögn
sjái Anna María Arnfinnsdóttir en
hún mun bjóða leiðsögn á ensku og
íslensku. Ekkert kostar að taka þátt
í þessum gönguferðum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
PLÚSFERÐIR hafa ákveðið að bjóða flug til Alic-
ante í vetur með beinu leiguflugi Flugleiða. Þetta
er í fyrsta sinn sem flogið er reglulega í beinu
leiguflugi til Alicante að vetri til.
Flogið verður dagana 22. október, 5. nóv-
ember, 19. nóvember, 3. desember, 18. desember
og 5. janúar.
Kynningarverð er á fyrstu 200 sætunum og
kostar sætið frá 14.900 krónum aðra leiðina
með flugvallarsköttum og 27.930 krónur báðar
leiðir með flugvallarsköttum.
Flogið til Alicante
í vetur
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn
Plúsferða í síma 5352100 Veffang Plús-
ferða er www.plusferdir.is
Dagsferð í Kárahnjúka
FLUGFÉLAG Íslands í samvinnu við
Ferðaþjónustu Tanna á Eskifirði býð-
ur nú í fyrsta sinn á Íslandi skipu-
lagðar dagsferðir til að skoða
stærstu framkvæmdir Íslandssög-
unnar við Kárahnjúka. Ferðin tekur
einn dag og ferðin er á kynning-
arverði alla miðvikudaga og laug-
ardaga í júní og kostar 16.830 krón-
ur.
Flogið er frá Reykjavík til Egilsstaða
að morgni dags þar sem hópbifreið
frá Tanna Travel tekur á móti far-
þegum. Á leið uppá virkjunarsvæðið
er meðal annars stoppað á Skriðu-
klaustri. Á Fljótsdalsheiði er mögu-
leiki að sjá hreindýr á leið að Kára-
hnjúkum þar sem virkjunarfram-
kvæmdir verða skoðaðar. Gengið
verður niður að Hafrahvammagljúfri
og fegurð þess skoðuð. Á heimleið-
inni er farið um Laugavalladal og
gefst fólki kostur á að baða sig í
heitum læk.
Gönguferðir í nágrenni
Reykjavíkur
Göngugarpar ÍT-ferða er heitið á
klúbb sem stofnaður var í apríl sl.
Gengið hefur verið í nágrenni
Reykjavíkur.
Í dag, 8. júní verður gengið á Helga-
fell fyrir sunnan Hafnarfjörð. Þann
15. júní verður gengið að Tröllafossi
í Mosfellsdal og þann 22. júní farið
á Skálafell á Hellisheiði Síðasta
sunnudag mánaðarins, þann 29.
júní, verður farið á Mosfell í Mos-
fellsdal.
Gott er að taka með sér nesti.
Öllum er heimil þátttaka og ekkert
kostar í gönguferðirnar.
Flugfélag Íslands
Bókun í ferðir í síma 5703030
Tölvupóstfang res@flugfelag.is
Vefslóð: www.flugfelag.is
Frá og með síðustu mánaða-
mótum er mætingartími kl. 10
hvern sunnudagsmorgun. Þátt-
takendur hittast við nýju vetn-
isstöðina (Skeljung/Skalla) við
Vesturlandsveg alla dagana,
nema 15. júní, þá hittast göngu-
garpar við Hafnarfjarðar-
kirkjugarð.
OPNAÐUR hefur verið upplýsinga-
vefur fyrir Íslendinga á leið til Dan-
merkur. Vefurinn er unninn af Hirti
Smárasyni sem hefur verið búsettur í
Danmörku og þekkir því landið af eigin
raun. Hann segir að vefurinn eigi að
auðvelda Íslendingum að ferðast og
flytja til Danmerkur því þar sé safnað
saman á einn stað öllum helstu upp-
lýsingum sem fólk þarf á að halda.
Leitast er við að vísa yfir á gagn-
lega vefi þar sem er að finna nýjar og
réttar upplýsingar um hvert málefni. Á
þann hátt á að vera fljótlegt að finna
réttar upplýsingar. Á vefnum eru veitt-
ar upplýsingar um gistingu, lestir, ferj-
ur, rútur, flugfélög, ferðaskrifstofur,
bílaleigur, skemmtigarða, söfn, útihá-
tíðir, ferðamöguleika áfram frá Dan-
mörku og fleira. Þeir sem eru að flytja
búferlum til Danmerkur geta fundið
upplýsingar um atvinnu og atvinnuleit,
húsnæðismál, barna- og fjölskyldumál,
nám, stofnun fyrirtækis og fleira.
Verkefnið var styrkt af Samskip og
Iceland Express.
Slóðin er: www.TheShortcut.To/
dan-info
Nýr upplýsingavefur
um Danmörku
NÝTT tjaldsvæði hefur verið tekið í
notkun á gamla malarvelinum við
Borgarbraut í Borgarnesi. Búið er að
tyrfa gamla völlinn og koma þar upp
salernum, sturtu og handlaugum. Þá
stendur til að helluleggja í sumar á
svæðinu og setja upp útigrill og leik-
tæki fyrir börn.
Næsta sumar verður síðan farið út í
frekari framkvæmdir, malbikuð bíla-
stæði og sett upp rafmagn fyrir hjól-
hýsi, fellihýsi og húsbíla. Einnig verður
þá hægt að losa vatn á svæðinu.
Nýtt tjaldsvæði
í Borgarnesi
Með AVIS kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000
Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging,
vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við
lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald.
Bretland kr. 2.800,- á dag m.v. A flokk
Danmörk kr. 3.200,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur