Morgunblaðið - 10.06.2003, Qupperneq 1
2003 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍSLENSKA KNATTSPYRNULANDSLIÐIÐ KOMIÐ TIL LITHÁENS / B4, B12
PÉTUR Gunnarsson skotmaður
gerði sér lítið fyrir og náði Ól-
ympíulágmarkinu í leirdúfu-
skotfimi á laugardaginn á Smá-
þjóðaleikunum á Möltu. Pétur
náði þessum áfanga í undan-
úrslitum mótsins og fékk þar 118
stig þar en lágmarkið er 114 stig.
Pétur, sem er eini Íslendingurinn
sem hefur náð ÓL-lágmarki í
greininni fyrir leikana í Aþenu,
endaði í fjórða sæti.
Pétur náði
Ólympíu-
lágmarki
ÍSLENSKIR keppendur hrepptu 18
verðlaun og settu 11 Íslandsmet á
opna breska meistaramótinu í sundi
fatlaðra sem fram fór í Sheffield
um helgina. Kristín Rós Hákonar-
dóttir fékk 5 gullverðlaun og Gunn-
ar Örn Ólafsson tvenn en auk þess
fékk Gunnar Örn þrenn silfurverð-
laun og ein bronsverðlaun, Bára
Bergmann Erlingsdóttir fékk
þrenn silfurverðlaun og ein brons-
verðlaun, Bjarki Birgisson fékk
tvenn silfurverðlaun og Guðrún
Lilja Sigurðardóttir ein brons-
verðlaun.
Gunnar Örn setti hvorki fleiri né
færri en sex Íslandsmet á mótinu,
Bjarki þrjú og Bára tvö. Tíu Íslend-
ingar tóku þátt í mótinu en kepp-
endur komu víða að úr heiminum
og mótið því sterkt.
Átján verðlaun
og ellefu met
í Sheffield
LOGI Ólafsson aðstoðarlandsliðs-
þjálfari landsliðsins verður ekki
næsti þjálfari Fram en nafn hans
hefur sterklega verið orðað við
starfið eftir að stjórn knatt-
spyrnudeildar Fram sagði Kristni
Rúnari Jónssyni upp störfum í síð-
ustu viku.
,,Framarar settu sig í samband
við mig og óskuðu eftir viðræðum
varðandi þjálfarastarfið. Ég sagði
þeim hins vegar að ég gæti ekki hitt
þá þar sem ég væri upptekinn í
starfi fyrir Knattspyrnusamband
Íslands og ekki stæði til að ég tæki
að mér önnur verkefni með því,“
sagði Logi í samtali við Morg-
unblaðið í Kaunas í Litháen í gær
þar sem hann er staddur með ís-
lenska landsliðinu.
Logi neitaði
Frömurum
Íslendingar vörðu titla sína í kvenna-flokki og unglingaflokki og urðu í
fyrsta skipti Norðurlandameistarar í
opnum flokki. Ragnar Ingi Sigurðs-
son varð Norðurlandameistari í opn-
um flokki og Guðrún Jóhannsdóttir
sigraði í kvennaflokki. Í opnum ung-
lingaflokki varð Sigríður María Sig-
marsdóttir í fyrsta sæti en hún sigraði
einnig í unglingaflokki stúlkna.
Sævar Lúðvíksson varð Norður-
landameistari í 13-14 ára drengja-
flokki og Ingibjörg Guðlaugsdóttir
sigraði í 13-14 ára stúlknaflokki.
Í 10-12 ára drengjaflokki var það
Andri Már Guðmundsson sem
tryggði sér fyrsta sætið.
Ragnar Ingi, Norðurlandameistari
í opnum flokki, var mjög sáttur við ár-
angurinn hjá sér og öðrum Íslending-
um þegar Morgunblaðið náði tali af
honum í gær.
„Ég stefndi að því að sigra í opnum
flokki en þetta er í fyrsta sinn sem ég
verð Norðurlandameistari í opnum
flokki. Fyrst maður var á heimavelli
kom ekkert annað til greina en að
taka titilinn. Í heildina gekk mótið
mjög vel og það var vel skipulagt í alla
staði.
Það var skemmtilegt hve íslensku
keppendunum gekk vel og það er
glæsilegur árangur að sigra í öllum
einstaklingsflokkunum. Það eru efni-
legir krakkar í unglingaflokkunum, til
dæmis Sigríður María sem sigrar í
opnum unglingaflokki og vinnur
stráka á svipuðu aldri. Hún er mikið
framtíðarefni og þetta var frábær ár-
angur hjá henni.“
Á sunnudeginum fór fram liða-
keppni en fimm lið tóku þátt í henni.
A-lið Íslands sigraði og Finnar lentu í
öðru sæti. Andri H. Kristinsson, Hró-
ar Hugosson og Ragnar Ingi Sigurðs-
son kepptu fyrir hönd A-lið Íslands.
Heiðursgestir á Norðurlanda-
mótinu voru Sophie G. Dumas Jó-
hannesson, sem hefur verið baráttu-
kona fyrir framgöngu skylminga-
íþróttarinnar á Íslandi, Berent Th.
Sveinsson, einn af elstu skylmingar-
mönnum Íslands og Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri Seltjarnarness.
Íslendingar Norðurlanda-
meistarar í skylmingum
NORÐURLANDAMÓT í skylmingum með höggsverði fór fram um
helgina í Íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Keppt var í sjö flokkum í
einstaklingskeppni og urðu Íslendingar Norðurlandameistarar í öll-
um flokkum.
Ljósmynd/Óskar Sæmundsson
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, sigraði á sínu þriðja móti í röð hér á landi um helgina. Hann sigraði
árið 2000 í Grafarholtinu og einnig árið1996 á sama stað. Sjá nánar B3.
HAFSTEINN Ægir Geirsson, siglingakappi,
náði að krækja sér í bronsverðlaun í keppni á
Laserbátum á Smáþjóðaleikunum á Möltu. Haf-
steinn náði fjórða sætinu í áttundu og síðustu
umferð keppninnar á Laserbátum. Þessi árang-
ur Hafsteins Ægis í síðustu umferð dugði hon-
um til að krækja sér í þriðju verðlaun og brons-
verðlaunapening.
Þetta er í fyrsta sinn sem siglingamaður
vinnur til verðlauna á stóru móti erlendis. Haf-
steinn Ægir stóð sig vel á leikunumog nú
hyggst hann reyna að tryggja sér rétt til að
keppa á Ólympíuleikunum í Aþenu að ári en
hann keppti á síðustu leikum – komst inn á
boðskorti – en ætlar sér nú að komast inn á
leikana á eigin verðleikum.
Nils Daníelsson hafnaði í 12. sæti í sama
flokki og Hafsteinn Ægir.
Hafsteinn fékk
brons á Möltu
MICHAEL Ballack, miðjumaður
Þýskalands, er óánægður með spila-
mennsku Þýskalands í undankeppni
Evrópumótsins í knattspyrnu. Á
móti Skotum, síðastliðinn laugardag,
lék Ballack sinn fyrsta landsleik á
árinu. Þrátt fyrir nærveru Ballacks
náðu Þjóðverjar aðeins, 1:1, jafntefli
gegn baráttuglöðum Skotum og hef-
ur Ballack gagnrýnt spilamennsku
Þjóðverja.
„Miðað við það að við lentum í
öðru sæti á HM síðasta sumar ætt-
um við að leika með miklu meira
sjálfstrausti en við höfum gert í und-
anförnum leikjum. Okkur virðist
vanta sjálfstraust í riðlakeppninni til
að sækja stíft gegn mótherjum okk-
ar og þetta er vandamál sem við
verðum að fást við,“ sagði Ballack.
Þjóðverjar hafa fengið mikla
gagnrýni í þýskum fjölmiðlum fyrir
spilamennskuna í riðlakeppninni.
Gerhard Mayer-Vorfelder, forseti
þýska knattspyrnusambandsins, tók
undir þessa gagnrýni eftir leikinn á
móti Skotum.
„Lykilleikmenn eins og Michael
Ballack, Bernd Schneider og Mirosl-
av Klose léku langt undir getu og
það háði þýska landsliðinu. Miðju-
mennirnir léku illa og þeir sem áttu
að búa til færin fyrir sóknarmennina
brugðust,“ sagði Vorfelder.
Þjóðverjar leika á miðvikudaginn
við Færeyinga í Færeyjum og ekk-
ert annað en sannfærandi sigur
Þjóðverja dugir til að þagga niður í
gagnrýnisröddunum.
Michael
Ballack
óánægður