Morgunblaðið - 11.06.2003, Síða 1

Morgunblaðið - 11.06.2003, Síða 1
ÚTLIT er fyrir að á fimmta hundrað ungmenna sem sótt hafa um störf hjá Reykjavík- urborg í sumar fái enga vinnu. Þá eru um 320 stúd- entar á biðlista hjá Atvinnu- miðstöð stúdenta. Einnig hefur mikil aukning orðið á umsóknum um verkefna- styrki hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Borgarráð samþykkti í gær 80 milljóna aukaframlag vegna ástands- ins en sú fjárveiting dugir ekki til þess að leysa vandann. Heildarfjárveiting Reykjavíkur vegna sumarvinnu námsfólks verður um 750 milljónir króna í ár en í fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar var einungis gert ráð fyrir 520 millj- ónum til þessa málaflokks. Umsóknum um sum- arvinnu hjá borginni og fyrirtækjum borgarinnar hefur fjölgað verulega á síðustu tveimur árum. Svo virðist sem kólnun efnahags- lífsins á þessu tímabili hafi haft veruleg áhrif á spurn eftir sumarstarfsfólki og fyrirtæki treysti sér ekki enn til þess að gera ráð fyrir þeirri upp- sveiflu sem talin sé framundan. Árið 1997 var gerð breyting á lögræðislögum og sjálfræðisaldurinn hækkaður úr sextán í átján ár. Þetta hefur haft það í för með sér að fyrirtæki eiga erfiðara með að ráða skólafólk til starfa enda er erfiðara að ráða ólögráða ein- staklinga í vinnu en þá sem öðlast hafa fullt lagalegt sjálfræði. Vandamálið nær þó ekki að- eins til fólks á aldrinum sextán til átján ára heldur er markaðurinn einnig mjög þröngur hjá háskólastúdentum. „Ég held að ástandið hafi aldrei verið jafnslæmt og í ár. Fólk er að reyna að bjarga sér en eftirspurnin eftir sumarstarfs- fólki hefur minnkað mikið og við höfum mörg dæmi þess að fólk sem hefur unnið sumarstörf hjá sömu fyrirtækjum í mörg ár fái ekki vinnu í sumar,“ segir Davíð Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Á áttunda hundrað náms- menn enn án atvinnu            80 milljóna/4 Öruggur og spennandi Gísli Marteinn skipti um skoðun eftir að reynsluaka Volvo Bílar B2 Lykilverkin uppi Safn – nýtt samtímalistasafn opnað við Laugaveg Listir 21 STOFNAÐ 1913 156. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Tvær með öllu Nýju diskar Radioheads og Met- allica fá fína dóma Fólk 48 HERNÁMSSTJÓRNIN í Írak, undir stjórn Bandaríkjamanna, lætur nú prenta hundruð þúsunda peningaseðla sem á eru andlitsmyndir af Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta. Þetta gerir hernámsstjórnin þrátt fyr- ir að hafa áður bannað að myndir af hinum útlæga leiðtoga væru sýnilegar opinberlega. Yfirmaður hernáms- stjórnarinnar, Paul Bremer, viður- kenndi í gær að sú ákvörðun að láta prenta seðlana hefði verið óþægileg fyrir sig persónulega. Hann sagði þó að hann hefði ekki átt annars kost til að viðhalda trausti almennings á gjald- miðli Íraks er hernámsstjórnin gerir tilraun til að rétta við efnahag landsins að nýju. „Í ljósi þess að það var ég sem gaf út tilskipun þess efnis að fólk skyldi eyðileggja myndir af Saddam þá er þetta mér ekkert gleðiefni,“ sagði Bremer á fundi með fréttamönn- um í Bagdad. Hann kvað hernáms- stjórnina hafa verið undir miklum þrýstingi frá Írökum að bæta úr skorti á 250 dínara seðlum vegna þess að skipti á 10.000 dínara seðlum gagnvart bandaríkjadal væru mjög óhagstæð. Þrátt fyrir að gjaldeyrismiðlarar séu tilbúnir til að kaupa 250 dínara seðla á venjulegu gengi, sem jafngildir 1.400 dínörum gegn einum dal, hefur 25% lægra verð fengist að undanförnu fyrir 10.000 dínara seðilinn, sem er sá eini sem hefur verið í umferð. Reuters Saddam Hussein á 250 dínara seðli. Saddams- seðlar prentaðir í Írak að nýju Bagdad. AFP.  Fé til/14 ABDEL Aziz al-Rantissi, helsti leiðtogi herskárra Palestínumanna, hlaut fjölda sára í gær er ísraelsk herþyrla skaut eldflaug á bifreið hans í Gazaborg með þeim afleið- ingum að tveir Palestínumenn lét- ust og á annan tug særðust, þ. á m. barn. En al-Rantissi var jafn her- skár eftir sem áður og sór að bar- áttunni gegn Ísraelum yrði haldið áfram. „Við munum útrýma gyð- ingum í Palestínu, svo hjálpi mér guð. Við munum berjast gegn þeim af öllum mætti. Þetta er okkar land, gyðingarnir eiga það ekki,“ sagði hann í viðtali sem sjónvarpsstöðin al-Jazeera tók við hann á sjúkra- húsi eftir tilræðið. Bush „áhyggjufullur“ George W. Bush Bandaríkjafor- seti er „mjög áhyggjufullur“ vegna tilræðisins, og telur það ekki auka öryggi ísraelskra borgara, sagði Ari Fleischer, talsmaður forsetans, við fréttamenn í gær. „Forsetinn hefur áhyggjur af því að tilræðið muni grafa undan tilraunum palest- ínskra yfirvalda og annarra til að binda enda á hryðjuverkaárásir,“ sagði Fleischer. Þá lýsti Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, áhyggjum sínum vegna tilræðisins og sagði það flækja til- raunir til friðarumleitana. Al-Rantissi er álitinn helsti póli- tíski leiðtogi Hamas-samtaka Pal- estínumanna, en fyrir nokkrum dögum aflýstu samtökin viðræðum við Mahmoud Abbas, forsætisráð- herra Palestínumanna, um vopna- hlé, og um helgina felldu samtökin tvo ísraelska hermenn. Nokkrum klukkustundum eftir tilræðið við al-Rantissi gerðu Ísr- aelar aðra þyrluárás á bifreið á Gazaströndinni, nærri bænum Jab- aliya. Í árásinni féllu þrír Palest- ínumenn úr sömu fjölskyldu, tveir karlmenn og unglingsstúlka, og a.m.k. 30 særðust. Að sögn tals- manna ísraelska hersins var árásin svar við eldflaugaárás Palestínu- manna yfir landamæri landanna. Þeir sem féllu í tilræðinu í gær voru lífvörður al-Rantissis og veg- farandi. Al-Rantissi sagði í viðtalinu að hann hefði stokkið út úr bíl sín- um er árásin hófst. Hann særðist á fæti, handlegg og brjósti og gekkst undir aðgerð á Shifa-sjúkrahúsinu. Ísraelski herinn viðurkenndi að hafa staðið að tilræðinu og sagði Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, að Ísraelsstjórn myndi halda áfram að „vinna gegn óvinum friðar“. Samkvæmt upplýsingum ísra- elska hersins hafa Hamas-samtök- in staðið að 72 tilræðum síðan upp- reisn Palestínumanna hófst í september 2000, drepið 227 Ísraela og sært 1.393. Í kjölfar tilræðisins í gær vöruðu samtökin við hefndar- aðgerðum. Abbas krafðist þess í gær að Bandaríkjamenn létu þegar til sín taka í kjölfar tilræðisins, að því er fram kom í yfirlýsingu frá palest- ínskum yfirvöldum. Varaði hann við þeim neikvæðu afleiðingum sem þessar aðgerðir Ísraela gætu haft á framkvæmd Vegvísisins svonefnda, alþjóðlegrar áætlunar um friðar- umleitanir fyrir botni Miðjarðar- hafs. „Munum útrýma gyð- ingum í Palestínu“ Einn helsti leið- togi herskárra Palestínumanna kemst lífs af úr tilræði Ísraela Reuters Íbúar Gazaborgar velta ónýtri bifreið Abdel-Aziz al-Rantissi, leiðtoga herskárra Palestínumanna, eftir til- ræði Ísraela við hann í gær. Talið er að árásin geti verið afdrifarík fyrir framkvæmd Vegvísisins svokallaða. Reuters Abdel-Aziz al-Rantissi mikið slas- aður í sjónvarpsviðtali á sjúkra- húsi í Gazaborg í gær. Gaza, Washington, Jerúsaelem. AFP, AP.  Ísraelar rífa/16 AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir myndlistarkona á Akureyri, sem verður fertug 23. júní næst- komandi, hyggst halda upp á fer- tugsafmæli sitt með sérstæðum hætti: opnuð verður einkasýning á verkum hennar 40 daga í röð, ein á dag, víðs vegar um heiminn. Engar tvær sýningar eru eins. Fyrsta sýningin verður opnuð í Kjarna- skógi á Akureyri að kvöldi afmælisdagsins og næstu 39 daga á eftir verður síðan opn- uð ein sýning daglega. Ein sýning fyrir hvert ár  40 sýningar/27 Aðalheiður Eysteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.