Morgunblaðið - 13.06.2003, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3 . J Ú N Í 2 0 0 3 B L A Ð B
BÚTAR, TÁLGUN OG GRÆNIR FINGUR/2 GAMAN FYRIR STUBBA
MEÐ LUBBA/2 ÖÐRUVÍSI BÚÐIR – GLEÐI OFAR GRÓÐAVON/4
GAUKAR Í GARÐI/6 SANDALAR MEÐ HÆL/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
HÁLSFESTAR, orður, lindar ogarmbönd með íslenska fánan-
um eru nýstárlegur kostur fyrir þá
sem telja sig vaxna upp úr fánaburði
17. júní, en fýsir eigi að síður að hafa
fánann í hávegum þann dag. Hug-
myndina eiga eigendur Aurum við
Bankastræti, Ása Gunnlaugsdóttir,
gullsmiður og iðnhönnuður, og Guð-
björg Kr. Ingvarsdóttir, gullsmiður
og skartgripahönnuður. Í vikunni
hafa þær verið önnum kafnar við að
hanna og búa til skartgripi, sérstak-
lega ætlaða fyrir fólk að skreyta sig
með á þjóðhátíðardaginn. Skartið er
allt á þjóðlegu nótunum og sumt gert
úr gamalli, íslenskri mynt, t.d. hring-
ir og eyrnalokkar, sem þær gull-
húða.
Ásamt vinkonu
sinni, Katrínu
Elvarsdóttur
ljósmyndara,
búsettri í New
York, sem er í
heimsókn á
Fróni, ákváðu
þær að leggja
sitt af mörkum til
að auka á þjóðhá-
tíðarstemmninguna
í miðborginni. Á sýn-
ingu í Aurum, sem opn-
uð verður kl. 16 hinn 16.
júní verða ljósmyndir Katr-
ínar og þjóðlegt skart búðareig-
endanna til sýnis – og sölu.
„Þetta er svona meira til gamans
gert,“ segja þær og búast ekki endi-
lega við rífandi sölu. „Við rýmum
búðina af öðrum vörum og ætlum að
hafa hér allt með þjóðlegu sniði. Síð-
degis hinn 16. júní bjóðum við gestum
og gangandi upp á þjóðardrykkinn
appelsín og malt og alíslenskt með-
læti. Þótt búðin verði lokuð sjálfan
þjóðhátíðardaginn, verða munirnir
og ljósmyndirnar úti í glugga, vegfar-
endum vonandi til gleði og ánægju.
Tiltækið er líka í tilefni þess að sama
dag verður Bankastræti opnað fyrir
umferð eftir margra mánaða við-
gerðavinnu.“
Framlag Katrínar til þjóðhátíðar-
stemmningarinnar eru ljósmyndir,
sem hún tók í New York, af Banda-
ríkjamönnum með íslenska fánann.
„Mér finnst gaman að setja íslenska
fánann í annað umhverfi og sjá hann í
höndum þessa fólks, sem vant er að
veifa bandaríska fánanum við hvaða
tilefni sem er. Flestir, sem ég mynd-
aði, höfðu aldrei séð íslenska fánann
og einn þeirra hélt að þetta væri
breski fáninn. En allir voru til í að
láta taka af sér myndir, eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara en að ég vildi
eiga myndir af New York-búum með
þjóðfána minn,“ segir Kristín.
Verslunareigendur um land allt
hafa lengi tíðkað að stilla viðhafnar-
myndum af forsetum lýðveldisins
umvöfðum fánaborðum út í glugga
17. júní, en stöllurnar Ása, Guðbjörg
og Katrín vildu hafa sinn háttinn á og
sýna eigin hönnun í þjóðlegu ljósi.
„Það er líka svo gaman að skapa eitt-
hvað án þess að vera að hugsa um
framleiðsluferli og sölumöguleika –
bara vera með,“ segja listakonurnar.
Íslenski
fáninn
í öðru ljósi
Morgunblaðið/Arnaldur
Katrín, Guðbjörg og Ása skreyttar í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir
Bandaríkjamönnum þótti ekkert sjálfsagðara en að láta mynda sig með ís-
lenska fánann, þótt þeir hefðu aldrei séð hann áður.