Morgunblaðið - 14.06.2003, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TIL LEIGU
Tryggvagata - 101 Rvík
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
300 fm skrifstofur á 5. hæð.
Einstakt tækifæri. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við
Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni. Allt nýtt. Nýtt parket,
eldhús, gardínur, tölvulagnir o.fl. Lausar strax.
STÓRFYRIRTÆKIÐ Microsoft
hefur gert tilboð í öll hlutabréf
Kögunar hf. í dótturfélagi þess,
Navision Ísland ehf., en viðræður á
milli félaganna hafa staðið yfir und-
anfarna daga. Kögun þarf að svara
tilboðinu fyrir 30. júní nk.
Navision Ísland er stofnað árið
1997 og er umboðs- og dreifing-
araðili fyrir bókhaldskerfið Micro-
soft Business Solutions.
Navision Ísland er að fullu í eigu
Kögunar og sér um, ásamt sölu- og
þjónustuaðilum, að koma viðskipta-
lausnum Microsoft Business Sol-
utions (áður Attain og Financials)
og Axapta á markað. Fimm manns
vinna hjá fyrirtækinu og velta þess
á síðasta ári var á þriðja hundrað
milljónir króna.
Gunnlaugur M. Sigmundsson
forstjóri Kögunar segir að starf-
semi Navision Íslands hafi gengið
mjög vel frá því að það var stofnað.
Fyrirtækið hafi verið með þeim
söluhæstu í heiminum hlutfallslega
í sölu á Microsoft Business Sol-
utions og sé með yfir 50% markaðs-
hlutdeild hér á landi í bókhalds-
kerfum.
Gunnlaugur segir að Microsoft
hafi farið að sýna starfseminni hér
áhuga í kjölfarið á kaupum fyrir-
tækisins á Navision Software A/S í
Danmörku en fyrir það greiddi
Microsoft 1,45 milljarða Banda-
ríkjadala, eða rúma 106 milljarða
íslenskra króna, miðað við núver-
andi gengi dals. Gunnlaugur segir
að tilboðið í Navision Ísland sé ekki
af svipaðri stærðargráðu.
Aðspurður hvort að Microsoft
væri að kaupa upp sambærileg fyr-
irtæki annars staðar á Norðurlönd-
unum sagðist hann halda að svo
geti verið.
Um það hvort að líklegt sé að
samningar takist sagðist Gunn-
laugur ekkert geta tjáð sig, en
sagði að það „lægi ekkert illa á
sér“, eins og hann orðaði það.
Aðspurður sagðist hann heldur
ekki geta tjáð sig um það að svo
stöddu hvort að starfsemi fyrirtæk-
isins yrði haldið áfram í óbreyttri
mynd ef til sölu kæmi.
Microsoft
vill kaupa
Navision Ísland
Á FYRSTU fjórum mánuðum árs-
ins voru gjaldþrotaúrskurðir ein-
staklinga 62% fleiri en á síðasta ári
eða 175 á móti 108. Á sama tíma
hafa 60,2% fleiri lögaðilar verið úr-
skurðaðir gjaldþrota eða samtals
250 en á fyrstu fjórum mánuðum
ársins 2002 voru þeir 156, að því er
fram kemur í fréttabréfi Láns-
trausts.
Á síðasta ári voru gjaldþrotaúr-
skurðir 939 talsins en á fyrstu fjór-
um mánuðum þessa árs voru skráð
425 gjaldþrot en það svarar til
45,3% allra gjaldþrota síðasta árs.
Í fréttabréfi Lánstrausts segir að
fjölgun gjaldþrota á síðustu árum
sýni að viðskiptabankar og fyrir-
tæki þurfi að sýna enn meiri að-
gæslu í fjármálaumsýslu en verið
hefur. „Margar ástæður eru fyrir
gjaldþrotahrinunni s.s. það sem
kallað er „timburmenn góðæris-
ins“ með vísun til þess að bankar
og fyrirtæki láni á slíkum tímum
fleiri aðilum meira fé en á öðrum
tímum. Þá hefur einkahlutafélög-
um fjölgað mikið síðustu árin og fá
fyrirtæki ná því að verða tíu ára.
Hins vegar má sjá fyrstu bata-
merkin í langan tíma því að á
fyrstu fjórum mánuðum ársins hef-
ur dregið úr árangurslausu fjár-
námi hjá einstaklingum um 11,7%
miðað við sama tíma á síðasta ári,“
segir í fréttabréfi Lánstrausts.
Gjaldþrotum einstak-
linga fjölgar um 62%
SAMÞYKKT var á hluthafafundi Ís-
lenska hugbúnaðarsjóðsins, Íshug,
fyrr í vikunni að nafni sjóðsins yrði
breytt í Brú fjárfestingar hf. Jafn-
framt var samþykkt að óska eftir af-
skráningu félagsins í Kauphöll Ís-
lands enda uppfyllir það ekki lengur
skilyrði fyrir skráningu þar sem yfir
90% hlutafjár er í eigu Fjárfesting-
arfélagsins Straums.
Tilgangur Brúar er fjárfestingar í
framtaksfé (áhættufé) innlendra og
erlendra atvinnufyrirtækja, skulda-
bréfum eða annarri hliðstæðri fjár-
mögnun slíkra fyrirtækja, rekstur
fasteigna og lánastarfsemi.
Á hluthafafundinum var ný stjórn
félagsins kosin en hana skipa: Úlfar
Steindórsson, formaður, Orri
Hauksson og Viggó E. Hilmarsson.
Samþykkt var á hluthafafundinum
að laun fyrir setu í stjórn Íslenska
hugbúnaðarsjóðsins fyrir tímabilið
19. febrúar 2003 til 11. júní 2003 yrðu
221.235 krónur. Laun formanns
stjórnar voru 442.469 krónur fyrir
sama tímabil.
Þóknun hvers stjórnarmanns frá
hluthafafundi 11. júní 2003 til aðal-
fundar 2004 verða 50 þúsund krónur
á mánuði.
Í lok maí sl. rann út tilboðsfrestur
til hluthafa Íslenska hugbúnaðar-
sjóðsins um kaup Fjárfestingar-
félagsins Straums á bréfum í félag-
inu. Alls bárust 941 samþykki frá
hluthöfum og seldu þeir rúmar 296
milljónir að nafnvirði, sem svarar til
20,94% af heildarhlutafé. Eignar-
hlutur Straums er eftir kaupin 96,4%
hlutafjár í sjóðnum.
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands kemur fram að í ljósi þess að
Fjárfestingarfélagið Straumur á eft-
ir viðskiptin meira en 90% hlutafjár í
Íslenska hugbúnaðarsjóðnum og
ræður yfir samsvarandi atkvæða-
magni, muni félagið leysa til sín hluti
annarra hluthafa samkvæmt 24. og
25. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.
Íshug
breytt í
Brú fjár-
festingar
Brú fjárfestingar er til húsa í Borg-
artúni 30 líkt og móðurfélagið Fjár-
festingarfélagið Straumur.
HÓTEL Búðir ehf., félag um
rekstur hótels á Búðum á Snæ-
fellsnesi, hugðist opna þar hótel
síðastliðið vor. Opnunin hefur
dregist, en Hótel Búðir verður
opnað nú um helgina og er kostn-
aður við hótelið 220 milljónir
króna, að sögn stjórnarformanns
og eins tuttugu hluthafa Hótels
Búða ehf., Þormóðs Jónssonar,
sem jafnframt er eigandi og fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Fíton. Að sögn Þormóðs urðu tafir
vegna fjármögnunar, en auk hlut-
hafa koma Landsbankinn og
Byggðastofnun að fjármögnuninni.
Þormóður segir nýtingu hótels-
ins samkvæmt bókunum sem þeg-
ar hafa verið gerðar um 70% á
virkum dögum í sumar. Hann ger-
ir ráð fyrir um 80–90% nýtingu í
sumar. Þá segir hann yfir 2.000
manns þegar bókaða í hádegisverð
á hótelinu í sumar.
Með Þormóði í stjórn Hótels
Búða ehf. eru Gunnar Sturluson
hrl. og Örn Andrésson.
Þormóður segir að þegar ráðist
hafi verið í verkefnið haustið 2001
hafi verið gert ráð fyrir um 60
milljónum króna í nýju hlutafé. Að
viðbættum brunabótum upp á um
50 milljónir króna og láni, sem
óformlegt vilyrði hafði fengist fyr-
ir frá Byggðastofnun upp á 40–50
milljónir króna, hefði heildarfé
sem lagt var í verkefnið þannig
numið um 150 milljónum króna.
Ákveðið í fyrra að
stækka hótelið
„Við ætluðum að reyna að opna
hótel með 18 herbergjum vorið
2002 en fengum höfnun frá
Byggðastofnun í janúar sama ár.
Þetta gerði það að verkum að við
breyttum áætlunum, hættum við
að klára hótelið en ákváðum að
opna veitingastaðinn um sumarið
þar sem við vorum
búin að byggja hót-
elið þegar þessi höfn-
un kom. Höfnunin
gerði það að verkum
að verkefnið tafðist
um heilt ár,“ segir
Þormóður.
Hann segir að
áætlunum hafi verið
breytt á þann veg að
hótelið hafi verið
stækkað og herbergj-
um fjölgað í 28.
„Þannig stækkuðum
við verkefnið í um
220 milljónir króna
og lögðum inn nýja
umsókn hjá Byggða-
stofnun síðastliðið haust. Fljótlega
eftir áramót kom tillaga frá
Byggðastofnun um að þeir skyldu
lána 60 milljónir og Landsbankinn
60 milljónir. Þeir myndu samein-
ast um 120 milljónir og greiða þar
með upp alla veðbók hótelsins. Við
fengum þetta samþykkt hjá
Landsbankanum en Byggðastofn-
un hafnaði því í fyrstu afgreiðslu.
Þetta kom okkur verulega á óvart.
Í samvinnu við Landsbankann
fengum við málið tekið upp aftur
hjá Byggðastofnun.“
Fjármagnskostnaður
jókst um 15–20 milljónir
Að sögn Þormóðs var félagið í
kröggum í febrúar síðastliðnum.
„Á þeim tíma vorum við mjög að-
krepptir með peninga þar sem við
héldum að við fengjum lánið. Til-
lagan var komin frá Byggðastofn-
un og Landsbankinn búinn að
samþykkja og þá héldum við að
málið væri leyst. Við vorum að
brenna inni á tíma með að klára.
Þá voru menn sem höfðu verið
verktakar hjá okkur áður orðnir
langþreyttir. Ég fékk sendar alls
kyns hótanir um barsmíðar og
fleira. Þeir mættu heim til mín
með kröfuspjöld um að við værum
í kennitölusvikum. Það var hins
vegar allt uppi á borðinu. Það var
ekkert undirförult við fjármögnun
verkefnisins og ekki verið að
svíkja nokkurn mann. Mér fannst
afskaplega leiðinlegt
að þetta mál hafi
farið í fjölmiðla
órökstutt og án þess
að haft væri sam-
band við okkur.
Þarna var verið að
ráðast á mig sem
einstakling. Mér
þykir það miður ef
fjölmiðlar ætla að
taka þátt í þannig
innheimtuaðgerðum
í þjóðfélaginu. Við
viðurkenndum alltaf
að skulda þessum
mönnum peninga.
Allir þeir aðilar
sem stóðu að þessum
aðgerðum hafa fengið greitt. Það
stóð aldrei neitt annað til en að
greiða þessar skuldir. Hins vegar
lá það alltaf fyrir að við þurftum
að fá þessa fjármögnun, það var
ekkert leyndarmál,“ segir Þormóð-
ur. Í yfirlýsingu frá stjórn Hótels
Búða sem Morgunblaðið birti í
mars síðastliðnum kom fram að
skuld hótelsins við umrædda verk-
taka hafi numið rúmri einni millj-
ón króna „en ekki 53 milljónum
eins og DV greindi frá,“ segir í yf-
irlýsingunni.
Aukið hlutafé sett
sem skilyrði lánveitingar
Að sögn Þormóðs samþykkti
Byggðastofnun lánið stuttu eftir
þessa atburði með þeim skilyrðum
að hlutafé félagsins yrði aukið um
30 milljónir króna og það hafi ver-
ið gert. „Inngreitt hlutafé er því
90 milljónir króna og lánsfé um
130 milljónir króna. Samþykki
Byggðastofnunar þurfti til að
klára hótelið en biðin jók fjár-
magnskostnað um 15–20 milljónir.
Einnig þurfti að vinna þetta mjög
hratt. Umtalið gerði okkur ekki
auðvelt fyrir að fá vörur og fá
menn til að vinna fyrir okkur núna
síðustu tvo mánuði. Vegna velvilja
þeirra sem hafa verið að vinna að
þessu og trú þeirra á verkefnið þá
hefur þetta tekist,“ segir Þormóð-
ur Jónsson, stjórnarformaður Hót-
els Búða ehf.
Hótel Búðir kost-
aði 220 milljónir
Þormóður Jónsson
Opnun var
frestað um eitt
ár vegna tafa við
fjármögnun