Morgunblaðið - 14.06.2003, Blaðsíða 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VARMÁ rennur ofan úr Gufudal og
niður í Hveragerði. Aftan við Frið-
arstaði, sem eru beint á móti hvern-
um Grýlu, rennur Varmá hjá. Þar
er hylur sem hefur mikið aðdrátt-
arafl fyrir unga fólkið hér í Hvera-
gerði. Þessi hylur hefur fengið
nafnið Baula og við hann eru klett-
ar sem krakkarnir klifra upp á og
láta sig svo vaða beint ofan í hylinn.
Að sjálfsögðu er vatnið kalt, en
hiti er við bakkann aðeins neðar og
þangað er gott að fara annað slagið
og hlýja sér.
Sérfræðingar í dýfingum í Baulu
segja að gott sé að vera í fötum,
stuttbuxur og bolur passa vel. Einn-
ig segja þeir að annaðhvort verði
maður að vera í skóm eða sokkum,
því að botninn sé svo hrjúfur að
auðvelt sé að rispa sig og jafnvel
skera ef maður ver sig ekki. Það
var ekki mikið hægt að tala við hetj-
urnar ungu þegar þær komu upp úr
og voru að klæða sig eftir stung-
urnar, því tennurnar glömruðu svo
mikið í munni þeirra að þær komu
ekki upp orði. Sannkallaðar hetjur
þetta að láta kalt vatn ekki hindra
sig í að stunda dýfingar.
Hylur-
inn hefur
aðdrátt-
arafl
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Ein af hetjunum, Ívar Örn Guðjónsson, í frjálsu falli.
„KOMI til þess að Kjötmjöl verði að
hætta starfsemi þá eykst óhjákvæmi-
lega kostnaður á urðunarstöðunum í
Kirkjuferju í Ölfusi, Strönd í Rang-
árvallasýslu og hjá Sorpu. Það kallar
á hærri urðunargjöld sem lenda á
sláturleyfishöfum og svo áfram á
bændum og neytendum,“ segir Torfi
Áskelsson, framkvæmdastjóri Kjöt-
mjöls hf. í Hraungerðishreppi, en fyr-
irtækið fékk greiðslustöðvun síðast-
liðinn fimmtudag.
Greiðslustöðvunin er fengin á
grundvelli bréfs frá landbúnaðar-
ráðuneytinu þar sem sagt er að ríkið
muni setja upp starfshóp til að vinna
að lausn á rekstrarvanda Kjötmjöls.
„Það þarf að setja úrvinnslugjald á
sláturúrgang til þess að standa undir
eyðingu hans. Við höfum bent á þessa
lausn með úrvinnslugjaldið sem er
sami framgangsmáti og úrvinnslu-
gjald sem lagt er á bifreiðar og dekk
svo dæmi sé tekið. Þetta gjald á slát-
urúrgang yrði innifalið í sláturkostn-
aði og því inni í kjötverðinu. Gjaldið
færi í ákveðinn úrvinnslusjóð slátur-
úrgangs. Kjötmjöl myndi síðan senda
reikning til sjóðsins fyrir þann kílóa-
fjölda sem til úrvinnslu kemur,“ segir
Torfi og leggur áherslu á að þetta fyr-
irkomulag hafi verið í umræðunni í
langan tíma og sé þekkt erlendis. Það
sé liðin tíð að urða sláturúrgang.
Hann segir að það verði mikil afturför
þurfi að taka upp urðun á ný og bend-
ir á að í reglum um urðun sé ákvæði
um að allan úrgang þurfi að hita upp í
80 gráður áður en hann er urðaður en
það eitt kalli á mikinn kostnaðarauka
hjá sláturleyfishöfum.
Miklar vonir bundnar við
starfshóp ráðuneytisins
Við eyðingu á sláturúrgangi í verk-
smiðju Kjötmjöls er ferlið þannig að
til verður mjölsalli sem mögulegt er
að brenna en orkugildi mjölsins er
50% miðað við olíu í bruna. Einnig
verður til fita sem verksmiðjan
brennir sjálf að hluta en hægt er að
selja fituna sem eldsneyti. Þannig
eyðist sláturúrgangurinn án þess að
urðun þurfi að koma til. Þetta ferli
miðast við að verksmiðjunni verði
breytt í eyðingarverksmiðju.
„Það er vilji stjórnar Kjötmjöls að
verksmiðjan verði eyðingarverk-
smiðja. Við munum vinna að því í
samstarfi við starfshóp landbúnaðar-
ráðuneytisins,“ segir Torfi og bendir
á að sótt hafi verið um það til Byggða-
stofnunar að hún komi að verksmiðj-
unni með kaupum á hlutafé. „Það eru
miklar vonir bundnar við starfshóp-
inn frá ráðuneytinu sem við vonum að
skili sem fyrst jákvæðri niðurstöðu
varðandi úrvinnslugjaldið en það er
lykilatriði varðandi framtíð verk-
smiðjunnar. Við fengum greiðslu-
stöðvunina til að brúa bilið þar til nið-
urstaða kemur frá starfshópnum. Það
er lykilatriði að sett verði reglugerð
eða lög um úrvinnslugjald á sláturúr-
gang. Verði af því þá auðveldar það
Byggðastofnun og fleiri aðilum að-
komu að verksmiðjunni með kaupum
á hlutafé,“ segir Torfi Áskelsson,
framkvæmdastjóri Kjötmjöls hf.
Stjórn Kjötmjöls hf. vill að verksmiðjunni verði breytt í eyðingarverksmiðju
Sett verði úrvinnslugjald á sláturúrgang
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Torfi Áskelsson, framkvæmdastjóri Kjötmjöls hf. í Hraungerðishreppi.
Selfoss
SIGURÐUR Sigursveinsson skóla-
meistari og Einar Njálsson, bæjar-
stjóri Árborgar, skrifuðu undir
samninga við Keflavíkurverktaka
um byggingu nýs íþróttahúss við
Fjölbrautaskóla Suðurlands föstu-
daginn 6. júní. Að lokinni undirskrift
samninga tók skólameistari fyrstu
skóflustunguna að hinu nýja íþrótta-
húsi og markaði með henni upphaf
framkvæmda.
Húsið, sem er samstarfsverkefni
ríkis og sveitarfélaga á Suðurlandi,
verður 2.425 fermetrar á einni hæð. Í
húsinu er gert ráð fyrir íþróttasal
með löglegum handboltavelli, út-
draganlegum áhorfendapöllum fyrir
um 300 manns, þrekmiðstöð og slök-
unarherbergi. Bókleg kennslustofa
verður í tengslum við salinn ásamt
vinnuaðstöðu íþróttakennara. Þá
verða í byggingunni þrjár almennar
kennslustofur sem skólinn mun sam-
nýta með Fræðsluneti Suðurlands.
Íþróttafélögin á Selfossi og í Árborg
fagna mjög hinu nýja húsi en mikil
þörf hefur verið undanfarin ár fyrir
þá aðstöðu sem húsið mun bjóða upp
á.
Verkið verður unnið í alverktöku á
grundvelli þarfagreiningar sem unn-
in var af heimamönnum og lögð til
grundvallar samningi milli ríkisins
og sveitarfélaganna á Suðurlandi en
hann var undirritaður í skólanum 24.
janúar sl. Gert er ráð fyrir að alverk-
takinn, Keflavíkurverktakar hf., skili
húsinu tilbúnu til notkunar um miðj-
an júlí 2004. Verksamningurinn
hljóðar upp á 337.878.000 kr. en auk
þess kemur til kostnaður vegna eft-
irlits. Þá er laus búnaður (borð, stól-
ar og ýmis tæki) ekki innifalinn í
verksamningnum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Upphaf framkvæmda markað með gullsleginni skóflu, Sigurður Sigur-
sveinsson skólameistari, Einar Njálsson bæjarstjóri, Þórarinn Ingólfsson
aðstoðarskólameistari og Kári Arngrímsson, forstjóri Keflavíkurverktaka.
Nýtt íþróttahús við Fjölbrautaskóla
Suðurlands verður tilbúið 2004
Um 338 milljóna
króna framkvæmd
Selfoss
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Skjálfta-
skjól efndi nýlega til danskeppni, þar
sem keppt var í freestyle. Þátttak-
endur voru á aldrinum tíu til tólf ára.
Sex danshópar tóku þátt í keppninni
og voru dansarnir vel útfærðir.
Dómarar í keppninni voru krakkar
úr unglingaráði félagsmiðstöðvar-
innar og var þeirra hlutverk erfitt.
Dómararnir voru þau Sunna, Reyn-
ir, Karen og Guðbjörg og komust
þau að þeirri niðurstöðu að í þriðja
sæti urðu stúlkur úr 5. bekk, þær
Ásta, Chrissie og Izabele. Í öðru sæti
urðu stelpur úr 6. bekk, þær Edda
Kolbrún, Guðrún Gísla, Guðrún Sig-
urbjörns og Marta. Sigurvegarar
keppninnar voru þær Hafrún, Harpa
og Sóley úr 7. bekk.
Keppt í frjálsum dansi
Hveragerði
Hópurinn sem tók þátt í keppninni, dómarar og sigurvegarar keppninnar, Hafrún, Harpa og Sóley fremst.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
PÁLL Leó Jónsson hefur verið
ráðinn skólastjóri til eins árs
við Barnaskólann á Eyrar-
bakka og Stokkseyri.
Skólanefnd grunnskóla Ár-
borgar fjallaði um umsóknirnar
um stöðuna og mælti með ráðn-
ingu Páls Leós Jónssonar til að
gegna stöðunni í eitt ár á meðan
núverandi skólastjóri, Arndís
Harpa Erlingsdóttir, er í leyfi.
Páll var áður skólastjóri
Sandvíkurskóla á Selfossi en
hætti störfum þar þegar grunn-
skólarnir á Selfossi voru sam-
einaðir í einn skóla.
Ráðinn
skólastjóri
við Barna-
skólann til
eins árs
Selfoss
Stokkseyri og
Eyrarbakki