Morgunblaðið - 14.06.2003, Blaðsíða 46
Ferming í Þorlákskirkju sunnudaginn
15. júní kl. 13.30. Prestur sr. Baldur
Kristjánsson. Fermd verður:
Þórhildur Helga Sólbjörnsdóttir,
Eyjahrauni 39.
Ferming í Mýrakirkju sunnudaginn 15.
júní, kl. 11. Prestur sr. Guðrún Edda
Gunnarsdóttir. Fermd verður:
Ástey Gyða Gunnarsdóttir,
Gemlufalli, Þingeyri.
Ferming í Stykkishólmskirkju, sunnu-
daginn 15. júní. Prestur séra Gunnar Ei-
ríkur Hauksson. Fermdur verður:
Ívar Ödegård,
Noregi,
aðst. Silfurgata 23.
Ferming í Súðavíkurkirkju sunnudag-
inn 15. júní kl. 15. Prestur sr. Guðrún
Edda Gunnarsdóttir. Fermd verður:
Lára Rán Sverrisdóttir,
Holtagötu 27, Súðavík.
Ferming í Melstaðarkirkju í dag, laug-
ardaginn 14. júní, kl. 11. Prestur sr.
Guðni Þór Ólafsson. Fermd verða:
Ágústa Ýr Sveinsdóttir,
Árbakka 4, Laugarbakka.
Sigurður Ellert Sigfússon,
Gilsbakka 5, Laugarbakka.
Þorvarður Kristjánsson,
Melstað.
Ferming í Mjóafjarðarkirkju sunnudag-
inn 15. júní, kl. 14. Prestur sr. Sigurður
Rúnar Ragnarsson. Fermdar verða:
Jóna Rán Sigurjónsdóttir,
Borg, Mjóafirði.
Ólöf Rún Sigurjónsdóttir,
Borg, Mjóafirði.
Fermingar
MESSUR
46 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00.
Fermd verður Kristín Helga Magnúsdóttir,
Sigtúni 31. Kór Áskirkju syngur. Organisti
Kári Þormar. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kór Bústaðakirkju syngur undir
stjórn organistans Guðmundar Sigurðs-
sonar. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11:00.
Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson.
17. júní: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Guðný Hallgrímsdóttir prédikar. Biskup Ís-
lands þjónar fyrir altari ásamt sr. Jakobi
Ágústi Hjálmarssyni. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriksson. Einsöng
syngur Davíð Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Alt-
arisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jó-
hannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Guðsþjónusta kl. 14:00. Prestur Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Organisti Kjartan
Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar. Hópur úr
Mótettukór syngur. Organisti Jón Bjarna-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór
menntaskólanema, Appleton West Sing-
ers frá Wisconsin í Bandaríkjunum, syngur
í messunni undir stjórn dr. Kevin Meidl við
undirleik Jon Riehle. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI Háskólasjúkrahús: Hring-
braut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Bragi
Skúlason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11:00. Guðríður Gísla-
dóttir syngur einsöng og félagar úr Kamm-
erkór Langholtskirkju syngja. Prestur Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjunum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Sunginn verður nýr messu-
söngur eftir organista kirkjunnar Steingrím
Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson þjón-
ar fyrir altari og heldur áfram með
fræðsluprédikun um Postulasöguna.
SELTJARNARNESKIRKJA: Listamenn tón-
listarhátíðarinnar „Bjartar sumarnætur á
Seltjarnarnesi“ flytja tónlist frá kl. 11:00–
11:30.
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20.30. Yfirskrift kvöldsins er trú,
von og kærleikur. Tónlist verður í umsjón
Önnu Siggu og Öllu eða þeirra Önnu Sigríð-
ar Helgadóttur, söngkonu og tónlistar-
stjóra, og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur pí-
anóleikara. Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá æskulýðsleiðtoganna
Guðna Más Harðarsonar og Margrétar
Rósar Harðardóttur. Þetta verður skemmti-
leg stund með fjölbreyttu efni, söng, sög-
um og leikrænum tilþrifum. Boðið er upp á
grillaðar pylsur og gos gegn vægu gjaldi að
stundinni lokinni. Árbæingar á öllum aldri
hvattir til að koma í kirkju á sunnudaginn
og eiga saman uppbyggjandi og góða
stund í góðu samfélagi. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Gísli Jónasson prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti Hrönn Helga-
dóttir.
DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg kvöld-
messa Digranes- og Lindasóknar kl.
20:30. Prestur sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson. Organisti Hannes Baldursson. Kór
Lindakirkju. 17. júní: Þjóðhátíð í Digra-
neskirkju. Hátíðardagskrá kl. 11.00.
Lúðrasveit, skemmtiatriði. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is.)
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni
predikar og þjónar fyrir altari. Organisti:
Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Djassguðsþjón-
usta kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Tríó Björns
Thoroddsen spilar.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sigfús
Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Guðmundar Óm-
ars Óskarssonar. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson. 17. júní: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 13:00 á þjóðhátíðardegi. Hjörtur Páls-
son skáld flytur stólræðu og sóknarprestur
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syng-
ur og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guð-
mundar Ómars Óskarssonar organista.
Frumfluttur verður nýr sálmur eftir Ragn-
heiði Guðmundsdóttur en hún hefur lengi
sungið í kór kirkjunnar. Þeir sem þess eiga
kost eru hvattir til að mæta til kirkju á ís-
lenskum búningi eða hátíðarbúningi. Að
lokinni guðsþjónustu verður boðið upp á
kaffi og konfekt í safnaðarheimilinu Borg-
um. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA Í KÓPAVOGI: Sameiginleg
kvöldmessa Digranes- og Lindasóknar í
Digraneskirkju kl. 20:30. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson. Organisti Hann-
es Baldursson. Kór Lindakirkju. Fjölmenn-
um!
SELJAKIRKJA: Þrenningarhátíð. Guðsþjón-
usta kl. 20. Ath. breyttan messutíma! Sr.
Bolli Pétur Bollason prédikar. Organisti:
Pavel Manasek. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma kl.
20.00. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Vitn-
isburðir um það sem Guð er að gera í lífi
fólks. Friðrik Schram predikar. Þáttur kirkj-
unnar „Um trúna og tilveruna“ verður sýnd-
ur á sjónvarpsstöðinni Ómega kl. 13.30.
Heimasíða kirkjunnar er: www.kristur.is.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19.30 bænastund, kl. 20 hjálpræð-
issamkoma. Umsjón majór Inger Dahl.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Nú höfum við fært samkomutíma
okkar yfir til kl. 20.00 á sunnudags-
kvöldum og verður það þannig í sumar.
Sunnudaginn 15. júní er samkoma kl.
20.00. Sigrún Einarsdóttir talar. Lofgjörð
og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7 ára
börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag
eftir samkomu. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Húsið er opn-
að kl. 20:00. Seldar verða kaffiveitingar á
góðu verði. Samkoman hefst kl. 20:30.
„Trúin fegrar lífið.“ Dóra Guðrún Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóri hjá Geðrækt.
Ath. breyttan samkomutíma. Verið öll hjart-
anlega velkomin.
FÍLADELFÍA: Laugardagur 14. júní. Bæna-
stund kl. 20:00. Kristnir í bata kl. 21:00.
Sunnudagur 15. júní: Brauðsbrotning kl.
11:00. RæðumaðurJón Þór Eyjólfsson. Al-
menn samkoma kl. 20:00. Ræðumaður
Shayne Walters. Gospelkór Fíladelfíu sér
um lofgjörðartónlistina. Allir hjartanlega
velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: Messa kl. 18.00. Alla miðviku-
daga er rósakransbænin að kvöldmessu
lokinni. Reykjavík – Maríukirkja við Rauf-
arsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Engin
messa á rúmhelgum dögum í júní.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Engin messa á miðvikudögum í
júní.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Frá júní til september er
engin messa á miðvikudögum.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl.
18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
guðsþjónusta á þrenningarhátíð. Kaffisopi
á eftir í safnaðarheimilinu.17. júní: Hátíð-
arguðsþjónusta í Landakirkju í tengslum
við dagskrá hátíðarnefndar Vest-
mannaeyja. Skátar standa heiðursvörð
með íslenska þjóðfánann í kór kirkjunnar.
Sjá nánar í dagskrá hátíðarnefndar. Sr.
Kristján Björnsson.
LÁGAFELLSKIRKJA: 17. júní: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11.00. Ræðumaður:
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar. Einsöngur: Hanna Björk
Guðjónsdóttir. Fiðluleikur: Jónas Þórir Dag-
bjartsson. Skátar standa heiðursvörð.
Kirkjukaffi í skrúðhússalnum. Kirkjukór
Lágafellssóknar. Organisti: Jónas Þórir.
Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Syngjandi
sumar kl. 20.00. Bænastund og hugleið-
ing í umsjón sr. Kristínar Þórunnar Tóm-
asdóttur héraðsprests. Alda Ingibergs-
dóttir syngur lög eftir Árna Gunnlaugsson
og fleiri hafnfirska höfunda. Undirleik ann-
ast Antonia Hevesi.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 20. Einsöngur Inga
Backman.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa á þrenning-
arhátíð kl. 11.00. Kirkjukórinn leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn organistans, Jó-
hanns Baldvinssonar. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Allir velkomnir! Helgistund verður í
Holtsbúð kl. 12.30. 17. júní: Helgistund í
tengslum við hátíðahöld dagsins kl.
13.15. Inga Rún Grétarsdóttir nýstúdent
flytur ávarp. Ádís Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri, afhendir starfsstyrk til listamanns.
Kvennakór Garðakirkju syngur. Skátar
standa heiðursvörð og fylkja síðan söfn-
uðinum til skrúðgöngu í beinu framhaldi.
Organisti Jóhann Baldvinsson. Prestur sr.
Friðrik J Hjartar. Helgistundin er góður und-
irbúningur fyrir skrúðgönguna og önnur há-
tíðahöld dagsins. Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Helgistund í kirkj-
unni kl. 13.30 í tengslum við hátíðahöld
dagsins. Gréta Konráðsdóttir, djákni safn-
aðarins, leiðir stundina. Álftaneskórinn
syngur. Organisti Hrönn Helgadóttir. Skrúð-
ganga frá kirkju að hátíðarsvæði að lokinni
helgistund. Fjölmennum. Prestarnir.
ÞORLÁKSKIRKJA: Fermingarmessa kl.
13.30. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Þriðjudagurinn 17. júní:
Guðsþjónusta kl. 11. Kvenfélagskonur
annast ritningarlestra. Kór Útskálakirkju
syngur. Organisti Steinar Guðmundsson.
Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson.
STYKKISHÓLMSKIRKJA: Ferming sunnu-
daginn 15. júní. Prestur séra Gunnar Eirík-
ur Hauksson.
MELSTAÐARKIRKJA: Hátíðarguðsþjón-
usta og ferming í dag, laugardag 14. júní,
kl. 11. Prestur sr. Guðni Þór Ólafsson. Org-
anisti Pálína Fanney Skúladóttir.
AKUREYRARKIRKJA: Fjölskyldumessa kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson. Ungmenni frá
Bochum í Þýskalandi taka þátt í messunni.
Unglingakór Akureyrarkirkju syngur, stjórn-
andi Eyþór Ingi Jónsson. Organisti: Björn
Steinar Sólbergsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 20 vakningarsamkoma. Mikill
söngur, lífleg þátttaka og frábært guðsorð.
Stella Sverrisdóttir prédikar. Allir velkomn-
ir.
MJÓAFJARÐARKIRKJA: Ferming sunnu-
dag kl. 14.
LAUGADÆLAKIRKJA í Flóa: Kvöldmessa
sunnudag kl. 21. Kristinn Ág. Friðfinnsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14. Kristinn Ág. Friðfinnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Léttur hádegisverður að lokinni
messu. Morguntíð sungin frá þriðjudegi til
föstudags. Kaffisopi á eftir. Foreldra-
samvera miðvikudaga kl. 11. Guðsþjón-
usta 17. júní kl. 12.30.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa 17. júní kl.
11. Organisti Jörg Sondermann. Prestur
Baldur Kristjánsson.
(Jóh. 3.)
Guðspjall dagsins:
Kristur og Nikódemus.
Morgunblaðið/Ómar
Kirkjan í Gufudal.
EINS og undanfarin sumur verða
fjölskylduguðsþjónustur í Árbæj-
arkirkju einu sinni í mánuði.
Þannig viljum við mæta fjöl-
skyldum sem sakna sunnudaga-
skólastarfsins sem er í sumarfríi.
Þetta eru léttar og lifandi stundir
með miklum söng þar sem sunnu-
dagaskólasöngvar eru í hávegum
hafðir. Sagðar eru sögur, brúður
koma í heimsókn og ýmislegt
fleira spennandi. Að stundinni
lokinni er boðið upp á grillaðar
pylsur og gos eða svala á vægu
verði.
Á sunnudaginn verður fjöl-
skylduguðsþjónusta í höndum
æskulýðsleiðtoganna Guðna Más
Harðarsonar guðfræðinema og
listakonunnar Margrétar Rósar
Harðardóttur.
Við vonumst eftir að sjá sem
allra flesta í kirkjunni á sunnu-
daginn þar sem við ætlum að eiga
saman uppbyggilega samveru í
góðum félagsskap.
Prestar og starfsfólk
Árbæjarkirkju.
Kirkjukór Árbæj-
arkirkju til Banda-
ríkjanna
KIRKJUKÓR Árbæjarkirkju er
að leggja land undir fót. Ferðinni
er heitið til Minneapolis í Banda-
ríkjunum. Með í ferðinni er sr.
Sigrún Óskarsdóttir.
Sr. Þór Hauksson sókn-
arprestur er við nám þar og er
verið að heimsækja hann og fjöl-
skyldu hans. Kórinn mun syngja
laugardaginn 14. júní á hátíð Ís-
lendingafélagsins. Þann dag
koma Íslendingarnir á staðnum
saman og halda upp á þjóðhátíð-
ardaginn. Kórinn mun þar syngja
ýmis ættjarðarlög undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár.
Lúthersk djassmessa
í Grafarvogskirkju
Á MORGUN, sunnudag, verður
haldin guðsþjónusta þar sem
fluttar verða útsetningar Björns
Thoroddsen á sálmum Martins
Lúthers fyrir djasskvartett.
Kvartettinn skipa Björn Thor-
oddsen gítar, Stefán S. Stef-
ánsson saxófónn, Jón Rafnsson
kontrabassi og Eric Qvick slag-
verk.
Martin Lúther var óhræddur
við að nýta það besta í tónlist
samtíma síns og átti í sam-
skiptum við nokkur af helstu tón-
skáldum síns tíma. Nokkur af
þessum lögum sem flutt verða
eru ávöxtur af þessu samstarfi.
Það telst til tíðinda að djass-
tónlistarmenn nýti sér sálmalög
Lúthers til flutnings og hvergi á
það betur við en í guðsþjónustu.
Guðsþjónustan hefst kl. 11:00 í
Grafarvogskirkju. Prestur er dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs-
prestur.
Sr. Kristinn þjónar
Þingvallakirkju
í sumar
SR. KRISTINN Ág. Friðfinnsson
hefur verið settur til að þjóna
Þingvallaprestakalli í aukaþjón-
ustu út septembermánuð á þessu
ári, en hann hefur verið sókn-
arprestur í Hraungerðispresta-
kalli síðustu tólf árin. Í Hraun-
gerðisprestakalli eru
Hraungerðis-, Laugardæla- og
Villingaholtskirkjur.
Messur verða í Þingvallakirkju
alla sunnudaga í sumar kl. 14:00
og verður fyrsta messa sr. Krist-
ins nk. sunnudag. Skipulagðar
gönguferðir eftir messur draga
marga ferðamenn til þjóð-
arhelgidómsins um helgar. Sími
sr. Kristins er 869 1166.
Kvöldguðsþjónustur
í Seljakirkju
SUNNUDAGINN 15. júní verður
guðsþjónusta með altarisgöngu í
Seljakirkju kl. 20. Frá og með
þeim sunnudegi breytist guðs-
þjónustutími Seljakirkju frá kl.
14 yfir í kl. 20 í allt sumar.
Verið velkomin í Seljakirkju.
Fjölskylduguðs-
þjónusta í
Árbæjarkirkju
Kirkjustarf