Morgunblaðið - 14.06.2003, Page 51
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum
og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar
þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn
á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir.
Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd.
Leiðbeinandi er Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 5494
Hinn þekkti orkuheilari RAHUL PATEL mun halda námskeið
laugardaginn 21. júní nk. frá kl. 11:30-16:30 í Jógastöð Guðjóns
Bergmann í Ármúla 38. Námskeiðsgjald er 100 USD. Rahul hef-
ur um árabil helgað sig heilun og leitinni að andlegri visku og
heldur hann reglulega námskeið víða um heim. Meðal bóka sem
Rahul hefur gefið út er metsöluhljóðbók hans Energy Healing.
Rahul mun að auki bjóða upp á einkatíma.
Tímapantanir í síma 892 0724.
Leitin að bættri heilsu, hamingju og velgengni
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert mikill mannvinur og
þér er ekkert mannlegt óvið-
komandi. Þú hefur mörg
járn í eldinum og kýst að
hafa mikið fyrir stafni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú skalt ekki búast við því að
þetta verði venjulegur dagur.
Óvæntir atburðir, tengdir
vinum, gætu átt sér stað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óvænt atvinnutilboð eða að-
ferðir til þess að auka tekjur
þínar gætu borist þér í dag.
Hafðu augun opin fyrir nýj-
um leiðum til þess að þéna
peninga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Frelsi er ávallt mikilvægt
fyrir þig. Í dag má enginn
segja þér fyrir verkum! Þér
finnst sjálfstæði þínu vera
ógnað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fréttir úr fjarska gætu kom-
ið þér úr jafnvægi í dag.
Sýndu sveigjanleika og taktu
breytingum fagnandi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinur gæti boðist til þess að
taka málstað þinn eða gefa
þér eitthvað í dag. Ekki láta
stoltið ráða för. Þú skalt
þiggja þá aðstoð sem þér
býðst.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti ganga ekki sem
skyldi í dag. Það er líkt og all-
ir séu að ganga af göflunum.
Sökum þessa skaltu sýna þol-
inmæði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Margt gæti farið úrskeiðis í
dag. Þú verður að láta berast
með straumnum vegna þess
að þú hefur ekki stjórn á
hlutunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu það eins og heitan
eldinn að kaupa einhvern
óþarfa. Tilhneiging þín til
þess að eyða of miklu fé má
ekki bera skynsemina of-
urliði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tunglstaðan gerir það að
verkum að allt er á hvolfi í
dag. Samskipti þín við maka
og nána vini eru þvinguð.
Þetta ástand mun þó ekki
vara lengi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óvænt upphlaup samstarfs-
fólks eða ættingja ganga
fram af þér. Ekki svara í
sömu mynt. Reyndu heldur
að komast að því hvað veldur
þessari hegðan.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vertu varkár gagnvart börn-
um í dag. Börn, líkt og ástin,
eiga það til að laumast á brott
þegar síst varir. Sýndu því
þolinmæði gagnvart hvoru
tveggja.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ósætti í fjölskyldu þinni kem-
ur sem þruma úr heiðskíru
lofti. Reyndu eftir fremsta
megni að miðla málum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
IÐJUVÍSA BJARNAR Í FLÖGU
Nú þó höldar heysafn lítið fái,
Björn í Flögu berst sem tröll
bæði við þurrk og harðan völl.
Kemur hann enn með kolatösku og ljái.
En þó gras í gröfunum varla sjái,
slátturinn ekki slær honum feil,
slæmir hann allt úr hvörri geil.
Kemur hann enn með kolatösku og ljái.
Í vinnu enginn vona ég Birni nái,
eins og svalan upp á fót
er hann strax fyrir dægramót.
Kemur hann enn með kolatösku og ljái.
– – –
Bjarni Gissurarson
LJÓÐABROT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 51
DAGBÓK
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. Dc2 0-0 5. a3 Bxc3+ 6.
Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8. e3 d6
9. f3 Rbd7 10. Bd3 c5 11.
Re2 He8 12. Db3
h6 13. Bh4 d5 14.
0-0 Ba6 15. Hfc1 –
Staðan kom upp
á Evrópumeist-
aramóti ein-
staklinga sem senn
fer að ljúka í Ist-
anbúl í Tyrklandi.
Helgi Ólafsson
(2.473) hafði svart
og sneri laglega á
rússneska stór-
meistarann Vla-
dimir Burmakin
(2.569). 15. – b5!
16. cxb5?! Illskárra
var að leika 16. Dd1 þótt eigi
væri staðan fögur með peði
minna eftir 16. – bxc4. 16. –
c4 17. Bxc4 17. Da4 hefði
einnig tapað manni eftir 17.
– cxd3 18. bxa6 dxe2. 17. –
dxc4 18. Dxc4 Bb7 og hvítur
gafst upp enda vonlítil bar-
átta framundan.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FYRSTA opna Evrópu-
mótið hefst í dag í Menton í
Frakklandi. Spilað verður í
mörgum flokkum, bæði
sveitakeppni og tvímenn-
ingur. Mótið hefst með
parakeppni og eru tvö ís-
lensk pör meðal keppenda í
tvímenningnum, þau Val-
gerður Kristjónsdóttir/
Björn Theódórsson og
Anna Ívarsdóttir/Þorlákur
Jónsson. Á föstudaginn (20.
júní) hefst sveitakeppnin
og þar keppir ein íslensk
sveit í opna flokknum undir
forystu Jóns Baldurssonar.
Makker Jóns er Þorlákur
Jónsson, en með þeim spila
Þröstur Ingimarsson/
Bjarni Einarsson og Stefán
Jóhannsson/Steinar Jóns-
son. Þessi pör, ásamt þeim
Helga Jónssyni og Helga
Sigurðssyni, munu enn-
fremur taka þátt í tvímenn-
ingskeppninni, sem hefst á
þriðjudaginn í næstu viku
(24. júní). Þátttaka virðist
vera mjög góð þegar á
heildina er litið, til dæmis
eru 144 sveitir skráðar til
leiks í opna flokknum.
Norður
♠ 98
♥ Á952
♦ ÁK5
♣ÁD104
Vestur Austur
♠ D1065 ♠ G7432
♥ 107 ♥ D
♦ 432 ♦ DG6
♣G862 ♣K975
Suður
♠ ÁK
♥ KG8643
♦ 10987
♣3
Íslensku pörin eru að hita
sig upp fyrir komandi átök
og spiluðu meðal annars
æfingaleik á miðvikudag-
inn þar sem notuð voru
sömu spil og í tvímenningi
Sumarbrids. Spilið að ofan
er þaðan komið. Hálf-
slemma í hjarta er hinn
rétti staður og sú varð nið-
urstaðan á fjórum borðum
af átta. Þrjú pör létu geim
duga, en Þröstur og Bjarni
gengu feti framar. Bjarni
var í norður, en Þröstur í
suður:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass 5 lauf Pass 5 grönd
Pass 6 tíglar Pass 7 hjörtu
Pass Pass Pass
Grunnkerfið er Stand-
ard og þegar Bjarni stekk-
ur í fjögur hjörtu sýnir
hann 17–18 góða punkta og
jafna skiptingu (en þó ekki
3-4-3-3). Þröstur meldar
spaðafyrirstöðuna og
Bjarni segir frá fyrirstöðu í
laufi með fimm laufum,
sem lofar jafnframt stakri
tölu lykilspila (með 2 eða 4
lykilspil hefði hann sagt
fjögur grönd). Þröstur sá
þá að allir ásar voru til
staðar og spurði um til-
tekna kónga með fimm
gröndum. Bjarni sýndi tíg-
ulkónginn og Þröstur sá
fyrir sér uppteiknaða al-
slemmu. Hann taldi líklegt
að að Bjarni ætti 4–4 í
hjarta og laufi, og senni-
lega 3–2 á annan hvorn
veginn í spaða og tígli. Al-
slemman var borðleggjandi
ef Bjarni átti skiptinguna
3-4-2-4 (eða 4-4-2-3), en svo
var líka til í dæminu að
Bjarni ætti tíguldrottn-
ingu, eða alltént gosann. Ef
allt um þryti átti Þröstur
þó 1098 í tígli og gat djúp-
svínað fyrir DG. Hann
skaut því á sjö, en skaut sig
í fótinn, því djúpsvíningin
misheppnaðist. En þetta
var vel ígrundað voðaskot.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Morgunblaðið/Arnaldur
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessir duglegu strákar söfnuðu dósum til styrktar Krafti,
styrktarfélagi, að upphæð 3.700 kr. Þeir eru Daníel Ingi
Gottskálksson og Valur Snær Gottskálksson.
HLUTAVELTA
50 ÁRA afmæli. Í dag, laug-
ardaginn 14. júní, er fimm-
tug Birna Sigmundsdóttir,
blómaskreytir, Grettisgötu
73, Reykjavík.
ÁRNAÐ HEILLA
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Krafti,
styrktarfélagi, og söfnuðu þau 7.506 kr. Þau eru: Jón Kon-
ráð Guðbergsson, Ingunn Haraldsdóttir, Daníel Ingi Gott-
skálksson, Elín Metta Jensen, Valur Snær Gottskálksson
og Unnur Björk Elíasdóttir. Á myndina vantar Gunnlaug
Berg Sverrisson.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanrík-
isráðherra, afhenti fyrir skömmu
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti að
gjöf afsteypu af bronsstyttu af
Guðmundi Sveinssyni, fyrsta
skólameistara skólans. Frum-
myndina gerði Ragnar Kjartans-
son og gáfu nemendur Samvinnu-
skólans á Bifröst skólanum hana,
en Guðmundur var eins og kunn-
ugt er skólastjóri Samvinnuskól-
ans á Bifröst áður en hann varð
skólameistari FB.
Á myndinni eru frá vinstri: Stef-
án Benediktsson, aðstoðarskóla-
meistari FB, Kristín Arnalds,
skólameistari FB og Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra. Á
milli Kristínar og Halldórs er
styttan.
Afhenti afsteypu
af bronsstyttu
FRÉTTIR
FYRSTI formlegi samningur um
rannsóknir við Tækniháskóla Ís-
lands var undirritaður 4. júní sl.
Það voru rektor Tækniháskóla Ís-
lands, Stefanía Katrín Karlsdóttir
og forstjóri Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, Sjöfn Sigurgísladótt-
ir sem undirrituðu samstarfssamn-
inginn.
Samstarfið felur í sér að nem-
endur og kennarar við THÍ koma
að rannsóknar- og þróunarverkefn-
um með sérfræðingum hjá RF.
Jafnframt munu starfsmenn RF
koma að kennslu við THÍ og þá
sérstaklega sem leiðbeinendur í
nemendaverkefnum og rannsókna-
verkefnum. Einnig er gert ráð fyrir
að ráðinn verði sérfræðingur til
starfa á sviði reiknitækni. Sérfræð-
ingurinn verður í hálfu stöðugildi
hjá hvorum aðila og mun kenna og
sinna rannsóknum, segir í frétta-
tilkynningu.
Sjöfn Sigurgísladóttir t.v. og Stefanía Katrín Karlsdóttir.
Tímamót hjá
Tækniháskóla Íslands