Morgunblaðið - 14.06.2003, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GOSPEL-tónlist er heillandi
tónlistarform enda er þá jafnan
sungið af innlifun og tilfinningu.
Ekki gefst oft tækifæri til að hlýða
á lifandi tónlistarflutning af slíku
tagi hér á landi og því kærkomið
tækifæri sem gafst síðastliðið
fimmtudagskvöld, á tónleikum
Gospelkórs Reykjavíkur, í notaleg-
um salarkynnum Hvítasunnu-
kirkju Fíladelfíu. Er skemmst frá
því að segja að undirritaður varð
ákaflega snortinn af því sem þar
var boðið upp á og er ár og dagur
síðan honum hefur liðið jafn vel
undir tónlistarflutningi.
Upphafsstef tónleikanna, This is
what the Lord means to me, lofaði
strax góðu og engu líkara en mað-
ur væri kominn á eins konar blues-
funk-tónleika, þar sem hljómsveit-
in hljómaði óaðfinnanlega með
Óskar Guðjónsson saxófónleikara í
hlutverki sólista. Það er alltaf jafn
gaman að sjá og heyra Óskar
spila, ekki einasta hefur maðurinn
skemmtilega útgeislun í sviðsfram-
komu heldur er hann svo svívirði-
lega góður á „rörið“ að maður
gleymir stund og stað. Þarna voru
líka fleiri gamalkunnug andlit á
sviðinu, snillingar á borð við Sig-
urð Flosason, Eyþór Gunnarsson
og Jóhann Ásmundsson, en um
þann síðastnefnda vil ég bara
segja að ég hef þráláta sannfær-
ingu fyrir því að hann sé einn besti
bassaleikari í heimi, hvað sem
hver segir. Annars var valinn mað-
ur í hverju rúmi hljómsveitarinnar
og ástæðulaust að gera þar upp á
milli: Halli Gulli á trommur, Ómar
Guðjónsson á gítar, Kjartan Há-
konarson á trompet og Hammond-
leikur Agnars Más Magnússonar
léði tónlistinni hinn rétta gospel-
bakgrunn.
En þetta var aðeins byrjunin og
um leið og kórinn hóf upp raust
sína var ljóst að hér stefndi í
óvenju skemmtilega og kraftmikla
tónlistarveislu.
Gospelkór Reykjavíkur saman-
stendur af fólki úr hinum ýmsu
kirkjudeildum og greinilegt er að
tónlistarstjórinn, Óskar Einarsson,
hefur vandað valið vel, en hann á
allan heiður af þessu framtaki. Út-
setningar og raddsetning eru
framúrskarandi vel unnar, sam-
hljómur nánast óaðfinnanlegur og
einsöngvarar valda hlutverki sínu
með miklum ágætum. Svona söng
hélt ég að ekki væri hægt að ná
fram nema úr börkum blökku-
manna. Ekki skemmdi heldur fyrir
gott jafnvægi á milli hljómsveitar
og kórs enda var góður hljóm-
burður í salnum, sem eflaust má
að hluta til þakka faglegum vinnu-
brögðum hljóðstjórans, Gunnars
Smára. Flutningurinn var vissu-
lega kröftugur, en án þess þó að
óbærilegur hávaði væri að pirra
mann, eins og stundum vill verða á
tónleikum.
Gestasöngvarar á tónleikunum
voru Fanny K. Tryggvadóttir,
Edgar Smári Atlason, Maríanna
Másdóttir og Páll Rósinkranz og
auk þeirra sungu einsöng nokkrir
meðlimir kórsins, þær Eva, Íris
Lind, Rannveig, Helga, Ólöf og
Erla.
Ekki er ástæða til að gera upp á
milli frammistöðu þessa ágæta
söngfólks eða fjölyrða um einstök
verk, því hér var það samhljómur
heildarinnar sem skóp hughrifin.
Þó má nefna gáskafulla salsaút-
gáfu af He Reigns Forever, funk-
aðan spuna í By the Lords Mercy
og nýstárlega útsetningu á Joyful,
sem byggt er á Óði til gleðinnar úr
9. sinfóníu Beethovens. Þó varð
undirrituðum mest um þegar sam-
hljómur kórsins reis og hneig í
For Every Mountain og Your
Love en undir þeim flutningi sat
hann sem lamaður af hrifningu og
gæsahúð hríslaðist um skrokkinn
frá hvirfli til ilja.
Það er ólýsanleg tilfinning, sem
líkja má við uppljómun, þegar
raddstyrkur kórsins magnast stig
af stigi og boðskapur fagnaðar-
erindisins skellur á manni eins og
flóðbylgja, ekki síst fyrir reikandi
sál, sem ekki hefur ræktað sam-
bandið við Guð sinn sem skyldi á
undanförnum árum.
Tónlistarstjórinn, Óskar Einars-
son, hefur oft áður skilað góðu
verki á tónlistarsviðinu, en ég leyfi
mér að fullyrða að sjaldan hafi
honum tekist betur upp en hér. Ég
ber því fram þá frómu ósk að þessi
tónlist verði hljóðrituð sem fyrst,
þannig að sem flestir geti notið og
um leið verði þessari tónlistar-
veislu forðað frá því að falla í
gleymskunnar dá.
Tónlist
Uppljómuð
gospel-
tónlist
Tónleikar
HVÍTASUNNUKIRKJAN
FÍLADELFÍA
Gospelkór Reykjavíkur og hljómsveit
Tónleikar til styrktar ABC hjálparstarfi,
haldnir í Fíladelfíu 12. júní. Flytjendur
Gospelkór Reykjavíkur, ásamt einsöngv-
urum, undir stjórn Óskars Einarssonar.
Hljómsveit skipuðu: Jóhann Ásmunds-
son, Eyþór Gunnarsson, Halldór G.
Hauksson, Agnar Már Magnússon, Ómar
Guðjónsson, Sigurður Flosason, Óskar
Guðjónsson og Kjartan Hákonarson.
Sveinn Guðjónsson
Morgunblaðið/Sverrir
Óskar Einarsson ásamt kór og hljómsveit á gospeltónleikum í Fíladelfíu.
AÐRA helgina í röð er finnski kvik-
myndagerðarmaðurinn Aki Kauris-
mäki í öndvegi hjá Bæjarbíói. Í
dag, laugardaginn 14. júní kl. 16.
sýnir Kvikmyndasafn Íslands mynd
úr smiðju hans, Klassikko. Sýningin
er í samvinnu við Bjarta daga,
menningar- og listahátíð Hafnar-
fjarðar og með stuðningi frá
finnska sendiráðinu.
Klassiko er frá árinu 2001 og er
gerð eftir samnefndri skáldsögu
finnska rithöfundarins Kari Hota-
kainen sem út kom árið 1997. Hún
segir frá rithöfundinum Hotkainen
sem er uppálagt af útgefanda sín-
um að skrifa sjálfsævisögu sína.
Hann lendir í ýmsum vafasömum
uppákomum í æðisgenginni leit
sinni að auglýsingaslagorðum fyrir
bókina, tekur ástfóstri við bíla, sér-
staklega gula Toyotu og gamlan
Alfa Romeo. Myndin er á finnsku
en með enskum texta.
Aki Kaurismäki framleiddi mynd-
ina en leikstjóri hennar er Kari Vä-
änänen. Í aðalhlutverkum eru
Martti Suosalo og Janne Hyyt-
iäinen.
Aki Kaurismaki hefur leikstýrt
og framleitt fjölda mynda, m.a.
hinni rómuðu Maður án fortíðar
sem sýnd var hér á landi við góðar
undirtektir og hlaut tilnefningu til
Óskarsverðlauna sem besta erlenda
myndin.
Aki Kaurismäki
í Bæjarbíói
Sýningin fer fram í sýningarsal
Kvikmyndasafnsins í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði, og er
miðaverð 500 kr.
AP
Finnski leikstjórinn Aki Kauris-
mäki er engum líkur og myndir
hans í ætt við það.
SMS FRÉTTIR
mbl.is
HARMUR PATREKS
eftir Auði Haralds
4. sýn. lau. 14. júní kl. 20
Dansleikhús með ekka leikles
LÍNEIK OG LAUFEY
lau. 14. júní kl. 14
lau. 14. júní kl. 16
sun. 15. júní kl. 14
Miðaverð kr. 500
fim 19. júní kl. 21, Félagsh. Valhöll Eskifirði
lau 21. júní kl. 21, Félagsh. Herðubreið Seyðisf.
Forsala á Eskifirði í síma: 8977424
Forsala á Seyðisfirði í síma: 8617789
www.sellofon.is
Stóra svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
Nýja svið
15:15 TÓNLEIKAR - FERÐALÖG
Bergmál Finnlands: Poulenc hópurinn
Í dag kl. 15:15
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Lau 21/6 kl. 20 - AUKASÝNING UPPSELT
Sun 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING UPPSELT
ATHUGIÐ SÍÐUSTU SÝNINGAR
DON GIOVANNI EFTIR W. A. MOZART
ÓPERUSTÚDÍÓ AUSTURLANDS
Su 15/6 kl. 17, Má 16/6 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ -
ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús.
FRUMSÝNING
FIMMTUD. 26.06 - KL. 20.00
LAUGARD. 28.06 - KL. 15.00
SUNNUD. 29.06 - KL. 17.00
FIMMTUD. 03.07 - KL. 20.00
FÖSTUD. 04.07 - KL. 20.00
SUNNUD. 06.07 - KL. 17.00
FÖSTUD. 11.07 - KL. 20.00
LAUGARD. 12.07 - KL. 15.00