Morgunblaðið - 14.06.2003, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 61
KRINGLAN
Kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
AKUREYRI
Kl. 10. Bi. 12
KEFLAVÍK
Kl. 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
Bein
t
á to
ppin
n
í US
A!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12
POWERSÝNINGKL. 10.15.Í SAMBÍÓUNUMÁLFABAKKA
. . .Í Í
FRUMSÝNING
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.15.
AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 9.05, 10.15 og 11.20. Bi. 12
Svalasta mynd
sumarsins er
komin.
KVIKMYNDIR.COM KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
3 vik
ur
á to
ppnu
m
á Ísla
ndi
Toppmyndin
sem rústaði
samkeppninni í
Bandaríkjunum
síðustu helgi
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI
Kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
ÞESSI FRÁBÆRA GRÍNMYND ER FRÁ FRAMLEIÐANDAN-
UM JERRY BRUCKHEIMER SEM HEFUR GERT SMELL-
INA ARMAGEDDON, PEARL HARBOR, THE ROCK OG
CONAIR. KANGAROO JACK KEMUR ÞÉR Í SVAKA STUÐ!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 3.45.
Tilboðkr. 500
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2.
KRINGLAN
Kl. 3.40.
Lærðu spænsku
á Spáni!
www.idihoma.com
komin út,“ segir Páll. „Þetta er eins
og með foreldrana sem geta ekki
byrjað að búa til nýtt barn fyrr en
hitt er komið í heiminn,“ útskýrir
hann.
Meðgönguferlið er því lengra hjá
Maus en fílum og kemur barnið vel
þroskað í heiminn en fleira kom þó
við sögu. „Það var margt sem tafði
fyrir en það var aðallega það að við
vorum ekki komnir með plötu sem
okkur fannst nógu góð. Önnur
ástæða er breyttar aðstæður. Við
erum komnir með nýja plötuútgáfu
og samstarfsmenn,“ segir Birgir en
Musick er gefin út hjá Smekkleysu.
Maus hefur áður gefið út fjórar
plötur, sú fyrsta kom út hjá
Smekkleysu en svo gáfu þeir út hjá
Steinum, sem síðar rann saman við
Skífuna.
Líf fyrir Maus?
„Við erum búnir að vera að gera
þetta í tíu ár og maður man ekki
eftir því að það hafi verið til eitt-
hvert líf fyrir Maus,“ segir Páll en
strákarnir í hljómsveitinni eru á
aldrinum 25–27 ára og byrjuðu því
ungir.
„Þetta er búið að vera tilvera
okkar. Þótt það fari lítið fyrir Maus
út á við er þessi hljómsveit alltaf að
vinna, alltaf að gera eitthvað,“ seg-
ir Birgir en þeir eru ekkert á leið-
inni að hætta. „Maður er aldrei of
gamall fyrir tónlist,“ segir Páll en
þeim fannst tíu ára afmælið ekkert
tiltökumál og héldu ekki einu sinni
upp á það.
Musick var tekin upp í Þýska-
landi og segir Páll það hafa gefið
þeim betra tækifæri til að einbeita
sér. „Þarna þurftum við ekki að
gera neitt annað,“ segir hann og
„gátum farið frá okkar hefðbundna
lífi“, skýtur Biggi inn í, en þeir
segja að jafnvel verði áframhald á
Þýskalandssamstarfinu. „Við vor-
um búnir að vinna síðustu þrjár
plötur í sama stúdíóinu og langaði
að breyta til,“ segir Páll. „Þeir voru
góðir verkstjórar og fengu mann til
að leggja sig virkilega fram í upp-
tökunum,“ segir Páll um þýsku
samstarfsfélagana, Jochen Naaf og
Marcus Meyersieck.
„Eins og með sönginn, þarna var
ég með nýtt fólk til að sanna mig
fyrir. Ég varð að standa mig nógu
vel fyrir þá,“ segir Birgir og tekur
til við að útskýra einkenni plöt-
unnar.
„Við erum ennþá að gera tónlist
sem við getum spilað á tónleikum
en það er miklu meira um rafpæl-
ingar. Fólk heldur þegar það heyr-
ir tónlistina að þetta sé forritað en
þetta er allt spilað,“ segir Birgir.
„Við vitum alveg hvað við erum
að gera í þessum lögum. Við vorum
búnir að vinna svo vel í þeim að við
vorum alveg pottþéttir á því hverju
við vildum ná fram og það gekk allt
upp í upptökuferlinu,“ segir Páll.
„Og meira til,“ bætir Birgir við og
segir þýsku samstarfsmönnunum
líka fyrir að þakka. „Þeir komu
með hugmyndir sem okkur hafði
ekki dottið í hug. Það var gott að
hafa einhvern annan á staðnum,“
segir hann. „Það er heldur ekki
sjálfgefið að eins lokaður hópur og
við finnum einhverja gæja sem við
náum svona vel saman með,“ segir
Páll.
Fólk skilur illa íslensku
Platan Musick er á ensku en
hingað til hefur Maus mest sungið
á íslensku. „Á ferðalögum okkar
um önnur lönd höfum við komist að
því að fólk skilur illa íslensku,“ seg-
ir Birgir um stefnubreytinguna en í
þetta sinn stefnir Maus á að gefa
plötuna út sem víðast.
Birgir er ábyrgur fyrir textunum
en hann segir að það hafi gengið
ágætlega að semja enska texta.
„Ég lagði mjög mikla vinnu í þá, al-
veg jafnmikla og þá íslensku, en
þetta var áskorun. Í flestum til-
vikum samdi ég reyndar íslenska
texta fyrst og sneri þeim svo,“ seg-
ir hann. „Góður texti er góður texti,
sama á hvaða tungumáli hann er.
Það er ekki tungumálið sem skiptir
máli heldur hvað þú hefur að
segja,“ segir Birgir.
Rokkið hefur verið í uppsveiflu
að undanförnu og hljómsveitir á
borð við White Stripes og Interpol
vakið athygli. „Við höfum alltaf
verið að þróa okkar stíl. Við pælum
ekkert í því hvað er í gangi heldur
gerum bara okkar,“ segir Birgir
um rokkbylgjuna og áhrif hennar á
hljómsveitina.
„Maður er alltaf að uppgöta ný
bönd sem maður fílar og áhrifin sí-
ast kannski ómeðvitað inn. Stíllinn
okkar er samt svo rosalega fast-
mótaður að það eina sem við getum
gert er að þróa hann áfram. Það
hefur aldrei gengið upp þegar við
reynum að hljóma eins og eitthvað
annað,“ segir Páll.
„Við erum samt mjög tilrauna-
glaðir þegar við erum að semja lög.
Við leyfum okkur að prófa að semja
eitthvað sem er ólíkt því sem við
höfum gert. Stundum virkar það,
sum lög hafa sloppið í gegn,“ segir
Birgir. „Á endanum verða allir fjór-
ir að vera sáttir.“
Ólæknandi
tónlistarsjúkdómur
Miklar pælingar liggja á bak við
titil plötunnar, Musick, og er svipað
þema gegnumgangandi á plötunni.
„Á þessu ferli stundar maður mikla
sjálfsskoðun. Maður eyðir tveimur
árum í bílskúrnum með þremur
strákum og fer að hugsa – af
hverju er ég að þessu? Og maður
kemst að því að þetta er þess virði
því það gefur manni það mikið til
baka. Musick er orð yfir það. Þetta
er eins og ólæknandi veira sem
drífur mann áfram. Einhver hvöt,
maður verður að halda áfram.
Margir textanna á plötunni fjalla
um tónlist og tónlistarsköpun. Það
er ótrúleg vinna, sem getur legið að
baki einu þriggja mínútna popp-
lagi. Þetta er naflaskoðun á tónlist-
arlífinu og tónlistarmarkaðnum. Ég
hugsaði um tónlist þegar ég var að
semja þessa texta. Þarna er meira
að segja ástarlag til tónlistar. Ég
get sagt það með fullri vissu að það
er ekki einn einasti texti á þessari
plötu, sem hefur ekki meiningu á
bak við sig. Ég er ekki að bulla eitt-
hvað. Ég eyddi mikilli vinnu í að
semja þá og held ég hafi aldrei ver-
ið jafnánægður með textana og
núna,“ segir Birgir.
Sem stendur eru strákarnir að
vinna myndband við lagið „Life in a
fishbowl“ og framundan er spila-
mennska. Þeir eru nýkomnir fá
London þar sem þeir spiluðu á
Smekkleysukvöldi.
„Það var góð mæting og virki-
lega góðar viðtökur. Þetta var bara
alveg eins og að spila á Gauknum,“
segir Birgir. „Bara aðeins lengra
að fara,“ segir Páll en það er ein-
mitt það sem Maus virðist vera að
gera, teygja sig aðeins lengra.
ingarun@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.maus.is
Platan Musick kemur í verslanir á
mánudaginn. Útgáfutónleikar Maus
í Iðnó fimmtudaginn 19. júní.
Húsið verður opnað kl. 21.30 og tón-
leikarnir hefjast stundvíslega kl. 22
með sérstöku upphitunaratriði.
„Það er ekki einn
einasti texti á þess-
ari plötu, sem hefur
ekki meiningu á bak
við sig. Ég er ekki að
bulla eitthvað.“
ÓÞOLINMÓÐIR aðdáendur Harry
Potter-bókanna geta nú andað létt-
ar því útdráttur úr nýjustu bók JK
Rowling um
galdramanninn
unga hefur birst á
Netinu. Um er að
ræða rúmlega
tveggja mínútna
hljóðupptöku sem
lesin er af breska
leikaranum Jim
Dale. Á upptökunni kemur það fram
að í fimmtu bókinni, sem bera mun
heitið Harry Potter og Fönixreglan,
lendir galdradrengurinn í mikilli
klemmu. Þegar hann hittir vini sína
Hermione og Ron kemur það á dag-
inn að þau hafa verið neydd til þess
að halda einhverju leyndu fyrir hon-
um. Af upptökunni er það einnig að
dæma að Potter á yfir höfði sér
brottrekstur. Það mun þó ekki koma
í ljós fyrr en við lestur bókarinnar
hvort brottreksturinn tengist Hogw-
arts-skólanum eður ei.
Mjög mikil leynd hefur hvílt yfir efni
bókarinnar og er handritsins vel
gætt. Í Bretlandi er það bannað með
lögum að birta upplýsingar um inni-
hald bókarinnar en upptökuna með
útdrættinum er að finna á heimasíð-
um Amazon og AOL í Bandaríkj-
unum. Bókin Harry Potter og Fön-
ixreglan verður gefin út hinn 21. júní
nk. og er fastlega búist við því að
hún fari beint á toppinn á flestum
sölulistum. Bókabúðir munu margar
hverjar verða opnaðar á miðnætti til
þess að viðskiptavinir þeirra geti
orðið meðal þeirra fyrstu til þess að
fá eintak af bókinni.
FÓLK Ífréttum