Morgunblaðið - 14.06.2003, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
TÓLF klukkustunda inntökupróf fyrir þá
sem hyggja á nám í læknisfræði og
sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands verða
haldin 23. og 24. júní. Prófið er tvískipt,
annars vegar er prófað úr námsefni fram-
haldsskóla, einkanlega um náttúruvísindi,
sem gilda á 70% í einkunn og hins vegar
er almennt próf sem gildir 30%. Snýst sá
hluti um greindarpróf, siðfræðispurningar
og spurningar þar sem nemendur eru
beðnir að sjá mynstur úr ýmsum formum.
Nemendur sem Morgunblaðið ræddi við
hafa gagnrýnt fyrirkomulag prófanna,
sérstaklega 30%-hlutann, en í síðasta
samkeppnisprófi voru einnig svipaðar
spurningar. Nemendur kalla þennan hluta
„gettu betur“-spurningar. „Maður getur
skilið að greindarpróf geti verið hluti af
þessu en enginn veit af hverju þessar
„gettu betur“-spurningar eru þarna,“ seg-
ir einn viðmælandi Morgunblaðsins sem
tók samkeppnispróf síðasta vetur.
Þá hafa læknanemar gagnrýnt að ekki
hafi verið nægilega vel staðið að undir-
búningi og telja að prófa hefði átt spurn-
ingar á samanburðarhópi áður en til prófs
kæmi.
Þetta er í fyrsta sinn sem læknadeild
leggur samkeppnispróf fyrir að vori en til
þessa hefur efstu nemendum í desem-
berprófum verið hleypt áfram. Alls hefur
181 nemandi skráð sig í prófið fyrir 48
sæti í læknadeild og 33 slást um 20 sæti í
sjúkraþjálfun. Hópur framhaldsskóla-
kennara samdi prófin í samvinnu við full-
trúa læknadeildar.
Inntökupróf fyrir læknis-
fræði og sjúkraþjálfun
Gagnrýna
„gettu betur“-
spurningar
Keppa um/11
ÓLAFUR Einarsson, skipstjóri á
Faxa RE, var á heimstími í gær-
kvöldi með fullfermi af síld úr
norsk-íslenska síldarstofninum.
Hún veiðist þessa dagana innan ís-
lensku lögsögunnar um 180 sjómíl-
ur norð-austur af Langanesi. Hann
sagði létt yfir áhöfninni, það hafi
tekið aðeins einn og hálfan sólar-
hring að fylla skipið og um 300 tonn
af síld fengist í hali.
„Síldin fer öll í bræðslu hjá okkur
en það er sjálfsagt hægt að vinna
hana ef henni er haldið ferskri. Hún
er full af átu,“ sagði Ólafur. „Þetta
er stór og falleg síld.“
Mörg skip voru á miðunum, veð-
ur gott og spáin hagstæð, að sögn
Ólafs. Síldin hefur haldið sig á þess-
um bletti og ekki verið að ganga
neitt. „Ég gat ekki séð að hún væri
að fara eitt eða neitt. Síldin virtist
vera á sama stað allan tímann.“
Ráðgert er að Faxi komi til Þor-
lákshafnar með aflann aðfaranótt
sunnudags.
„Súlustaðurinn“
Vignir Traustason, fyrsti stýri-
maður á Júpiter ÞH, sat vaktina í
brúnni í gærkvöldi eftir að hafa
landað fullfermi af síld fyrr um dag-
inn á Þórshöfn. Var hann á útstími á
miðin sem Vignir kallaði „Súlustað-
inn“, en það nafn mun Jón Axelsson,
skipstjóri á Júpiter, hafa gefið mið-
unum þar sem síldin veiðist eftir að
Súlan EA fann hana. „Ég held að
flest öll íslensku nótaskiptin séu
þarna,“ sagði hann.
Spennandi tíðindi
Freysteinn Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri útgerðar hjá Síldar-
vinnslunni á Neskaupstað, segir tíð-
indin um síldveiðina geysilega
spennandi. Reynt verði að vinna
aflann sem komi með skipunum í
næstu ferð. „Þetta kom svolítið
óvænt og síldin er troðfull af átu,“
sagði hann aðspurður um af hverju
aflinn hefði farið allur í bræðslu.
Skipstjórnarmenn vonist til þess að
geta kælt síldina í lestinni með sjó
svo hún verði vinnsluhæf þegar
komið er að landi.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir að sú
staðreynd að síld úr norsk-íslenska
síldarstofninum sé farin að veiðast í
íslenskri lögsögu gjörbreyti samn-
ingsstöðu okkar gagnvart Norð-
mönnum um hlutdeild úr stofninum.
Friðrik segir að ef síldin taki upp
sitt fyrra göngumynstur gefi það Ís-
lendingum fremur tilefni til aukinn-
ar hlutdeildar í stofninum.
Góð síldveiði úr norsk-íslenska síldarstofninum innan íslensku lögsögunnar
„Síldin virtist vera á
sama stað allan tímann“
Í DAG brautskráir Kennaraháskóli Íslands 350
kandídata. Eyrún Ólafsdóttir, Júlía G. Hreinsdóttir
og Ragnheiður Sara Valdimarsdóttir eru í þeirra
hópi en þær eru jafnframt fyrstu heyrnarlausu
manneskjur á Íslandi til að ljúka háskólanámi. Júlía
hefur verið í fjarnámi en Eyrún og Ragnheiður Sara
hafa notið aðstoðar túlks og verið í staðnámi.
Að þeirra sögn hefur ekki verið auðvelt fyrir
heyrnarlausa að mennta sig enda hefur túlkþjónusta
ekki verið aðgengileg í gegnum tíðina.
Þær eru allar hæstánægðar með námið í Kenn-
araháskólanum en vonast til þess að í framtíðinni
læri allir kennarar táknmál enda eru heyrnarskert
börn víðs vegar um landið. / 4
Morgunblaðið/Jim Smart
Eyrún Ólafsdóttir, Ragnheiður Sara Valdimarsdóttir og Júlía G. Hreinsdóttir.
Fyrstar heyrnarlausra til að
ljúka háskólanámi á Íslandi
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur sett
sérstakan staðal fyrir lykt, sem
gilda mun hér á landi. Evrópu-
staðallinn um lykt gerir kleift að
mæla lykt með sérstökum mæli.
Frá þessu er greint í Staðla-
málum, tímariti Staðlaráðs Ís-
lands.
Í staðlinum er því lýst hvernig
matsmenn með sérstaka lyktar-
mæla geta mælt lykt og hvaða
mælieiningar þeir skuli nota. Þó
verður ekki hægt að leggja mat á
hvort lykt sé góð eða slæm, heldur
mun lyktarmælirinn finna út styrk
lyktarinnar með því að mæla þétt-
leika hennar í einum rúmmetra af
lofti. Mælingin segir því til um hve
mikil eða lítil lyktin er.
Staðallinn mun sennilega bera
nafnið: „Gæði andrúmslofts –
ákvörðun um þéttleika lyktar með
virkum lyktarmæli“ og verður á
næstunni staðfestur sem íslenskur
staðall.
Íslenskur
staðall
fyrir lykt
LÖGREGLAN í Grafarvogi gerði
yfir 50 kannabisplöntur upptækar í
tveimur íbúðum í gærkvöld. Á
staðnum fannst einnig nokkuð af
kannabisgræðlingum og hálfþurrk-
uðu hassi, auk lítilræðis af hassi til-
búnu til neyslu, að sögn lögreglunn-
ar. Einn maður var handtekinn
vegna málsins og verður hann yfir-
heyrður í dag. Hann hefur komið
við sögu lögreglunnar áður í ýmsum
málum. Málið er enn í rannsókn.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan í Grafarvogi lagði hald
á talsvert magn af kannabis-
plöntum í gærkvöld.
Gerðu fimmtíu
kannabisplöntur
upptækar
Í GREIN sem Björn Th. Björnsson list-
fræðingur og rithöfundur ritar í Les-
bókina í dag kemur fram að sá tími er
Jón Sigurðsson og
Ingibjörg kona
hans bjuggu í
húsinu við Öster-
voldsgade í Kaup-
mannahöfn hefur
verið ofáætlaður
um 9 ár. Björn
færir rök fyrir
því að Jón og Ingibjörg hafi ekki flutt í
húsið fyrr en árið 1861 en eins og kem-
ur fram á skilti utan á húsinu hefur
verið talið að þau hafi flutt inn 1852.
Meðal annarra merkra íbúa og reglu-
legra gesta hússins á dögum Jóns og
Ingibjargar voru listmálarinn Paul
Gauguin og heimspekingurinn Sören
Kierkegaard.
Jón forseti bjó
níu árum skem-
ur í Jónshúsi
Lesbók 10–11
ÓVENJUMIKIÐ hefur verið
um kálfadauða hér á landi und-
anfarið. Talsvert er um að kálf-
ar fæðist annaðhvort andvana
eða deyi nokkrum dögum eftir
fæðingu.
„Það hefur verið í nokkurn
tíma visst vandamál með kálfa-
dauða, ekki bara hér á landi
heldur í nágrannalöndunum
líka,“ segir Gunnar Guðmunds-
son, forstöðumaður ráðgjafar-
sviðs hjá Bændasamtökum Ís-
lands. „Kálfarnir fæðast
andvana, eða hafa ekki nægan
lífsþrótt fyrstu dagana til að
lifa.“
Gunnar segir þetta hafa verið
rannsakað eitthvað og ýmsar
skýringar fundnar. Hugsanlega
sé hægt að finna eitthvert sam-
band við skyldleikarækt. „Einn-
ig gæti snefilefnaskorti verið um
að kenna án þess að það hafi
verið rannsakað sérstaklega,“
segir Gunnar.
Hann segir að nú sé að fara í
gang viðamikil rannsókn á veg-
um Bændasamtaka Íslands,
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins, Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri og fleiri fagaðila
þar sem kannað verður magn
snefilefna í heyi af landinu öllu
til þess að komast að því hvort
um einhvern skort snefilefna
getur verið að ræða, og höfð til
hliðsjónar gögn frá bæjum víðs-
vegar um landið.
Skýringa leitað á
miklum kálfadauða
♦ ♦ ♦
KARLMAÐUR varð fyrir sliskju, stokki
sem möl rennur um, í gærdag í malarnámu
skammt utan Hvalfjarðarvegar við Mýr-
dalsveg. Hlaut maðurinn mar og 30 senti-
metra langan skurð á sköflung sem risti inn
að beini. Einnig fékk hann skurð aftan á
höfuð.
Maðurinn var fluttur með einkabíl til
Kollafjarðar þar sem sjúkrabíll tók við og
flutti hann á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi.
Maður varð
fyrir sliskju
♦ ♦ ♦