Morgunblaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 36
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Matthías JóhannJónsson fæddist á
Þórshöfn á Langanesi
20. nóvember 1922.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík að-
faranótt 5. júní síðast-
liðinn. Foreldrar hans
voru Jón Magnússon,
trésmiður á Þórshöfn,
f. 18. september 1871,
d. 29. september 1950,
og Kristveig Jónsdótt-
ir, f. 28. september
1891, d. 27. apríl 1981.
Börn þeirra og systk-
ini Matthíasar voru
Stefán Magnús, látinn, Sigríður,
búsett í Reykjavík, Aðalheiður, bú-
sett í Reykjavík, Magnea Guðný,
látin, Einar, lést ungur, Sigurður,
útgerðarmaður á Þórshöfn, og
Jón, búsettur í Reykjavík.
Matthías kvæntist 1949 Kristínu
S. J. Magnúsdóttir húsmóður, f. 12.
september 1913 í Litlu-Ávík í Ár-
neshreppi á Ströndum, látin. Þau
skildu. Börn þeirra eru: 1) Einar,
byggingafræðingur í Reykjavík, f.
1947, kvæntur Guðrúnu Guð-
björnsdóttur ljósmóður. Börn
þeirra eru Kristín Rut, Þórlaug og
Stefán Örn og barnabörn þeirra
eru þrjú. 2) Margrét, f. 1950, kenn-
ari, búsett í Reykjavík. 3) Guðbjörg
Magnea, f. 1952, kennari, búsett í
Vestmannaeyjum, gift Sigurði Ein-
arssyni útgerðarmanni en hann
lést í október 2000. Synir þeirra
eru Einar, Sigurður,
Magnús og Kristinn.
4) Svandís hjúkrunar-
fræðingur, f. 1953,
búsett í Reykjavík,
var gift Gunnari H.
Gunnarssyni fram-
kvæmdastjóra. Börn
þeirra eru Gunnar
Rúnar, Kristján Már
og Anna Margrét. 5)
Viðar Már, f. 1954,
lögfræðingur og pró-
fessor við HÍ, búsett-
ur í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu
Angantýsdóttur
kennara. Börn þeirra eru Logi,
Hildur Ýr, Harpa og Orri.
Eftirlifandi eiginkona Matthías-
ar er Anita Villadsen, f. 1939 í Dan-
mörku, hjúkrunarfræðingur.
Barnabörn Matthíasar eru 14 og
barnabarnbörnin eru þrjú.
Matthías ólst upp á Þórshöfn og
fór snemma að vinna fyrir sér eftir
almenna skólagöngu um fermingu.
Hann sótti sjó lengst af á ýmsum
bátum og togurum en sigldi auk
þess lengi á ýmsum farskipum hjá
Skipafélaginu Jöklum, m.a. sem
háseti á MS Vatnajökli sem var í
langsiglingum til Rússlands og
Eystrasaltslandanna. Eftir að sjó-
mennsku lauk stofnaði hann heild-
sölufyrirtækið Málma í Reykjavík
sem hann rak til dauðadags.
Útför Matthíasar var gerð frá
Fossvogskirkju 13. júní.
Okkur langar til að minnast elsku-
legs frænda okkar, hans Matta, í ör-
fáum orðum. Það er skrýtin tilfinning
fyrir okkur systkinin að átta okkur á
því að hann sé ekki lengur til staðar
nema minningin ein sem að vísu verð-
ur aldrei frá okkur tekin.
Frá því við munum eftir okkur var
hann hluti af fjölskyldulífi okkar,
Matti frændi sem birtist oft óvænt,
hlaðinn útlendu sælgæti og framandi
gjöfum sem margar hverjar hafa ver-
ið geymdar af umhyggjusemi öll
þessi ár. Komu hans fylgdu líka alltaf
einhverjar óvæntar uppákomur því
Matti var ekki maður sem sat lengi
aðgerðarlaus. Við minnumst ekki síst
stóru pallbílanna sem hann var alltaf
á sem þóttu framandi á Þórshöfn á
Langanesi á þessum árum en þetta
voru atvinnutæki Matta þótt við
gerðum okkur ekki grein fyrir því á
þeim tíma. Í okkar huga var bara æv-
intýrið þegar öllum krakkaskaranum
var smalað uppá pallinn og oftast
fylgdu með nokkrir nágrannakrakk-
ar sem voru til í að taka þátt í æv-
intýrum dagsins. Þegar við svo urð-
um fullorðin og fluttumst burt af
Langanesinu var það áfram órjúfan-
legur hluti af tilverunni að hafa sam-
band við Matta frænda, ýmist rækt-
uðum við þau tengsl hér fyrir sunnan
eða hittum hann og svo Anitu þegar
hún kom til sögunnar í sumarfríunum
á Þórshöfn. Það voru örugglega ekki
mörg sumrin sem Matti og Anita
komu ekki með hjólhýsið norður og
dvöldu um tíma út við Fossá en þar
var hjólhýsinu yfirleitt lagt þann
tíma sem þau stoppuðu. Matti og
Anita voru einhvern veginn alltaf
boðsgestir í allar uppákomur hjá fjöl-
skyldum okkar og við vitum að Anita
mun fylla það skarð um ókomna tíð.
Þau voru mikið á ferðinni og ekki
var óalgengt að rekast á þau þar sem
eitthvað var um að vera og skipti þá
ekki máli hvort það var í Kringlunni,
Smáralind eða á sinfóníutónleikum.
Ef einhverjum datt í hug að ferðast
til nýrra staða erlendis var næsta víst
að Matti og Anita hefðu komið þang-
að og til þeirra mætti leita til þess að
fá upplýsingar um staðhætti.
Við minnumst frænda okkar með
eftirsjá og væntumþykju og biðjum
Guð að styrkja Anitu, börn hans og
afkomendur þeirra í sorginni.
Hafþór, Örn, Lilja og
Aðalheiður Sigurðarbörn.
Afi okkar Matthías Jóhann Jóns-
son, eða afi Matti eins og við barna-
börnin kölluðum hann, er látinn eftir
skamma en erfiða sjúkdómslegu. Þó
svo að sambandið við afa hafi ekki
verið mjög mikið, vitum við að hann
fylgdist vel með okkur og barna-
barnabörnunum sem nú eru orðin
þrjú. Afi Matti var um margt mjög
sérstakur maður, hann var harðjaxl
sem gekk í gúmmístígvélum og
keyrði vörubíl um landið þvert og
endilangt en hann átti einnig aðrar
ánægjustundir með Anitu, eftirlif-
andi eiginkonu sinni, á ferðalögum
um Ísland, Danmörku og fjarlæg
lönd.
Anita annaðist afa okkar vel og
undir lokin þegar sjúkdómurinn sigr-
aði þennan austfirska harðjaxl, þá
stóð hún eins og klettur við hlið hans.
Anitu og fjölskyldunni sendum við
samúðarkveðjur.
Kristín Rut, Þórlaug og Stef-
án Örn Einarsbörn.
MATTHÍAS JÓHANN
JÓNSSON
✝ Björn TómasKjaran fæddist í
Reykjavík 2. janúar
1930. Hann lést á
heimili sínu 20. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Ingvar
Kristinn Kjaran
skipstjóri frá Vælu-
gerði í Flóa og Rann-
veig Björnsdóttir
Kjaran húsfreyja frá
Ísafirði. Björn var
næstelstur fjögurra
systkina, en hin eru
Kristín, „Níní“,
Anna og Snorri Páll.
Björn kvæntist 2. janúar 1956
Sigríði Sigfúsdóttur, f. 2. janúar
1934. Foreldrar Sigríðar eru Sig-
fús Kristjánsson trésmiður frá
Holtsmúla í Skaga-
firði og Sigríður
Elín Guðbjartsdóttir
frá Hjarðarfelli í
Miklholtshreppi.
Börn Björns og Sig-
ríðar eru 1) Ingvar;
2) Sigfús; 3) Sigríð-
ur Elín, giftist Njáli
Helga Jónssyni.
Þeirra börn eru
Steingrímur, Björn
Tómas, Kristín
Helga og Tryggvi,
og búa þau í Noregi;
4) Rannveig, gift
Guðjóni Þór Gunn-
arssyni. Dóttir þeirra er Dýrleif,
og búa þau í Kaliforníu.
Útför Björns var gerð í kyrr-
þey 28. maí síðastliðinn.
Látinn er í Reykjavík Björn
Tómas Kjaran, fyrrverandi skip-
stjóri, á 74. aldursári. Björn
kvæntist frænku minni Sigríði Sig-
fúsdóttur árið 1956. Sigríður er
dóttir móðursystur minnar og allt-
af var mikill samgangur á milli
heimilanna. Sigga og systir hennar
gættu okkar, mín og systur minn-
ar, þegar við vorum litlar. Okkur
systrum fannst þessar frænkur
okkar vera miklar veraldarkonur
og fannst allt mjög spennandi sem
tengdist þeim. Það ríkti því mikil
eftirvænting þegar þessi glæsilegi
ungi sjómaður kom inn í
fjölskylduna. Ekki sakaði að hann
var fyrrverandi nemandi föður
okkar í Stýrimannaskólanum.
Sigga og Böddi stofnuðu heimili
og börnin komu eitt af öðru. Nú
var komið að okkur að gæta barna
Siggu og kom það oftar í hlut Guð-
nýjar, systur minnar. Sambandið
milli fjölskyldnanna breyttist ekki
þó að Böddi kæmi í fjölskylduna.
Hann sýndi okkur systrum og for-
eldrum okkar ætíð mikla vinsemd
og ræktarsemi.
Ég veit ekki mikið um starfsferil
Björns, aðrir verða að vera til frá-
sagnar um þann þátt. En fyrir ein-
skæra tilviljun kynntist ég þó skip-
stjórnarmanninum Birni. Á
námsárum okkar hjóna 1965–1970
bjuggum við í Liverpool í Eng-
landi. Þá gerðist það að Tungufoss
fór að sigla til Weston Point sem er
í nágrenni Liverpool. Björn var þá
fyrsti stýrimaður á Tungufossi.
Þegar Tungufoss kom til Weston
Point fórum við í heimsóknir um
borð í skipið og fengum send dag-
blöð og harðfisk og annað sem
þótti gott að fá frá Íslandi. Nutum
við ætíð frábærrar gestrisni um
borð. Eftir eitt jólafríið fengum við
svo far með skipinu út til Eng-
lands.
Seinna þegar við komum heim
frá námi og stofnuðum heimili á Ís-
landi héldust þessi góðu tengsl.
Rannveig, yngsta dóttir Siggu og
Bödda, gerðist barnfóstra hjá okk-
ur í eitt sumar. Og það var alltaf
gott og notalegt að koma í heim-
sókn í Básendann. Böddi var alltaf
kátur og hress og hafði gamanyrði
á vörum. Hann hafði mikið yndi af
börnum og milli hans og barna
minna myndaðist gott samband.
Það er mér og fjölskyldu minni,
móður, systrum, eiginmanni og
börnum mikil gleði að hafa þekkt
þennan góða dreng og við þökkum
fyrir að hafa fengið að njóta sam-
vista við hann.
Sigrún Helgadóttir.
BJÖRN TÓMAS
KJARAN
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ÓLAFÍA ÞÓRA VALENTÍNUSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 26. maí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent
á krabbameinsdeild Landspítalans.
Smári Karl Kristófersson,
Daníel Stefánsson,
Kristján S. Smárason,
Valdís Karen Smáradóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Þökkum hlýhug og samúð við andlát okkar
kæru móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
HELGU HALLSDÓTTUR
frá Fáskrúðsfirði.
Útför hennar fór fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 10. júní.
Berta Kristinsdóttir, Ragnar Bernburg,
Nína Kristinsdóttir, Helgi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar,
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON,
Barónstíg 29,
Reykjavík,
sem varð bráðkvaddur heima hjá sér á hvíta-
sunnudag 8. júní, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu mánudaginn 16. júní
kl. 13.30.
Systkini og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
SÆUNN PÉTURSDÓTTIR,
áður Ferjubakka 4,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtu-
daginn 12. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bryndís Guðmundsdóttir,
Málfríður Guðmundsdóttir,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Sæunn Halldórsdóttir,
barnabörn og aðrir ástvinir.
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR OLGEIRSSON,
Arnarási 6,
Garðabæ,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn 13. júní.
Helga Jörundsdóttir.
Maðurinn minn,
GUNNAR JÓHANNESSON
bakarameistari,
Sólheimum 25,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn
10. júní, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 18. júní kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Guðmundsdóttir.