Morgunblaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 53
www.icelandair.is
Alltaf ódýrast á Netinu
Engin óþekkt
á Hinsegin
dögum
UNDIRBÚNINGUR stendur nú hvað hæst fyrir Gay
Pride-gönguna sem í ár ratar á laugardaginn 9. ágúst.
Í tengslum við hátíðahöldin setja Hinsegin-leikhús og
CMS-leikhúsið í New York upp söngleikinn Engin
óþekkt (Ain’t Misbehavin’) eftir Fats Waller.
Leikstjórn og leikarar verksins koma allir frá
New York, utan Andreu Gylfadóttur sem fer
með aðalkvenhlutverkið á móti Seth
Sharp sem flytur aðalkarlhlutverkið.
Verkið Engin óþekkt segir frá
lífinu í Harlem upp úr 1930 á
blómatíma í menningu banda-
rískra blökkumanna eftir
fyrra stríð og fram að krepp-
unni miklu. Harlem varð
menningarmiðstöð og þang-
að þyrptist fólk í leit að
tækifærum og ævintýrum.
Sýningin á söngleiknum
opnar hátíðardagskrá
Hinsegin daga föstudaginn
8. ágúst og verða alls haldn-
ar 10 sýningar og tengir sýn-
ingin saman Hinsegin daga og
Menningarnótt í Reykjavík.
Heimir segir von á góðri dag-
skrá á Hinsegin dögum en Gay
pride-gangan sjálf verður glæsilegri
með hverju árinu sem
líður. Að þessu sinni
verður þó sú breyting
á að hátíðartónleikar
sem eru í lok göng-
unnar og hingað til
hafa verið haldnir á
Ingólfstorgi verða
fluttir í Lækjargötu
þar eð aðsóknin að viðburðinum er orðin slík að mann-
fjöldinn rúmast ekki lengur á Ingólfstorgi.
Von er á breska plötusnúðnum Fabio White sem
skemmta mun á næturklúbbnum Spotlight en hann er
með vinsælli skífuþeyturum í heimalandi sínu.
Í ár fagna Samtökin 78 einnig aldarfjórðungs af-
mæli sínu og af því til-
efni hefur verið skipu-
lögð sérstök
hátíðardagskrá út ár-
ið. Þannig verður í
október haldin kvik-
myndahátíð tileinkuð
kvikmyndum með
samkynhneigðu við-
fangsefni. Í september
mun Bergþóra Jóns-
dóttir taka Gerhard
Schuil tali þar sem rætt
verður um líf hans með tón-
list og spilar hann á píanóið
inn á milli þess að ræða um hlut-
verk tónlistar í lífi
sínu. Að auki verð-
ur verkið Pabba-
strákur eftir Hávar
Sigurjónsson sýnt
um svipað leyti og
fyrirlestrar og mál-
þing haldin í
tengslum við dag-
skrá afmælisársins.
Loks má geta þess að þau Andrea og Seth munu
hita upp fyrir hátíðina á Caffé Kúlture í Hverfisgötu
föstudaginn 20. júní næstkomandi. Þar flytja þau í fé-
lagi við píanóleikara ýmis lög, meðal annars valin lög
úr söngleiknum.
Verk Fats Wellers sýnt í tengslum við gleðigönguna í ágúst
Í Harlem-sveiflu: Þau Andrea Gylfadótt-
ir og Seth Sharp taka hér lagið á
kynningarkvöldi á Hinsegin dög-
um sem haldið var nýverið á
Spotlight.
menn vilja fara í samanburðarleik, en
Snaith skýrir það með því að það sé
ódýrara (og auðveldara) að setja sam-
an tónlist í tölvum en með hljóð-
nemum og mixerborðum.
Start Breaking My Heart fékk
góðar viðtökur gagnrýnenda og
Snaith segir að það hafi staðið sér
fyrir þrifum að vissu leyti; þegar
hann byrjaði á nýrri plötu hafi hann
verið fastur í því að reyna að gera
eins, að reyna að þóknast þeim sem
lofað höfðu hina plötuna í hástert.
Líkt og með Start Breaking My
Heart kom hann upp hljóðveri heima
hjá sér, en nú í Lundúnum þar sem
hann er við doktorsnám í stærðfræði.
Næsta árið tók hann upp talsvert af
hugmyndum en segist hafa verið
óánægður með allt saman, fannst sú
naumhyggjulega raftónlist sem var
allsráðandi í kringum hann ómögu-
leg. „Á tónleikaferð um Evrópu hitti
ég helst fólk sem var fast í því að
hlusta á raftónlist frá ákveðnum ár-
um, t.d. 1998 til 2000, eða á ákveðnum
merkjum og mér fannst ég alls ekki
eiga samleið með því – ef þetta fólk
væri hrifið af því sem ég væri að gera
væri ég á rangri hillu, því ég hef alltaf
haft gaman af alls konar tónlist.“
Eftir þessa hugljómun tók vinnan
að ganga betur enda var hljóðaspjald-
ið orðið stærra, til viðbótar við tölvu-
hljóð og hljóma komu klukkuspil, raf-
gítarar, hljómborð og söngrödd og
hljóðsmali var svo notaður til að sækja
hljóð og hljóma á skífur annarra, stór-
sveitakraft og frumskógartrommur.
„Ég hef engan áhuga á rafeinda- og
tölvutækni en nota þau tól vegna þess
að ég er fátækur námsmaður og hef
ekki efni á að nota annað,“ segir hann,
„og það er helsta skýring á því hvers
vegna ég er að semja og taka upp raf-
tónlist. Ég hlusta þannig nánast ekk-
ert á raftónlist sjálfur og ef ég er að
slappa af eða skemmta mér set ég á
fóninn gamalt og nýtt hiphop, sýru-
rokk, súrt popp og garage. Mér finnst
raftónlistaráheyrendur alla jafna allt
of lokaðir og fordómafullir gagnvart
annarri tónlist. Naumhyggjan er góð
útaf fyrir sig en mér finnst eins og
menn sitji fastir í henni og allt verði að
vera fallegt og fíngert. Ég vil vera há-
vær og með hamagang,“ segir Snaith
og fer ekki dult með dálæti sitt á
Brian Wilson og The Beach Boys ekki
síður en My Bloody Valentine sem
hann segir fyrst og fremst hafa verið
laglínusveit þó hennar sé kannski
helst minnst fyrir gítarbrim. „Það er
aldrei of mikið af laglínum.“
Kanadíski tónlistarmaðurinn Dan Snaith sem kallar sig Manitoba.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 53
KRINGLAN
Kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
AKUREYRI
Kl. 10. Bi. 12
KEFLAVÍK
Kl. 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12
Bein
t
á to
ppin
n
í US
A!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12
POWERSÝNINGKL. 10.15.Í SAMBÍÓUNUMÁLFABAKKA
. . .Í Í
FRUMSÝNING
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.15.
AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 9.05, 10.15 og 11.20. Bi. 12
Svalasta mynd
sumarsins er
komin.
KVIKMYNDIR.COM KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
3 vik
ur
á to
ppnu
m
á Ísla
ndi
Toppmyndin
sem rústaði
samkeppninni í
Bandaríkjunum
síðustu helgi
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI
Kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
ÞESSI FRÁBÆRA GRÍNMYND ER FRÁ FRAMLEIÐANDAN-
UM JERRY BRUCKHEIMER SEM HEFUR GERT SMELL-
INA ARMAGEDDON, PEARL HARBOR, THE ROCK OG
CONAIR. KANGAROO JACK KEMUR ÞÉR Í SVAKA STUÐ!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 3.45.
Tilboðkr. 500
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2.
KRINGLAN
Kl. 3.40.