Morgunblaðið - 16.06.2003, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.06.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 161. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Maxim Vengerov Einn fremsti fiðluleikari heims með Sinfóníunni Listir 14 Pæjumót í Eyjum Sjö félög sendu 47 lið eða um 600 keppendur Íþróttir 7 Makaleit með hraði Þjónustan er nú í fyrsta sinn í boði hér Fólk 29 NÝJA bókin um galdrastrákinn Harry Potter er svo stór og þung – og breskir lesendur eru búnir að panta svo margar – að konunglega breska póst- þjónustan greindi frá því í gær að bætt yrði við bílum til að létta undir með póstburðarfólkinu. Nýja bókin, Harry Potter og Fönixreglan, eins og hún mun heita í íslenskri þýðingu, kemur út í Bretlandi á laugardaginn. Hún er 768 blaðsíður að lengd og um eitt kíló að þyngd. Dreifa á um hálfri milljón eintaka af bókinni á laugardaginn, flestum í London, Glasgow og Edinborg, en samkvæmt breskum reglum mega póstburðarmenn einungis bera 16 kíló í einu. „Þar eð bókin er mjög stór og þung höfum við gert sérstakar ráðstafanir til þess að dreifingin geti farið fram með bílum,“ sagði ónafngreindur fulltrúi konunglegu póstþjónustunnar. „Við höfum gert ráðstafanir til að tryggja að dreifingin gangi að óskum og enginn verði fyrir vonbrigðum. Þetta er um- fangsmikið verkefni, en hin konunglega póstþjónusta er vön umfangsmiklum verkefnum,“ sagði fulltrú- inn ennfremur. Á þetta að tryggja að lestrarfýsn breskra barna (og fjölda fullorðinna) valdi ekki póstburðarfólki bakveiki. En þótt þessar sérstöku ráðstafanir hafi verið gerð- ar er björninn ekki með öllu unninn. Bókin er of stór um sig til þess að hún komist í gegnum venjulegar breskar bréfalúgur. Þess vegna fer konunglega póstþjónustan þess á leit við þá sem hafa pantað eintak og vænta þess á laugardaginn að þeir verði heimavið þangað til bú- ið er að afhenda bókina. Harry Potter of stór fyrir lúguna London. AP, AFP. ÁÆTLUN Íslendinga um hvalveiðar í vís- indaskyni fær misjöfn viðbrögð í vísinda- nefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins, að sögn for- manns íslensku sendinefndarinnar, Stefáns Ásmundssonar, en ársfundur ráðsins hefst í Berlín í dag. Áætlun um að veiða 250 hvali í vísinda- skyni á tveimur árum hefur verið kynnt fyr- ir vísindasiðanefndinni, sem skilar sinni skýrslu á ársfundinum í vikunni. Stefán segir viðbrögðin fara eftir því hvaða ríki eigi í hlut, þ.e. hvort það sé hlynnt hval- veiðum almennt eða ekki. Búist við mótmælum Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra býst við einhverjum mótmælum í Berlín, jafnt utan fundar sem inni á honum. Ekki séu t.d. forsendur fyrir því að ógilda inn- göngu Íslands í ráðið, frekar megi búast við talsverðum umræðum um vísindaáætlun Íslendinga og afstöðu vísindanefndarinnar. Að sögn Jóns Egils Egilssonar, sendi- herra Íslands í Þýskalandi, hefur verið til- kynnt um mótmæli fyrir utan samtengdar sendiráðsbyggingar Norðurlandanna í Berlín eftir að ársfundurinn hefst. Einnig er reiknað með mótmælum fyrir utan sendi- ráð Japans, sem ásamt Noregi stundar skipulagðar hvalveiðar í dag. Jón Egill tók fyrir helgi á móti þrjú þúsund teikningum þýskra grunnskólabarna sem í mótmæla- skyni við áform Íslands höfðu teiknað myndir af hvölum. Morgunblaðið/Ómar Íslendingar áætla að veiða 250 hvali í vís- indaskyni á tveimur árum. Viðbrögð misjöfn við hvalveiðum Íslendinga  Yfirlýsinga að vænta/6 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti hvatti í gær þjóðir heims til að „svara af hörku“ aðgerðum Hamas og annarra palestínskra harðlínu- samtaka, sem staðið hafa að blóðug- um árásum á Ísraela. Bush var ómyrkur í máli er hann hvatti til að slíkir öfgamenn yrðu brotnir á bak aftur til þess að friður mætti komast á fyrir botni Miðjarðarhafs. „Það fer ekki á milli mála að hinn frjálsi heimur, þeir sem kunna að meta frelsi og frið, verða að svara Hamas og morðingjunum af hörku,“ sagði forsetinn. Hann ítrekaði fyr- irheit sín um að framfylgja alþjóð- legri friðaráætlun, svonefndum Veg- vísi, sem kveður m.a. á um að Palestínumenn leysi upp öfgahópa og stofni sjálfstætt ríki fyrir 2005. „Ég er þess fullviss að við getum komið á friði. Það verður torvelt, en ég er staðráðinn í að ríkisstjórn mín muni áfram leggja sitt af mörkum til að auka friðarlíkur,“ sagði Bush enn- fremur. AP Bush ræðir við fréttamenn um Mið- austurlandadeiluna í gær. Svarað verði af hörku Bush hvetur til að- gerða gegn Hamas Kennebunkport í Maine. AFP. BÆNDUR á Héraði hafa tekið upp nýja aðferð í baráttunni við rofabörð. Ónýtar heyrúllur eru nýtt- ar þannig að þeim er blásið í rofabörð. Þannig myndast þéttur grassvörður og nýr jarðvegur. Hér má sjá félaga í Landgræðslufélagi Héraðsbúa að störfum á Sænautaseli á Jökuldalsheiði. Morgunblaðið/RAX Glímt við rofabörðin HÓPUR 248 íranskra andófs- manna sendi frá sér harðorða yfir- lýsingu í gær þar sem lögð var áhersla á rétt almennings til að gagnrýna leiðtoga landsins. Þá var í yfirlýsingunni sagt að alræðisvald væri „trúvilla“. „Almenningur á rétt á að geta fylgst nákvæmlega með því hvað ráðamenn þjóðarinnar eru að að- hafast og ráðleggja þeim eða gagn- rýna þá og á ennfremur að geta komið þeim frá völdum eða hrakið þá frá ef hann er óánægður með þá,“ sagði í yfirlýsingunni, sem var undirrituð af umbótasinnuðum, frjálslyndum blaðamönnum, menntamönnum og nokkrum klerkum. „Það er hrein trúvilla […] að ein- staklingar hafi guðlegt alræðis- vald,“ sagði ennfremur í yfirlýsing- unni, sem birt er í kjölfar þess að fimm nætur í röð hefur komið til harkalegra óeirða í Teheran þar sem skorist hefur í odda með um- bótasinnum og harðlínusinnuðum stuðningsmönnum klerkastjórnar- innar. Hafa mótmæli umbótasinn- anna einkum beinst að Ali Kham- enei, æðsta leiðtoga Írans, sem hefur alræðisvald í landinu. Meðal þeirra sem skrifuðu undir yfirlýsinguna var Hashem Aghaj- ari, umbótasinnaður andófsmaður sem var dæmdur til dauða í fyrra fyrir guðlast eftir að hann lét í ljósi efasemdir um réttmæti valda klerkastjórnarinnar. Hann bíður þess nú að dómurinn verði endur- skoðaður. Khamenei hefur kennt Banda- ríkjastjórn um að hafa hvatt til óeirðanna í Teheran. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja mótmælin gegn írönsku stjórninni „jákvæð“ og vera upphaf- ið að víðtækari frelsisbaráttu í Íran. Andófsmenn saka klerka um trúvillu Teheran, Kennebunkport í Maine. AFP. Bush lýsir stuðningi við baráttu umbótasinna í Íran HARRY Potter og Fönixreglan er fimmta bókin í flokknum um galdrastrákinn og vini hans. Alls hafa selst um 200 milljónir eintaka af bókunum sem gefnar eru út í 130 löndum og á 57 tungu- málum. Fyrirhugað er að bækurnar verði alls sjö og mun höfundurinn, breska skáldkonan J. K. Rowling, þegar hafa skrifað síðasta kaflann í síð- ustu bókinni, en geymir hann að sögn á „vísum stað“. Harry Potter-aðdáendur sem vilja lesa nýju bókina í íslenskri þýðingu verða að bíða til hausts. Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaútgáf- unni Bjarti hefur tjáð Morgunblaðinu að íslenska þýðingin verði fáanleg 1. nóvember klukkan 11.11 árdegis. Ekki fáist eintak af bókinni til að þýða fyrr en hún komi út í Bretlandi. Á íslensku í nóvember

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.