Morgunblaðið - 16.06.2003, Page 1
2003 MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
STEVE KERR ER HETJA SAN ANTONIO SPURS / C3
Þýska handknattleikssambandiðdæmdi Patrek sem kunnugt er í
sex mánaða keppnisbann en hann var
fundinn sekur um að hrækja að dóm-
ara í lokaleik sínum með Essen í
þýsku 1. deildinni í síðasta mánuði.
Bannið þýðir að Patrekur fær ekki
undirskrifuð félagaskipti frá þýska
handknattleikssambandinu fyrr en
banninu lýkur, það er 24. nóvember.
Patrekur höfðaði í kjölfarið mál
gegn þýska handknattleikssamband-
inu fyrir þýskum vinnuréttardómstóli
og sækir Andreas Thiel, lögfræðingur
og fyrrum landsliðsmarkvörður Þjóð-
verja, málið fyrir hans hönd.
„Við bíðum bara eftir því að málið
verði tekið fyrir og ég vona að það
verði einhvern næstu daga og alla
vega fyrir mánaðamótin. Það trúir því
enginn að bannið verði í þessa sex
mánuði. Þeir menn sem vinna að
þessu máli fyrir mig eru bjartsýnir og
fara fram á að bannið verði bara einn
mánuður þannig að ég verð laus eftir
nokkra daga,“ sagði Patrekur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Ég get samt vel skilið viðbrögð
forráðamanna Bidasoa. Þeir eru bún-
ir að fá leikmann og ef hann getur
ekki spilað með liðinu fyrr en í lok
nóvember þá hljóta þeir að hugsa sinn
gang,“ sagði Patrekur ennfremur.
Hvað hyggst þú gera ef allt fer á
versta veg og bannið verður látið
standa?
,,Ef Bidasoa segir upp samningn-
um og ég fer í sex mánaða bann er
ekkert annað að gera en að koma
heim og æfa með Sigga Bjarna og
Gústa Bjarna hjá Stjörnunni. Ég hef
hins vegar ekki hugsað svo langt en
þetta gæti samt alveg orðið niðurstað-
an. Þá yrði ég ekki í góðum málum en
eigum við ekki að vona að þetta fari
allt á besta veg. Ég vona að málið
komist á hreint sem fyrst þannig að
ég get farið að hugsa um framtíðina.“
Morgunblaðið/Golli
Olga Færseth skoraði eitt af mörkum Íslendinga gegn Ungverjum á Laugardalsvellinum, þar sem íslensku stúlkurnar náðu að
stjórna leiknum og vinna, 4:1. Hér sækir Olga að ungverska markinu. Sjá allt um leikinn á B4 og B5.
Bidasoa hótar að rifta
samningi við Patrek
SPÆNSKA handknattleiksliðið Bidasoa hefur gefið landsliðsmann-
inum Patreki Jóhannessyni úrslitakosti á þann veg að verði hann
ekki búinn að fá sig lausan úr keppnisbanninu í Þýskalandi fyrir
næstu mánaðamót verði samningi hans við Bidasoa rift en Patrekur
gerði í febrúar samning við félagið til tveggja ára frá 1. júlí.