Morgunblaðið - 17.06.2003, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.06.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 162. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Hafna friðargæslu Ísraelar hafna tillögum Frakka um friðargæslu | Erlent 18 Trallað á túnum Fjölbreytt tónlistardagskrá á þjóðhátíðardaginn | Fólk 61 Hraðferð í hádeginu Þrennir tónleikar á Björtum dögum í Hafnarfirði | Listir 27 SHERPINN Pemba Dorjee krefst nú rannsóknar á því hvort Sherpinn Lakpa Gyelu hafi í raun og veru slegið hraðamet hans í göngu á Everestfjall. Pemba Dorjee heldur því fram að Lakpa Gyelu hafi alls ekki klifið tind- inn á 10 klukkustundum og 56 mín- útum, þeim tíma sem opinberlega hef- ur verið viðurkenndur sem besti tíminn í göngu á tindinn. Að því er fram kemur á fréttavef BBC neitar Lakpa Gyelu hins vegar sök og segist hafa sannanir fyrir því að hann hafi í raun og veru slegið met Pemba Dorj- ee. Sherparnir náðu báðir tindi Everest í síðasta mánuði þegar 50 ár voru liðin frá því að fyrstu Everest-fararnir, Sir Edmund Hillary og Sherpinn Tenzing Norgay, náðu tindi fjallsins. Deilurnar á milli þeirra hófust er Lakpa Gyelu sló hinn 26. maí met Pemba Dorjee en hann hafði aðeins þremur dögum áður bætt fyrra met um nær fjórar klukku- stundir og klifið tindinn á 12 tímum og 45 mínútum. Pemba Dorjee heldur því fram að keppinautur hans hafi enn verið mörg hundruð metra frá tindinum er hann segist hafa slegið metið. Þá segir hann Lakpa Gyelu ekki hafa tekið myndir afreki sínu til sönnunar og krefst op- inberrar rannsóknar á málinu. Ferðamálaráðuneyti Nepals segist munu ræða við báða málsaðila áður en skorið verði úr um málið. Reuters Sherpinn Pemba Dorjee. Sherpar deila um Everest-met UMFANGSMIKLUM fíkniefnahring í Þýska- landi tókst að smygla 15 kg af hassi hingað til lands í einu lagi með ferjunni Norrænu síðast- liðið sumar og hafði í hyggju að smygla 50 kg af hassi til viðbótar nokkrum mánuðum seinna. Fimmtíu kílóa sendingin fannst hins vegar í bifreið á landamærum Spánar og Frakklands en hún var á leið frá Marokkó og átti að fara til Þýskalands í gegnum Frakkland og að lokum til Íslands. Rannsókn ytra hefur leitt þetta í ljós eftir yfirheyrslur yfir sakborningum og hefur Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögreglu- framhjá yfirvöldum í fyrra með Norrænu mun hafa falist í því að fela fíkniefnin í húsbíl sem fluttur var til landsins. Ekki er talið ólíklegt að þeir hafi ætlað að nota þá aðferð við áframhald- andi fíkniefnasmygl í stórum stíl hingað til lands. Um tíu einstaklingar hafa verið hand- teknir í þremur löndum vegna málsins, þar af þrjú þýsk burðardýr hérlendis. Af hálfu íslensku lögreglunnar er rannsókn á hennar þætti málsins lokið og hafa gögn máls- ins verið send lögfræðideild lögreglustjórans í Reykjavík til ákærumeðferðar. þjónn staðfest þessar upplýsingar. Stóra hass- sendingin átti að fara sjóleiðina til Íslands, þó ekki með Norrænu, en skipuleggjendur ytra voru stöðvaðir áður en þeim tókst að koma hassinu á skip sem fyrr segir. Rannsókn málsins hefur gengið undir heit- inu „Operation Germania“ hjá lögreglunni í Reykjavík og sitja tveir sakborningar í gæslu- varðhaldi hérlendis fyrir aðild sína að málinu og bíða dóms. Aðferðin sem smyglararnir notuðu þegar þeim tókst að koma 15 kg hasssendingunni Þýskur smyglhringur notaði Norrænu til að koma fíkniefnum til landsins Smygluðu 15 kg af hassi og tilbúnir með önnur 50 kg Morgunblaðið/Golli Gleðilega þjóðhátíð! EGYPSKRI sendinefnd mistókst í gær að fá fulltrúa herskárra Palest- ínumanna til að fallast á vopnahlé í átökum við Ísraela. Þá hétu Hamas, hin róttæku heittrúarsamtök Palest- ínumanna, því að halda árásum á Ísr- aelsmenn til streitu. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útilokaði enn fremur möguleikann á því að hægt væri að komast að samkomu- lagi sem myndi leiða til lykta upp- reisn Palestínumanna, sem varað hefur í 32 mánuði, á meðan „hömlu- lausum hryðjuverkum“ linnti ekki. „Ísraelska þjóðin mun ekki eftir- láta neitt á meðan hryðjuverk, of- beldi og hvatning til ofbeldis heldur áfram. Þar til þessu linnir erum við ekki tilbúin til að gera þær sársauka- fullu tilslakanir sem nauðsynlegar eru til að öðlast öryggi og raunveru- legan frið,“ sagði Sharon í ræðu á ísraelska þinginu í gær. Þar fór fram fyrsta umræðan um hinn svokallaða Vegvísi til friðar sem Ísraelar og Palestínumenn samþykktu á sam- eiginlegum leiðtogafundi með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Aqaba í Jórdaníu þann 4. júní sl. Sharon sagði jafnframt að á meðan „enginn Palestínumaður vill né get- ur barist gegn hryðjuverkum“ muni ísraelska þjóðin halda árásum á herskáa Palestínumenn áfram og neita að ganga til samninga. Hátt- settur ráðgjafi Yassers Arafats, leið- toga Paelstínumanna, sagði þessi ummæli Sharons „skaða“ viðkvæmt friðarferlið. Í tilkynningu sem AFP-fréttastof- unni barst frá Hamas-samtökunum í gær kemur fram að samtökin „and- mæli kröftuglega“ þeim ummælum Bush Bandaríkjaforseta sl. sunnu- dag að Hamas og öðrum palestínsk- um harðlínusamtökum skuli „svarað af hörku“. Þá segir í tilkynningunni að samtökin líti á yfirlýsingu forset- ans sem nýja árás á palestínsku þjóðina og rétt hennar til að berjast gegn landtöku Ísraelsmanna. Forsætisráðherra Palestínu- manna, Mahmoud Abbas, hélt í gær til Gaza-strandarinnar í von um að geta talið herskáa Palestínumenn á að leggja niður vopn. Vopnahlésumleitanir Egypta í Mið-Austurlöndum mistókust Jerúsalem. AP. AFP. SKÝRT hefur verið frá því í Norður-Kóreu að þar sé búið að finna upp tæki sem lækni næst- um öll mannanna mein. N-kóreska fréttastofan sagði að tækið væri í líki hrings eða armbands og væri „gimsteinn“ notaður til að breyta geislum sólarinnar í rafsegulmagnaða strauma. Var apparatið reynt á 500 sjúklingum og á nokkrum klukkustundum læknaði það 98,8% þeirra, m.a. fólk sem fengið hafði heilablóðfall og hjartaáfall. Fram hefur komið að heilbrigðiskerfið í landinu er hrunið til grunna. Nýr lífs- elexír Seoul. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.