Morgunblaðið - 21.06.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 165. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
KR til
Armeníu
Mæta Pyunik Yerevan í Meist-
aradeildinni Íþróttir 45
Nýju styttur
bæjarins
Hvernig á listaverkið á torginu
að vera? Lesbók 6
Skemmtilega
óþægileg
Hljómsveitin Mínus úr tónleika-
ferðalagi Fólk 48
YFIRLÝSING Guðmundar Árna Stefáns-
sonar, þingmanns Samfylkingarinnar, þess
efnis að hann teldi að Samfylkingin ætti að
bjóða alls staðar fram undir eigin merkjum í
næstu sveitarstjórnarkosningum hefur
mælst misjafnlega fyrir innan Reykjavíkur-
listans. Fulltrúar Framsóknarflokksins segja
að íhuga verði hvort flokkurinn eigi að halda
samstarfinu áfram. Þá hafa framsóknarmenn
og Vinstri grænir undrast yfirlýsingar Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur um að VG og
Framsóknarflokkurinn hafi brugðist við
framboði hennar í þingkosningum á ósann-
gjarnan og einkennilegan hátt.
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, segist ekki vita hve alvarlega hann
eigi að taka yfirlýsingar Guðmundar Árna en
segir að „yfirlýsingar hans og Ingibjargar
Sólrúnar [séu] ekki til þess fallnar að efla liðs-
heildina innan Reykjavíkurlistans“.
Framsókn skoðar málin
Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknar-
flokksins innan Reykjavíkurlistans, segist
alla tíð hafa verið fylgjandi Reykjavíkurlista-
samstarfinu en að Framsóknarflokkurinn
þurfi að skoða málin og mögulega að huga að
öðrum kostum. „[Þ]að blasir hins vegar við að
ef Samfylkingin ætlar í krafti stærðar sinnar
nú að bjóða fram ein og sér í næstu kosn-
ingum þá hlýtur að vera íhugunarefni fyrir
Framsóknarflokkinn hvort hann eigi yfirhöf-
uð að vera í þessu samstarfi við Samfylkingu
og Vinstri græna eða búa sig undir næstu
borgarstjórnarkosningar með öðrum hætti,
segir Alfreð.
Björn Ingi Hrafnsson, varaþingmaður
Framsóknarflokksins, ritar grein í Morgun-
blaðið í dag þar sem hann segir að svo virðist
sem Samfylkingin hafi „ákveðið að segja skil-
ið við samstarfsflokkana innan Reykjavíkur-
listans og aðeins virðist tímaspursmál hve-
nær naflastrengurinn verð[i] endanlega
slitinn“.
Reykjavíkurlisti skuldbundinn
Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylking-
arinnar í borgarstjórn, segir Reykjavíkurlist-
ann skuldbundinn til að stjórna borginni eins
og hann var kosinn til. „Guðmundur hefur
sína skoðun fyrir sig og hann getur ekki talað
fyrir sveitarstjórnarmenn á hverjum stað.
Þetta er ákvörðun flokksins á hverjum stað
hvernig hann býður fram,“ segir Stefán Jón.
Reykjavíkurlistinn
Óvissa sögð
ríkja um
áframhald
samstarfs
Reykjavíkurlistasamstarfið/10 og 29
Kringlukast
laugardag og sunnudag
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að pal-
estínska heimastjórnin þyrfti að af-
vopna liðsmenn Hamas-hreyfingar-
innar, sem hann lýsti sem „óvini
friðarins“, og að ekki nægði að
semja við hana um vopnahlé eins
og forsætisráðherra Palestínu-
manna hefur reynt.
Powell sagði þetta á blaða-
mannafundi í Jerúsalem með Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
eftir að ísraelskur ökumaður beið
bana og þrír farþegar í bíl hans
særðust í árás Hamas-manns á
Vesturbakkanum. Frá fundi
Georges W. Bush Bandaríkja-
forseta með forsætisráðherrum
Ísraela og Palestínumanna fyrir
hálfum mánuði hafa 27 Ísraelar og
40 Palestínumenn látið lífið í árás-
um herskárra palestínskra hreyf-
inga og Ísraelshers.
Powell sagði að blóðsúthelling-
arnar sýndu hversu brýnt það væri
að koma svokölluðum Vegvísi til
friðar í Mið-Austurlöndum í fram-
kvæmd. Bandaríski utanríkisráð-
herrann nefndi Hamas-hreyfinguna
sérstaklega sem „óvin friðarins“.
Powell ræddi síðar við Mahmud
Abbas, forsætisráðherra palest-
ínsku heimastjórnarinnar sem hef-
ur reynt að ná samkomulagi um
vopnahlé við Hamas. Abbas árétt-
aði að hann hygðist ekki skera upp
herör gegn Hamas og öðrum her-
skáum hreyfingum Palestínumanna
af ótta við borgarastríð.
Powell vill afvopnun Hamas
Jerúsalem. AFP, AP.
DRÖGUM að stjórnarskrársátt-
mála Evrópusambandsins (ESB),
sem svonefnd Framtíðarráðstefna
þess vann að í 16 mánuði, var
nokkuð vel tekið á leiðtogafundi
sambandsins í Grikklandi í gær.
Drögin voru í þungamiðju um-
ræðna á leiðtogafundinum, sem
fóru fram á meðan anarkistar
reyndu að gera áhlaup á fundar-
staðinn og laust saman við þétt-
skipað gæzlulið grísku lögreglunn-
ar. Fundurinn fór fram á
sumardvalarstaðnum Porto Carr-
as við Eyjahaf, skammt frá norð-
ur-grísku borginni Þessalóníku.
„Í fyrsta sinn í sögu Evrópu-
[sambandsins] sjáum við fram á að
setja því stjórnarskrá,“ sagði gest-
gjafinn Costas Simitis, forsætis-
ráðherra Grikklands. Sumir
fulltrúar á leiðtogafundinum lýstu
þó fyrirvara gegn einstökum efn-
lögsögu ríkisstjórnar og þjóðþings
okkar,“ tjáði Blair fréttamönnum.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýzkalands, sem hefur verið
í fararbroddi fyrir þeim sem vilja
ganga lengra í pólitískum samruna
í ESB, sagði að í drögunum væri
„jafnvægi milli hagsmuna stórra
sem smárra aðildarríkja“.
Trichet fær stuðning
Á fundinum fengu Frakkar því
framgengt að fulltrúar allra aðild-
arríkjanna lýstu stuðningi við að
franski seðlabankastjórinn Jean-
Claude Trichet tæki við sem aðal-
bankastjóri Seðlabanka Evrópu
(ECB). Endanleg ákvörðun um út-
nefninguna verður þó ekki tekin
fyrr en á næstu mánuðum. Trichet
var í vikunni sýknaður fyrir dómi í
París af ákæru um meðsekt í
bankamisferlismáli.
gildi árið 2005, eftir að hafa hlotið
samþykki á þjóðþingum allra að-
ildarríkjanna, auk Evrópuþings-
ins.
Meðal helztu breytinga á stjórn-
kerfi ESB sem lagðar eru til í
drögunum er stofnun embættis
forseta sambandsins sem ríkis-
stjórnir aðildarríkjanna kysu til
tveggja og hálfs árs í senn; skipun
utanríkisráðherra ESB og að
meirihlutaákvarðanir verði teknar
upp á mörgum sviðum.
„Það sem við viljum er Evrópa
þjóðríkja, ekki miðstýrt sam-
bandsríki,“ sagði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, og boð-
aði þar með að Bretar myndu ekki
gefa eftir í togstreitunni um end-
anlegt orðalag nýja sáttmálans.
„Skattamál, utanríkismál, varnar-
mál og okkar eigin brezku landa-
mæri verða áfram undir óheftri
isþáttum stjórnarskrárdraganna,
þ.á m. takmörkunum á neitunar-
valdi aðildarríkja og því að Guðs
og kristindóms væri hvergi getið í
sáttmálatextanum.
Valery Giscard d’Estaing, sem
stýrði gerð sáttmáladraganna,
kynnti þau fyrir leiðtogunum.
Hvatti hann ráðamenn aðildarríkj-
anna til að setja ekki fram kröfur
um róttækar breytingar og raska
þar með því viðkvæma jafnvægi
málamiðlana, sem drögin hefðu að
geyma.
Í drögunum er kveðið á um
stjórnskipulag Evrópusambands-
ins eftir að aðildarríkjum þess
fjölgar í 25 og jafnvel fleiri, en end-
anleg ákvörðun um tillögurnar
verður ekki tekin fyrr en á ríkja-
ráðstefnu, sem boðuð hefur verið í
október nk. Gert er ráð fyrir að
stjórnarskrársáttmálinn geti tekið
Drög að stjórnarskrá
ESB hljóta hljómgrunn
Porto Carras. AFP, AP.
MÓTMÆLENDUM lýstur saman við óeirðalögreglu
í grennd við fundarstað leiðtoga Evrópusambands-
ins í Porto Carras í Norður-Grikklandi í gær. Í miðju
sést fáni anarkista á lofti. Þúsundir tóku þátt í mót-
mælaaðgerðum í tengslum við leiðtogafundinn og
fóru þær að mestu friðsamlega fram.
EPA
Misfriðsamleg mótmæli
BÆNDUR á Nýja-Sjálandi eru
ævareiðir vegna fyrirætlana
stjórnvalda um að leggja á þá nýj-
an skatt. Segjast þeir vera að slig-
ast undir sköttum og verðhækk-
unum en þá fyrst sé mælirinn
fullur þegar skattleggja eigi vind-
inn, eða öllu heldur metangasið,
sem búfénaðurinn lætur frá sér
fara.
Nýsjálenskir vísindamenn hafa
komist að þeirri niðurstöðu, að
helmingur af öllum gróðurhúsa-
lofttegundum, sem verða til í land-
inu, komi frá kúm og kindum og
öðrum búfénaði en til stendur að
skattleggja alla mengandi starf-
semi frá og með miðju næsta ári.
Áætlað er, að skatturinn á land-
búnaðinn verði um 300 millj. kr.
Tom Lambie, talsmaður bænda,
kveðst ekki vita um nein dæmi um
skattlagningu af þessu tagi og
aðrir segja, að það séu fyrst og
fremst eldspúandi iðjuver sem
menguninni valdi. Nýsjálendingar
eru nú með um 45 milljónir fjár og
9,6 milljónir nautgripa.
Nú er mæl-
irinn fullur
Auckland. AFP.