Morgunblaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 25
„ÞETTA er listsöguleg bomba; lík-
lega hefur aldrei áður verið haldin
sýning á höggmyndum á Íslandi
sem endurspeglar á jafn hnitmið-
aðan og yfirgripsmikinn hátt þróun
vestrænnar nútímamyndlistar og
þessi sýning í Listasafninu á Ak-
ureyri.“ Svo mælir Hannes Sigurðs-
son, forstöðumaður þar á bæ, um
sýningu sem opnuð verður eftir
rétta viku; Meistarar formsins: Úr
höggmyndasögu 20. aldar.
Samtals eiga 43 listamenn verk á
sýningunni, þar af 11 Íslendingar,
og verkin eru um eitt hundrað.
„Þótt verkin séu mörg ekki stór í
sniðum eru þau skýr dæmi um
helstu sviptingar í menningu okkar
og listum síðustu hálfa aðra öld-
ina,“ segir Hannes.
Erlendu verkin eru öll nema eitt
fengin að láni hjá Ríkislistasafninu í
Berlín (Nationalgalerie Berlin) en
þar er að finna slíkt safn verka að
fáar aðrar stofnanir standast við
það samanburð, að sögn Hannesar.
„Þýska ríkislistasafnið sýnir okk-
ur mikið traust með því að lána
þessi miklu verðmæti, en verðmæti
sýningarinnar jafnast á við hrika-
legan taprekstur hjá stórum ís-
lenskum lífeyrissjóði!“ segir Hann-
es safnstjóri og tekur dæmi: „Eitt
nett verk eftir Giacometti slagar
hátt upp í andvirði yfirlýsts verð-
mætis einkasafns Péturs Arasonar
ehf. sem Reykjavíkurborg hefur
ákveðið að styrkja til næstu fimm
ára.“
Eina erlenda verkið sem ekki
kemur frá þýska Ríkislistasafninu
er fengið að láni hjá Galerie Vostell
í Berlín. Það er 160 kílóa „ferða-
taska“ Axel Lischke (f. 1956), sem
gerð er úr pólíester og inniheldur
handsprengjur, dínamít, skotvopn
og drápshnífa – „öll grunnáhöld
hryðjuverkamannsins nú á dögum“,
eins og Hannes segir. Verkið gerði
listamaðurinn laust fyrir hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin 11.
september 2001 og fyrr en nú hefur
það aldrei farið út fyrir landamæri
Þýskalands.
Góð yfirsýn
Hannes segir sögu höggmynda-
listarinnar eldri en svo að við fáum
rakið hana til upprunans, „en á
nítjándu og tuttugustu öld urðu
hraðar breytingar á viðfangsefnum
og efnistökum listamannanna og
sýningin sem nú verður sett upp í
Listasafninu á Akureyri gefur góða
yfirsýn yfir þá þróun. Jafnframt er
hún lykill að listasögu síðustu aldar
og þeim öru breytingum sem ein-
kennt hafa bæði hana og menningu
okkar allra á þeim tíma.“
Elstu listamennirnir sem hér má
sjá eftir verk – til dæmis Edgar
Degas (1834–1917), Auguste Renoir
(1841–1919) og Aristide Maillol
(1861–1944) – eru til marks um það
hvernig höggmyndalistin þróaðist
smátt og smátt frá raunsæi yfir til
hugmyndalistar, eins og Hannes
orðar það.
„Allir þrír mótuðu þeir verk sín
fyrst og fremst eftir kvenmannslík-
amanum líkt og margir forverar
þeirra, en í verkunum fór þó að
grilla í nýja hugsun; hversdagsleg
mótíf komu í stað klassískra,
þvottakona í stað gyðju, ballett-
dansmær í stað dýrlings.“
Lögðu ýmislegt til málanna
Á sýningunni er íslenskum mynd-
höggvurum jafnframt stillt upp í
samhengi við þá sem heimsbyggðin
þekkir og voru stefnumótandi, hver
á sínum tíma.
„Þetta er eins og sjá Ásgeir Sig-
urvinsson, Eið Smára og Albert
Guðmundsson í liði með Pele,
George Best, Ronaldo, Zidane,
Beckham og Maradona – svo fólk
kveiki aðeins á perunni,“ segir
Hannes Sigurðsson.
Hannes segir: „Hérna kemur í
ljós, sem oft vill gleymast, að þeir
íslensku höfðu ætíð fingurinn á
púlsi heimslistarinnar og lögðu
jafnframt ýmsilegt áhugavert til
málanna. Einar Jónsson (1874–
1954) var vel þekktur á meginland-
inu fyrir táknræn verk sín sem
mörg túlkuðu þær guðspekilegu
kenningar sem vinsælar voru á
hans yngri árum. Ásmundur
Sveinsson (1893–1982) tók fyrir
minni úr íslenskum veruleika, bók-
menntum og þjóðtrú, fyrst með
formalísku raunsæi en þróaði þau
síðar yfir í afstraksjón. Sigurjón
Ólafsson (1908–1982) vakti fyrst at-
hygli í Danmörku en fluttist svo
heim og vann að því að tengja áhrif
úr list frumbyggja við formfræði
afstraksjónarinnar.“
Hann nefnir einnig Gerði Helga-
dóttur, Jón Gunnar Árnason, Magn-
ús Pálsson, bræðurna Kristján og
Sigurð Guðmundssyni, Hrein Frið-
finnsson, Finnboga Pétursson og
Þorvald Þorsteinsson, sem er
yngsti listamaðurinn á sýningunni,
fæddur 1960.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru: Alberto Giaco-
metti, Alexander Archipenko, Al-
fred Lörcher, Aristide Maillol, Aug-
uste Renoir, Axel Lischke,
Ásmundur Sveinsson, Bogomir
Ecker, Carl Andre, Daniel Buren,
Donald Judd, Edgar Degas, Einar
Jónsson, Emy Roeder, Ernst Barl-
ach, Ewald Mataré, Finnbogi Pét-
ursson, Fritz Schwegler, Georg
Kolbe, Gerður Helgadóttir, Henri
Laurens, Henry Moore, Hreinn
Friðfinnsson, Jón Gunnar Árnason,
Karl Hartung, Karl Schmidt-
Rottluff, Käthe Kollwitz, Kristján
Guðmundsson, Magnús Pálsson,
Manolo, Marino Marini, Per Kirke-
by, Raffael Rheinsfeld, Reiner
Ruthenbeck, Renée Sintenis, Rich-
ard Long, Rosemary Trockel, Rud-
olf Belling, Sigurður Guðmunds-
son, Sigurjón Ólafsson, Sol LeWitt,
Walter De Maria og Þorvaldur Þor-
steinsson.
Þess má geta að vegna sýning-
arinnar gefur Listasafnið á Akur-
eyri út 90 síðna bók á íslensku og
ensku með upplýsingum um alla
listamennina.
Eins og Albert og Eiður
í liði með Pele og Zidane
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafnsins á Akureyri: Þetta er
listsöguleg bomba.
Verk erlendra og íslenskra listamanna verða á sýningu á höggmyndalist 20. aldar sem verður opnuð í Listasafn-
inu á Akureyri um næstu helgi. Skapti Hallgrímsson ræddi við Hannes Sigurðsson, forstöðumann safnsins.
skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
HÁTÍÐIN Við Djúpið á Ísafirði
og í Bolungarvík stendur nú yfir.
Fram koma Jónas Ingimundar-
son píanóleikari, Ólafur Kjartan
Sigurðarson barítónsöngvari,
Guðrún Birgisdóttir flautuleikari
og Pétur Jónasson gítarleikari.
Laugardagur: Félagsheim-
ilið Bolungarvík kl. 20 Hátíð-
artónleikar þar sem allir lista-
mennirnir fjórir koma fram og
leika blandaða efnisskrá.
Sunnudagur: Hamrar kl. 20
Jónas og Ólafur flytja sígildar
söngperlur. Kl. 17.30 má hlýða
á nemendur sem sóttu nám-
skeiðin.
Við Djúpið
Ash-Keramik, Lundi í Varmahlíð
kl. 14 Jonna (Jónborg Sigurð-
ardóttir) opnar sýningu á myndum
sem eru unnar í ullarþófa.
Jonna útskrifaðist úr Málunardeild
Myndlistaskólans á Akureyri vorið
1995 og hefur unnið í ýmis efni síðan.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 10–
18 til 14. júlí.
Ráin, Keflavík Listamenn Gallerís
Veru sýna landslags- og blóma-
myndir til 14. júlí.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
alltaf á föstudögum
KRINGLUNNI 8-12,
SÍMI 553 3600
WWW.OLYMPIA.IS
I I - ,
Í I
. I .I
UNDIRFATNAÐUR
20% AFSLÁTTUR
KRINGLUKAST