Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 1
Holumeist- arar krýndir Íslandsmótið í holukeppni fór fram um helgina | Íþróttir B2 Ótrúlegar uppljóstranir Umsögn um Harry Potter og Fönixregluna | Fólk 32 Þolinmæðin á þrotum Þúsundir Írana flykkjast út á götur til að mótmæla | Erlent 13 SÉRSTAKUR áfengisís er kominn á markað í Hollandi og Danmörku og kannski víðar en í síðarnefnda landinu vekur hann litla hrifningu. Jafnvel sér- stök auglýs- inganefnd áfengisiðnað- arins þar í landi hefur varað við markaðssetningu hans. Ísinn, sem kallast Freaky Ice og er 2,8% að styrkleika, er framleiddur í Hollandi en í Danmörku er sala hans ein- skorðuð við krár og veitinga- hús. Raunar vildi innflytjand- inn koma ísnum í almennar verslanir en stóru verslana- keðjurnar höfnuðu honum. Ólögleg markaðssetning Brugðust margir Danir ókvæða við þessari vöru og var hún kærð fyrir auglýsinga- nefnd áfengisiðnaðarins. Í kær- unni sagði, að í vitund flestra væri ís ekki síst tengdur börn- um en á heimasíðu Freaky Ice væri ungt fólk hvatt til að taka þátt í að selja ísinn á krám og veitingahúsum og stofna klúbba í kringum neyslu hans. Auglýsinganefndin komst að þeirri niðurstöðu, að markaðs- setning Freaky Ice væri ólög- leg. Í auglýsingum um hann væri gefið í skyn, að hann bætti jafnt líkamlega sem andlega getu neytandans og birtar með myndir af börnum og ungu fólki. Það jafngilti því að segja, að ekkert væri athugavert við áfengisneyslu barna. Óánægja með áfengisís NELSON Mandela, fyrrverandi for- seti Suður-Afríku, lýsti yfir áhuga á að heimsækja Ísland í viðræðum sem hann átti við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í Dublin á Írlandi í gær. Var honum við það tækifæri boðið til Íslands. Mandela og Ólafur Ragnar eru sérstakir stuðnings- aðilar Special Olympics, Alþjóða- leika þroskaheftra og seinfærra, sem standa nú yfir í borginni. „Við áttum mjög ánægjulegan og efnisríkan fund, þar sem margt bar á góma og ræddum meðal annars um samskipti Íslands og Suður- Afríku og hvernig hægt væri að styrkja þau á næstu árum, meðal annars með því að við Íslendingar miðluðum af reynslu okkar á ýmsum sviðum. Í þeim samræðum kom fram verulegur áhugi hans á því að heim- sækja Ísland og kynna sér nánar hvernig okkur hefði tekist að vinna okkur frá því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu í það að búa við hvað bestan efnahag þjóða heims,“ segir Ólafur Ragnar. Einn fremsti mannréttinda- baráttumaður síðustu aldar Mandela og Ólafur Ragnar ræddu saman í röska hálfa klukkustund og segir Ólafur að það hafi lýst lifandi áhuga Mandela á landi og þjóð að hann skyldi óska eftir þessum fundi, en þetta var eini fundurinn sem hann átti. „Við munum vera í sam- bandi á næstu vikum og mánuðum og við munum sjá hvernig við getum spunnið þennan þráð áfram,“ segir hann og bendir á að engar tímasetn- ingar hafi komið til tals. Mandela sé bæði aldraður og önnum kafinn maður en sé engu að síður tilbúinn að leggja land undir fót og koma til Íslands. Ólafur Ragnar telur að það væri mikið fagnaðarefni fyrir Ís- lendinga að fá hann í heimsókn. Félagsmál, réttindamál og heil- brigðismál var meðal þess sem bar á góma á fundi þeirra og var Mandela tíðrætt um þann mikla vanda sem Afríkubúar eiga við að etja á sviði heilbrigðismála og útbreiðslu sjúk- dóma og þá erfiðleika sem samspil fátæktar og sjúkdóma skapar í þeirra heimalöndum, ásamt hern- aðarátökum og styrjöldum í sumum hlutum Afríku. Að sögn Ólafs Ragn- ars telur Mandela að sú arfleifð mannréttinda og félagslegra rétt- inda og heilbrigðiskerfi, sem nor- rænu ríkin hafa skilað þjóðum heims, ættu að vera Afríkulönd- unum fyrirmynd. Ísland væri lítið land, sem byggi við harðan kost og það væri merkilegt hvernig svona land, sem áður fyrr hefði verið fá- tækt, hefði náð þetta miklum ár- angri. Ólafur Ragnar og Mandela hafa ekki áður hist. „Það var vissulega merkileg reynsla að fá tækifæri til að ræða við hann. Nelson Mandela er ásamt Mahatma Gandhi og Mart- in Luther King fremsti mannrétt- indabaráttumaður tuttugustu ald- arinnar, það nafn sem ber einna hæst í baráttunni fyrir mannrétt- indum og gegn ólögum, órétti og harðræði sem byggt er á rétt- indaleysi fólks. Það var líka ánægju- legt að skynja að þótt hann sé 85 ára senn þá er hann ennþá kraftmikill og fullur áhuga og baráttuþreks og telur margt óunnið,“ segir hann og bætir við að það hafi einmitt verið í þeim anda sem samræður þeirra voru um samskipti Íslands og Suður- Afríku og vanda Afríku almennt, að hann telji sig enn geta orðið að liði og sé á engan hátt sestur í helgan stein, þótt hann hafi formlega látið af embætti. Ólafur Ragnar Grímsson og Nelson Mandela áttu fund í Dublin Mandela vill koma til Íslands Ljósmynd/Stefán Lárus Stefánsson Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, heilsar Ólafi Ragnari Grímssyni forseta og Dorrit Moussaieff. HINN SVOKALLAÐI kvartett; Bandaríkin, Evrópusambandið (ESB), Rússland og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ), gagnrýndu í gær aðferðir Ísraela í baráttunni við palestínska harðlínumenn. Gagnrýnin kom fram á auka- fundi kvartettsins á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) sem haldin er í Jórdaníu. „Kvartettinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna að- gerða Ísraelshers sem leiða til þess að fjöldi saklausra Palestínumanna og annarra borgara lætur lífið,“ sagði í yfirlýsingu kvartettsins sem Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri SÞ, las upp á blaðamannafundi. „Slíkar aðgerðir auka ekki öryggi Ísraela en grafa undan trausti og horfum á samvinnu.“ Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, tók fram á fundinum að hann harmaði sérstaklega morð Ísraelsmanna á Hamas- liðanum, Abdullah Qawasmeh, á laugardagskvöld. Ísraelsstjórn vísaði gagnrýninni á bug og sakaði kvartettinn um hræsni. „Við höfnum þessari gagnrýni vegna þess að kvartettinn, þá sérstaklega Evrópuþjóðirnar, ættu að vita að hryðjuverk valda líka dauða saklausra Ísraela,“ sagði ísraelskur embættismaður í viðtali við AFP. Í kjölfar morðsins á Qawasmeh á laugardag skutu ísraelskir hermenn fjóra menn til bana á Gaza-ströndinni seint í gærkvöldi og særðu sjö. Skutu þeir á fólkið af skriðdrekum. / 12 Kvartettinn gagn- rýnir Ísraelsstjórn Colin Powell Jerúsalem. Shuneh. AFP. BANDARÍSKUR hermaður lést og annar slasaðist þegar handsprengju var varpað að bílalest í Khan Azad, rétt suður af Bagdad í gær. Þannig hafa 17 manns nú fallið í bylgju árása á bandaríska hermenn í Írak. Olíuflutningur frá Írak hófst að nýju í gær en hann hefur legið niðri frá því herir bandamanna réðust á landið í apríl. Útflutningurinn mun veita fjármagni til Íraks sem er mik- ilvægt fyrir enduruppbyggingu landsins eftir stríðið. Svo virðist sem um skemmdar- verk hafi verið að ræða er gasleiðsla sprakk í loft upp um 150 km norð- vestur af Bagdad í gær. Talið er að sömu menn hafi verið að verki nú og þegar önnur gasleiðsla var sprengd upp fyrir 10 dögum. Yfirmaður stærstu olíuhreinsunarstöðvar borg- arinnar sagði sprenginguna koma til með að hafa mikil áhrif á rafmagns- framleiðslu í stærsta orkuveri Bagd- ad en hún er þegar mjög óstöðug. „Þetta mun hafa bein áhrif á raf- magnsframleiðslu. Fólk býr nú þeg- ar í helvíti og [ástandið] á aðeins eftir að versna,“ sagði hann. Fórst Saddam í sprengjuárás? Bandarískir þingmenn og aðrir embættismenn í Bandaríkjunum voru í gær bjartsýnir á, að Saddam Hussein, fyrrum Íraksleiðtogi, væri allur. Að því er fram kemur á frétta- vef The New York Times er talið hugsanlegt að Saddam og elsti sonur hans, Uday, hafi verið farþegar í bílalest sem bandarískt herlið gerði flugskeytaárás á sl. miðvikudag. Bandarískir sérfræðingar gera nú DNA-próf á líkamsleifum þeirra sem fórust til að skera úr um þetta. Bandarískur her- maður felldur Bagdad. Washington. AFP. STOFNAÐ 1913 167. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.