Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MANDELA HINGAÐ?
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hitti í gær Nelson Mand-
ela, fyrrverandi forseta Suður-
Afríku, í Dublin. Að sögn Ólafs
Ragnars lýsti Mandela miklum
áhuga á því að heimsækja Ísland.
Kannað verður hvenær af heimsókn-
inni getur orðið.
Kvartettinn fordæmir Ísrael
Svokallaður kvartett; Bandaríkin,
ESB, Rússland og Sameinuðu þjóð-
irnar, gagnrýndu Ísraela harkalega
fyrir að ráðast gegn palestínskum
harðlínumönnum með þeim afleið-
ingum að saklaust fólk léti lífið. Ísr-
aelsstjórn brást illa við gagnrýninni
og sakaði kvartettinn um yfirdreps-
skap. Ísraelar myrtu í gær hátt-
settan liðsmann Hamas og palest-
ínska konu.
ESB vill jafnrétti milli álfa
Leiðtogar ESB lýstu því yfir í gær
að þeir vilji styrkja og treysta sam-
skipti sambandsins við Bandaríkin.
Þá vilja þeir leggja áherslu á að sam-
skiptin verði á jafnréttisgrundvelli.
Þetta kom fram á fundi leiðtoga
sambandsins í Grikklandi um
helgina.
Fundað um varnarmál
Í dag kl. 9 hefst fundur samninga-
nefnda Íslands og Bandaríkjanna
um framkvæmd tvíhliða varn-
arsamnings ríkjanna. Fulltrúar frá
tveimur ráðuneytum og Hvíta hús-
inu koma til landsins vegna fund-
arins. Fulltrúar forsætis- og utan-
ríkisráðuneytanna sitja fundinn
fyrir hönd Íslands.
Nýr biskup vígður
Séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson
var í gær vígður til embættis vígslu-
biskups. Athöfnin fór fram á Hólum
í Hjaltadal að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Sr. Karl Sigurbjörnsson,
biskup, sá um vígsluna.
Heimsmeistarar í dansi
Karen Björgvinsdóttir og Adam
Reeve urðu á laugardaginn heims-
meistarar í samkvæmisdönsum. Þau
dönsuðu fimm suður-ameríska
dansa og fimm „standarda“. Keppn-
in var haldin í Tókýó.
2003 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
INDRIÐI VILL MÆTA NORÐMÖNNUM / B9
Sharpe kom til liðs við Grindvík-inga í vor og er án efa fræg-
asti knattspyrnumaður sem hefur
spilað með íslensku liði. Hann lék
um árabil með Manchester United
og komst ungur í enska landsliðið
þar sem honum var spáð miklum
frama, en landsleikirnir þar urðu
þó aðeins átta. Hann lék fjóra
fyrstu leiki Grindvíkinga í úrvals-
deildinni en tognaði í læri í bik-
arleik þeirra gegn 23-ára liði
Keflavíkur.
„Það kom í ljós að meiðslin voru
verri en útlit var fyrir í byrjun.
Ljóst var að hann yrði ekki með
næstu 4–6 vikurnar og síðan yrði
hann 2–3 vikur að komast í æfingu
á nýjan leik. Hann tók sjálfur þá
ákvörðun að fara heim þegar þessi
staða var komin upp og það er
mikil eftirsjá að honum úr okkar
hópi. Hann stóð undir mínum
væntingum, við vissum að það tæki
hann tíma að komast í góða æfingu
og hann átti misjafna leiki eins og
liðið í heild en hann átti fína spretti
og hefði örugglega nýst okkur bet-
ur,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Grindvíkinga, við Morgun-
blaðið í gær.
Hann sagði að ýmis mál væru í
skoðun varðandi leikmannahópinn.
Færeyjar væru álitlegur kostur því
leikmenn þaðan teldust áhugamenn
og gætu komið strax en bíða þyrfti
eftir flestum öðrum til 15. júlí þeg-
ar skilgreindum atvinnumönnum
verður á ný heimilt að ganga til
liðs við íslensk félög.
Grindvíkingar hafa ítrekað reynt
að fá Jákup á Borg frá B36 í sínar
raðir. Hann er 23 ára miðjumaður
með 28 landsleiki að baki og spilaði
vel á hægri vængnum gegn Íslandi
á dögunum. Elttör leikur með KÍ í
Klakksvík og er einn efnilegasti
leikmaður Færeyja. Hann er tví-
tugur sóknarmaður með 8 lands-
leiki að baki en hann kom inn á
sem varamaður gegn Íslandi og
var mjög ógnandi. Elttör var rétt
orðinn þjóðhetja í Færeyjum síð-
asta haust þegar hann átti stang-
arskot gegn Þjóðverjum í útileikn-
um gegn þeim í Evrópukeppninni
en þar var hann hársbreidd frá því
að jafna, 2:2, í lok leiksins.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Bjarki Gunnlaugsson, KR, og Sverrir Sverrisson, Fylki kljást um boltann í viðureign liðanna á Árbæjarvelli í gærkvöldið. Sverrir og
félagar fögnuðu sigri, 2:1, og eru þeir komnir í efsta sæti deildarinnar með tólf stig en KR er í þriðja sæti, hefur 10 stig.
Grindavík reynir
að fá Færeyinga
ENSKI knattspyrnumaðurinn Lee Sharpe er hættur hjá Grindvík-
ingum og heldur alfarinn til síns heima í dag. Hann á við meiðsli að
stríða og ljóst að hann yrði frá keppni næstu 6–8 vikurnar af þeim
sökum. Grindvíkingar eru þegar farnir að leita að liðsstyrk í staðinn
og hafa á ný beint sjónum sínum til Færeyja. Þar eru landsliðs-
mennirnir Jákup á Borg og Hjalgrím Elttör efstir á óskalistanum.
FRAKKLAND, Kólumbía og Ka-
merún eru komin í undanúrslit Álfu-
keppninnar í knattspyrnu sem nú
stendur yfir í Frakklandi. Frakkar
voru komnir áfram áður en þeir
unnu stórsigur á Ný-Sjálendingum,
5:0, í síðustu umferð A-riðilsins í
gærkvöld. Kamerúnbúar fetuðu í
fótspor þeirra á laugardaginn þegar
þeir unnu Tyrki, 1:0, með marki sem
Geremi skoraði úr vítaspyrnu á loka-
mínútunni. Þeir fylgdu þar með eftir
góðum sigri á Brasilíumönnum, 1:0,
og eru komnir áfram, sama hvernig
fer hjá þeim gegn Bandaríkjamönn-
um í kvöld þegar lokaleikir B-riðils
fara fram. Brasilía mætir þá Tyrk-
landi í hreinum úrslitaleik um annað
sæti riðilsins og þar nægir Tyrkjum
jafntefli. Kólumbía vann Japan, 1:0, í
gær en þar hefði Japönum nægt
jafntefli til að fara áfram.
Frakkar og
Kamerúnar
með fullt
hús stiga
Úrslit... /B10
Yf ir l i t
Í dag
Viðskipti 11 Staksteinar 28
Erlent 12/13 Víkverji 28
Listir 14/16 Kirkjustarf 29
Umræðan 17 Þjónusta 29
Forystugrein 18 Fólk 30/33
Minningar 20/23 Bíó 30/33
Bréf 26/27 Ljósvakar 34
Dagbók 28/29 Veður 35
* * *
UM HELGINA hélt Þríburafélagið formlega
upp á tíu ára afmæli sitt með sumarferð á Snæ-
fellsnes. Í félaginu eru nú fjörutíu og tvær fjöl-
skyldur og um helmingur þeirra ýmist tjaldaði
eða gisti í svefnpokaplássum að Langaholti í
Staðarsveit í sunnanverðum Snæfellsbæ. Að
sögn Guðbjargar Gunnarsdóttur, sem verið hef-
ur formaður frá því félagið var stofnað 3. maí
árið 1993, eru svona sumarferðir fastur liður í
starfsemi félagsins. Þessi var þó öllu veglegri
en vanalega því um miðjan dag var mikið og
stórt kaffihlaðborð með sérstakri afmælistertu
frá Jóa Fel. auk meðlætis sem hver og ein fjöl-
skylda lagði til á hlaðborðið. Um kvöldið átti
síðan að grilla.
Félagið var upphaflega stofnað í kringum sex
eða sjö þríburaforeldra sem höfðu haft sam-
band frá því þeir eignuðust sína þríbura. Til-
gangur félagsins var að veita verðandi þríbura-
foreldrum stuðning og ráð. Starfsemin byggist
á reglulegum fundum yfir vetrartímann og
tvisvar á ári er hist með börnin. Annars vegar á
föstudaginn langa og hins vegar í sumarferð
einhvers staðar utan Reykjavíkur. Þríburafor-
eldrar hafa ýmsu að deila öðru en góðum ráð-
um og innan félagsins gengur fatnaður meðal
annars á milli fjölskyldna. Félagslífið er líka
blómlegt meðal þríburaforeldranna því þeir
hittast árlega á haustfagnaði, án barnanna, og
stefna nú í haust á utanlandsferð saman líkt og
þeir gerðu árið sem þeir fögnuðu fimm ára af-
mæli félagsins.
Mikilvægast er að týna
ekki einstaklingnum
Þegar fréttaritari spurði mæðurnar að því
hvað væri erfiðast við að eiga þríbura voru þær
sammála um að stærsta áskorunin fælist í því
að týna ekki einstaklingnum innan þriggja
barna hóps. Hins vegar sögðu þær svo margt
vera skemmtilegt við þetta foreldrahlutverk að
erfitt væri að nefna eitthvað eitt, þó kannski
helst hversu gaman væri að fylgjast með þrem-
ur jafngömlum, en ólíkum einstaklingum þrosk-
ast, hver á sinn mismunandi hátt.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
„Tókstu ekki þrjár?“ spurði einn af þríburunum þegar mynd var smellt af hópnum á tíu ára afmælishátíðinni undir Jökli.
Þríburafélagið í afmælisferð
Hellnum. Morgunblaðið.
VIÐ fyrstu sýn virðist ókunnugum
sem stæðilegar kannabisplöntur
skreyti Flugstöð Leifs Eiríkssonar
en slíkt þætti víðast hvar undarleg
skreyting á alþjóðaflugvelli. Svo er
þó alls ekki því hér er um að ræða
plastplöntur, eftirlíkingu af jap-
önskum hlyn og hafa plönturnar
breitt úr sér í flugstöðinni í næst-
um fjögur ár, samkvæmt upplýs-
ingum frá Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar hf.
Þegar ljósmyndari á vegum
Morgunblaðsins tók mynd af plönt-
unum í gær vatt erlendur ferða-
maður sér að honum og lýsti
hneykslun sinni á því að kannabis-
plöntur væru hafðar í flugstöðinni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa ferðamenn átt það til
að klippa blöð af plöntunum, vænt-
anlega til að nota sem minjagripi.
Að sögn Hrannar Ingólfsdóttur,
forstöðumanns markaðssviðs
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, var
leitað álits embættis sýslumanns-
ins á Keflavíkurflugvelli eftir að
plönturnar voru fyrst settar upp og
taldi yfirvaldið þær ekki vitund lík-
ar kannabisplöntum. Nokkrir
blaðamenn hafi í gegnum tíðina
forvitnast um plönturnar og þær
ratað í fréttir fyrir nokkrum árum.
Aðrir hafi ekki haft samband við
stjórnendur flugstöðvarinnar
vegna málsins. Þá viti hún ekki til
þess að ferðamenn hafi klippt sýn-
ishorn af plöntunum til að taka með
sér heim.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Það hefur enginn gróðursett kannabisplöntur í Leifsstöð heldur er
þetta eftirlíking af japönskum hlyn sem þar er að finna.
Hlynur en ekki
kannabisplanta
Kannabisplanta, ekki úr plasti.
NÆRRI 100 verk eru í gangi fyrir
Vegagerðina eða eru fyrirhuguð á
árinu. Frá áramótum hefur verið
skrifað undir 49 samninga við verk-
taka, 21 verkefni er fyrirhugað, 16
eru á samningaborðinu að loknu út-
boði og níu útboð hafa verið auglýst
þar sem tilboð verða opnuð fljótlega.
Alls gerir þetta 95 verk af ýmsu tagi,
allt frá loftmyndatöku eða smíði stál-
bita fyrir fáeinar milljónir króna til
jarðgangagerðar upp á nokkra millj-
arða.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar
aðstoðarvegamálastjóra er þessi
fjöldi verka svipaður og verið hefur
undanfarin ár þar sem árlega hafi
farið fram 60–100 útboð. Verk nú séu
þó ívíð fleiri sökum viðbótarfjár-
magns stjórnvalda í vegagerð upp á
þrjá milljarða króna. Talsvert verði
framkvæmt á þessu ári fyrir þá upp-
hæð.
Næg verkefni ættu því að vera fyr-
ir jarðvinnuverktaka og segir Gunnar
að þátttaka í útboðum sé yfirleitt góð.
Lítið sé um nýja verktaka, flest séu
nöfnin þekkt. Komið hafi á óvart,
miðað við fjölda verka, hve tilboðin
hafi almennt verið lág, allt niður í 50%
af kostnaðaráætlun. Hætt sé við því
að tilboðum fækki og þau hækki um
leið, þegar verkefnum fari fjölgandi.
„Okkar tilfinning er sú að jarð-
vinnuverktakar hafi vel undan um
þessar mundir en í jarðgangaverk-
efnum hafa tilboðin verið um og yfir
kostnaðaráætlanir, bæði í Héðins-
fjarðar- og Fáskrúðsfjarðargöng-
um,“ segir Gunnar.
Ekki líður sú vika hjá Vegagerð-
inni um þessar mundir að tilboð séu
ekki opnuð og á meðfylgjandi töflu
getur að líta helstu niðurstöður nokk-
urra nýlegra útboða í vegafram-
kvæmdir. Hægt er að fylgjast með
framvindu útboða á vefsíðu Vega-
gerðarinnar.
Nærri 100 verk
fyrir Vega-
gerðina á árinu
!
" #
$%%
& !
&
'
& #
() !* !
)
+,
- '
.!
&
$%
& !
#
/ 0
1 !
2 3
1 !
45
!
& # 6
1 !
5
7'!
#'
1 !
7'!
/ 1'
-0*2 8
9 *
'! :
#0 /
4 *!
$$;
:
,+;,:
<;,:
=;:
,;%:
,;=:
! 2!<%
!!<%
!!<%
!8!<=
!!<=
!!<=
%
=
%
KALLA þurfti til slökkvilið
þegar glóðarsteiking í heima-
húsi í Keflavík fór úr böndun-
um um fimmleytið í gær.
Kokknum tókst að koma eld-
heitri steikinni út úr húsi og
þannig afstýra frekara tjóni.
Engan sakaði en reykræsa
þurfti íbúðina sem stendur við
Hringbraut. Minniháttar
skemmdir urðu af völdum
reyks og sóts.
Glóðar-
steiking fór
úr böndum