Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 16
16 C MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Kleppsvegur - Við Sæviðar- sund Björt 4ra herb. íbúð í mjög góðu ástandi á 1. hæð í góðu fjölbýli. Suðv. svalir og sérlega stór og góð baklóð. Verð 13.4 millj. Póstnr. 104 2ja - 3ja. herbergja Tjarnargata - Miðbær Mjög skemmtileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á þessum vinsæla stað í miðbæ Reykjavíkur. Verð 11,9 millj. Póstnr. 101 Njálsgata - Einstaklingsíbúð Vel skipulögð einstaklingsíbúð á þessum góða stað, eldhúskrókur og baðherbergi. Verð 4,5 millj. Póstnr. 101 Bergstaðastræti - Nýtt Til sölu 3ja herb.- Íbúðin er á besta stað í miðbæ Rvíkur. Íbúðin er afhent fullbúin með vönduðum innréttingum og flísum á baði, en án gólfefna að öðru leyti. Lyftuhús. Húsið er álklætt að utan að hluta og sam- eign er frágengin. Möguleiki að fá lán frá byggingaraðila á eftir húsbréfum. Póstnr. 101 Skeljagrandi - 2ja herb. Góð 2ja herbergja íbúð ásamt stæði í bíla- geymslu. Verð 9.9millj. Póstnr. 107 Asparfell - Bílskúr Góð 3ja herb. íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi, ásamt bílskúr. Mjög mikið og gott útsýni, suðvestursvalir. Verð 11,7 millj. Póstnr. 111 Sólheimar - Sérinngangur Vor- um að fá í sölu á þessum vinsæla stað, 3ja herb. íbúð á jarðhæð, gott sameigin- legt þvottahús, suðursólverönd og fallegur garður. Verð 11,2 millj. Póstnr. 104 Laufbrekka - Sérinngangur Góð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð. Góðar innréttingar og gólfefni. Verð 10,9 millj. Póstnr. 200 Sumarbústaðir Sumarbústaður - Biskups- tungur Um er að ræða ca 46,2 fm sumarhús með 13 fm svefnlofti. Húsið er með tveimur svefnherbergjum, snyrtingu, holi, eldhúsi, stofu og svefnlofti. Bústað- urinn stendur á hálfum hektara, eignar- land á afgirtu svæði með trjám. Stað- setning er í landi Drumboddsstaða í Bisk- upstungum rétt við Einholt, vegalengd frá Reykjavík er ca 100 km. Verð 4,9 millj. Einbýli, parhús og raðhús Ásgarður - Bílskúr Komið er á sölu rúmgott ca 138 fm raðhús á tveimur hæðum, tvennar svalir. Búið er að taka allt húsið í gegn að utan. Stutt í alla þjónustu og skóla. Verð 16,9 millj. Póstnr. 108 Logafold - Einbýli Komið er á sölu ca 237 fm einbýlishús á tveimur hæðum, ásamt tvöföldum bílskúr. 5 herb. Parket á allri íbúðinni, stór hellulögð verönd með heitum potti. Stutt í alla þjónustu og skóla. Verð 25,9 millj. Póstnr. 112 Seljabraut Vorum að fá á sölu raðhús ásamt bílageymslu. Hægt er að hafa sér- íbúð í kjallara. Steniklætt hús. Gott hús. Hagstæð kaup. Verð 17,3 millj. Póstnr. 109 Selásbraut - Bílskúr Komin er á sölu 2ja hæða stórglæsilegt endaraðhús 212,5 fm sem er með ítölsku yfirbragði. Þessi eign er fyrir fagurkera. Allar innrétt- ingar eru sérpantaðar. Góður garðskáli. Láttu þessa eign ekki frá þér fara. Póstnr. 110 Starengi - Bílskúr Vorum að fá í sölu fallegt raðhús með fallegum grónum suðurgarði. Húsið er á 1. hæð og með innbyggðum bílskúr og stóru geymslurisi. Stutt í alla þjónustu. Verð 19,4 millj. Póstnr. 109 Miklabraut Komin er á sölu skemmti- leg sérhæð í þríbýlishúsi ásamt aukaher- bergi í kjallara. Allar endurbætur innandyra hafa verið gerðar sl. 2 ár. Húsið að utan og þak í góðu standi. Póstnr. 105 4ra - 6 herbergja íbúðir Hvassaleiti - 3ja-4ra herb. Vel staðsett, rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Verð 12,5 millj. Póstnr. 103 Ljósheimar - 4ra herb. Rúmgóð og skemmtileg 4ra herb. íbúð í álklæddu fjölbýlishúsi með lyftu. Verð 13,3 millj. Póstnr. 104 Naustabryggja Komin er á sölu „penthouse“ íbúð ca 191 fm, 6 herbergja á tveimur hæðum. Tvennar svalir. Stæði í bílageymslu. Hnotuparket á allri íbúðinni. Póstnr. 110 Arahólar - Lyfta Komin er á sölu 4ra herb. íbúð á fyrstu hæð, með miklu út- sýni. Húsið og sameign í góðu ástandi. Verð 13,2 millj. Póstnr. 111 Kristnibraut - Nýtt - Lyftu- hús Ný 4ra herb. íbúð á þessum frá- bæra stað, verður afhent í júní 2003, möguleiki á bílskúr. Póstnr. 113 Suðurhvammur - Bílskúr Komin er á sölu stórglæsileg 6 herb. íbúð á tveimur hæðum ásamt 36 fm bílskúr. Glæsilegt útsýni. Íbúðin er mjög vönduð í alla staði. Verð 19,9 millj. Póstnr. 220 Naustabryggja 12-18-20-22 - NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“- íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og í þvottahúsi, þar verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innrétting- um. „Penthouse“- íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bílageymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd. Afhending Naustabryggju 12-18 í júlí 2003 og Naustabryggju 20-22 í mars 2003. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppl. hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110. Nýkomnar á sölu stórglæsilegar íbúðir, 3ja-4ra herb., 96,1-119,2 fm. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og í þvottahúsi, þar verða flísar. Í öllum íbúðum verður sérþvottahús og síma- og tölvutengi í öllum herb. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá Brúnási. Hægt er að kaupa bílskúr. Sérinngangur verður í hverja íbúð. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunn- ars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Afhending í júní 2003. Póstnr. 113 Kristnibraut 77-79 NÝTT - Lyftuhús - Grafarholti Höfum hafið sölu á vönduðum og rúmgóðum 3ja og 4ra herb. íbúð- um í 14 hæða álklæddu lyftuhúsi. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetn- ing. Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum. Rjúpnasalir 14 – Glæsilegt álklætt lyftuhús Vantar eignir fyrir kaupendur. Mikil sala. Seljendur hafi samband við sölumenn okkar. WWW.FJARFEST.IS FAX 562 4249 BÚMENN AUGLÝSA ÍBÚÐIR Réttur til kaupa miðast við 50 ára og eldribumenn@bumenn.is Blásalir í Kópavogi Til endurúthlutunar er nýleg 4ra-5 herb. íbúð, um 123 fm í 10 hæða fjölbýlishúsi. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara og getur verið til afhendingar fljótlega. Lindasíða á Akureyri Til sölu er búseturéttur í 3ja herb. raðhúsaíbúð við Lindasíðu á Akureyri. Íbúðin verður um 94 fm. Gert ráð fyrir að íbúðin verði til afhendingar um miðjan desember 2003. Prestastígur Grafarholti Eigum búseturétt í nýlegri 95 fm, 3ja herbergja íbúð í fjögurra hæða lyftuhúsi. Íbúðin til endurúthlutunar fljótlega og fylgir stæði í bílakjallara. Garður í Gerðahreppi Til sölu er búseturéttur í 3ja herb. raðhúsaíbúð við Kríuland í Garði. Íbúðin verður um 90 fm ásamt bílskúr. Íbúðin gæti verið til afhendingar í júlí 2003. Grænlandsleið í Grafarholti Til sölu eru íbúðir við Grænlandsleið 29-43 í Grafarholti. Um er að ræða 3ja herb. íbúðir, rúmlega 90 fm. Íbúðirnar eru í átta tvíbýlishúsum og fylgir stæði í bílageymslu öllum íbúðunum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með miklu útsýni til norðurs og vesturs. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar verða til afhendingar í janúar 2004. Mosfellsbær - Fasteignamiðlunin Berg er nú með í sölu húseignina Arnarfell í Mosfellsbæ. Þetta er steinhús, sem er alls 292 ferm. að stærð. Húsið er á tveimur hæðum og með tvöföldum bílskúr. „Þetta glæsilega hús stendur á einni af betri lóðum í Mosfellsbæ með gríðarmiklu útsýni yfir bæinn, en aðkoman að því er frá Reykja- lundarvegi og er mjög falleg,“ sagði Hannes Ó. Sampsted hjá Bergi. „Aðalinngangur hússins er að vestanverðu. Komið er inn í litla forstofu og úr henni er komið inn í forstofuhol. Á vinstri hönd er fata- herbergi ásamt gestasalerni og rúmgóðu húsbóndaherbergi. Á hægri hönd úr holi er gengið inn í stóra stofu með góðu útsýni. Úr stofu inn í borðstofu er hurð með frönskum gluggum en einnig er hægt að fara úr holi inn í borð- stofu. Inn af borðstofu er gott eld- hús með L-laga viðarinnréttingu. Úr holi er stigi upp á aðra hæð. Þegar komið er upp er gott sjón- varpshol ásamt tveimur barnaher- bergjum og er annað að hluta und- ir súð. Baðherbergið er með innréttingu og baðkari. Inn af sjón- varpsholi er rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og er útgengt út á svalir. Á fyrstu hæð er tengibygging með góðri forstofu. Þar inn af eru tvö rúmgóð svefnherbergi ásamt baðherbergi með sturtu, búrher- bergi og þvottahús. Innangengt er úr þvottahúsi í tvöfaldan 50 ferm. bílskúr með góðu geymsluherbergi. Úr forstofu er gengið út á timb- urverönd með góðri skjólgirðingu í suður. Á veröndinni er heitur pott- ur. Þetta er sérlega vel staðsett eign með miklu útsýni. Ásett verð er 45 millj. kr.“ Þetta er steinhús, alls 292 ferm. að stærð. Húsið er á tveimur hæðum og með tvöföldum bílskúr. Ásett verð er 45 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Bergi. Arnarfell

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.