Morgunblaðið - 23.06.2003, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 2003 C 27Fasteignir
Keflavíkurveg fyrir ofan kirkju-
garðinn.
En það kann vel að vera, að
þungamiðja Hafnarfjarðar sé svo-
lítið að færast til með uppbygging-
unni fyrir ofan Reykjanesbraut.
Þessi þróun kann að segja enn
meira til sín með næsta áfanga
Valla, en þar á eftir að rísa mikil
byggð til viðbótar, þar sem gert er
ráð fyrir skólabyggingum og hús-
um fyrir verzlanir og þjónustu.“
Þorbjörn Helgi kveðst álíta, að
það séu mikið Hafnfirðingar, sem
sýni nýju byggðinni á Völlum
áhuga. „Það er þó alls ekki bundið
við Hafnfirðinga,“ segir hann. „Í
þessum hópi er vissulega fólk ann-
ars staðar að af höfuðborgarsvæð-
inu og líka fólk utan af lands-
byggðinni, sem er að flytja suður
eins og kallað er.
Þetta fólk velur Hafnarfjörð
ekki að ástæðulausu. Bærinn er
mjög fallegur, með höfn og miðbæ.
Þetta er því bær með sál og mörgu
fólki utan af landi finnst hann lík-
ur því umhverfi, sem það er vant.“
Vaxandi hverfi
„Þetta er einungis fyrsta áfangi
Valla, en hér á að rísa mikil byggð
til viðbótar,“ heldur Þorbjörn
Helgi áfram. „Annar áfangi verður
mun stærri en fyrsti áfanginn og
hefur þegar verið boðinn út, en nú
er verið að úthluta þar lóðum. Í
öðrum áfanga er gert ráð fyrir um
500 íbúðum, þar af 300 í einbýlis-
og raðhúsum. Til viðbótar koma
einnig fjölbýlishús. Þriðji áfangi
Valla er svo í deiliskipulagi, sem
lokið verður við í haust og þar er
gert ráð fyrir fjölbýlishúsum, sem
verða allt upp í 9 hæðir.“
„Ég geri mér vonir um, að
Vallahverfið gefi byggðinni í Ás-
landi ekkert eftir og að það muni
byggjast upp með álíka hraða,“
segir Þorbjörn Helgi að lokum.
„Vallahverfið er byggt á hrauni,
sem er mjög gott byggingarland.
En það er reynt að halda í hraunið
eins og frekast er unnt. Umhverfi
og umgjörð Vallahverfis mun því
hafa yfir sér ósvikið hafnfirzkt yf-
irbragð. Það getur hver og einn
sannfærzt um, sem leggur þangað
leið sína núna í gróandanum.“
Ásgeir Úlfarsson, framkvæmdastjóri hjá byggingafyrirtækinu Ásgeir og Björn
ehf., og Þorbjörn Helgi Þórðarson hjá fasteignasölunni Hraunhamri. Í baksýn er
fjölbýlishúsið Burknavellir 3 í smíðum. Við Burknavelli 3 eru Ásgeir og Björn ehf. að byggja 15 íbúðir. Þetta eru vel skipulagðar 3ja og 4ra herb. íbúðir frá 90
ferm. upp í 112,5 ferm. Íbúðirnar eru vel staðsettar við leiksvæði á fyrsta hluta Valla. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að
innan en án gólfefna en að utan verður húsið með marmarasalla. Afhending íbúðanna er áætluð í janúar–febrúar nk.
Útlitsteikning af fjölbýlishúsinu Burknavöllum 17c, en þar eru Fjarðamót að byggja hús með 54 íbúðum. Í fyrsta áfanga eru byggðar ellefu 3–4 herb. íbúðir á bilinu 87–111 ferm. að stærð, allar með sér-
inngangi af svölum, sem eru lokaðar af með gleri. Húsið verður klætt að utan og allur frágangur hinn vandaðasti. Hönnuður er Sigurður Þorvarðarson byggingafræðingur. Verð á íbúðunum er á bilinu 11,9–
14,5 millj. kr., en þær eru til sölu hjá Hraunhamri, Fasteignastofunni og Ási.
Bárður Tryggvason, sölustj., Þórarinn Friðgeirsson, sölum., Bogi Pétursson, sölum.,
Magnús Gunnarsson, sölum. atv.húsn., Margrét Sigurgeirsdóttir, ritari,
Jóhanna S.B. Ólafsdóttir, ritari, Guðrún Pétursdóttir, skjalag.,
Kristinn Kolbeins., viðskfr., lögg. fasteignas., Ingólfur Gissurarson, lögg. fasteignas.
www.valholl. is
www.valholl.is - www.nybyggingar.is
Þar sem þú finnur allar okkar eignir
Okkur vantar strax eftirtaldar
eignir á söluskrá okkar:
• 2ja herbergja íbúðir í Breiðholti, Árbæ,
Grafarvogi, austur- eða vesturbæ og í Kópa-
vogi. Allt að því staðgreiðsla í boði.
• 3ja herbergja íbúðir í Grafarvogi, Árbæ,
Seltjarnarnesi og Kópavogi.
• 4ra herbergja íbúðir í austur- og vesturbæ
Reykjavíkur, Kópavogi og Seljahverfi.
• Sérhæðir í öllum hverfum.
• Einbýlishús, raðhús og parhús á Reykjarvíkur-
svæðinu
Mikil eftirspurn er eftir öllum stærðumog gerðum eigna
og við minnum á að það hefur sjaldan eða aldrei verið
hagstæðara að selja en nú, þar sem yfirverð er á hús-
bréfum og mjög gott verð í boði fyrir eignir í dag.
Ef þið eruð í söluhugleiðingum eða með eign
í almennri sölu og/eða langar til að breyta til,
þá endilega hafið samband við okkur.
Vantar eignir
- einstakt sölutækifæri
www.valholl.is - opið mán.- fimmtud. 9-17.30, föstud. frá kl. 9-17. Lokað um helgar.
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
564 1500
25 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
SÉRBÝLI
Hraunhólar - 165 fm einbýli hæð
og ris, 48 fm bílskúr, 2000 fm lóð með
miklum trjágróðri. Frábær staðsetning.
Hvassaleiti 211 fm mikið endurnýjað
endaraðhús, þar af 26 fm bílskúr. Í
kjallara er sér 39 fm íbúð. Eign í góðu
ástandi, laus fljótlega.
Miðsalir Parhús í byggingu með, 177
fm á tveimur hæðum, 3 svefnherb. Afhent
tilbúið að utan, fokhelt að innan.
Innbyggður bílskúr fylgir hvorri eign.
Hvannhólmi 205 fm einb. á tveimur
hæðum, vandaðar innréttingar, hægt er
að hafa sér íbúð á neðri hæð, 25 fm
bílskúr.
Birkigrund 196 fm parhús á tveimur
hæðum, 5 svefnherbergi, suðursvalir og
garður, í kjallara er lítill tveggja herbergja
ósamþykkt íbúð. 25 fm sérbyggður
bílskúr.
Krossalind 146 fm parhús á tveimur
hæðum, 5 svefnherbergja stofa með
vestursvölum, 28 fm innbyggður bílskúr.
Reynigrund 126 fm raðhús á
tveimur hæðum, 4 svefnherb. suður svalir,
25 fm bílskúr, laust strax.
Helgubraut 248 fm endaraðhús með
um 45 fm aukaíbúð íbúð í kjallara með
sérinngangi. Góðar innréttingar, parketi
og flísar.
Álfhólsvegur 130 fm miðhæð með
sér inngangi, 4 svefnh. rúmgóð stofa,
stórar eikarinnréttingar í eldhúsi, íbúðin
hefur nýlega verið öll endurnýjuð.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐIR
Njálsgata 46 fm í kjallara í þríbýli.
Verð 7,0 m.
Hamraborg Mjög góð 56 fm, íbúð á
3. og efstu hæð, eikarparket á gólfum,
suður svalir. Laus stax. Lyklar á skrifstofu.
3-4RA HERBERGJA ÍBÚÐIR
Kjarrhólmi 75 fm á 3. hæð, tvö
svefnherb. rúmgóð stofa með
suðursvölum, sérþvottahús
SUMARBÚSTAÐIR
Þingvallavatn Á lóðinni er tvö
sumarhús annað um 43 fm, hitt um 20 fm,
einnig er bátahús um 23,4 fm. Húsin
standa á lóð við vatnið. Laust strax.
Vegna mikillar sölu síðustu daga vantar okkur allar
stærðir eigna á skrá í Kópavogi.
Sjá nánar fleiri eignir á netinu www.eignaborg.is/—