Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 35
Mjólkurhátíð SÁÁ og Dala-
manna að Staðarfelli í Dölum
verður haldin helgina 4.–6. júlí nk.
Þetta er fjölskylduhátíð og munu
tónlistarmenn og skemmtikraftar
eins og KK, Magnús Eiríksson og
Halli og Laddi skemmta gestum. Á
laugardagskvöldinu leika Eyjólfur
Kristjánsson og Íslands eina von
fyrir dansi en á föstudagskvöldinu
leikur hljómsveitin Bikkebane fyr-
ir dansi. Á dagskrá eru einnig
íþróttir og leikir fyrir börnin,
söngvarakeppni, kennsla í línu-
dansi, varðeldur og brekkusöngur.
Aðgangseyrir er 3.000 kr. en frítt
er fyrir börn innan 14 ára.
Viltu gróðursetja tré ofan á
gömlu götunni þinni? Skógrækt-
arfélag Vestmannaeyja hefur nú
með tilstuðlan Pokasjóðs, tækni-
deildar bæjarins og fleiri aðila
komið fyrir skiltum með nöfnum
gatna sem liggja undir hrauni og
vikri í landgræðsluskóginum aust-
an við bæinn. Gróðursetningar hóf-
ust fyrir þremur árum í Hrauns-
kógi og er ætlunin að þarna verði
kjarri- og jafnvel skógivaxið úti-
vistarsvæði þegar fram líða stund-
ir. Í tilefni af 30 ára goslokaafmæli
sem verður í byrjun júlí, vill Skóg-
ræktarfélagið benda áhugasömum,
fyrrverandi íbúum við götur sem
fóru undir hraun og vikur að til-
valið er að gróðursetja tré því sem
næst ofan á gömlu götunni. Ein
þeirra gatna sem hurfu fyrir 30 ár-
um var Grænahlíð. Skilti sem sýnir
stefnu götunnar var sett upp í
fyrrasumar og riðu Grænhlíðungar
þá á vaðið með því að gróðursetja
tré í laut eina skammt þar frá.
Golfmót Átthagafélags Stranda-
manna fer fram á Hlíðavelli í Mos-
fellsbæ sunnudaginn 29. júní,
stundvíslega kl. 10. Þátttöku skal
tilkynna í golfskálanum.
Á NÆSTUNNI
Mannréttindi og Mið-Austurlönd.
Mannréttindaskrifstofa Íslands efn-
ir til rabbfundar um mannréttindi og
Mið-Austurlönd, á morgun, miðviku-
daginn 25. júní, kl. 16.30, á Litlu-
Brekku við Bankastræti. Magnús
Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur
í Mið-Austurlandafræðum, er stadd-
ur á landinu og mun spjalla við fund-
argesti um ástand mála við botn
Miðjarðarhafs í kjölfar stríðsins í
Írak og vaxandi átaka í Palestínu.
Fundurinn er öllum opinn.
Hvað er ósnortin náttúra? Banda-
rískur umhverfissagnfræðingur,
Harriet Ritvo, mun halda hádeg-
isfyrirlestur í Norræna húsinu í
Reykjavík á morgun, miðvikudaginn
25. júní, kl. 12. Harriet Ritvo starfar
sem prófessor við háskóla
Massachusetts Institute for Techno-
logy (MIT) og fjallar í núverandi
rannsóknum sínum um grundvöll
náttúruverndar. Í fyrirlestri sínum
mun Ritvo fjalla um hvað sé ósnortin
náttúra og hvort mannvirki og at-
hafnir mannsins séu raunveruleg
náttúruspjöll eða einfaldlega breyt-
ing á náttúru sem óháð aðgerðum og
mannvirkjum manna tekur sífelld-
um breytingum.
Landvernd og Hið íslenska nátt-
úrufræðifélag standa að fyrirlestr-
inum sem er öllum opinn og aðgang-
ur ókeypis.
Á MORGUN
LÝST er eftir vitnum að um-
ferðaróhappi á bifreiðastæði við
Kárastíg 14–16 í Reykjavík,
fimmtudaginn 19. júní á milli kl.
8.45 og 12. Ekið var framan á
ljósgráa Toyota Corolla-fólks-
bifreið sem lagt var þar í bif-
reiðastæði og fór tjónvaldur af
vettvangi. Þeir sem upplýsingar
geta veitt um mál þetta eru vin-
samlega beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum
STYRKJUM frá Rekstrarvörum,
RV, fyrir árið 2003 hefur verið
úthlutað. Fyrr á þessu ári voru
styrkirnir auglýstir og bárust tug-
ir umsókna frá félögum og sam-
tökum. Sérstök dómnefnd fór yfir
allar umsóknir og ákvað að eft-
irtalin félög skyldu hljóta rekstr-
arvörustyrki í ár: Handknattleiks-
félag Kópavogs, 250.000 krónur;
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljóts-
vatni, 125.000 krónur; Vernd,
fangahjálp, 125.000 krónur.
Rekstrarvörur eru sérhæft
dreifingarfyrirtæki sem sinnir
þörfum fyrirtækja og stofnana
fyrir almennar rekstrar- og hrein-
lætisvörur, og veitir margvíslega
þjónustu og ráðgjöf á því sviði.
RV leggur áherslu á heildarlausn
hreinlætis- og öryggismála, svo
og hjúkrunarvörur fyrir stofnanir
og einstaklinga. Árlega veitir fyr-
irtækið íþrótta-, líknar-, félaga-
og menningarsamtökum, sem
sinna þörfum samfélagsverk-
efnum, styrki í formi úttektar á
rekstrar- og fjáröflunarvörum hjá
RV, segir í fréttatilkynningu.
Hlutu styrki frá
Rekstrarvörum
SÍMINN og Landlæknisembættið
gerðu í dag samstarfssamning þess
efnis að Síminn styrki Þjóðarátak
gegn þunglyndi – fækkum sjálfs-
vígum.
Samkvæmt samningnum styrkir
Síminn verkefnið með einnar millj-
ónar króna framlagi og er því kom-
inn í hóp fleiri fyrirtækja sem gera
embættinu kleift að standa undir
kostnaðarsömu verkefni. Síminn
hefur lagt á það áherslu að styðja
við samfélagsleg verkefni.
Undirritun samningsins fór fram
í húsnæði Símans og var það Heið-
rún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans, sem skrifaði undir f.h. fyr-
irtækisins en Sigurður Guðmunds-
son f.h. Landlæknisembættisins.
Síminn styrkir
Þjóðarátak
gegn þunglyndi
Heiðrún Jónsdóttir og Sigurður
Guðmundsson.
UM helgina var 31 um-
ferðaróhapp með eigna-
tjóni tilkynnt til lög-
reglu. Níu ökumenn
voru grunaðir um ölvun við akstur
og 31 tekinn fyrir of hraðan akstur.
Um helgina var tilkynnt um 24
innbrot. Eitt slíkt var rétt fyrir há-
degi á föstudag í Breiðholtinu. Til-
kynnandi kvaðst hafa farið út úr
húsinu kl. 10 um morguninn og
komið aftur heim um klukkustund
síðar. Þá var búið að brjótast inn og
stela m.a. skartgripum og róta tals-
vert í hirslum. Málið er í rannsókn.
Á föstudag var tilkynnt um rauð-
an vörubíl á Suðurlandsveginum,
með malarfarm, á leið til Reykjavík-
ur. Mölinni rigndi yfir bifreiðar sem
á eftir voru. Tilkynnandi sagði að
tjón væri á bifreið sinni. Vörubif-
reiðin fannst hins vegar ekki. Við
Hlaðhamra varð bréfberi fyrir því
að hundur beit í vinstri hönd hans.
Fór hann á slysadeild þar sem gert
var að sárum hans og honum gefið
stífkrampasprauta og sýklalyf.
Um kl. 22.30 óskuðu öryggisverð-
ir verslunarmiðstöðvar eftir aðstoð
lögreglu. Piltar höfðu látið inn-
kaupakerrur detta milli hæða og
eyðilögðust þær. Faðir eins piltanna
kom og sótti þá.
Rétt eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags var kvartað yfir ónæði
frá börnum að leik í Breiðholtinu.
Börnin hættu leik er lögregla kom á
vettvang. Um kl. 1.30 var tilkynnt
um menn vera að brjótast inn í bif-
reiðar í Breiðholtinu. Reyndust
þetta vera þrír piltar. Einn þeirra
var handtekinn og honum ekið til
foreldra sinna sem voru í sumarbú-
stað. Um þrjúleytið var tilkynnt um
þjófnað á skemmtistað. Hafði veski
verið stolið sem í voru verðmæti
fyrir 30 þúsund krónur. Um svipað
leyti var brotist inn í íbúð í Árbæn-
um og þaðan stolið leikjatölvu,
geislaspilara, tölvuleikjum og DVD-
myndum.
Um hálffjögurleytið aðfaranótt
laugardags var tilkynnt um mann
með falsaða 1.000 króna seðla. Mað-
urinn var handtekinn og fluttur á
lögreglustöð. Við leit á honum fund-
ust fíkniefni en engir peningaseðlar
og var hann vistaður í fanga-
geymslu. Um svipað leyti varð mað-
ur fyrir líkamsárás í miðbænum og
var hann fluttur á slysadeild með
sjúkrabifreið.
Köstuðu e-töflum
út um bílgluggann
Aðfaranótt laugardags reyndi
lögregla að stöðva bifreið á Vatns-
mýrarvegi. Sást hvar poka með
hvítu efni í var hent út um glugga
bílstjóramegin. Bifreiðin var síðan
stöðvuð og voru ökumaður og þrír
farþegar handteknir og fluttir á
stöð. Poki þessi fannst skömmu síð-
ar og voru í honum e-töflur. Leitað
var í bifreiðinni með aðstoð lög-
regluhunds sem og heima hjá öku-
manni. Ekkert saknæmt kom út úr
þeirri leit. Teknar voru skýrslur og
voru þau laus eftir það.
Um kl. 22.30 var bifreið stöðvuð í
Skipholti þar sem menn voru taldir
tengjast þjófnaði fyrr um kvöldið.
Við nánari athugun passaði lýsing á
tveimur farþegum við þjófnaðinn og
voru þeir handteknir. Við leit í bif-
reiðinni fannst kvenmannsveski
með skilríkjum sem stolið hafði ver-
iðfyrr um kvöldið. Einnig var tölu-
vert af tóbaki, símakortum o.fl.
Rétt fyrir kl. 5 á sunnudagsmorg-
un var tilkynnt um líkamsárás í
miðbænum. Flaska hafði brotnað á
höfði manns er henni var slegið í
höfuð hans. Maðurinn var líka með
áverka á höku. Góð lýsing fékkst á
árásarmönnum. Maðurinn var flutt-
ur með forgangi á slysadeild, með-
vitundarlítill. Í Borgartúni var bif-
reið stöðvuð. Ökumaður blés yfir
mörkum, var hann handtekinn og
fluttur á stöð. Þegar reynt var að
ræða við ökumanninn sparkaði hann
í afturrúðu lögreglubifreiðarinnar.
Á lögreglustöðinni sparkaði hann í
lögreglumenn. Ökumaður var settur
í handjárn á vettvangi og var hann
ekki losaður úr þeim fyrr en hann
var látinn laus.
Úr dagbók lögreglunnar 20. til 23. júní
24 innbrot auk fíkni-
efnamála um helgina
HÚSNÆÐI ÓSKAST
RAÐAUGLÝSINGAR
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða
543 1000 um skiptiborð.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í
Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og
slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–
24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl.
9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími
585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólar-
hringinn, s. 525 1710 eða 525 1000.
EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólarhring-
inn. S. 525 1111 eða 525 1000.
ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar-
hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð.
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112