Morgunblaðið - 26.06.2003, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR
42 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
uppstilling þeirra athygli því með
einhverjum rökum má segja að þeir
hafi leikið 4-4-2 þó svo Finnur fyrir-
liði Kolbeinsson hafi leikið nokkuð
framarlega á miðjunni.
Leikurinn jafnaðist heldur er á
leið fyrri hálfleikinn en heimamönn-
um tókst þó ekki að skapa sér færi.
Gestirnir náðu þremur skotum sem
hittu á markið, Þórður Þórðarson
náði að slá boltann frá marki eftir
gott skot Theódórs Óskarssonar úr
aukaspyrnu á 15. mínútu. Stundar-
fjórðungi síðar var mikill atgangur í
vítateig ÍA eftir hornspyrnu en varn-
armönnum liðsins tókst að komast
fyrir skot Fylkismanna hvað eftir
annað þannig að ekkert varð úr.
Hrafnkell Helgason, sem er hávax-
inn, reyndist þó aðeins of stuttur í
annan endann skömmu síðar þegar
hann náði ekki alveg til knattarins
eftir góða fyrirgjöf frá vinstri.
Síðari hálfleikur hafði ekki staðið
nema í 50 sekúndur þegar Sverrir
Sverrisson varð að fara meiddur af
velli og Björn Viðar Ásbjörnsson tók
Stigið sem Fylkir fékk nægði lið-inu þó til að halda efsta sæti
deildarinnar og trúlega er sú niður-
staða eitt af því fáa
sem Árbæingar geta
glaðst yfir eftir leik
kvöldsins. Liðin
höfðu aldrei gert
jafntefli, leikir þeirra í efstu deild
voru orðnir tólf, þar af sex á Akra-
nesi og hafði ÍA unnið fimm þeirra,
en það breyttist í gær.
Fyrri hálfleikur var ekki skemmti-
legur. Gestirnir léku undan strekk-
ingsvindi, byrjuðu betur en heima-
menn en þeim gekk erfiðlega að
skapa sér færi. Það sem þó vakti
einna mesta athygli fyrstu mínút-
urnar var búningur Fylkismanna því
þeir voru grænklæddir og eins vakti
við af honum og fór fram þannig að
nú voru þrír í framlínu Fylkis eins og
venja er til.
Það breytti því hins vegar ekki að
gestirnir náðu aðeins einu skoti sem
rataði á markið – og það kom þeim
yfir. Markið kom mjög gegn gangi
síðari hálfleiks enda hafði Skaginn
sótt mikið og Fylkismenn varist eins
og þeir gátu en áttu í hinu mesta
basli með að byggja upp leik sinn
fram völlinn.
Stefán Þórðarson átti fínt skot að
marki á 50. mínútu sem Kjartan
varði vel og Guðjón Sveinsson fékk
besta færi leiksins skömmu síðar en
skaut naumlega framhjá.
Á 74. mínútu kom markaskorarinn
Hjörtur Hjartarson inn á í liði ÍA en
hann hafði skorað í fjórum síðustu
leikjum liðanna. Hann hafði aðeins
verið inn á í fimm mínútur þegar
boltinn lá í netinu – raunar neti ÍA.
Heimamenn voru ekki lengi að
svara marki Fylkis því mínútu síðar
jafnaði Grétar Rafn Steinsson og þar
við sat. Varnarleikur ÍA var traustur
enda naut vörnin dyggrar aðstoðar
miðjumannanna. Markið var þó
mjög ódýrt og Þórður markvörður
gerði þar mistök. Julian Johnson átti
fínan leik. Hjá gestunum var Arnar
Þór Úlfarsson bestur.
Finnur Kolbeinsson, fyrirliðið Fylkis, reynir hér að ná knett-
inum af Pálma Haraldssyni.
Fyrsta jafntefli
ÍA og Fylkis
ÞAÐ var ekki sérlega rismikil knattspyrna sem leikmenn ÍA og Fylk-
is buðu upp á þegar þeir mættust í efstu deild karla í knattspyrnu,
sem nú um stundir nefnist Landsbankadeild. Jafntefli var niður-
staðan, hvoru liði tókst að skora einu sinni og voru mörkin bæði
frekar af ódýrari gerðinni.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Við náðum okkur vel á strik í dagog vorum óheppnir að gera
ekki fleiri mörk í fyrri hálfleik. Í
síðari hálfleik lékum
við mjög agaðan
varnarleik og lokuð-
um á alla þeirra
flinkustu leikmenn
og það endaði með því að þeir fóru
að leika löngum boltum sem hentar
okkur ágætlega.“
Það var áberandi hversu vel þið
komuð stemmdir í leikinn. Breytt-
irðu einhverju í undirbúningnum?
Nei, það gerði ég ekki, ég breytti
aðeins uppstillingunni á liðinu.
Munurinn á Grindavíkurliðinu í
kvöld og í fyrri leikjum á mótinu er
sá að nú börðust menn hver fyrir
annan. Svo var leikgleðin áberandi
meiri í kvöld en í hinum leikjunum.
Það er engin spurning að yngri
leikmenn í liðinu hafa tekið sig sam-
an í andlitinu og áttað sig á því að
þeir þurfa að axla meiri ábyrgð við
brotthvarf Lee Sharpes og Grétars
Hjartarsonar. Nú er stutt á toppinn
en ennstyttra í botninn. Þetta verð-
ur sami bardaginn áfram og við ætl-
um ekki að fara að setja okkur ein-
hver ný stórkostleg markmið
heldur þurfum við að halda áfram
að vinna í okkar málum,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, sigurreifur
þjálfari Grindavíkur í samtali við
Morgunblaðið.
Alltaf jafn leiðinlegt að tapa
Kristinn Hafliðason, miðvallar-
leikmaður KR-inga var niðurlútur
að leik loknum í vesturbænum í
gær. „Það er alltaf jafn leiðinlegt að
tapa,“ sagði Kristinn þegar undir-
ritaður gekk að honum á KR-vell-
inum. „Það var algjört andleysi í
liðinu í fyrri hálfleik. Það var sem
við værum ekki með hugann við það
sem við áttum að vera að gera. Í
síðari hálfleik sýndum við smá lífs-
mark en síðan gerðum við mistök í
vörninni sem urðu okkur dýrkeypt.
Varðandi sóknarleikinn þá vantar
einhvern brodd í hann, við pressum
liðin stíft en náum ekki að skapa
okkur nógu mörg marktækifæri.
En nú eru 11 umferðir eftir og við
KR-ingar erum hvergi nærri búnir
að leggja árar í bát, svo mikið er
víst,“ sagði Kristinn Hafliðason í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Eftir
Hjörvar
Hafliðason
Barátta og
leikgleði
„NÚ hlýtur spurningalisti ykkar íþróttafréttamanna að fara að vefj-
ast fyrir ykkur,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindvíkinga, í
leikslok á KR-vellinum í gær og átti þar við endalausar getgátur
íþróttafréttamanna um hvort Bjarni væri á leið úr starfi eður ei. Það
var greinilegt að Bjarni naut sigurs gærkvöldsins til hins ýtrasta og
var hæstánægður með lærisveina sína.ÍA 1 :1 Fylkir
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
7. umferð
Akranesvöllur
Miðvikudaginn 25. júní,
2003.
Aðstæður:
Suðaustan strekkingur, þurrt
og glæsilegur völlur.
Áhorfendur: 1715.
Dómari:
Ólafur Ragnarsson, Hamar,
3.
Aðstoðardómarar:
Hans Scheving,
Eyjólfur Finnsson.
Skot á mark: 11(4) – 7(4)
Hornspyrnur: 9 – 2
Rangstöður: 1 – 0
Leikskipulag: 4-4-2
Þórður Þórðarson
Kári Steinn Reynisson
Gunnlaugur Jónsson M
Reynir Leósson
Andri Lindberg Karvelsson
Grétar Rafn Steinsson M
Julian Johnsson M
Pálmi Haraldsson M
Baldur Aðalsteinsson
(Ellert Jón Björnsson 63.)
Stefán Þór Þórðarson
(Garðar Gunnlaugsson 60.)
Guðjón H. Sveinsson
(Hjörtur J. Hjartarson 74.)
Kjartan Sturluson
Helgi Valur Daníelsson M
Valur Fannar Gíslason M
Þórhallur Dan Jóhannsson
Arnar Þór Úlfarsson M
Ólafur Ingi Skúlason M
Hrafnkell Helgason
(Kjartan Antonsson 70.)
Sverrir Sverrisson
(Björn Viðar Ásbjörnsson 47.)
Finnur Kolbeinsson
Theódór Óskarsson
(Ólafur Páll Snorrason 57.)
Haukur Ingi Guðnason
0:1 (79.) Finnur Kolbeinsson gaf háa sendingu inn á vítateigslínu Skagamanna
þar sem Þórður Þórðarson markvörður ÍA ætlaði sér að handsama
knöttinn en Arnar Þór Úlfarsson stökk hærra en Þórður og skallaði
knöttinn aftur fyrir sig og í markið. Knötturinn fór rólega yfir marklínuna
en Gunnlaugur Jónsson var nærri því að ná til knattarins.
1:1 (80.) Reynir Leósson gaf háa sendingu inn á vítateig Fylkis þar sem Grétar
Rafn Steinsson tók við knettinum við hægra vítateigshornið. Grétar
snéri á varmarmann Fylkis og skaut knettinum í boga í fjærhornið yfir
Kjartan Sturluson markvörð Fylkis.
Gul spjöld: Theódór Óskarsson, Fylkir (21.) fyrir brot. Kári Steinn Reynisson, ÍA (90.)
fyrir mótmæli.
Rauð spjöld: Engin.
„ÉG er alls ekki sáttur við að gera
enn eitt jafnteflið, það fjórða hjá
okkur í deildinni. Það er dýrt að gera
svona mörg jafntefli og ef við ætlum
okkur að vera í efri hlutanum verð-
um við að fara að vinna leiki,“ sagði
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA.
„Vörnin var ágæt hjá okkur og því
var blóðugt að fá á sig svona ódýrt
mark. Okkur vantar enn þá að skapa
fleiri færi og í raun átti það við um
bæði liðin í kvöld. Þetta var daufur
leikur, barátta þar sem liðin náðu
ekki að skapa sér neitt og leikurinn
var örugglega ekki mikil skemmtun
fyrir áhorfendur,“ sagði Gunnlaugur
sem taldi liðið þó vera á réttri leið.
„Miðað við hvernig leikurinn þró-
aðist þá verð ég að vera sáttur við
eitt stig, en þetta var ekki ýkja
merkilegur leikur. Það var lítið í
gangi hjá liðunum enda virtist sem
hvorugt þeirra þyrði að taka nokkra
áhættu,“ sagði Aðalsteinn Víglunds-
son, þjálfari Fylkis. „Það má auðvit-
að alltaf sjá eitthvað jákvætt úr
hverjum leik og vinna síðan út frá
því. Það hefur verið rót á vörninni
hjá okkur í sumar en í kvöld vantaði
betri vinnslu fram á við. Það var mun
jákvæðara að fara heim með 1:1 jafn-
tefli en 0:0,“ sagði þjálfarinn.
Of mörg
jafntefli
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í
handknattleik karla hafa tilkynnt
þátttöku handknattleiksliðs síns í
Meistaradeild Evrópu, en ekkert ís-
lenskt lið hefur tekið þátt í henni
síðan KA keppti þar fyrir sex árum.
„Við erum búnir að vega þetta og
meta síðan við unnum okkur rétt til
að taka þátt í þessu í vor,“ sagði
Eiður Arnarson, formaður hand-
knattleiksdeildar Hauka, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Auðvitað
verður þetta erfitt fjárhagslega og
við gerum okkur grein fyrir því. En
við teljum þetta bæði mikilvægt
fyrir félagið og eins fyrir hand-
knattleikinn í landinu og því hyggj-
umst við þráast við,“ sagði Eiður.
Hann sagði alla gera sér grein
fyrir því að þessu fylgdi aukið álag
á leikmenn félagsins. „Ef við kom-
umst í riðlakeppnina eru það sex
leikir sem við þurfum að leika
heima og að heiman á tímabilinu
10. október til 30. nóvember og sá
tími yrði erfiður vegna fjölda leikja
hjá strákunum,“ sagði Eiður.
Haukar eru ekki öruggir um að
komast í riðlakeppnina því til að
komast þangað þurfa þeir fyrst að
leggja eitthvert lið að velli. Ekki
skýrist fyrr en 15. júlí hvaða lið það
verður en þá verður dregið í keppn-
inni. Komist liðið áfram, en leikið
verður heima og að heiman, er það
komið í riðlakeppnina.
Þegar KA-menn tóku þátt í
Meistaradeildinni mættu þeir Badel
Zagreb frá Króatíu, Celje Lasko frá
Slóveníu og Trieste frá Ítalíu.
Haukar ætla í Meistara-
deildina í handknattleik
CARLOS Queiroz var í gær ráðinn
þjálfari hjá nýkrýndum Spánar-
meisturum, Real Madrid. Queiroz
tekur við af Vicente del Bosque sem
leystur var frá störfum síðasta
mánudag, daginn eftir að hann
stýrði liðinu til síns 29. meistaratit-
ils á Spáni. Queiroz var aðstoðar-
maður Sir Alex Ferguson hjá Man-
chester United á síðustu leiktíð og
hittir m.a. David Beckham fyrir hjá
Madridarliðinu. Queiroz fór til
Spánar í gærmorgun til viðræðna
við forráðamenn Real og skömmu
síðar leysti Manchester United
hann frá störfum. Fáeinum stund-
um síðar var tilkynnt að Queiroz
hefði náð samkomulagi við Real en
ráðning hans hafði legið í loftinu
síðan á mánudagskvöld.
Queiroz til
Madridar